Þið sem eruð öldruð eruð söfnuðinum til blessunar
„Þegar ég lít um öxl er ég hissa hversu miklu ég áorkaði. Núna get ekki gert eins mikið og áður sökum aldurs.“ – Connie, 83 ára.
Þú hefur ef til vill líka þurft að hægja á þér vegna þess að aldurinn hefur færst yfir. Þú hugsar kannski neikvætt um sjálfan þig vegna takmarkana þinna þótt þú hafir þjónað Jehóva trúfastlega í mörg ár. Kannski hefurðu tilhneigingu til að bera saman það sem þú gerðir áður og það sem þú gerir núna. Hvað getur hjálpað þér að hafa jákvætt hugarfar?
HVERS VÆNTIR JEHÓVA AF ÞÉR?
Spyrðu þig: Hvers væntir Jehóva af mér? Það sem segir í 5. Mósebók 6:5 getur hughreyst þig: „Þú skalt elska Jehóva Guð þinn af öllu hjarta þínu, allri sál þinni og öllum mætti þínum.“
Samkvæmt þessu versi væntir Jehóva þess að þú þjónir honum eins vel og þú getur. Þetta getur hjálpað þér að bera þig ekki saman við aðra, eða að bera saman það sem þú getur núna við það sem þú gast gert áður fyrr.
Hugleiddu þetta: Hvernig þjónaðirðu Jehóva þegar þú varst yngri? Flestir þjónar Jehóva myndu segja að þeir hefðu gefið honum sitt besta. Þitt besta var það besta sem þú gast gert þá. Hvað geturðu gefið Jehóva við núverandi aðstæður? Trúlega það besta miðað við núverandi aðstæður þínar. Ef þú horfir þannig á málin áttarðu þig kannski á því að þú ert að gefa Jehóva það sama og þú gerðir áður fyrr. Þú gafst honum þitt besta þá og þú gefur honum þitt besta núna.
Þú gafst Jehóva þitt besta þegar þú varst yngri og þú gefur Jehóva þitt besta á efri árum.
ÞAÐ SEM ÞÚ HEFUR LÆRT GETUR NÝST ÖÐRUM
Það er líka önnur hlið á þessu máli: Frekar en að líta á aldurinn sem hindrun skaltu líta á hann sem tækifæri. Núna þegar þú ert eldri geturðu gert sumt sem þú gast ekki gert þegar þú varst yngri. Þú getur til dæmis:
Deilt reynslu þinni með öðrum. Hugleiddu það sem Biblían segir í eftirfarandi versum:
Davíð konungur: „Eitt sinn var ég ungur og nú er ég gamall en aldrei hef ég séð réttlátan mann yfirgefinn né börn hans leita sér matar.“ – Sálm. 37:25.
Jósúa: „Ég á nú skammt eftir ólifað og þið vitið af öllu hjarta og allri sál að ekki eitt orð hefur brugðist af öllum þeim góðu loforðum sem Jehóva Guð ykkar hefur gefið ykkur. Þau hafa öll ræst. Ekki eitt einasta orð hefur brugðist.“ – Jós. 23:14.
Þú hefur kannski sagt eitthvað svipað þegar þú varst yngri til að hvetja aðra. En það sem Davíð og Jósúa sögðu hafði enn meira vægi vegna þess að þessir trúföstu þjónar Jehóva töluðu af áratugalangri reynslu.
Ef þú hefur þjónað Jehóva um langa hríð getur þú líka talað af reynslu um blessunina sem fylgir því. Manstu eftir tímabili þegar Jehóva hjálpaði þjónum sínum með sérstökum hætti? Segðu þá öðrum frá því! Það getur haft jákvæð áhrif. Þú getur uppörvað bræður þína og systur mjög mikið með því að segja þeim frá reynslu þinni í þjónustu Jehóva. – Rómv. 1:11, 12.
Önnur leið til að uppörva aðra er að fara á samkomur í ríkissalnum eins oft og þú getur. Þannig geturðu bæði uppörvað bræður og systur og fengið uppörvun sjálfur. Connie, sem áður er minnst á, segir: „Að mæta á samkomur kemur í veg fyrir að ég verði niðurdregin. Það er erfitt að vera döpur þegar ég finn fyrir svona miklum kærleika í ríkissalnum. Ég reyni að sýna öðrum hversu mikið ég kann að meta þá með því að gefa þeim litlar gjafir. Og ég held áfram að vera virk í þjónustunni ásamt trúsystkinum mínum.“
JEHÓVA KANN AÐ META TRÚFASTA ÞJÓNUSTU ÞÍNA
Biblían er full af frásögum af fólki sem Jehóva elskaði þótt það hefði ekki alltaf getað gert jafnmikið og það vildi. Tökum sem dæmi Símeon. Hann var aldraður Ísraelsmaður þegar Jesús fæddist. Þegar Símeon kom í musterið sá hann trúlega yngri menn sinna mikilvægum störfum þar. Hann hefur ef til vill hugsað sem svo að hann kæmi Jehóva að litlum notum þar sem hann gat ekki þjónað honum á sama hátt og ungu mennirnir. En þannig horfði Jehóva ekki á málin. Í augum hans var Símeon „réttlátur og guðrækinn“ og hann fékk að sjá ungbarnið Jesú. Jehóva notaði jafnvel Símeon til að flytja spádóm um að Jesús yrði Messías og „heilagur andi var yfir honum“. (Lúk. 2:25–35) Jehóva sá Símeon ekki sem aldraðan mann heldur mann með sterka trú.
Jehóva blessaði Símeon með því að leyfa honum að sjá ungbarnið Jesú og flytja spádóm um að hann væri Messías.
Þú getur líka verið viss um að Jehóva metur trúfasta þjónustu þína þótt þér séu takmörk sett. Hann er „ánægður og metur [fórn] eftir því sem hver og einn á en ekki eftir því sem hann á ekki“. – 2. Kor. 8:12.
Hafðu þetta í huga og einbeittu þér að því sem þú getur gert. Hugsaðu til dæmis á hvaða mismunandi vegu þú getur boðað trúna, jafnvel þótt þú getir ekki gert það í langan tíma hverju sinni. Gætirðu kannski veitt bróður eða systur uppörvun með því að hringja í þau eða senda kort? Slík kærleiksverk geta haft mikil áhrif á trúsystkini þín, sérstaklega þegar þau koma frá þeim sem hefur þjónað Jehóva lengi.
Sumum eru líkamleg takmörk sett. Lestu um reynslu systur í Austur-Afríku í meðfylgjandi rammagrein: „Það bjargaði lífi hennar.“
Mundu að trú þín og hollusta getur uppörvað aðra. Þú ert lifandi fordæmi um að sýna þolgæði og þú getur verið viss um að ‚Guð er ekki ranglátur. Hann gleymir ekki verki þínu og kærleikanum sem þú sýndir nafni hans með því að þjóna hinum heilögu eins og þú gerir enn‘. – Hebr. 6:10.
VERTU EINS VIRKUR OG ÞÚ GETUR
Rannsóknir sýna að margt eldra fólk sem hjálpar öðrum er heilsuhraustara, hefur skarpari hugsun og lifir lengur.
Að gera öðrum gott leysir að sjálfsögðu ekki öll vandamál sem fylgja ellinni. Aðeins Guðsríki getur tekið á rót vandans – syndugu eðli okkar – þannig að við eldumst ekki lengur og deyjum. – Rómv. 5:12.
En þjónustan við Jehóva, sem felur meðal annars í sér að hjálpa öðrum að kynnast honum, styrkir von þína og getur jafnvel bætt heilsuna. Þið sem eruð á efri árum, verið viss um að Jehóva kann að meta það sem þið gerið í þjónustu hans og að söfnuðurinn metur ykkur mikils fyrir trú ykkar.