Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w25 desember bls. 14–19
  • Líkjum eftir auðmýkt Jehóva

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Líkjum eftir auðmýkt Jehóva
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • ÞAÐ ER AUÐVELT AÐ NÁLGAST JEHÓVA
  • JEHÓVA ER SANNGJARN
  • JEHÓVA ER ÞOLINMÓÐUR
  • JEHÓVA SÝNIR AUÐMJÚKUM HEIÐUR
  • Lærum að hugsa eins og Jehóva og Jesús
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
  • Viðurkennum auðmjúk að við vitum ekki allt
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
  • Njóttu ánægjunnar sem fylgir því að gefa
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2024
  • Verum lítillát
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2005
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
w25 desember bls. 14–19

NÁMSGREIN 50

SÖNGUR 48 Göngum með Jehóva dag hvern

Líkjum eftir auðmýkt Jehóva

‚Líkið eftir Guði sem elskuð börn hans.‘ – EF. 5:1.

Í HNOTSKURN

Við skoðum fernt sem við getum lært af auðmýkt Jehóva.

1. Hvers vegna er auðmýkt Jehóva einstök?

KEMUR orðið auðmýkt upp í hugann þegar þú fylgist með háttsettu fólki nú á dögum? Trúlega ekki. Jehóva er á hinn bóginn auðmjúkur þótt hann sé alvaldur. (Sálm. 113:5–8) Enginn er jafn auðmjúkur og hann. Hann er algerlega laus við hroka. Í þessari námsgrein skoðum við fjóra fallega fleti á persónuleika Jehóva sem endurspegla hversu auðmjúkur hann er. Við lítum einnig á hvernig Jesús líkti eftir auðmýkt föður síns. Þannig getum við laðast enn frekar að Jehóva og líkt betur eftir auðmýkt hans.

ÞAÐ ER AUÐVELT AÐ NÁLGAST JEHÓVA

2. Hvað kemur fram í Sálmi 62:8 um Jehóva? (Sjá einnig mynd.)

2 Það getur verið erfitt að nálgast hrokafullt fólk. Það kemur oft fram við aðra af tillitsleysi vegna þess að því finnst það betra en aðrir þannig að aðrir forðast það. Jehóva er alls ekki þannig. Þar sem hann er auðmjúkur býður hann okkur að nálgast sig í bæn og segja hvað hvílir á okkur. (Lestu Sálm 62:8.) Rétt eins og umhyggjusamur faðir er tilbúinn að hlusta á það sem íþyngir börnum hans tekur Jehóva þeim sem tilbiðja hann opnum örmum og hlustar á bænir þeirra. Það sýnir hversu auðvelt er að nálgast hann. Hann lét reyndar skrifa margar bænir þjóna sinna í Biblíuna. (Jós. 10:12–14; 1. Sam. 1:10–18) En hvað ef okkur finnst við stundum óverðug að biðja til Jehóva?

Pabbi hlustar þolinmóður á strákinn sinn sem útskýrir hvernig hann braut óvart blómavasa þegar hann var að leika sér með flugvél.

Faðir líkir eftir Jehóva og hlustar auðmjúkur á son sinn sem braut vasa þegar hann var að leika sér. (Sjá 2. grein.)


3. Hvers vegna geturðu verið viss um að Jehóva vilji að þú nálgist hann reglulega í bæn?

3 Við getum talað við Jehóva í bæn jafnvel þegar okkur finnst við ekki verðug kærleika hans. Hvernig getum við sagt það? Í dæmisögu sinni af týnda syninum líkir Jesús Jehóva við hjartahlýjan föður en iðrunarfullum syni hans finnst hann óverðugur þess að fá að tilheyra fjölskyldunni aftur. Hvernig bregst faðirinn við þegar sonur hans snýr aftur heim? Jesús segir að um leið og faðirinn sér son sinn álengdar ‚hlaupi hann á móti honum, faðmi hann að sér og kyssi hann blíðlega‘. (Lúk. 15:17–20) Jehóva er eins og þessi faðir. Hann er auðmjúkur og hlustar því með fullri athygli um leið og hann heyrir bænir þeirra sem eru niðurbrotnir vegna sektar eða áhyggna. (Harmlj. 3:19, 20) Jehóva „hleypur“ til þeirra, knúinn af samúð til að hugga þá og fullvissa um miskunn sína og kærleika. (Jes. 57:15) Hvernig „hleypur“ Jehóva til okkar? Hann gerir það gjarnan fyrir atbeina öldunga, fjölskyldunnar og annarra trúsystkina. (Jak. 5:14, 15) Jehóva sér okkur fyrir hjálp vegna þess að hann vill að við séum náin honum.

4. Hvernig sýndi Jesús að það var auðvelt að nálgast hann?

4 Jesús líkir eftir föður sínum. Jesús er auðmjúkur eins og faðir hans. Þegar hann var á jörðinni átti fólk auðvelt með að nálgast hann. Því fannst ekki erfitt að spyrja hann spurninga. (Mark. 4:10, 11) Og fólk svaraði honum af hreinskilni þegar hann spurði það álits. (Matt. 16:13–16) Þegar það gerði mistök óttaðist það ekki viðbrögð hans. Fólk vissi að hann var góðhjartaður, miskunnsamur og þolinmóður. (Matt. 17:24–27) Jesús líkti svo vel eftir föður sínum að fylgjendur hans kynntust Jehóva betur. (Jóh. 14:9) Þeir skildu að Jehóva er alls ekki harður, stoltur og fjarlægur eins og trúarleiðtogar þess tíma voru. Hann er auðmjúkur og það er auðvelt að nálgast hann.

5. Af hverju eiga aðrir auðveldara með að nálgast okkur ef við erum auðmjúk?

5 Hvernig getum við líkt eftir Jehóva? Aðrir eiga auðveldara með að nálgast okkur ef við þroskum með okkur auðmýkt. Auðmýkt forðar okkur frá því að öfunda aðra, vera stolt og ósáttfús – sýna eiginleika sem ýta öðrum frá okkur. En auðmýkt hjálpar okkur að sýna góðvild, þolinmæði og sáttfýsi – eiginleika sem laða aðra að okkur. (Kól. 3:12–14) Öldungar þurfa sérstaklega að leggja sig fram til að aðrir eigi auðvelt með að nálgast þá. Til þess þurfa þeir að sjálfsögðu að vera í samskiptum við bræður og systur. Þeir kappkosta því að sækja samkomur í ríkissalnum en nota síður fjarfundabúnað, nema nauðsyn krefji. Og þeir reyna að fara með bræðrum og systrum í boðunina hús úr húsi eftir því sem aðstæður þeirra leyfa. Þau eiga auðveldara með að leita til öldunganna þegar þörf er á ef þau þekkja þá vel.

JEHÓVA ER SANNGJARN

6, 7. Nefndu dæmi um það hvernig Jehóva tók tillit til óska þjóna sinna.

6 Margt stolt fólk er ósanngjarnt í samskiptum við aðra. En þar sem Jehóva er auðmjúkur er hann sanngjarn og tekur tillit til óska annarra þótt hann viti alltaf best. Tökum sem dæmi frásöguna af Mirjam systur Móse. Hún og Aron kvörtuðu undan Móse, fulltrúa Jehóva. Mirjam var því í raun að sýna Jehóva vanvirðingu. Fyrir vikið reiddist Jehóva henni mjög og sló hana holdsveiki. En hvað gerði Jehóva þegar Móse sárbændi hann að lækna systur sína og Aron bað henni vægðar? Guð hélt ekki stoltur ákvörðun sinni til streitu. Hann hlustaði á Móse og læknaði Mirjam af því að hann er auðmjúkur. – 4. Mós. 12:1–15.

7 Jehóva sýndi einnig auðmýkt í samskiptum við Hiskía konung. Fyrir milligöngu spámanns síns upplýsti hann konunginn um að hann myndi deyja. Hiskía grábað Jehóva um að lækna sig. Jehóva hlustaði á Hiskía og lengdi ævi hans um 15 ár. (2. Kon. 20:1, 5, 6) Jehóva sýnir fólki sannarlega samúð og miskunn og er tilbúinn að hlusta á það vegna þess að hann er auðmjúkur.

8. Hvaða dæmi sýna að Jesús er sanngjarn? (Markús 3:1–6)

8 Jesús líkir eftir föður sínum. Þegar Jesús var á jörð gerði hann öðrum gott hvenær sem það var mögulegt. Hann læknaði til dæmis fólk á hvíldardegi þrátt fyrir andstöðu trúarleiðtoganna. (Lestu Markús 3:1–6.) Jesús sýnir áfram sanngirni sem höfuð kristna safnaðarins. Þegar einhver í söfnuðinum drýgir alvarlega synd er hann þolinmóður og gefur honum ærin tækifæri til að leiðrétta stefnuna. – Opinb. 2:2–5.

9. Hvernig getum við þroskað með okkur sanngirni og sýnt hana í verki? (Sjá einnig myndir.)

9 Hvernig getum við líkt eftir Jehóva? Við þurfum að vera auðmjúk og læra af Jehóva að vera sanngjörn og sýna það í verki. (Jak. 3:17) Foreldrar sem eru sanngjarnir eru ekki eftirlátir við börnin sín en gæta þess samt að ætlast ekki til of mikils af þeim. Jakob var til fyrirmyndar í þessu og tók tillit til barnanna sinna. (1. Mós. 33:12–14) Auðmjúkir og sanngjarnir foreldrar forðast að bera eitt barn saman við annað. Öldungar í söfnuðinum þurfa líka að sýna sanngirni. Þeir krefjast þess til dæmis ekki að skoðun þeirra sé fylgt heldur styðja sameiginlega ákvörðun öldungaráðsins þegar það stríðir ekki gegn meginreglum Biblíunnar. (1. Tím. 3:2, 3) Og öll getum við reynt að skilja sjónarmið annarra þótt við höfum aðra skoðun. (Rómv. 14:1) Við öll sem þjónum Jehóva viljum ‚vera þekkt fyrir að vera sanngjörn‘. – Fil. 4:5.

Myndir: Glaður faðir með ung börn sín í boðuninni hús úr húsi. 1. Hann brosir þegar sonur hans býður manni bæklinginn “Von um bjarta framtíð”. 2. Síðar brosir hann þegar dóttir hans gefur konu jw.org nafnspjald.

Faðir er með sanngjarnar væntingar til barna sinna í boðuninni. (Sjá 9. grein.)


JEHÓVA ER ÞOLINMÓÐUR

10. Á hvaða vegu hefur Jehóva sýnt þolinmæði?

10 Þú hefur trúlega tekið eftir því að hrokafullt fólk vill ekki þurfa að bíða eftir öðrum. Það er oft mjög óþolinmótt, algerlega öfugt við Jehóva. Enginn er jafn þolinmóður og hann. Hann sagði til dæmis á dögum Nóa að hann myndi bíða í 120 ár áður en hann eyddi hinum illu. (1. Mós. 6:3) Nói fékk tíma til að ala upp börnin sín og smíða örk með hjálp fjölskyldu sinnar. Síðar hlustaði engill, sem var fulltrúi Jehóva, þolinmóður á Abraham þegar hann spurði út í eyðingu Sódómu og Gómorru. Sá sem er stoltur hefði ef til vill sagt: „Hvernig dirfistu að draga í efa það sem ég ætla að gera?“ En engillinn líkti eftir Jehóva og var þolinmóður við Abraham. – 1. Mós. 18:20–33.

11. Hvers vegna sýnir Jehóva þolinmæði nú á dögum eins og kemur fram í 2. Pétursbréfi 3:9?

11 Jehóva sýnir líka þolinmæði nú á dögum af því að hann er auðmjúkur. Hann bíður þess tíma sem hann hefur ákveðið til að binda enda á þennan illa heim. Af hverju sýnir hann þolinmæði? „Því að hann vill ekki að neinn farist heldur að allir fái tækifæri til að iðrast.“ (Lestu 2. Pétursbréf 3:9.) Hefur þolinmæði Jehóva verið til einskis? Nei! Milljónir manna hafa kynnst honum og orðið vinir hans. Og við vonum að milljónir eigi eftir að bætast í hópinn. Þolinmæði Jehóva hefur samt takmörk. Hann elskar fólk en er ekki undanlátssamur. Hann leyfir illskunni ekki að viðgangast að eilífu. – Hab. 2:3.

12. Hvernig er Jesús þolinmóður eins og Jehóva?

12 Jesús líkir eftir föður sínum. Um þúsundir ára hefur Jesús líkt eftir Jehóva og sýnt þolinmæði. Hann hefur horft upp á Satan rægja bæði Jehóva og trúfasta þjóna hans. (1. Mós. 3:4, 5; Job. 1:11; Opinb. 12:10) Jesús hefur einnig séð ólýsanlegar þjáningar. Ímyndaðu þér hversu heitt hann þráir „að brjóta niður verk Djöfulsins“. (1. Jóh. 3:8) Hvað hjálpar Jesú að bíða þolinmóður eftir að Jehóva gefi honum merki um að eyða verkum Djöfulsins algerlega? Auðmýkt Jesú á stóran þátt í því. Hann veit að það er Jehóva sem ákveður hvenær rétti tíminn er kominn. – Post. 1:7.

13. Hvernig og hvers vegna var Jesús þolinmóður við lærisveinana?

13 Þegar Jesús var á jörðinni var hann þolinmóður við postula sína. Postularnir þrættu aftur og aftur um það hver þeirra væri mestur en hann lét það ekki svekkja sig. Hann sýndi þeim áfram þolinmæði. (Lúk. 9:46; 22:24–27) Hann treysti því að með tímanum myndu þeir bæta sig. Hefur þú gert sömu mistökin aftur og aftur? Ef svo er, ertu ekki þakklátur að hafa svo auðmjúkan og þolinmóðan konung?

14. Hvernig getum við þroskað með okkur þolinmæði?

14 Hvernig getum við líkt eftir Jehóva? Þegar við tileinkum okkur „huga Krists“ auðveldar það okkur að hugsa eins og Jehóva. (1. Kor. 2:16) Hvað hjálpar okkur að skilja huga Krists? Við getum ekki stytt okkur leið. Við þurfum að lesa guðspjöllin og taka okkur síðan tíma til að hugleiða frásögurnar og hvað þær segja okkur um það hvernig Jesús hugsar. Og við þurfum að biðja Jehóva að hjálpa okkur að vera auðmjúk og þolinmóð eins og Jesús. Þegar við tileinkum okkur huga Krists getum við líkt betur eftir Guði og sýnt meiri þolinmæði, bæði okkur sjálfum og trúsystkinum okkar. – Matt. 18:26–30, 35.

JEHÓVA SÝNIR AUÐMJÚKUM HEIÐUR

15. Nefndu dæmi sem sýnir að Jehóva tekur eftir auðmjúku fólki. (Sálmur 138:6)

15 Lestu Sálm 138:6. Það er ótrúlegur heiður fyrir auðmjúkt fólk að Jehóva, hinn æðsti í alheiminum, veiti því athygli. Tökum sem dæmi nokkra einstaklinga sem Jehóva hefur í gegnum aldirnar sýnt slíkan heiður. Við þekkjum suma þeirra ef til vill ekki svo vel en Jehóva lætur þeirra getið í Biblíunni. Jehóva innblés Móse að láta fóstrunnar Debóru getið með nafni, en hún var uppi á tímum ættfeðranna. Hún þjónaði trúföst fjölskyldum Ísaks og Jakobs í um 125 ár. Þótt ekki sé vitað mikið um þessa trúföstu konu sá Jehóva til þess að Móse skrifaði um hversu elskuð hún var. (1. Mós. 24:59; 35:8) Öldum síðar valdi Jehóva Davíð, ungan fjárhirði, og gerði hann að konungi yfir Ísraelsþjóðinni. (2. Sam. 22:1, 36) Stuttu eftir að Jesús fæddist sendi Guð engla til að sýna auðmjúkum fjárhirðum mikinn heiður. Þeir fengu fyrstir að vita að í Betlehem, borg í næsta nágrenni, hefði Messías fæðst. (Lúk. 2:8–11) Og þegar Jósef og María komu með Jesú í musterið sýndi Jehóva Símeon og Önnu, sem voru orðin öldruð, þann heiður að sjá son hans. (Lúk. 2:25–30, 36–38) Já, „þótt Jehóva sé hár tekur hann eftir hinum auðmjúka“.

16. Hvernig kom Jesús fram við aðra eins og faðir hans?

16 Jesús líkir eftir föður sínum. Jesús sýnir auðmjúku fólki virðingu eins og faðir hans. Hann kenndi ‚ómenntuðum almúgamönnum‘ sannleikann um Guðsríki. (Post. 4:13; Matt. 11:25) Hann læknaði líka veika og gerði það á þann hátt að þeir endurheimtu ekki bara heilsuna heldur líka sjálfsvirðinguna. (Lúk. 5:13) Kvöldið áður en Jesús var líflátinn tók hann að sér hlutverk þjóns og þvoði fætur postulanna. (Jóh. 13:5) Og áður en hann steig til himna sýndi hann öllum auðmjúkum fylgjendum sínum virðingu, bæði þá og nú, með því að fela þeim mikilvægasta verkefni sem nokkur getur fengið – að hjálpa öðrum að öðlast eilíft líf. – Matt. 28:19, 20.

17. Hvernig getum við sýnt öðrum virðingu? (Sjá einnig mynd.)

17 Hvernig getum við líkt eftir Jehóva? Við sýnum öðrum virðingu með því að segja öllum sem vilja hlusta frá fagnaðarboðskapnum, óháð bakgrunni þeirra, húðlit eða menntun. Og við sýnum bræðrum og systrum virðingu þegar við álítum þau okkur meiri, sama hvaða hæfileika við höfum eða verkefni. (Fil. 2:3) Jehóva er ánægður þegar við ‚eigum frumkvæðið‘ að því að sýna öðrum virðingu með þessum og öðrum hætti. – Rómv. 12:10; Sef. 3:12.

Tvær systur stýra biblíunámskeiði með kvenfanga.

Við líkjum eftir auðmýkt Jehóva þegar við segjum alls konar fólki frá fagnaðarboðskapnum. (Sjá 17. grein.)a


18. Hvers vegna ætlar þú að líkja eftir auðmýkt Jehóva?

18 Þegar við gerum okkar besta til að líkja eftir auðmjúkum föður okkar á himnum eiga aðrir auðveldara með að nálgast okkur. Við verðum líka sanngjarnari og þolinmóðari og sýnum öðrum virðingu. Gleymum ekki að þegar við gerum allt sem við getum til að nálgast Guð verðum við enn dýrmætari í augum hans. – Jes. 43:4.

HVERNIG GETUR AUÐMÝKT HJÁLPAÐ ÞÉR AÐ VERA …

  • viðmótsgóður?

  • sanngjarn?

  • þolinmóður?

SÖNGUR 159 Lofgjörðarlag

a MYND: Systur líkja auðmjúkar eftir Jehóva með því að kenna föngum.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila