HVERNIG ERU FRAMLÖGIN NOTUÐ?
Biblíunámsrit sem er einstakt í sinni röð
1. APRÍL 2022
Í janúar 2021 tilkynnti stjórnandi ráð útgáfu nýrrar biblíunámsbókar, Von um bjarta framtíð.a Hvernig brástu við fréttinni? Matthew, sem er frá Kanada, segir: „Ég var mjög spenntur. Og tilhlökkunin jókst þegar ég heyrði ræður og sá myndbönd sem útskýrðu hvers vegna bókin var gerð og hvernig innihald hennar hafði verið prófað. Ég var óþreyjufullur að fá hana í hendur og byrja að nota hana.“
Von um bjarta framtíð innleiddi nýja aðferð við að halda biblíunámskeið. En það er ekki eini munurinn á milli nýju bókarinnar og fyrri námsbóka. Ef þú notar prentaða útgáfu hennar hefurðu kannski veitt því athygli að hún er ólík viðkomu. Skoðum nánar hönnun bókarinnar til að átta okkur á hvers vegna svo er.
Ný bók og ný áferð
Þyngri pappír. Hvers vegna var þörf á því? Bókin Von um bjarta framtíð inniheldur meira en 600 litríkar myndir, næstum tíu sinnum fleiri en í Hvað kennir Biblían? Það er líka meira um auð svæði þar sem hvorki eru textar né myndefni. Þessu fylgir annar vandi. Ef pappírinn er þunnur sést myndefnið hinum megin á síðunni þó að það sé dauft. Til að koma í veg fyrir þetta prófuðu bræður við Alþjóðlegu prentsmiðjuna í Wallkill (IPD) í New York í Bandaríkjunum fjórar tegundir pappírs sem eru notaðar í prentsmiðjum okkar. Ritnefnd stjórnandi ráðs skoðaði hvert sýnishorn og valdi pappírinn sem var minnst gagnsær. Þessi pappír er 16 prósentum dýrari en sá sem við notum við gerð flestra rita en hann gerir biblíunemendum kleift að lesa Von um bjarta framtíð án þess að myndefni hinum megin á síðunni trufli þá.
Blaðsíðan til hægri sýnir pappírinn sem er notaður í Von um bjarta framtíð.
Ólíkt hlífðarlag. Kápa bókarinnar er öðruvísi viðkomu en aðrar bækur okkar vegna þess að ysta lagið er gert úr ólíkri hlífðarfilmu. Í stað hinnar venjulegu glansandi filmu er nýja bókin með matta filmu en það gerir myndefnið meira áberandi. Hlífðarlagið verndar líka bókina fyrir hnjaski sem stafar af mikilli notkun. En matt hlífðarlag getur kostað allt að fimm sinnum meira en glansandi áferð. Af þeim sökum höfðu nokkrar deildarskrifstofur samvinnu um að útvega matta filmu á hagstæðara verði.
Bókarkápan plöstuð.
Hvers vegna voru dýrari efni valin? Bróðir, sem vinnur við alþjóðlegu prentsmiðjuna, svarar því: „Við væntum þess að bókin verði mikið notuð og þess vegna viljum við að hún varðveiti sómasamlegt útlit þrátt fyrir mikla notkun.“ Eduardo, sem vinnur í prentsmiðjunni á deildarskrifstofunni í Brasilíu, segir: „Það gleður okkur mjög að söfnuður Jehóva skuli nota gæðaefni til að bókin sé falleg, endingargóð og þægileg viðkomu, jafnframt því að nota framlögin skynsamlega.“
Prentun á tímum COVID-19 faraldursins
Prentun á Von um bjarta framtíð hófst í mars 2021. Þetta var í COVID-19 faraldrinum og hafði ýmsar áskoranir í för með sér. Þar ákveðið var að setja Betel í einangrun gátu prentsmiðjur okkar hvorki reitt sig á hjálp starfsmanna sem bjuggu utan Betel né boðið nýjum bræðrum til starfa. Af því leiddi að sumar prentsmiðjur höfðu ekki nægan mannafla og aðrar voru lokaðar tímabundið vegna hafta yfirvalda.
Hvernig var leyst úr þessum vanda? Þegar prentsmiðjurnar voru starfhæfar hjálpuðu Betelstarfsmenn úr öðrum deildum tímabundið til við prentun. „Það var ómetanlegt hve fórnfús þau voru og tilbúin til að læra ný störf og það gerði okkur kleift að ljúka verkinu,“ segir Joel sem vinnur við alþjóðlegu prentsmiðjuna.
Þrátt fyrir allar hindranirnar hefur okkur tekist að prenta milljónir eintaka af Von um bjarta framtíð. Framleiðslan útheimtir alls konar aðföng eins og prentplötur, hlífðarfilmu, pappír, blek og lím. Á fyrstu fimm mánuðunum höfðum við varið yfir 2,3 milljónum bandaríkjadala í efniskostnað. Til að halda kostnaðinum niðri höfum við gætt þess að prenta aðeins þann eintakafjölda sem söfnuðirnir þurfa.
Hún er listaverk
Hvað finnst biblíukennurum og nemendum þeirra um þessa nýju námsbók? Paul, bróðir í Ástralíu, segir: „Það er svo gaman að nota Von um bjarta framtíð að ég hakka til að stjórna biblíunámskeiðum. Hönnun bókarinnar er mjög aðlaðandi og hún er sannarlega gagnvirk. Í henni er afbragðsgóð blanda af skýrum upplýsingum, spurningum sem hreyfa við nemandanum, myndböndum, skýringarmyndum auk markmiða fyrir nemandann. Svo er hún líka fallega myndskreytt. Þetta listaverk hvetur mig til að bæta færni mína sem kennari.“
Biblíunemandi í Bandaríkjunum segir: „Ég kann svo sannarlega að meta þessa nýju bók. Myndefnið hjálpar mér að skilja aðalatriðin. Myndböndin snerta hjarta mitt og hvetja mig til verka.“ Námstímar hans eru tvisvar í viku og hann mætir reglulega á samkomur safnaðarins.
Enn á eftir að prenta milljónir eintaka af Von um bjarta framtíð á mörgum tungumálum. Til þessa hefur stjórnandi ráð samþykkt útgáfu hennar á 727 tungumálum.
Hvernig er staðinn straumur að prentkostnaðinum? Það er gert með framlögum til alþjóðastarfsins sem oftar en ekki eru gefin á donate.jw.org. Við kunnum að meta örlæti ykkar sem hjálpar okkur að gefa út biblíunámsrit til að aðstoða þá sem vilja fræðast meira um Jehóva og „njóta lífsins að eilífu“. – Sálmur 22:26.
a Útgáfa þessa rits var tilkynnt í Sjónvarpi Votta Jehóva í tengslum við sérstaka dagskrá á ársfundinum.