NÁMSGREIN 51
SÖNGUR 132 Nú erum við eitt
Að undirbúa brúðkaup sem heiðrar Jehóva
„Allt skal fara fram á sómasamlegan og skipulegan hátt.“ – 1. KOR. 14:40.
Í HNOTSKURN
Námsgreinin fjallar um hvernig par getur heiðrað Jehóva á brúðkaupsdegi sínum.
1, 2. Hvernig lítur Jehóva á brúðkaup?
ERUÐ þið að fara að gifta ykkur? Ef svo er, þá er það gleðiefni! Það er örugglega nóg að gera hjá ykkur við að undirbúa brúðkaupið.a Jehóva vill að þið njótið brúðkaupsdagsins og verðið hamingjusöm saman. – Orðskv. 5:18; Ljóðalj. 3:11.
2 Það er mikilvægt að brúðkaup ykkar heiðri Jehóva. Hvers vegna? Og hvernig er hægt að tryggja að svo verði? Þessi námsgrein er fyrst og fremst ætluð pörum sem eru að undirbúa brúðkaup. En meginreglurnar til umræðu geta hjálpað okkur öllum að heiðra Jehóva ef okkur er boðið í brúðkaup eða við beðin um ráð varðandi undirbúninginn.
HVERS VEGNA ÆTTI BRÚÐKAUPIÐ AÐ HEIÐRA JEHÓVA?
3. Hvað ættu pör að hafa í huga þegar þau undirbúa brúðkaup sitt og hvers vegna?
3 Pör í söfnuðinum sem eru að undirbúa brúðkaup ættu að gera það í samræmi við meginreglur Jehóva sem er að finna í orði hans. Hvers vegna? Vegna þess að Jehóva er höfundur hjónabandsins. Hann gaf fyrstu hjónin saman, þau Adam og Evu. (1. Mós. 1:28; 2:24) Sjónarmið Guðs ætti þess vegna að vera þeim sem eru að undirbúa brúðkaup efst í huga.
4. Hvaða aðra ástæðu hafa pör til að heiðra Jehóva á brúðkaupsdeginum sínum?
4 Þið hafið enn frekari ástæðu til að taka mið af því hvað Jehóva finnst um undirbúninginn. Hann er faðir ykkar á himni og besti vinur. (Hebr. 12:9) Þið viljið ekki að neitt varpi skugga á vináttu ykkar við Jehóva. Þið mynduð ekki vilja að neitt gerðist á þessum eða nokkrum öðrum degi sem myndi særa hann. (Sálm. 25:14) Þegar þið hugsið um allt sem hann hefur gert fyrir ykkur og á eftir að gera finnst ykkur hann örugglega eiga skilið að brúðkaup ykkar heiðri hann. – Sálm. 116:12.
HVERNIG GETIÐ ÞIÐ HEIÐRAÐ JEHÓVA?
5. Hvernig getur Biblían hjálpað pörum að taka góðar ákvarðanir við undirbúning brúðkaups?
5 Í Biblíunni eru ekki settar fram neinar reglur um það hvernig brúðkaup eða brúðkaupsveislur eigi að vera. Pör geta því skipulagt brúðkaup sitt í samræmi við eigin aðstæður, siðvenjur og óskir. Og þjónar Guðs fylgja að sjálfsögðu kröfum yfirvalda um löggildingu hjónabandsins. (Matt. 22:21) En par sem fylgir meginreglum Jehóva við undirbúninginn getur heiðrað hann og glatt. Hvaða meginreglum ættuð þið að taka mið af?
6. Hvers vegna er mikilvægt að par hlýði kröfum yfirvalda um löggildingu hjónabands?
6 Hlýðið kröfum yfirvalda. (Rómv. 13:1, 2) Í flestum löndum gera yfirvöld ákveðnar kröfur um löggildingu hjónabands. Parið þarf að finna út hverjar þær eru þar sem það býr. Ef þið þurfið aðstoð til að afla ykkur þessara upplýsinga eru öldungarnir tilbúnir að hjálpa ykkur.b
7. Hvers konar andrúmsloft er viðeigandi í brúðkaupi?
7 Skapið rétta andrúmsloftið. (1. Kor. 10:31, 32) Leggið ykkur fram við að skapa andrúmsloft sem endurspeglar ávöxt anda Guðs en ekki anda heimsins. (Gal. 5:19–26) Þar sem brúðguminn verður höfuð fjölskyldunnar ber hann ábyrgð á því að brúðkaupið verði gleðilegur viðburður og til sóma. Hvað getur stuðlað að því? Brúðkaupsræða byggð á Biblíunni sem bróðir flytur af virðingu og kærleika stuðlar að því að viðstaddir sjái að hjónabandið sé gjöf frá Guði. Ræðan getur líka gert fólki kleift að skilja alvarleika málsins. Flest pör kjósa þess vegna að hafa athöfnina í ríkissalnum, ef kostur er. Ef þið gerið það ættuð þið að láta öldungaráðið fá skriflega beiðni með góðum fyrirvara.
8. Hvernig geturðu gengið úr skugga um að andrúmsloftið í brúðkaupsveislunni heiðri Jehóva? (Rómverjabréfið 13:13)
8 Lestu Rómverjabréfið 13:13. Ef þið ákveðið að hafa brúðkaupsveislu, hvernig getið þið séð til þess að hún endurspegli ekki anda heimsins? Í Rómverjabréfinu 13:13 er talað um „svallveislur“ en þar er átt við samkvæmi sem fela í sér ofdrykkju og tónlist langt fram á nótt. (Sjá skýringu við „wild parties“ í námsbiblíunni á tungumáli sem þú skilur.) Ef þið kjósið að bjóða upp á áfenga drykki skuluð þið hugsa fyrir fram hvað þið getið gert til að koma í veg fyrir ofdrykkju.c Gætið þess að hafa tónlist ekki of hátt stillta svo að gestirnir geti talað saman án þess að þurfa að kalla. Veljið tónlistina vandlega og gætið þess að hvorki hún né textarnir hneyksli nokkurn.
9. Hvað ætti par að hafa í huga varðandi ræður og önnur skemmtiatriði í veislunni?
9 Munu vinir eða fjölskylda segja fáein orð, sýna myndir eða myndbönd eða verða önnur skemmtiatriði á dagskrá í veislunni? Slíkt getur gert daginn enn minnisstæðari. En gætið þess að það sem er á dagskrá sé uppbyggilegt. (Fil. 4:8) Spyrjið ykkur: Endurspeglar atriðið virðingu fyrir öðrum? Sýnir það virðingu fyrir hjónabandinu? Og það sem mestu máli skiptir: Heiðrar það Jehóva? Þótt það geti verið gaman að hafa smá grín ætti það ekki að vera óviðeigandi eða af kynferðislegum toga. (Ef. 5:3) Gangið úr skugga um að fjölskylda og vinir sem vilja segja nokkur orð skilji og virði óskir ykkar.
10. Hvers vegna ætti par að sýna hógværð þegar það undirbýr brúðkaupið sitt? (1. Jóhannesarbréf 2:15–17)
10 Verið hógvær. (Lestu 1. Jóhannesarbréf 2:15–17.) Jehóva kann að meta það þegar þjónar hans leitast við að heiðra hann í stað þess að draga of mikla athygli að sjálfum sér. Hógværir þjónar Guðs myndu ekki vilja eyða óhóflega miklum peningum eða sýnast fyrir öðrum. Hvernig er það ykkur til góðs að hafa brúðkaupið einfalt í sniðum? Þið eruð ef til vill sammála bróður frá Noregi sem heitir Mike, en hann segir: „Við söfnuðum ekki skuldum og gátum haldið áfram sem brautryðjendur. Brúðkaupið okkar var einfalt en samt fallegt og ógleymanlegt.“ Tabitha, systir frá Indlandi, segir: „Með því að hafa brúðkaupið ekki of flókið þá varð minni núningur og streita í fjölskyldunni.“
Brúðkaup þjóna Guðs geta verið einföld, falleg og minnisstæð óháð því hvar þeir búa. (Sjá 10. og 11. grein.)
11. Hvernig geta brúðhjónin sýnt hógværð í klæðaburði og snyrtingu? (Sjá einnig myndir.)
11 Eruð þið búin að ákveða í hverju þið ætlið að vera? Þið viljið auðvitað líta sem best út á þessum degi. Á biblíutímanum vildu brúður og brúðgumi líka líta vel út. (Jes. 61:10) Þið viljið auðvitað klæða ykkur öðruvísi á brúðkaupsdegi ykkar en þið gerið vanalega. En klæðnaður ykkar ætti engu að síður að endurspegla hógværð. (1. Tím. 2:9) Látið ekki klæðnað eða útlit verða aðalatriðið á brúðkaupsdeginum. – 1. Pét. 3:3, 4.
12. Hvers vegna ætti par að hafna óbiblíulegum brúðkaupssiðum sem tíðkast þar sem þau búa?
12 Hafnið óbiblíulegum siðum. (Opinb. 18:4) Brúðkaupssiðir litast oft af heimi Satans og tengjast gjarnan falstrú, dulspeki og hjátrú. Jehóva varar okkur eindregið við slíku og vill að við höldum okkur sem lengst frá óhreinum siðvenjum. (2. Kor. 6:14–17) Ef þið eruð í vafa um siðvenjur sem tíðkast þar sem þið búið skuluð þið kanna uppruna þeirra og finna meginreglur Biblíunnar sem geta hjálpað ykkur að taka góðar ákvarðanir.
13. Hvernig getur parið tileinkað sér viðhorf Jehóva til gjafa?
13 Er venja þar sem þið búið að gestir gefi brúðhjónunum gjöf? Fjárhagsstaða sumra gesta hefur áhrif á það hvers konar gjöf þeir kjósa að gefa. Kristnir menn eru auðvitað hvattir til að vera gjafmildir og það veitir þeim ánægju. (Orðskv. 11:25; Post. 20:35) En á hinn bóginn viljum við ekki að gestunum finnist þeir skyldugir til að gefa eða að lítil gjöf sé ekki vel þegin. Við líkjum eftir Jehóva sem hvetur okkur til að vera þakklát þegar fólk gefur okkur af glöðu geði en ekki af skyldurækni. – 2. Kor. 9:7.
AÐ TAKAST Á VIÐ ÁSKORANIR
14. Hvaða erfiðu áskoranir þurfa sum pör að takast á við?
14 Það getur verið þrautin þyngri að undirbúa brúðkaup sem heiðrar Jehóva. Ykkur gæti til dæmis fundist áskorun að undirbúa lítið brúðkaup. Charlie, sem er frá Salómonseyjum, segir: „Það var mjög erfitt að ákveða hverjum við ættum að bjóða í veisluna. Við eigum marga vini og í okkar menningu gera allir ráð fyrir að verða boðnir.“ Tabitha, sem áður er minnst á, segir: „Þar sem ég bý tíðkast að halda stórar brúðkaupsveislur. Það tók tíma fyrir foreldra okkar að sætta sig við ákvörðun okkar um að bjóða aðeins 100 gestum.“ Sarah frá Indlandi segir: „Sumum finnst mikilvægt að sýna hversu vel stæðir þeir eru. Brúðkaup frændsystkina minna voru stór og glæsileg og ég fann fyrir þrýstingi að gera enn betur.“ Hvað getur hjálpað ykkur að taka góða ákvörðun ef þið eruð í svipuðum aðstæðum?
15. Hvers vegna er bænin mikilvægur þáttur í brúðkaupsundirbúningnum?
15 Biðjið oft til Jehóva meðan þið undirbúið brúðkaupið. Þið getið beðið Jehóva um að hjálpa ykkur með hvaða vandamál sem er og sagt honum hvernig ykkur líður. (Fil. 4:6, 7 og skýring við „in everything“ í námsbiblíunni á tungumáli sem þú skilur.) Þið getið beðið hann um að hjálpa ykkur að taka góðar ákvarðanir, halda rónni þegar þið eruð áhyggjufull og sýna kjark til að standa með ákvörðunum ykkar. (1. Pét. 5:7) Traust ykkar til Jehóva vex þegar þið sjáið hvernig hann svarar bænum ykkar. Tabitha, sem áður er minnst á, segir: „Við unnusti minn vildum forðast ágreining okkar á milli og við fjölskylduna. Og þess vegna byrjuðum við alltaf á því að hafa bæn áður en við ræddum um brúðkaupsplönin. Við fundum svo sannarlega fyrir hjálp Jehóva og samskiptin í fjölskyldunni gengu vel.“
16, 17. Hvernig hjálpa góð samskipti þegar brúðkaup er í bígerð?
16 Verið vingjarnleg og skýr í samskiptum. (Orðskv. 15:22) Þið þurfið að taka margar ákvarðanir varðandi brúðkaupið. Til dæmis þarf að ákveða dagssetninguna, gestalistann, hvað veislan má kosta og svo framvegis. Áður en þið takið ákvarðanir skuluð þið ræða möguleikana í stöðunni og hvaða biblíumeginreglur eiga við. Ræðið líka þau ráð sem þið hafið fengið frá þroskuðum trúsystkinum. Verið vingjarnleg, sanngjörn og sveigjanleg þegar þið ræðið óskir ykkar. Reynið að taka tillit til sanngjarnra óska náinna ættingja ykkar, eins og foreldra ykkar. Þetta er líka stór dagur fyrir þau. Ef þið getið ekki farið að óskum þeirra útskýrið vingjarnlega fyrir þeim hvers vegna ekki. (Kól. 4:6) Gerið þeim ljóst að ykkur er mest í mun að brúðkaupið verði gleðilegt og Jehóva til heiðurs.
17 Ef foreldrar ykkar eru ekki í sannleikanum getur reynt verulega á að útskýra sjónarmið ykkar en góðvild og vinsemd getur skilað góðum árangri. „Fjölskyldur okkar vildu fylgja ýmsum siðvenjum Hindúa,“ segir Santhosh, bróðir á Indlandi. „Það tók mig og unnustu mína langan tíma að útskýra ákvörðun okkar fyrir þeim. Við tókum tillit til óska þeirra þegar okkur fannst við geta gert það án þess að vanþóknast Jehóva. Við breyttum til dæmis matseðlinum í samræmi við óskir þeirra og ákváðum að sleppa söng og dans þar sem þau voru ekki vön slíku.“
18. Hvernig getið þið séð til þess að allt gangi vel fyrir sig á brúðkaupsdeginum? (1. Korintubréf 14:40) (Sjá einnig mynd.)
18 Undirbúið allt vandlega. Það dregur líklega úr stressi á brúðkaupsdeginum sjálfum ef þið hafið skipulagt allt vel. (Lesið 1. Korintubréf 14:40.) Wayne frá Taívan segir: „Nokkrum dögum fyrir brúðkaupið hittum við þá sem myndu hjálpa til. Við ræddum hvernig við vildum hafa daginn og höfðum æfingu í ríkissalnum til að tryggja að allt gengi vel fyrir sig.“ Gerið ykkar besta til að halda tímaáætlun og sýna þannig gestum ykkar virðingu.
Góður undirbúningur fyrir brúðkaup stuðlar að því að allt gangi vel fyrir sig. (Sjá 18. grein.)
19. Hvernig getið þið séð til þess að allt fari vel fram í brúðkaupsveislunni?
19 Það er hægt að koma í veg fyrir ýmis vandamál með því að hugsa fyrir fram hvað getur gerst. (Orðskv. 22:3) Ef þið búið til dæmis þar sem algengt er að fólk komi óboðið í brúðkaupsveislu hugleiðið þá hvernig hægt er að koma í veg fyrir að það gerist. Gangið úr skugga um að ættingjar sem eru ekki í sannleikanum viti hverju þeir geta átt von á og útskýrið hvernig þið lítið á ákveðna brúðkaupssiði. Þið gætuð líka beðið þroskaðan bróður að vera veislustjóri. (Jóh. 2:8) Hann getur hjálpað ykkur að sjá til þess að allt fari vel fram ef þið komið óskum ykkar skýrt á framfæri við hann.
20. Hverju ætti par að muna eftir þegar það er að undirbúa brúðkaup?
20 Það getur verið svolítið yfirþyrmandi að hugsa um allt sem þið þurfið að gera fyrir brúðkaupið. Munið að brúðkaupsdagurinn er bara einn dagur. Hann er upphafið að lífi ykkar saman í gleðilegri þjónustu Jehóva. Gerið ykkar besta til að hafa brúðkaup ykkar einfalt í sniðum og Jehóva til heiðurs. Treystið Jehóva. Með hans leiðsögn getið þið undirbúið brúðkaup sem síðar vekur hjá ykkur góðar og hlýjar minningar og enga eftirsjá. – Sálm. 37:3, 4.
SÖNGUR 107 Guð er fyrirmynd um kærleikann
a ORÐASKÝRING: Í mörgum menningarsamfélögum fer brúðkaup þannig fram að maður og kona heita Guði og hvort öðru að þau verði saman svo lengi sem þau bæði lifa. Sum pör halda veislu á eftir. Í menningarsamfélögum þar sem er ekki formleg giftingarathöfn eða veisla er samt gagnlegt fyrir parið að virða meginreglur Biblíunnar á brúðkaupsdeginum.
b Frekari upplýsingar um hvernig kristnir menn ættu að líta á lagalegar kröfur um hjónabandið er að finna á jw.org í grein sem heitir „Heiðvirð brúðkaup frammi fyrir Guði og mönnum“.
c Sjá myndbandið Ætti ég að bjóða upp á áfengi? á jw.org.