NÁMSGREIN 49
SÖNGUR 44 Bæn hins bágstadda
Jobsbók getur hjálpað okkur þegar við gefum ráð
„Hlustaðu nú á mig, Job.“ – JOB. 33:1.
Í HNOTSKURN
Við lærum af Jobsbók hvernig við eigum að gefa áhrifarík ráð eða leiðbeiningar.
1, 2. Hvaða áskorun stóðu þrír kunningjar Jobs og Elíhú frammi fyrir?
FRÉTTIRNAR berast eins og eldur í sinu um Austurlönd. Job, maður sem er þekktur vítt og breitt fyrir ríkidæmi sitt, hefur misst allt sem hann átti. Þrír kunningjar Jobs, þeir Elífas, Bildad og Sófar, heyra hvernig komið er fyrir honum og leggja upp í ferð til Úslands til að hughreysta hann. En þeim er illa brugðið þegar þeir sjá hversu alvarlegt ástandið er.
2 Sjáðu fyrir þér sögusviðið. Job hefur nánast misst allt sem er honum dýrmætt. Stórar hjarðir nautgripa, úlfalda, asna og sauðfjár hafa ýmist verið drepnar eða þeim rænt. Börnin hans eru öll dáin og flestir þjóna hans hafa verið drepnir. Húsið þar sem börn Jobs dóu eru rústir einar. Og ofan á allt þetta er hann sjálfur orðinn alvarlega veikur. Líkami hans er þakinn kýlum og hann er sárkvalinn. Þremenningarnir sjá Job álengdar þar sem hann situr niðurbrotinn í öskunni. Hvernig bregðast þeir við? Í heila sjö daga segja þeir ekki aukatekið orð við hann þótt hann sé sárþjáður. (Job. 2:12, 13) Ungur maður að nafni Elíhú kemur síðan og sest niður nálægt þeim. Loks rýfur Job þögnina. Hann bölvar deginum sem hann fæddist og óskar sér dauða. (Job. 3:1–3, 11) Job sárvantar huggun og hughreystingu! Nú kemur í ljós hvort kunningjar hans reynast sannir vinir og er raunverulega annt um velferð hans. Sjáum hvað þeir gera.
3. Hvað skoðum við í þessari námsgrein?
3 Jehóva innblés Móse að færa í letur það sem þrír kunningjar Jobs og Elíhú sögðu og gerðu. Það er eftirtektarvert að sumt af því sem Elífas sagði virðist hafa verið innblásið af illum anda. Orð Elíhús voru aftur á móti innblásin af Jehóva. (Job. 4:12–16; 33:24, 25) Í Jobsbók er því að finna sum af þeim bestu ráðum sem hafa verið gefin en líka sum af þeim verstu. Eitt af því sem við getum lært af Jobsbók er hvernig við förum að þegar við gefum ráð. Fyrst skoðum við hvernig þrír kunningjar Jobs eru víti til varnaðar. Síðan ræðum við um gott fordæmi Elíhús. Við skoðum bæði hvað Ísraelsmenn gátu lært af Jobsbók og hvað við getum lært af henni.
ÞRÍR KUNNINGJAR JOBS GEFA HONUM RÁÐ
4. Hvers vegna mistókst þremenningunum ætlunarverk sitt? (Sjá einnig mynd.)
4 Biblían segir að þremenningarnir hafi farið saman til Jobs „til að sýna honum samúð og hughreysta hann“ eftir að hafa heyrt um hremmingarnar sem hann hafði lent í. (Job. 2:11) En ætlunarverkið mistókst. Fyrir því eru að minnsta kosti þrjár ástæður. Í fyrsta lagi drógu þeir rangar ályktanir í fljótfærni. Þeir gerðu til dæmis ranglega ráð fyrir því að Jehóva væri að refsa Job fyrir syndir sem hann hefði drýgt.a (Job. 4:7; 11:14) Í öðru lagi voru orð þeirra særandi, gagnslaus og illkvittin. Allir mennirnir þrír komu með staðhæfingar sem hljómuðu vel en voru í raun innantóm orð. (Job. 13:12) Bildad var svo ónotalegur að segja tvívegis við Job að hann talaði of mikið. (Job. 8:2; 18:2) Sófar gaf illkvittnislega í skyn að Job væri „heimskingi“. (Job. 11:12) Og í þriðja lagi var tónninn oft yfirlætisfullur, kaldhæðinn og ásakandi þótt þeir hafi ekki endilega hækkað róminn. (Job. 15:7–11) Þessir menn reyndu hvað þeir gátu að sanna að Job hefði rangt fyrir sér í stað þess að hugga hann og byggja upp trú hans.
Þegar þú gefur einhverjum ráð skaltu forðast að tala niður til hans. Gerðu þitt besta til að hjálpa honum. (Sjá 4. grein.)
5. Hvaða áhrif höfðu leiðbeiningar þremenninganna?
5 Skiljanlega höfðu leiðbeiningar þremenninganna ekki tilætluð áhrif. Job leið enn verr en áður. (Job. 19:2) Það kemur ekki á óvart að hann skyldi fara í vörn og sýna dómgreindarleysi með því að segja hluti sem hann átti ekki að segja. (Job. 6:3, 26) Leiðbeiningar þremenninganna voru ekki í samræmi við hugsunarhátt Jehóva og þeir sýndu Job enga samúð. Þannig urðu þeir óafvitandi verkfæri í höndum Satans. (Job. 2:4, 6) Hvað gat fólk fyrr á tímum lært af þessari frásögu og hvernig getur hún nýst okkur nú á dögum?
6. Hvaða lærdóm gátu öldungar Ísraels dregið af slæmu fordæmi kunningja Jobs?
6 Hvað gátu Ísraelsmenn lært? Þegar Jehóva fékk Ísraelsmönnum lögin í hendur skipaði hann hæfa menn, öldunga, til að dæma þjóðina og hjálpa henni að fylgja lögunum. (5. Mós. 1:15–18; 27:1) Þeir þurftu að hlusta vandlega áður en þeir gáfu leiðbeiningar eða dæmdu í málum. (2. Kron. 19:6) Þeir þurftu að vera tilbúnir til að spyrja spurninga en ekki gera ráð fyrir að þeir vissu allar staðreyndir máls. (5. Mós. 19:18) Þessir ráðgjafar Ísraels þurftu að passa sig að vera ekki hranalegir við þá sem leituðu til þeirra eftir aðstoð. Ef þeir væru hins vegar óþolinmóðir hefði fólk átt erfiðara með að opna sig. (2. Mós. 22:22–24) Öldungar Ísraels sem íhuguðu frásögu Jobs hafa sannarlega getað lært ýmislegt.
7. Hverjir fleiri en öldungar Ísraels gátu gefið ráð og hvernig hafa þeir getað nýtt sér Jobsbók? (Orðskviðirnir 27:9)
7 Þroskaðir karlmenn voru ekki þeir einu sem gátu gefið ráð í Ísrael. Allir Ísraelsmenn – ungir og gamlir, karlar og konur – gátu gefið góð ráð sem hjálpuðu vini að taka framförum í trúnni eða leiðrétta stefnu sína. (Sálm. 141:5) Að gefa einlæg ráð sýnir að maður er sannur vinur. (Lestu Orðskviðina 27:9.) Slæmt fordæmi þriggja kunningja Jobs var sýnidæmi fyrir Ísraelsmenn um það hvað þeir ættu ekki að segja og gera þegar þeir gæfu ráð.
8. Hvaða gildrur ættum við að forðast þegar við gefum ráð? (Sjá einnig myndir.)
8 Hvað getum við lært? Við viljum gjarnan hjálpa bræðrum okkar og systrum þegar þau ganga í gegnum prófraunir. Og til að geta það verðum við að forðast að ganga í sömu gildrur og þrír kunningja Jobs gerðu. Fyrst þurfum við að forðast að draga ályktanir í fljótfærni og við ættum að ganga úr skugga um að við vitum um hvað málið snýst. Síðan ættum við að forðast að gefa ráð sem byggja aðallega á eigin reynslu, eins og Elífas gerði margoft. Þess í stað ættum við að byggja ráð okkar á óhagganlegu orði Guðs. (Job. 4:8; 5:3, 27) Auk þess ættum við að forðast að segja eitthvað særandi eða illkvittið. Munum að sumt af því sem Elífas og félagar hans sögðu var satt. Páll postuli vitnaði til dæmis síðar í setningu sem Elífas sagði. (Berðu saman Jobsbók 5:13 og 1. Korintubréf 3:19.) En flest af því sem þeir sögðu sýndi Jehóva í röngu ljósi og særði Job. Fyrir vikið leit Jehóva svo á að þeir hefðu sagt ósatt. (Job. 42:7, 8) Góð ráð sýna Jehóva aldrei í neikvæðu ljósi, að hann sé ósanngjarn, eða gefa í skyn að þjónar hans séu ekki elskuverðir. Skoðum nú hvað við getum lært af fordæmi Elíhús.
Þegar þú gefur ráð skaltu (1) reyna að skilja tilfinningar viðkomandi, (2) nota orð Guðs og (3) vera hlýlegur. (Sjá 8. grein.)
ELÍHÚ GEFUR JOB RÁÐ
9. Útskýrðu hvers vegna Job þurfti á hjálp að halda eftir samtalið við kunningjana og hvernig Jehóva sá fyrir hjálp.
9 Andrúmsloftið hlýtur að hafa verið spennuþrungið eftir þessar áköfu rökræður. Þeir töluðu svo mikið að það sem þeir sögðu fyllir 28 kafla Biblíunnar. Margt var sagt í reiði eða pirringi. Engin furða að Job var enn þjakaður og þurfti á huggun og leiðréttingu að halda. Hvernig hjálpaði Jehóva Job? Hann notaði Elíhú til að gefa honum ráð. Hvers vegna tók Elíhú ekki fyrr til máls? „Ég er ungur,“ sagði hann, „en þið eruð aldraðir. Þess vegna sýndi ég þá virðingu að halda aftur af mér.“ (Job. 32:6, 7) Elíhú gerði sér grein fyrir að eldra fólk hefur oft meiri visku og reynslu í lífinu en yngra fólk vegna þess að það hefur lifað lengur. Eftir að hafa hlustað þolinmóður á Job og kunningja hans gat Elíhú ekki lengur haldið aftur af sér og tók til máls: „Aldurinn einn gerir engan vitran og það eru ekki bara aldraðir menn sem skilja hvað er rétt.“ (Job. 32:9) Hvað sagði Elíhú því næst og hvernig bar hann sig að?
10. Hvað gerði Elíhú áður en hann gaf Job ráð? (Jobsbók 33:6, 7)
10 Elíhú skapaði rétta andrúmsloftið áður en hann gaf Job ráð. Hvernig? Hann byrjaði á því að ná stjórn á tilfinningum sínum, en Biblían segir að hann hafi reiðst þegar hann hlustaði á samtal þeirra. (Job. 32:2–5) Samt lét hann ekki eitt styggðaryrði falla heldur var hann auðmjúkur og hughreysti Job. Hann sagði til dæmis: „Við erum jafnir frammi fyrir hinum sanna Guði.“ (Lestu Jobsbók 33:6, 7.) Síðan fullvissaði hann Job um að hann hefði hlustað vandlega á hann, eins og sjá má þegar hann vitnaði í meginatriðin í sex varnarræðum Jobs. (Job. 32:11; 33:8–11) Og hann fór eins að þegar hann gaf honum aftur ráð. – Job. 34:5, 6, 9; 35:1–4.
11. Hvernig bar Elíhú sig að þegar hann gaf Job ráð? (Jobsbók 33:1)
11 Elíhú sýndi hinum trúfasta Job virðingu þegar hann gaf honum ráð. Hann notaði til dæmis nafnið hans, en svo virðist sem hinir kunningjar Jobs hafi ekki gert það. (Lestu Jobsbók 33:1.) Hann gaf Job líka tækifæri til að tjá tilfinningar sínar, en Elíhú var ef til vill ekki búinn að gleyma hvað það var erfitt fyrir hann sjálfan að segja ekkert meðan hann hlustaði á rökræður hinna. (Job. 32:4; 33:32) Elíhú leiddi Job líka fyrir sjónir að sumt af því sem hann sagði væri ekki vel ígrundað og minnti hann vingjarnlega á visku Jehóva, mátt, réttlæti og tryggan kærleika. (Job. 36:18, 21–26; 37:23, 24) Góð ráð Elíhús hjálpuðu Job án efa að vera tilbúinn að taka við frekari leiðbeiningum, að þessu sinni frá skapara sínum. (Job. 38:1–3) Hvernig gæti fordæmi Elíhús hafa gagnast fólki fyrr á tímum og hvernig getur það nýst okkur nú á dögum?
12. Hvernig hjálpaði Jehóva fólki sínu fyrir milligöngu spámanna og hvernig gátu Ísraelsmenn lært af fordæmi Elíhús?
12 Hvernig hafa Ísraelsmenn getað nýtt sér fordæmi Elíhús? Af sögu Ísraelsmanna má sjá að Jehóva notaði spámenn til að kenna og leiðrétta þá. Á tímum dómaranna notaði Jehóva til dæmis spákonuna Debóru til að leiðbeina þjóð sinni. Og Samúel var talsmaður Jehóva frá unga aldri. (Dóm. 4:4–7; 5:7; 1. Sam. 3:19, 20) Á tímum konunganna notaði Jehóva einn spámanninn á fætur öðrum til að styrkja trú þjóðarinnar og leiðrétta þá sem villtust frá sannri tilbeiðslu. (2. Sam. 12:1–4; Post. 3:24) Fordæmi Elíhús, sem fjallað er um í Jobsbók, gat hafa hjálpað trúföstum mönnum og konum að vita hvernig best er að fara að þegar gefin eru ráð.
13. Hvernig geta kristnir menn nú á tímum verið uppörvandi við trúsystkini sín?
13 Hvernig getum við nýtt okkur fordæmi Elíhús? Sem kristnir menn höfum við líka það verkefni að kunngera vilja Guðs sem er að finna í orði hans, Biblíunni. Við reynum líka að hughreysta og hvetja trúsystkini með því sem við segjum. (1. Kor. 14:3) Öldungar þurfa að vera sérstaklega meðvitaðir um nauðsyn þess að ‚vera vingjarnlegir í tali‘, líka þegar trúsystkini er í uppnámi eða segir eitthvað „í hugsunarleysi“. – Kól. 4:6; Job. 6:3; 1. Þess. 5:14.
14, 15. Hvernig geta öldungar líkt eftir Elíhú þegar þeir gefa einhverjum leiðbeiningar?
14 Ímyndum okkur að öldungur frétti að systir í söfnuðinum sé niðurdregin. Hann og annar bróðir heimsækja hana og reyna að uppörva hana. Systirin lætur í ljós neikvæðar tilfinningar og segir að þótt hún mæti á samkomur og fari í boðunina sé hún ekki glöð. Hvernig bregðast bræðurnir við?
15 Þeir byrja sennilega á því að reyna að skilja hvað liggur að baki þessum tilfinningum. Til að geta það verða þeir að vera þolinmóðir og hlusta vel á hana. Kannski líður henni eins og hún sé ekki nógu góð og að Jehóva elski hana ekki. Eða eru „áhyggjur lífsins“ að íþyngja henni? (Lúk. 21:34) Síðan reyna bræðurnir að hrósa henni fyrir það góða sem hún gerir. Þeir gætu til dæmis hrósað henni fyrir að sækja samkomur og boða trúna jafnvel þótt það sé ekki alltaf auðvelt fyrir hana. Og að síðustu þegar þeir skilja aðstæður hennar og af hverju hún er niðurdregin nota þeir Biblíuna til að fullvissa hana um að Jehóva elski hana. – Gal. 2:20.
HÖLDUM ÁFRAM AÐ LÆRA AF JOBSBÓK
16. Hvernig getum við haldið áfram að læra af Jobsbók?
16 Það er margt dýrmætt sem við getum lært af því að rannsaka Jobsbók! Eins og við sáum í námsgreininni á undan útskýrir þessi innblásna frásaga ekki aðeins af hverju Guð leyfir þjáningar heldur líka hvernig við getum verið þolgóð. Eins og við höfum séð í þessari námsgrein getum við öll lært að gefa áhrifarík ráð með því að fylgja góðu fordæmi Elíhús og láta fordæmi þremenninganna vera okkur víti til varnaðar. Hvernig væri að rifja upp það sem þú hefur lært af Jobsbók áður en þú gefur einhverjum ráð? Og settu þér það markmið að lesa þessa merkilegu bók ef það er langt síðan þú last hana síðast. Þú munt örugglega finna marga fleiri gullmola í henni!
SÖNGUR 125 „Sælir eru miskunnsamir“
a Svo virðist sem illur andi hafi sannfært Elífas um að Jehóva áliti engan mann réttlátan og því gæti enginn maður nokkurn tíma þóknast honum. Elífas trúði þessari lygi. Hann endurtók hana í hvert sinn sem hann tók til máls. – Job. 4:17; 15:15, 16; 22:2.