UNGT FÓLK SPYR
Er skírlífisheit eitthvað fyrir mig?
Hvað er skírlífisheit?
Skírlífisheit er skriflegt eða munnlegt loforð um að stunda ekki kynlíf fyrir hjónaband.
Skírlífisheit urðu vinsæl á tíunda áratug síðustu aldar þegar suður-baptistar í Bandaríkjunum komu af stað herferðinni „Sönn ást bíður“. Í henni voru notuð bæði biblíuleg gildi og jákvæður hópþrýstingur til að hvetja ungmenni til að hafna kynlífi fyrir hjónaband.
Stuttu síðar hófst svipað átak og haldnir voru viðburðir þar sem þátttakendum voru gefnir silfurhringir fyrir að vinna þetta heit. En silfurhringurinn var tákn og áminning um skuldbindingu þeirra um að halda sig frá kynlífi fyrir hjónaband.
Virka skírlífisheit?
Það fer eftir því hvern þú spyrð.
Rannsakendurnir Christine C. Kim og Robert Rector segja að „kannanir hafi leitt í ljós að skírlífisheit seinki eða dragi úr kynlífi meðal ungmenna.“
Guttmacher-stofnunin birti niðurstöður kannana sem leiddu í ljós að „unglingar sem ynnu skírlífisheit væru alveg jafn líklegir til að stunda kynlíf eins og þeir sem gæfu þau ekki.“
Af hverju stangast niðurstöðurnar á?
Sumar kannanir bera þá sem vinna heit saman við þá sem vinna þau ekki og hafa ólíka skoðun á kynlífi.
Aðrar kannanir bera þá sem vinna heit saman við þá sem vinna þau ekki en líta kynlíf sömu augum.
Hvað leiddu síðarnefndu kannanirnar í ljós? Dr. Janet Rosenbaum, sem sérhæfir sig í heilsu unglinga, segir að fimm árum seinna „sé enginn munur á kynhegðun þeirra sem unnu heitið og þeirra sem gerðu það ekki“.
Betri leið
Þessi átök varðandi skírlífi ungmenna hafa göfug markmið en þau kenna ekki þau gildi sem þarf til að standa við slík heit. Margir sem lofa að vera áfram skírlífir „vinna slík heit ekki í einlægni,“ segir Dr. Rosenbaum. „Að halda sig frá kynlífi þarf að vera persónuleg sannfæring en ekki bara hluti af einhverju átaki.“
Biblían hvetur okkur til að hafa slíka sannfæringu með því að hjálpa okkur að ‚þjálfa skilningsgáfuna til að greina rétt frá röngu‘ en ekki með því að fá okkur til að vinna skriflegt eða munnlegt heit. (Hebreabréfið 5:14) Skírlífi snýst ekki bara um að forðast sjúkdóma eða þungun heldur er það leið til að sýna höfundi hjónabandsins virðingu. – Matteus 5:19; 19:4–6.
Siðferðisreglur Biblíunnar eru settar okkur til góðs. (Jesaja 48:17) Og þú getur fengið þann innri styrk sem þarf til að fylgja fyrirmælum Guðs um að ‚flýja kynferðislegt siðleysi‘, sama á hvaða aldri þú ert. (1. Korintubréf 6:18) Og ef þú ákveður að gifta þig geturðu átt gott ástarlíf án þess að þurfa að hafa áhyggjur eða vera með eftirsjá sem svo oft fylgir kynlífi fyrir hjónaband.