Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg kafli 16 bls. 78–81
  • „Ég skal koma með þér“

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • „Ég skal koma með þér“
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Kafaðu dýpra
  • Hugleiddu og heimfærðu
  • Horfðu á heildarmyndina
  • Skoðaðu meira
  • Vegna trúar hrakti Barak máttugan innrásarher á flótta
    Varðturninn: Vegna trúar hrakti Barak máttugan innrásarher á flótta
  • „Þú komst fram, móðir í Ísrael“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2015
  • Nýr leiðtogi og tvær hugrakkar konur
    Lærum af sögum Biblíunnar
  • Tvær hugrakkar konur
    Biblíusögubókin mín
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg kafli 16 bls. 78–81

16 BARAK OG DEBÓRA

„Ég skal koma með þér“

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

ÞETTA voru myrkir tímar í sögu Ísraels. Landsmenn höfðu gert uppreisn gegn Jehóva og hann leyfði óvinum þeirra að drottna yfir þeim eins og hann hafði varað við. Kanverski konungurinn Jabín var við völd. Sísera, hershöfðingi hans, var hinn mesti grimmdarseggur. Hann fór fyrir fjölmennum her og hafði yfir að ráða 900 vögnum með járnhnífum á hjólunum.

Her Sísera olli miklum usla í landinu um 20 ára skeið. Þegar menn hans réðust á borg eða bæ virðast þeir hafa haft fyrir venju að taka ungar konur til fanga og nauðga þeim. Ógnarstjórnin var slík að fólk var dauðhrætt við að vera á ferli og þorpin voru yfirgefin. Fáir Ísraelsmenn áttu vopn og voru því varnarlitlir.

Á þeim tíma var uppi hugrökk kona sem hét Debóra og var spákona Jehóva. Hún dæmdi líka í erfiðum málum sem fólk lagði fyrir hana. Jehóva fól henni að kalla til mann sem hann hafði valið til að vera dómari í Ísrael og frelsa þjóðina. Hann hét Barak. Debóra sendi eftir honum til að flytja honum fyrirmæli frá Jehóva. Við getum rétt ímyndað okkur hve undrandi Barak var þegar hún sagði honum að hann ætti að kalla saman 10.000 manna herlið og fara með það á Taborfjall. Jehóva lofaði að hann myndi sigra Sísera og herlið hans!

Var Barak of stoltur til að taka við þessum fyrirmælum frá konu? Alls ekki. Hann sagði að hann myndi fara í þessa herferð ef Debóra kæmi með. Þetta var ekki merki um að hann skorti trú. Páll postuli nefnir Barak meðal fjölda karla og kvenna sem sýndu sterka trú. (Hebr. 11:1, 2, 32) Barak sýndi einmitt trú með því að biðja Debóru að koma með sér og mönnum sínum. Hann vissi að hún var spákona Jehóva og hann vildi fá alla þá leiðsögn frá Jehóva sem hægt var. Debóra svaraði honum hugrökk í bragði: „Ég skal koma með þér.“ Hún sagði Barak jafnframt að þótt hann myndi ganga með sigur af hólmi myndi hvorki hann sjálfur né annar karlmaður drepa Sísera. Guð myndi fela konu það verkefni.

Barak lét hendur standa fram úr ermum. Hann lét boð út ganga, kallaði saman 10.000 hugrakka menn og bjó þá vopnum eftir bestu getu. Hann fór með liðið upp á Taborfjall, tignarlegt stapalaga fjall sem er næstum 600 metra hátt. Þaðan höfðu Debóra, Barak og menn hans gott útsýni yfir Jesreelsléttu og í fjarska gátu þau séð her Sísera og vagna nálgast.

Debóra, Barak og hermenn hans uppi á Taborfjalli. Þau horfa á her Sísera og stríðsvagna hans nálgast.

Hvað átti Barak að gera? Ef hann hefði hugsað eins og reyndur hermaður hefði hann kannski beðið þangað til Sísera kæmi með vagnana að rótum Taborfjalls. Það hefði gengið hægt að koma vögnunum upp hlíðarnar og menn Baraks hefðu staðið betur að vígi. En Barak vissi að bardaginn var í höndum Jehóva en ekki hans sjálfs. Þess vegna gerði hann eins og Debóra sagði. Fyrir milligöngu hennar sagði Jehóva Barak að gera árás. Mennirnir streymdu niður fjallshlíðina og út á sléttuna – beint á móti ógnvekjandi stríðsvögnunum!

Dómari og spákona þurftu að takast á við grimman hershöfðingja og vel vopnaðar sveitir hans.

Frá hernaðarlegum sjónarhóli var útilokað að menn Baraks myndu sigra. En Jehóva sá hve hugrakkir þeir voru og launaði þeim fyrir. Hann olli ringulreið í herliði Kanverja. Það brast á úrhellisrigning og innan skamms var Jesreeldalur orðinn eitt forarsvað. Þessir ógnvekjandi stríðsvagnar festust í leðjunni. Allt í einu voru þeir orðnir gagnslausir þannig að hermenn Sísera þurftu að berjast við Ísraelsmenn maður við mann. Allir hermenn hans féllu, hver einasti maður. En hvað um hann sjálfan?

Sísera komst undan á hlaupum. Hann flúði með erfiðismunum yfir forarsvaðið og upp úr dalnum og skildi menn sína eftir bjargarlausa. Kannski hélt hann að hann væri sloppinn. En Barak veitti honum eftirför. Jehóva fylgdist með öllu saman. Hann var búinn að ákveða hvað yrði um Sísera.

Lestu frásögn Biblíunnar:

  • Dómarabókin 4:1–16, 23, 24; 5:1–23

Til umræðu:

Hvernig sýndu Barak og Debóra hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Hvernig var að búa í Ísrael undir harðstjórn Sísera? (w15 1.9. 12 gr. 6)

  2. 2. Af hverju er Debóra yfirleitt ekki talin með dómurunum 12 sem störfuðu í Ísrael áður en Samúel varð spámaður? (w86 1.6. 31 gr. 6–8 – wcgr)

  1. 3. Í hvaða skilningi var Debóra „móðir í Ísrael“? (Dóm. 4:4, 5; 5:7; w15 1.9. 13 gr. 1) A

Debóra situr undir pálmatré og sker úr deilu tveggja manna með sauðkindur. Ísraelsk hjón eru á leiðinni til hennar eftir gangstíg.

Mynd A

Mynd A

  1. 4. Hvað áttu Debóra og Barak við þegar þau sungu að stjörnurnar hefðu barist gegn Sísera? (Dóm. 5:20; w05 1.2. 19 gr. 5)

Hugleiddu og heimfærðu

  • Barak var auðmjúkur og þáði hjálp trúfastrar konu. Hvenær gæti bróðir líkt eftir honum? B

    Systir kennir þremur bræðrum að stilla hita- og kælibúnað. Þeir fylgjast vel með og taka niður minnispunkta.

    Mynd B

  • Af hverju þurfti Debóra að vera hugrökk til að fara með Barak? Við hvaða aðstæður þurfum við að vera hugrökk eins og hún?

  • Á hvaða fleiri vegu geturðu sýnt hugrekki eins og Barak og Debóra?

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Um hvað langar þig að spyrja Barak og Debóru þegar þau rísa upp?

Skoðaðu meira

Hvernig sýnir þessi frásaga að það sem við gerum skiptir Jehóva máli?

„Megi fúsleiki þinn vera Jehóva til lofs“ (w17.04 28–32)

Hvað lærum við af Barak og Debóru um traust, hógværð og hlýðni?

„Vegna trúar hrakti Barak máttugan innrásarher á flótta“ (brw031115 28–31)

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila