Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg kafli 15 bls. 74–77
  • Þær stóðu saman í sorginni

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þær stóðu saman í sorginni
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Kafaðu dýpra
  • Hugleiddu og heimfærðu
  • Horfðu á heildarmyndina
  • Skoðaðu meira
  • Rut og Naomí
    Lærum af sögum Biblíunnar
  • Rut og Naomí
    Biblíusögubókin mín
  • Höfuðþættir Rutarbókar
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2005
  • Höldum áfram að sýna hvert öðru tryggan kærleika
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2021
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg kafli 15 bls. 74–77

15 NAOMÍ OG RUT

Þær stóðu saman í sorginni

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

NAOMÍ varð fyrir hverju áfallinu á fætur öðru. Þegar hungursneyð skall á í Ísrael ákvað maðurinn hennar að þau fjölskyldan skyldu flytja frá Betlehem til Móabslands. Dag einn dó maðurinn þannig að hún stóð ein eftir með tvo syni í framandi landi. Síðar giftust synirnir móabískum konum sem tilbáðu ekki Jehóva. Um áratug síðar varð hún fyrir öðru áfalli: Báðir synir hennar dóu. Þeir voru barnlausir þannig að Naomí hafði ekki bara misst eiginmanninn og báða synina heldur líka alla von um að eignast barnabörn.

Naomí fannst hún hafa misst allt og ákvað því að snúa aftur heim til Betlehem. Ferðin tæki hana líklega um það bil viku. Tengdadætur hennar, þær Rut og Orpa, fylgdu henni en Naomí gat ekki hugsað sér að taka þær með sér frá heimalandi þeirra og ættingjum og verða kannski til þess að þær ættu ekki möguleika á að giftast aftur og eignast börn. Hún hugsaði ekki um sjálfa sig heldur hvatti Rut og Orpu til að fara heim til mæðra sinna. Naomí var hugrökk og ætlaði að halda áfram ein. Orpa grét en sneri síðan við. Rut grét líka en yfirgaf ekki tengdamömmu sína.

Rut sagði við Naomí: „Biddu mig ekki um að yfirgefa þig … því að hvert sem þú ferð þangað fer ég og hvar sem þú býrð þar vil ég búa. Þitt fólk er mitt fólk og þinn Guð er minn Guð. Þar sem þú deyrð þar dey ég og þar verð ég grafin.“ Þessi hugrakka og trúfasta unga kona hafði ákveðið að Jehóva, Guð Naomí, skyldi líka vera hennar Guð.

Naomí og Rut þurftu að takast á við ástvinamissi. Hvernig fengu þær hughreystingu?

Rut hélt því með Naomí til Ísraels og sagði skilið við fjölskyldu sína, menningu og móabíska guði. Þegar þær komu að lokum til Betlehem vöktu þær talsverða athygli. Sumum konum var brugðið að sjá hversu mikið Naomí hafði breyst á þessum árum. Hún sagði þeim sorgmædd að Jehóva hefði tekið frá henni allt sem hún átti og látið hana snúa bitra og tómhenta til baka. Kannski sárnaði Rut að heyra þetta því að hún hafði sagt skilið við svo margt til að geta stutt tengdamóður sína. Biblían gefur þó ekkert slíkt í skyn. Rut fór einfaldlega að tína upp korn sem eftir var á ökrum í grenndinni til að sjá fyrir sér og Naomí.

Rut og Naomí koma til Betlehem. Rut leiðir asna með farangri þeirra. Hún heldur í handlegg Naomí á göngunni. Fólk starir undrandi á þær.

Á svæðinu bjó auðugur landeigandi sem hét Bóas. Hann var sonur Rahab og þjónaði Jehóva. Þegar hann sá Rut vinna á ökrunum spurðist hann fyrir um hana og var þá sagt að hún ynni hörðum höndum til að framfleyta tengdamóður sinni. Hann hrósaði Rut fyrir að leita athvarfs undir verndarvæng Jehóva Guðs. Hann sá líka til þess að vinnumennirnir létu hana í friði.

Naomí varð mjög glöð þegar Rut kom heim um kvöldið og sagði henni hversu vingjarnlegur Bóas hefði verið við sig. Myndi Bóas vilja giftast Rut? Hann var skyldur eiginmanni Naomí. Í lögum Guðs voru sérstök ákvæði um ungar ekkjur eins og Rut. Ekkjan átti rétt á að giftast nánum ættingja látins eiginmanns síns. Þannig gæti hún eignast son sem myndi bera nafn hins látna eiginmanns og viðhalda ættlegg hans. (5. Mós. 25:5, 6) Naomí útskýrði nú fyrir Rut hvað hún þurfti að gera.

Rut samþykkti að fara eftir því sem Naomí sagði þó að henni hljóti að hafa fundist þetta svolítið skrýtið og jafnvel neyðarlegt. Um kvöldið fór hún út að kornbingjunum við þreskivöllinn þar sem mennirnir voru vanir að sofa. Hún læddist til Bóasar, lyfti ábreiðunni af fótum hans og lagðist þar. Þegar hann vaknaði minnti hún hann hæverkslega á lög Guðs og hvernig þau ættu við hana. Þessi góði maður tók kannski eftir hvað Rut var taugaóstyrk. Hann var snortinn af hugrekki hennar og tryggum kærleika til Jehóva og til Naomí. Bóas féllst á að athuga hvort hann gæti gifst henni eins og hún vonaðist til.

Daginn eftir fór Bóas til öldunganna í Betlehem og gerði þær ráðstafanir sem lögin kváðu á um. Síðan giftist hann Rut og með tímanum eignuðust þau son sem þau nefndu Óbeð. Naomí elskaði barnabarn sitt heitt. Þegar fram liðu stundir fæddist Davíð konungur í ættlegg þessa barns og svo Messías meira en þúsund árum síðar. (Matt. 1:5, 6, 16) Jehóva launaði Naomí og Rut ríkulega fyrir hugrekki þeirra!

Lestu frásögn Biblíunnar:

  • Rutarbók 1:1–4:22

Til umræðu:

Hvernig sýndu Naomí og Rut hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Hvaða ráðstöfun var gerð í Ísrael til að fátækt fólk gæti framfleytt sér og af hverju var það sérstakt? (ia bls. 39 gr. 23, nm. – wcgr) A

Rut tínir bygg á eftir verkamönnum á akri Bóasar.

Mynd A

Mynd A

  1. 2. Hvernig vitum við að Rut hafði ekkert siðlaust í huga þegar hún fór til Bóasar? (ia bls. 47 gr. 17, 18 – wcgr)

  2. 3. Hvað segir það um Bóas að hann skyldi ávarpa Rut ‚dóttur‘? (Rut. 2:8; w16.11 3)

  3. 4. Hvernig sýndi Bóas óeigingirni þegar hann féllst á að giftast Rut, ólíkt manninum sem var kallaður „þú þarna“? (w23.03 14) B

    Maðurinn sem kallaðu er „þú þarna“ afhendir sandalann sinn.

    Mynd B

Hugleiddu og heimfærðu

  • Hvernig getum við líkt eftir Rut þegar við eigum í fjárhagserfiðleikum? C

    Samsett mynd: Einstæð móðir á í fjárhagserfiðleikum. Myndirnar eru sýndar aðskildar í framhaldinu. Einstæða móðirin fer áhyggjufull yfir stafla af reikningum meðan sonur hennar leikur sér fyrir aftan hana. Einstæða móðirin ræstir skrifstofur um kvöld. Bróðir og eiginkona hans færa þakklátri móðurinni og syni hennar matvörur og heita máltíð.

    Mynd C

  • Rut studdi Naomí þegar hún var niðurbrotin. Hvað lærum við af Naomí um að þiggja hjálp annarra? Hvað lærum við af Rut um að uppörva aðra?

  • Á hvaða fleiri vegu geturðu sýnt hugrekki eins og Naomí og Rut?

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Um hvað langar þig að spyrja Naomí og Rut þegar þær rísa upp?

Skoðaðu meira

Hvað getum við lært af Rutarbók um tryggan kærleika og hvernig getum við nýtt okkur það?

„Höldum áfram að sýna hvert öðru tryggan kærleika“ (w21.11 8–13)

Notaðu þessa myndasögu til að blása lífi í frásöguna.

„Rut var traustur vinur“ (ijwis grein 12)

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila