18 GÍDEON
Hugrakkur og varkár
HUGRÖKK manneskja þarf líka að vera varkár. Ef fólk er ekki varkárt getur hugrekkið orðið að fífldirfsku. Gídeon var bæði hugrakkur og varkár. Á hans dögum voru Ísraelsmenn búnir að yfirgefa Jehóva enn á ný. Jehóva leyfði því Midíanítum að ráðast inn í landið, kúga fólkið og koma í veg fyrir að það gæti skorið upp á ökrum sínum. Ástandið versnaði jafnt og þétt og að lokum sneru Ísraelsmenn sér til Jehóva og báðu hann um hjálp. Hann sendi þá spámann til að minna þá á hvers vegna hann hefði yfirgefið þá.
Dag einn var Gídeon að þreskja korn til að sjá fólki sínu fyrir mat. Hann var varkár og gerði það í vínpressu sem var líklega stór þró höggvin í klöpp. Allt í einu birtist engill Jehóva og segir honum að hann hafi fengið það verkefni að bjarga þjóð sinni. Gídeon biður hann að gefa sér tákn. Engillinn verður við ósk hans. Fyrir kraftaverk lætur hann eld blossa upp úr kletti og gleypa fórn sem Gídeon hefur borið fram. Síðan hverfur engillinn. Um nóttina talar Jehóva til Gídeons og segir honum að brjóta niður Baalsaltari föður síns og helgistólpa. Síðan átti hann að reisa Jehóva altari og færa honum fórn. Gídeon hlýddi en af ótta við föður sinn og borgarbúa gerði hann það að næturlagi þegar hann var viss um að enginn sæi til.
Nokkru eftir að Gídeon sýndi þetta hugrekki gerðu Midíanítar bandalag við Amalekíta og austanmenn og söfnuðu saman miklum her. Þeir héldu inn í Ísrael og fylltu Jesreeldal eins og engisprettusveimur. Andi Jehóva knúði þá Gídeon til að gera út sendiboða og safna liði frá nokkrum ættkvíslum Ísraels til að berjast við þá. Hann var samt varkár og bað Jehóva tvisvar að gefa sér tákn um stuðning sinn. Jehóva var þolinmóður og varð við beiðni hans. Gídeon lagði ullarreifi á þreskivöllinn og um nóttina lét Jehóva það rennblotna af dögg þó að jörðin í kring væri þurr. Nóttina eftir lét hann reifið haldast þurrt þó að dögg væri á jörðinni allt í kring.
Gídeon og menn hans voru ósköp fáir í samanburði við óvinina en Jehóva sagði þeim samt að fækka í liðinu.
Þessi tvö kraftaverk gáfu Gídeon kjark til að halda með aðeins 32.000 manna liði gegn óvinunum sem voru um 135.000. Þegar Ísraelsmenn höfðu sett upp búðir við Haródlind sagði Jehóva Gídeon að hann væri með of fjölmennan her. Hann átti að senda alla heim sem voru hræddir. Aðeins 10.000 menn voru þá eftir. En Jehóva sagði að þeir væru enn þá of margir. Hann sagði Gídeon að fylgjast með mönnunum þegar þeir fengju sér vatn að drekka. Þeir sem lögðust á hnén og beygðu sig niður að vatninu til að drekka voru látnir fara. Þeir sem voru varkárari settust hins vegar á hækjur sínar og drukku vatn úr lófanum en höfðu jafnframt vakandi auga með umhverfinu. Þessir varkáru hermenn voru valdir til að berjast við óvinina. Nú var Gídeon ekki með nema 300 menn!
Þrátt fyrir fámennan her var Gídeon hugrakkur og bjó sig undir að gera árás. Jehóva gaf honum þá enn eina sönnun fyrir því að hann væri með honum. Jehóva sagði honum að laumast inn í herbúðir óvinarins um nóttina. Gídeon gerði það og heyrði hermann segja frá draumi sem gaf til kynna að Ísraelsmenn myndu bera sigur úr býtum. Þegar Gídeon sneri aftur til manna sinna var hann fullkomlega sannfærður um stuðning Jehóva. Hann sagði við þá: „Fylgist með mér og gerið alveg eins og ég.“ Þannig myndu þeir sigra. Þeir dreifðu sér í skjóli myrkurs. Hver og einn var með stóra krukku, blys og horn. Þegar Gídeon gaf merki blésu þeir í hornin, brutu krukkurnar og hrópuðu: „Sverð Jehóva og Gídeons!“ Skyndilegur hávaðinn og ljósin ollu því að óvinirnir héldu að þeir væru umkringdir miklum her. Ofsahræðsla greip um sig og Jehóva lét þá ráðast hver á annan. Aðeins um 15.000 menn lifðu af og lögðu á flótta.
Gídeon veitti þeim eftirför. Hann sigraði að lokum óvinina og tók leiðtoga þeirra af lífi. Hann refsaði líka Ísraelsmönnum sem höfðu neitað að styðja hann og menn hans í stríðinu sem þeir höfðu háð í umboði Jehóva. Síðar vildu Ísraelsmenn gera Gídeon að konungi en hann var auðmjúkur og sagði: „Það er Jehóva sem mun ríkja yfir ykkur.“ Guð launaði honum fyrir hugrekki hans og varkárni. Gídeon átti langa og góða ævi og friður var í landinu á meðan hann var dómari. Öldum síðar telur Páll postuli upp karla og konur sem sýndu einstaka trú og meðal þeirra nefnir hann Gídeon. – Hebr. 11:32.
Lestu frásögn Biblíunnar:
Til umræðu:
Hvernig sýndi Gídeon hugrekki?
Kafaðu dýpra
1. Hvers vegna var ‚kringlótta byggbrauðið‘ í draumi hermannsins líklega viðeigandi tákn um her Gídeons? (Dóm. 7:13; it „Bygg“ gr. 7 – wcgr)
2. Af hverju ætli það hafi valdið ótta og ringulreið meðal Midíaníta að heyra blásið í 300 horn? (it „Horn“ gr. 3 – wcgr) A
Mynd A: Hrútshorn voru notuð til að senda hljóð- eða viðvörunarmerki.
3. Hvað þurftu Gídeon og menn hans að gera til að sigra Midíaníta? (w05 1.1. 14 gr. 9, 10) B
Mynd B: Gídeon elti Midíaníta um 80 kílómetra leið til Jogbeha (nákvæm leið óþekkt).
4. Hvað staðfestir að þessi frásaga Biblíunnar sé rétt? (brw050415 32)
Hugleiddu og heimfærðu
Gídeon fór með forystu þegar þjóð Guðs sigraði óvini sína. En hann var samt hógvær og vingjarnlegur í samskiptum við aðra. (Dóm. 8:1–3) Hvernig geta þeir sem veita fjölskyldu forystu og öldungar líkt eftir Gídeon þegar þeir gera eitthvað sem kemur öðrum í uppnám?
Við hvaða aðstæður getum við þurft að vera bæði hugrökk og varkár? C
Mynd C
Hvernig getur þú sýnt hugrekki eins og Gídeon?
Horfðu á heildarmyndina
Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?
Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?
Um hvað langar þig að spyrja Gídeon þegar hann rís upp?
Skoðaðu meira
Hvernig geturðu líkt eftir Gídeon ef þú færð verkefni í söfnuðinum?
Notaðu þessa myndasögu til að hjálpa börnunum að treysta Guði.