17 JAEL
„Blessuð framar öllum konum“
SÍSERA flúði af Jesreelsléttunni þar sem hann hafði skilið menn sína eftir bjargarlausa. Hann trúði því varla að öflugur her hans, með 900 ógnvekjandi stríðsvögnum, hefði lotið í lægra haldi fyrir illa vopnuðum fótgönguliðum Ísraelsmanna. Núna hugsaði hann ekki um neitt annað en hvar hann gæti falið sig. Hann tók stefnuna á tjöld Hebers Keníta.
Á heildina litið voru Kenítar bandamenn Ísraelsmanna. Tengsl þeirra náðu allt aftur til daga Móse en eiginkona hans var Keníti. Núna bjuggu þessir hirðingjar í Ísrael. En Heber var ekki bandamaður Ísraelsmanna eins og aðrir Kenítar heldur hafði hann gert bandalag við Jabín, konung í Kanaan. Sísera, hershöfðingi Jabíns, taldi því að sér væri óhætt að leita skjóls í tjöldum Hebers. Honum datt greinilega ekki í hug að Jael kona Hebers væri á annarri skoðun en maðurinn hennar.
Jael var heima við en maðurinn hennar var í burtu. Hún þurfti að hugsa hratt þegar hún sá Sísera nálgast. Án efa vissi hún hver hann var og hversu hættulegur hann var. Hún vissi kannski ekki hvað Debóra, spákona Jehóva, hafði sagt um Sísera – að kona en ekki karlmaður myndi verða honum að bana. Það má þó vera að Jael hafi vitað hvað Jehóva vildi að hún gerði. Af hverju drögum við þá ályktun?
Debóra samdi síðar innblásið sönglag um sigur Baraks yfir Sísera. Þar sagði: „Blessuð framar öllum konum er Jael, eiginkona Hebers Keníta, hún er blessuð framar öllum konum sem búa í tjöldum.“ Jael var hvorki undirförul né grimm eins og sumir gagnrýnendur hafa lýst henni. Öllu heldur var hún hugrökk og átti sinn þátt í bardögum Jehóva. Hún kaus að taka afstöðu með Jehóva gegn óvinum hans eins og Rahab hafði gert. Hún vissi að Sísera var hatrammur andstæðingur Jehóva og að nú hefði hún kjörið tækifæri til að gera það sem Jehóva vildi. Spurningin var bara hvernig.
Sísera var þrautreyndur hermaður og örugglega mjög sterkur. Jael vissi að það kæmi ekki til greina að berjast við þennan mann í návígi. Hún bauð honum því inn í tjaldið til að næra sig og hvílast. Hún breiddi yfir hann teppi og gaf honum mjólk að drekka þegar hann bað um vatn. Hann skipaði henni að standa vörð við tjalddyrnar og ljúga ef einhver spyrði hvort það væri maður inni í tjaldinu. Síðan steinsofnaði hann.
Jehóva valdi konu til að drepa grimman hershöfðingja.
Jael vissi að stundin var runnin upp. Hún náði sér í verkfæri sem hún hafði líklega notað oft – þungan hamar og tjaldhæl, hvort tveggja sennilega úr tré. Hún læddist að sofandi manninum, beygði sig niður við höfuð hans og reiddi hamarinn á loft. Minnstu mistök hefðu án efa orðið til þess að hún hlyti hrottalegan dauðdaga. En Jael gekk fumlaus og örugg að verki. Augnabliki síðar lá Sísera dauður við fætur hennar – með tjaldhælinn gegnum gagnaugað!
Stuttu síðar birtist Barak dómari en hann hafði veitt Sísera eftirför. Jael gekk út á móti honum og sagði: „Komdu, ég skal sýna þér manninn sem þú ert að leita að.“ Barak fór inn í tjaldið og sá að spádómur Debóru hafði ræst: „Jehóva mun gefa Sísera í hendur konu.“
Barak og Debóra lofuðu Jael í sigursöng sínum. Jael er ekki nefnd í Biblíunni eftir þetta. En saga hennar lifir enn, meira en 3.200 árum síðar. Þjónar Guðs berjast ekki með bókstaflegum vopnum eða verkfærum nú á dögum. Við eigum samt í stríði, andlegu stríði. Og við þurfum meira en nokkru sinni fyrr að vera hugrökk eins og Jael.
Lestu frásögn Biblíunnar:
Til umræðu:
Hvernig sýndi Jael hugrekki?
Kafaðu dýpra
1. Hvaða tengsl eru milli bardagans sem Sísera háði og stríðsins við Harmagedón? (w19.09 8–9 gr. 3–6)
2. Heber eiginmaður Jaelar var bandamaður Kanverja, óvina Ísraels. En hvernig var hann tengdur Ísraelsmönnum? (it „Heber“ nr. 2 – wcgr)
3. Hvernig styrkti það trú þjóna Guðs löngu síðar að hugsa um sigur Ísraelsmanna yfir Sísera og Jabín? (w08 15.10. 14–15 gr. 12–15)
4. Hvernig lofaði Debóra Jael og hvað er eftirtektarvert við það? (w15 1.9. 15 gr. 3) A
Mynd A
Mynd A
Hugleiddu og heimfærðu
Hvenær gæti systir sem á vantrúaðan eiginmann þurft að vera hugrökk eins og Jael?
Jael var hvorki spákona eins og Debóra né hermaður eins og Barak. Hún gerði samt það sem í hennar valdi stóð. Hvað getum við lært af henni ef okkur eru takmörk sett? B
Mynd B
Á hvaða fleiri vegu geturðu sýnt hugrekki eins og Jael?
Horfðu á heildarmyndina
Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?
Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?
Um hvað langar þig að spyrja Jael þegar hún rís upp?
Skoðaðu meira
Sjáðu hvernig ung systir finnur hvöt hjá sér til að boða trúna þegar hún hugsar til Jaelar.
Líkjum ekki eftir huglausu fólki heldur hugrökku – ekki íbúum Merós heldur Jael (1:40)
Jael er aðeins ein kona af mörgum sem við getum lært af. Lestu um nokkrar þeirra.
„Konur í Biblíunni – hvað getum við lært af frásögunum um þær?“ (ijwbq grein 161)