UNGT FÓLK SPYR
Ætti ég að fá mér tattú?
Af hverju vilja sumir fá sér tattú?
„Mér finnst sum tattú vera falleg listaverk,“ segir ungur maður sem heitir Ryan.
Ástæðan fyrir því að fólk fær sér tattú getur haft áhrif á hvað þér finnst um það. Til dæmis segir unglingsstelpa sem heitir Jillian: „Stelpa sem ég var í skóla með missti mömmu sína þegar hún var lítil. Þegar hún varð unglingur lét hún tattúera nafn mömmu sinnar aftan á hálsinn. Mér finnst svoleiðis tattú geta verið sæt.“
Hver sem ástæðan er ættirðu að hugsa þig vandlega um áður en þú ákveður að láta skrifa eitthvað á húðina á þér með varanlegu bleki. Hvaða spurninga ættirðu að spyrja þig ef þú ert að hugsa um að fá þér tattú? Og hvaða meginreglur Biblíunnar geta hjálpað þér að taka skynsamlega ákvörðun?
Hvaða spurninga ættirðu að spyrja þig?
Hvaða hættur fylgja því? „Tattú rjúfa húðina og þess vegna geta komið sýkingar og fleiri fylgikvillar,“ segir á vefsíðu Mayo Clinic. „Stundum myndast eitthvað sem er kallað átfrumuhnúðar í kringum blekið í tattúinu. Tattú geta líka myndað örbrigsli – upphleypt ör sem verður til vegna ofvaxtar á örvef.“ Á vefsíðunni segir enn fremur: „Ef áhöldin sem eru notuð við að gera tattúið eru smituð af sýktu blóði er hætta á að smitast af ýmiss konar sjúkdómum sem berast með blóði.“
Hvaða áhrif hefði það á mannorð þitt? Útlit þitt gefur ákveðin skilaboð, hvort sem þér líkar það betur eða verr. Fólk sér þig annað hvort sem þroskaðan eða óþroskaðan, sem ábyrgan eða óábyrgan. Unglingur sem heitir Samantha segir: „Alltaf þegar ég sé einhvern með tattú tengi ég hann ósjálfrátt við djamm og drykkju.“
Melanie, sem er 18 ára, sér annan flöt á málinu. Hún segir: „Mér finnst tattú fela náttúrulega fegurð. Það er eins og þeir sem eru með þau vilji ekki að þú sjáir hverjir þeir eru í raun og veru og feli sig þess vegna á bak við tattúin.“
Á þér alltaf eftir að finnast þau flott? Með tímanum getur þyngdaraukning eða jafnvel bara aukinn aldur teygt á og afskræmt tattúin. „Ég hef séð hvernig áratugagömul tattú líta út, og það er ekki falleg sjón,“ segir ungur maður sem heitir Joseph.
„Tattú missa oft gildi sitt,“ segir Allen sem er 21 árs. „Það sem áður skipti þann sem er með tattúið miklu máli finnst honum kannski ekkert merkilegt nokkrum árum seinna.“
Það er nokkuð til í þessu hjá Allen. Sannleikurinn er sá að með tímanum breytast viðhorf fólks, smekkur þess og það sem skiptir það máli – en tattúin breytast ekki. „Ég hef gert margt kjánalegt sem ég sé eftir,“ segir ung kona sem heitir Teresa. „Og ég myndi ekki vilja hafa tattú sem minnti mig á það.“
Hvaða meginreglur Biblíunnar eiga við?
Þroskaður einstaklingur tekur sér tíma til að vega og meta alla þætti málsins áður en hann tekur ákvörðun. (Orðskviðirnir 21:5; Hebreabréfið 5:14) Hugsaðu þess vegna um eftirfarandi meginreglur í sambandi við það að fá sér tattú:
Kólossubréfið 3:20: „Þið börn, hlýðið foreldrum ykkar í öllu því að það gleður Drottin.“
Hvaða afleiðingar gæti það haft ef þú býrð heima en fylgir ekki leiðsögn foreldra þinna?
1. Pétursbréf 3:3, 4: „Leggið ekki áherslu á ytra skart – fléttur og skartgripi úr gulli eða fín föt – heldur hinn hulda mann hjartans búinn skarti kyrrðar og hógværðar.“
Af hverju heldur þú að Biblían leggi svona mikla áherslu á „hinn hulda mann hjartans“?
1. Tímóteusarbréf 2:9: „Konurnar eiga að prýða sig … með hógværð og skynsemi.“
Hvað merkir orðið „hógværð“? Af hverju er hógværð meira aðlaðandi en tattú þegar upp er staðið?
Rómverjabréfið 12:1: „[Bjóðið] fram líkama ykkar að lifandi og heilagri fórn sem [Guð] hefur velþóknun á, að veita heilaga þjónustu byggða á skynsemi.“
Af hverju skiptir það Guð máli hvernig við förum með líkama okkar?
Margir hafa ákveðið að fá sér ekki tattú eftir að hafa skoðað þessar meginreglur. Þeir hafa reyndar fundið eitthvað sem er betra en tattú. Teresa, sem minnst var á fyrr í greininni, segir: „Ef það er einhver frasi eða mottó sem þú kannt virkilega að meta eða manneskja sem þér þykir mjög vænt um, sýndu þá með lífi þínu að þú fylgir þessu mottói eða segðu manneskjunni hversu vænt þér þykir um hana. Lifðu eftir því sem þú trúir í staðin fyrir að fá þér tattú.“