UNGT FÓLK SPYR
Hvernig get ég tekist á við kynþroskaskeiðið?
„Það er ekkert skemmtilegt við kynþroskaskeiðið fyrir stelpur. Það er sárt, subbulegt og ruglingslegt. Allt við það virðist slæmt.“ – Oksana.
„Aðra stundina var ég í góðu skapi en hina leiður. Ég veit ekki hvort þetta er svona hjá strákum almennt en þannig leið mér allavega.“ – Brian.
Kynþroskinn getur verið eins og rússíbani – bæði spennandi og ógnvekjandi. Hvernig geturðu tekist á við sveiflurnar?
Hvað er kynþroski?
Í stuttu máli sagt er kynþroski það tímabil þegar maður fer á fleygiferð í gegnum líkamlegar og tilfinningalegar breytingar og breytist frá því að vera barn í fullorðinn einstakling. Á þessum tíma breytist líkaminn mjög hratt og eins hormónastarfsemin sem undirbýr líkamann undir æxlun og barneignir.
Það þýðir samt ekki að þú sért tilbúinn til að verða foreldri. En kynþroskinn er merki um að þú sért að kveðja bernskuna. Sú staðreynd getur bæði vakið tilhlökkun og depurð.
Hvað heldur þú? Á hvaða aldri myndirðu segja að sé eðlilegt að byrja á kynþroskaskeiðinu?
8
9
10
11
12
13
14
15
16
Svar: Allur þessi aldur telst vera innan eðlilegra marka.
Þetta þýðir að þú þarft ekki að hafa of miklar áhyggjur þó að þú sért á miðjum táningsaldri og ekki enn kominn á kynþroskaskeið og ekki heldur ef þú ert orðinn kynþroska fyrir tíu ára aldurinn. Kynþroskinn fylgir sinni eigin tímaáætlun sem maður hefur litla stjórn á.
Kynþroskaskeiðið getur verið eins og rússíbani, bæði spennandi og ógnvekjandi. En þú getur lært að takast á við sveiflurnar.
Líkamlegar breytingar
Vaxtarkippur er líklega augljósasta einkenni kynþroskans. En vandamálið er bara að það vex ekki allt á sama hraða. Þú þarft því ekki að vera hissa yfir því að vera svolítið klaufalegur í hreyfingum. Þetta á eftir að jafnast út með tímanum.
Kynþroskanum fylgja fleiri líkamlegar breytingar.
Kynþroski hjá strákum:
Vöxtur kynfæra.
Hárvöxtur undir höndum, á kynfærum og í andliti.
Röddin breytist.
Ósjálfráð stinning og sáðlát að nóttu til.
Kynþroski hjá stelpum:
Brjóstin þroskast.
Hárvöxtur undir höndum og á kynfærum.
Blæðingar byrja.
Kynþroski hjá báðum kynjum:
Líkamslykt sem stafar af samverkun svita og baktería.
Ráð: Hægt er að hafa stjórn á líkamslykt með því að þvo sér oft og nota svitalyktareyði.
Bólur sem stafa af bakteríum sem valda bólgum í fitukirtlum.
Ráð: Það er ekki auðvelt að hafa hemil á bólunum en það hjálpar að þvo andlitið oft og nota húðhreinsa.
Tilfinningarnar
Hormónaflæðið sem veldur líkamlegum breytingum getur haft mikil áhrif á tilfinningalífið og valdið gríðarlegum skapsveiflum.
„Einn daginn er maður grátandi og þann næsta er allt í góðu. Eina stundina er maður reiður og þá næstu er maður í þunlyndiskasti og lokar sig af.“ – Oksana.
Margir unglingar eru of meðvitaðir um sjálfa sig og finnst eins og allir séu að horfa á þá og dæma. Og það hjálpar ekki að útlitið er að taka miklum breytingum.
„Ég gerði í því að vera hokin og ganga í víðum fötum þegar ég fór að stækka. Ég vissi hvers vegna líkaminn var að breytast en mér leið illa með það og fannst það vandræðalegt og óeðlilegt.“ – Janice.
Stærsta breytingin er ef til vill sú að fá allt aðra skoðun á hinu kyninu.
„Mér fannst ekki lengur allir strákar vera pirrandi. Núna fannst mér sumir bara vera sætir. Og hugmyndin að verða ástfangin var ekki svo slæm lengur. Reyndar var vinsælt að tala um hver væri skotin í hverjum.“ – Alexis.
Á kynþroskaskeiðinu laðast sumir að sama kyni. Ef þér líður þannig þarf það ekki að vera merki um samkynhneigð. Slíkar tilfinningar minnka oft með tímanum.
„Ég var svo upptekinn af því að bera mig saman við aðra stráka að ég fór að laðast að þeim. Ég fór ekki að hafa áhuga á stelpum fyrr en seinna á unglingsárunum. Þessar tilfinningar til stráka tilheyra núna fortíðinni.“ – Alan.
Hvað getur þú gert?
Reyndu að vera jákvæður. Kynþroskinn er í raun nauðsynleg líkamleg og tilfinningaleg umbreyting. Þú getur sótt hughreystingu í orð Davíðs sem sagði: „Ég er frábærlega hannaður.“ – Sálmur 139:14.
Forðastu samanburð og reyndu að hugsa ekki of mikið um eigin líkamsímynd. Í Biblíunni segir: „Mennirnir sjá hið ytra en Jehóva sér hvað býr í hjartanu.“ – 1. Samúelsbók 16:7.
Passaðu upp á að fá næga hreyfingu og hvíld. Ef þú færð nægan svefn dregur það úr pirringi, stressi og depurð yfir daginn.
Haltu sjálfsgagnrýninni í skefjum. Eru allir í alvöru að fylgjast svona mikið með þér? Og reyndu að láta það ekki hafa of mikil áhrif á þig þó að einhverjir geri athugasemdir um breytingarnar á útliti þínu. Í Biblíunni segir: „Taktu ekki allt sem fólk segir nærri þér.“ – Prédikarinn 7:21.
Lærðu að hafa stjórn á kynhvötinni. Í Biblíunni segir: „Flýið kynferðislegt siðleysi … sá sem stundar kynferðislegt siðleysi syndgar gegn sínum eigin líkama.“ – 1. Korintubréf 6:18.
Talaðu við foreldra þína eða einhvern annan fullorðinn einstakling sem þú treystir. Það getur verið vandræðalegt til að byrja með en sú hjálp sem þau geta veitt þér er fyrirhafnarinnar virði. – Orðskviðirnir 17:17.
Kjarni málsins: Kynþroskanum fylgja ýmsar áskoranir. En þú getur líka notað þennan tíma vel til að vaxa og þroskast, ekki aðeins líkamlega heldur einnig hugarfarslega, tilfinningalega og andlega. – 1. Samúelsbók 2:26.