Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
Íslensk rit (1985-2027)
Útskrá
Innskrá
Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Velkomin.
Hér er hægt að leita í ritum sem Vottar Jehóva hafa gefið út á fjölda tungumála.
Til að hlaða niður ritum geturðu farið inn á jw.org.
  • Í dag

Föstudagur 16. október

„Láttu hjartað ekki tælast inn á vegi hennar, villstu ekki inn á leiðir hennar.“ – Orðskv. 7:25.

Frásaga Salómons sýnir hvað getur hent hvern sem er af þjónum Jehóva. Hann gæti drýgt alvarlega synd og seinna fundist allt hafa gerst svo „skyndilega“. Eða hann gæti sagt: Þetta gerðist bara. En ef hann hugsar út í hvað gerðist í raun og veru uppgötvar hann líklega að hann hafi tekið óskynsamlegar ákvarðanir sem leiddu til þess að hann syndgaði. Þessar ákvarðanir gætu hafa tengst röngum félagskap, óheilnæmu afþreyingarefni eða þá að hann hefur farið á vafasama staði í eigin persónu eða á netinu. Kannski var hann líka hættur að biðja, lesa í Biblíunni, sækja samkomur eða taka þátt í boðuninni. Rétt eins og hjá unga manninum sem er rætt um í Orðskviðunum hefur hann kannski ekki syndgað svo skyndilega. Hvað lærum við? Við þurfum ekki bara að forðast syndina sjálfa heldur þær ákvarðanir sem gætu leitt til syndar. Það er einmitt þetta sem Salómon bendir á eftir frásögu sína. – Matt. 5:29, 30. w24.07 16 gr. 10, 11

Rannsökum Ritningarnar daglega – 2026

Laugardagur 17. október

„Við geymum þennan fjársjóð í leirkerum.“ – 2. Kor. 4:7.

Hver er þessi fjársjóður? Hann er það björgunarstarf að flytja öðrum boðskapinn um Guðsríki. (2. Kor. 4:1) Hver eru leirkerin? Þau tákna þjóna Guðs sem segja öðrum frá fagnaðarboðskapnum. Á dögum Páls notuðu kaupmenn leirkrukkur til að flytja verðmætan varning eins og mat, vín og peninga. Á líkan hátt treystir Jehóva okkur fyrir fagnaðarboðskapnum dýrmæta. Þar sem Jehóva stendur við bakið á okkur fáum við styrk til að koma boðskapnum trúfastlega til skila. Við getum stundum fundið fyrir ótta við menn eða ótta við höfnun. Hvernig er hægt að sigrast á því? Leiddu hugann að bæn postulanna þegar þeim var skipað að hætta að boða trúna. Í stað þess að láta undan óttanum báðu þeir Jehóva um að hjálpa sér að halda áfram að tala óttalaust. Jehóva svaraði bæn þeirra samstundis. (Post. 4:18, 29, 31) Ef ótti við menn hindrar þig stundum í að boða öðrum trúna skaltu biðja Jehóva um að styrkja kærleika þinn til fólks, þá geturðu sigrast á óttanum við að tala við það. w24.04 16 gr. 8, 9

Rannsökum Ritningarnar daglega – 2026

Sunnudagur 18. október

„Faðir okkar á himnum, við biðjum að nafn þitt helgist.“ – Matt. 6:9.

Við elskum Jehóva og þess vegna viljum við helga nafn hans. Þetta þýðir að við segjum fólki að það sem Satan segir um Jehóva séu hræðilegar lygar. (1. Mós. 3:1–5; Job. 2:4; Jóh. 8:44) Í boðuninni er okkur mikið í mun að verja orðstír Guðs og segja öðrum sannleikann um hann. Við viljum að allir fái að vita að það er kærleikur sem einkennir hann mest, að stjórn hans er réttlát og sanngjörn og að ríki hans mun fljótlega binda enda á allar þjáningar og færa mannkyninu frið og hamingju. (Sálm. 37:10, 11, 29; 1. Jóh. 4:8) Þegar við verjum orðstír Jehóva í boðuninni helgum við nafn hans. Við höfum líka þá fullvissu að við stöndum undir nafni. w24.05 18 gr. 12

Rannsökum Ritningarnar daglega – 2026
Velkomin.
Hér er hægt að leita í ritum sem Vottar Jehóva hafa gefið út á fjölda tungumála.
Til að hlaða niður ritum geturðu farið inn á jw.org.
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila