Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w25 desember bls. 2–7
  • Jobsbók getur hjálpað okkur þegar við þjáumst

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Jobsbók getur hjálpað okkur þegar við þjáumst
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • GUÐ LEYFIR ÞJÁNINGAR JOBS
  • SAGA JOBS HJÁLPAR OKKUR AÐ VERA ÞOLGÓÐ
  • NOTUM JOBSBÓK ÞEGAR VIÐ HJÁLPUM ÖÐRUM
  • Job heiðraði nafn Jehóva
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2009
  • „Vona á Drottin“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2022
  • Höfuðþættir Jobsbókar
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2006
  • „Ég verð ráðvandur“
    Líkjum eftir trú þeirra
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
w25 desember bls. 2–7

NÁMSGREIN 48

SÖNGUR 129 Reynumst þolgóð

Jobsbók getur hjálpað okkur þegar við þjáumst

„Guð gerir aldrei neitt illt.“ – JOB. 34:12.

Í HNOTSKURN

Með því að lesa Jobsbók fáum við skýringar á því hvers vegna Guð leyfir þjáningar og hvernig við getum verið þolgóð þegar við þjáumst.

1, 2. Hvers vegna ættum við að lesa Jobsbók?

HEFURÐU lesið Jobsbók nýlega? Þótt það séu um 3.500 ár síðan hún var skrifuð er þessi forna bók oft talin ein af meistaraverkum heimsbókmenntanna. Ritari hennar hefur verið kallaður „bókmenntasnillingur“ vegna þess að hann notar falleg og áhrifamikil orð en einfaldan stíl. Móse ritaði þessa merkilegu bók en Jehóva Guð er höfundurinn. – 2. Tím. 3:16.

2 Jobsbók er mjög mikilvæg bók í Biblíunni. Hvers vegna? Í fyrsta lagi varpar hún ljósi á mikilvægt mál sem menn og englar standa frammi fyrir – helgun nafns Jehóva. Þar fáum við líka að kynnast stórkostlegum eiginleikum Jehóva, eins og kærleika hans, visku, réttlæti og mætti. Í þessari bók er Jehóva kallaður „Hinn almáttugi“ 31 sinni, oftar en samanlagt í öllum öðrum bókum Biblíunnar. Í Jobsbók er að finna svör við mörgum mikilvægum spurningum lífsins, eins og spurningunni sem brennur á mörgum: Hvers vegna leyfir Guð þjáningar?

3. Hvað getum við lært af Jobsbók?

3 Þegar við stöndum uppi á fjalli fáum við annað sjónarhorn á umhverfi okkar og sjáum sumt í skýrara ljósi. Á líkan hátt hjálpar Jobsbók okkur að sjá erfiðleika lífsins í stærra samhengi – frá sjónarhóli Jehóva. Skoðum hvernig þessi bók getur hjálpað okkur þegar við þjáumst. Við fáum að vita hvað Ísraelsmenn hafa getað lært af frásögunni af Job og hvernig hún gagnast okkur nú á dögum. Einnig lærum við hvernig við getum notað þessa frásögu til að hjálpa öðrum.

GUÐ LEYFIR ÞJÁNINGAR JOBS

4. Hvað var ólíkt með Job og sumum Ísraelsmönnum í Egyptalandi?

4 Á þeim tíma sem Ísraelsmenn þjáðust sem þrælar í Egyptalandi bjó maður að nafni Job í Úslandi, en það var mögulega austan við fyrirheitna landið í norðanverðri Arabíu. Job þjónaði Jehóva trúfastur en Ísraelsmenn höfðu á hinn bóginn farið að tilbiðja skurðgoð í Egyptalandi. (Jós. 24:14; Esek. 20:8) Jehóva sagði um Job: „Hann á engan sinn líka á jörðinni.“a (Job. 1:8) Job var mjög auðugur og naut mikillar virðingar – meiri en allir í Austurlöndum. (Job. 1:3) Það hlýtur að hafa reitt Satan til reiði að hafa séð þennan þekkta og áhrifamikla mann þjóna Guði af trúfesti.

5. Hvers vegna leyfði Jehóva þjáningar Jobs? (Jobsbók 1:20–22; 2:9, 10)

5 Satan hélt því fram að Job myndi hætta að tilbiðja Jehóva ef hann þyrfti að þjást. (Job. 1:7–11; 2:2–5) Jehóva elskaði Job mjög mikið en blygðunarlaus staðhæfing Satans vakti margar mikilvægar spurningar. Jehóva gaf Satan því leyfi til að sýna fram á hvort staðhæfing hans ætti við rök að styðjast. (Job. 1:12–19; 2:6–8) Satan rændi Job hjörðum hans, sá til þess að börnin hans tíu dæju og sló hann sársaukafullum kýlum frá hvirfli til ilja. En þessar grimmilegu tilraunir til að brjóta á bak aftur ráðvendni Jobs mistókust. (Lestu Jobsbók 1:20–22; 2:9, 10.) Með tímanum gaf Jehóva Job aftur heilsuna, auð og gott orðspor. Og hann gaf honum tíu börn til viðbótar. Hann lengdi líka líf Jobs um 140 ár, þannig að hann lifði nógu lengi til að sjá fjóra ættliði afkomenda sinna vaxa úr grasi. (Job. 42:10–13, 16) Hvernig hefur þessi frásaga getað nýst þjónum Guðs til forna og hvað getum við lært af henni?

6. Hvernig hefur saga Jobs getað hjálpað Ísraelsþjóðinni? (Sjá einnig mynd.)

6 Hvernig hafa Ísraelsmenn getað haft gagn af frásögunni? Líf Ísraelsmanna í Egyptalandi hafði ekki verið auðvelt. Jósúa og Kaleb höfðu verið þrælar þar á unga aldri. Þeir þurftu síðan að reika um óbyggðirnar í 40 ár vegna þess að aðrir af þjóðinni óhlýðnuðust Jehóva. Ef Ísraelsmenn þekktu söguna um prófraunir Jobs og hvernig þeim lauk hefur það án efa hjálpað þeim, svo og komandi kynslóðum, að skilja hver er í raun ábyrgur fyrir þjáningum. Þeir skildu líka betur hvers vegna Guð leyfir þjáningar og hversu mikið hann metur ráðvendni manna og trúfesti.

Ísraelsmaður að hlaða múrsteinum í Egyptalandi er hugsandi á svip. Fyrir aftan hann slá Egyptar aðra vinnandi Ísraelsmenn með prikum.

Ísraelsmenn sem voru þrælar í Egyptalandi um langan tíma hafa um síðir fengið að heyra um prófraunir Jobs og það hefur getað gagnast þeim. (Sjá 6. grein)


7, 8. Hvernig getur Jobsbók hjálpað þeim sem þjást? Nefndu dæmi.

7 Hvaða gagn getum við haft af frásögunni? Margir hafa því miður glatað trúnni á Guð vegna þess að þeir skilja ekki hvers vegna gott fólk þjáist. Hazelb frá Rúanda er dæmi um það. Þegar hún var stelpa trúði hún á Guð. En líf hennar breyttist til hins verra. Foreldrar hennar skildu og mamma hennar giftist öðrum manni sem beitti Hazel ofbeldi. Á táningsaldri var henni nauðgað. Hún sótti trúarlegar samkomur en fékk enga huggun þar. Síðar skrifaði Hazel bréf til Guðs: „Guð, ég bað til þín og reyndi að gera það sem er rétt en þú launaðir gott með illu. Ég er hætt að tilbiðja þig og ætla núna að gera það sem gerir mig hamingjusama.“ Við finnum innilega til með fólki, eins og Hazel, sem hefur verið talið trú um að Guð sé ábyrgur fyrir þjáningum þess.

8 Frásagan af Job kennir okkur hins vegar að Guð beri ekki ábyrgð á þjáningunum heldur Satan! Við höfum líka lært að gera ekki ráð fyrir því að þeir sem þjást séu að uppskera það sem þeir hafa sáð. Í Biblíunni segir að „tími og tilviljun“ mæti okkur og geti gert hverjum sem er lífið leitt. (Préd. 9:11; Job. 4:1, 8) Og við höfum fengið að vita að með því að halda út í prófraunum svörum við ásökunum Satans og eigum þátt í að verja orðspor Jehóva. (Job. 2:3; Orðskv. 27:11) Við lítum ekki á það sem við höfum lært sem sjálfsagðan hlut. Við skiljum nú sannleikann um það hvers vegna við og ástvinir okkar þjáumst. Seinna meir fór Hazel að rannsaka Biblíuna með vottum Jehóva og komst að raun um að Guð bæri ekki ábyrgð á þjáningum hennar. Hún segir: „Ég bað aftur til Guðs og sagði honum hvernig mér leið. Ég sagði honum að þegar ég sagðist ætla að hætta að tilbiðja hann hefði ég í raun ekki gert það. Ég þekkti Guð ekki í raun og veru. Núna skil ég að Jehóva elskar mig og ég er loksins hamingjusöm.“ Við erum mjög þakklát að vita hvers vegna Guð leyfir þjáningar. Skoðum nú hvernig frásagan af Job getur hjálpað okkur í prófraunum.

SAGA JOBS HJÁLPAR OKKUR AÐ VERA ÞOLGÓÐ

9. Hvernig leið Job þar sem hann sat í öskunni? (Jakobsbréfið 5:11)

9 Sjáðu Job fyrir þér þar sem hann situr einn í öskunni. Líkami hans er þakinn sárum og hann er sárþjáður. Húðin er illa farin og hann hefur látið mikið á sjá. Job er örmagna og það eina sem hann getur gert er að skafa sár sín með leirbroti og gefa örvæntingu sinni lausan tauminn. En Job þraukaði ekki bara heldur var hann þolgóður. (Lestu Jakobsbréfið 5:11.) Hvað hjálpaði honum að vera þolgóður?

10. Hvernig var samband Jobs við Jehóva? Útskýrðu svarið.

10 Job sagði Jehóva frá því hvernig honum leið. (Job. 10:1, 2; 16:20) Í þriðja kafla Jobsbókar segir til dæmis frá því hvernig Job kvartaði yfir hörmungunum sem hann varð fyrir og ályktaði ranglega að Jehóva hefði valdið. Síðan komu þrír vinir Jobs og sögðu aftur og aftur að Guð væri að refsa honum fyrir syndir hans. En Job hélt því stöðugt fram að hann væri Jehóva ráðvandur. Um tíma gáfu orð Jobs í skyn að hann áliti sjálfan sig réttlátari en Guð. (Job. 10:1–3; 32:1, 2; 35:1, 2) En Job viðurkenndi líka að stundum talaði hann „í hugsunarleysi“ vegna þess að honum var svo mikið í mun að sanna ráðvendni sína. (Job. 6:3, 26) Í 31. kafla sjáum við að Job vildi að Guð svaraði honum og hreinsaði hann af ákærunum. (Job. 31:35) Auðvitað var ekki rétt af Job að fara fram á að Guð segði honum hvers vegna hann þjáðist.

11. Hvernig brást Jehóva við því sem Job sagði um ráðvendni sína?

11 Við skiljum að örvæntingarfull ósk Jobs endurspeglar í raun óbifanlega hollustu hans gagnvart Jehóva og bjargfasta von um að hann myndi dæma af sanngirni. Þegar Jehóva svaraði Job að lokum úr stormi fór hann ekki út í smáatriði um ástæðuna fyrir þjáningum Jobs. Og hann refsaði Job ekki fyrir að segja hvernig honum leið eða fyrir að halda því fram að hann hefði ekki gert neitt rangt. Jehóva leiðbeindi Job eins og faðir leiðbeinir syni. Það var besta leiðin til að hjálpa Job. Fyrir vikið viðurkenndi hann auðmjúkur hversu lítið hann vissi í raun og iðraðist þess sem hann hafði sagt í fljótfærni. (Job. 31:6; 40:4, 5; 42:1–6) Hvernig hefur þessi frásaga getað nýst fólki áður fyrr og hvernig getur hún gagnast okkur nú á dögum?

12. Hvernig hafa Ísraelsmenn getað haft gagn af frásögunni um Job?

12 Hvernig hafa Ísraelsmenn getað haft gagn af frásögunni? Ísraelsmenn hafa getað lært af því sem henti Job. Tökum Móse sem dæmi. Hann fékk að reyna margs konar erfiðleika, vonbrigði og hindranir þegar hann gegndi hlutverki leiðtoga Ísraelsþjóðarinnar. Ísraelsmenn kvörtuðu oft gegn Jehóva þegar lífið var erfitt. En Móse leitaði til Jehóva á erfiðum tímum. (2. Mós. 16:6–8; 4. Mós. 11:10–14; 14:1–4, 11; 16:41, 49; 17:5) Fordæmi Jobs hefur getað hjálpað Móse þegar Jehóva agaði hann. Þegar Ísraelsmenn dvöldu til dæmis í Kades í óbyggðunum, trúlega á fertugasta árinu, ‚talaði hann í fljótfærni‘ og gaf Jehóva ekki það lof sem honum bar. (Sálm. 106:32, 33) Jehóva leyfði Móse því ekki að fara inn í fyrirheitna landið. (5. Mós. 32:50–52) Það hlýtur að hafa verið sárt að vera agaður þannig en Móse var auðmjúkur og tók við aganum frá Jehóva. Frásagan af Job hefur líka getað hjálpað þeim kynslóðum Ísraelsmanna sem komu á eftir til að halda út í prófraunum sem urðu á vegi þeirra. Með því að hugleiða frásöguna gátu trúfastir einstaklingar lært að tjá Jehóva tilfinningar sínar og forðast að réttlæta sjálfa sig. Þeir gátu líka lært að taka við aga Jehóva af auðmýkt.

13. Hvernig getur frásagan af Job hjálpað okkur að vera þolgóð? (Hebreabréfið 10:36)

13 Hvaða gagn getum við haft af frásögunni? Við þurfum líka að vera þolgóð sem þjónar Guðs. (Lestu Hebreabréfið 10:36.) Sum okkar eru til dæmis að glíma við líkamleg eða andleg veikindi, fjölskylduvandamál, ástvinamissi eða einhver önnur alvarleg vandamál. Og stundum getur eitthvað sem fólk gerir eða segir dregið okkur enn meira niður. (Orðskv. 12:18) En Jobsbók kennir okkur að við getum tjáð Jehóva innstu tilfinningar okkar og treyst því að hann hlusti á okkur. (1. Jóh. 5:14) Hann fordæmir okkur ekki þótt við segjum stundum eitthvað „í fljótfærni“ þegar við áköllum hann í einlægni eins og gerðist hjá Job. Guð gefur okkur þann styrk og visku sem við þurfum til að vera þolgóð. (2. Kron. 16:9; Jak. 1:5) Og Jehóva leiðréttir ef til vill hugsunarhátt okkar þegar þörf er á, rétt eins og hann leiðrétti Job. Hann gæti gefið okkur leiðbeiningar þegar við lesum í Biblíunni og ritum okkar eða þegar öldungur eða þroskaður vinur talar við okkur. Frásagan af Job undirstrikar að við þurfum að sýna þolgæði þegar Jehóva leiðréttir okkur. (Hebr. 12:5–7) Það gerði Job gott að hlusta á Jehóva og hið sama á við um okkur. Það er okkur til góðs að vera auðmjúk og taka við leiðbeiningum. (2. Kor. 13:11) Við getum lært margt gott af Job. Skoðum nú hvernig við getum notað þessa frásögu til að hjálpa öðrum.

NOTUM JOBSBÓK ÞEGAR VIÐ HJÁLPUM ÖÐRUM

14. Hvaða rök getum við notað í boðuninni þegar við útskýrum hvers vegna fólk þjáist?

14 Hefurðu einhvern tíma hitt fólk í boðuninni sem spyr hvers vegna gott fólk þarf að þjást? Hvernig svaraðir þú? Við útskýrum gjarnan það sem Biblían segir að hafi gerst í Edengarðinum. Við bendum oft fyrst á að Satan, ill andavera, hafi logið að fyrstu hjónunum og að það hafi orðið til þess að þau gerðu uppreisn á móti Guði. (1. Mós. 3:1–6) Svo segjum við kannski að afleiðingar uppreisnarinnar séu þjáningar og dauði. (Rómv. 5:12) Að lokum bendum við gjarnan á að Guð láti nógu langan tíma líða til að sýna fram á að Satan hafi logið og til að gefa fólki tækifæri til að heyra fagnaðarboðskapinn um að endi verði bundinn á þjáningar. (Opinb. 21:3, 4) Þetta er góð leið til að svara spurningunni og getur hjálpað mörgum að skilja hvers vegna gott fólk þarf að þjást.

15. Hvernig gætum við notað Jobsbók til að útskýra hvers vegna gott fólk þjáist? (Sjá einnig myndir.)

15 Skoðum aðra röksemdafærslu sem við lærum af Jobsbók. Þú gætir byrjað á því að hrósa viðmælanda þínum fyrir góða spurningu. Því næst gætirðu bent honum á að Job, trúfastur maður sem þjáðist mikið, spurði svipaðrar spurningar. Hann trúði því jafnvel að Guð ætti að einhverju leyti sök á þjáningum hans. (Job. 7:17–21) Það getur vakið athygli viðmælanda þíns að fólk hafi hugsað eins og hann fyrir svona löngu síðan. Síðan gætirðu útskýrt af háttvísi að það hafi ekki verið Guð sem orsakaði þjáningar Jobs heldur Djöfullinn. Hann gerði það til að reyna að sýna fram á að menn þjóni Guði aðeins af eigingjörnum ástæðum. Þú gætir bætt því við að Guð hafi leyft þjáningar Jobs en ekki staðið á bak við þær og þannig hafi hann sýnt að hann treysti trúföstu fólki til að sanna að Satan hefði rangt fyrir sér. Að lokum gætirðu bent á að Guð blessaði Job fyrir trúfesti sína þegar fram liðu stundir. Við getum huggað aðra með því að fullvissa þá um að þjáningar komi ekki frá Jehóva.

Myndir: 1. Örvingluð kona heldur á innrammaðri mynd sem hún fann í rústum eftir skógarelda. 2. Síðar hlustar konan á systur við ritatrillu lesa biblíuvers rétt hjá neyðarhjálparstöð.

Hvernig geturðu notað Jobsbók til að fullvissa aðra um að það illa sem gerist sé ekki Guði að kenna? (Sjá 15. grein)


16. Nefndu dæmi sem sýnir hvernig Jobsbók getur hjálpað þeim sem þjást.

16 Skoðum hvernig Jobsbók hjálpaði Mario. Dag einn árið 2021 var systir í símastarfi. Í fyrsta samtalinu las hún biblíuvers fyrir Mario og útskýrði fyrir honum að Guð hlustaði ekki einungis á bænir okkar heldur gæfi okkur líka von og góða framtíð. Þegar hún spurði Mario hvað honum fyndist um versið sagðist hann hafa verið að skrifa kveðjubréf þegar hún hringdi. Hann sagði: „Ég trúi á Guð en í morgun velti ég því fyrir mér hvort hann hefði yfirgefið mig.“ Í næsta skipti sem þau töluðu saman ræddu þau um þjáningar Jobs. Mario ákvað að lesa alla Jobsbók. Systir okkar sendi honum krækju á Nýheimsþýðingu Biblíunnar. Hver var árangurinn? Mario fór að kynna sér Biblíuna og var spenntur að læra meira um þann ástríka Guð sem sýndi honum áhuga.

17. Hvers vegna ert þú þakklátur Jehóva fyrir að láta skrá sögu Jobs í innblásið orð sitt? (Jobsbók 34:12)

17 Orð Guðs hefur gríðarlegan kraft til að breyta lífi fólks og hugga þá sem þjást. (Hebr. 4:12) Við erum Jehóva innilega þakklát fyrir að láta skrá sögu Jobs í innblásnu orði sínu. (Job. 19:23, 24) Jobsbók fullvissar okkur um að ‚Guð geri aldrei neitt illt‘. (Lestu Jobsbók 34:12.) Hún útskýrir líka fyrir okkur hvers vegna Guð leyfir þjáningar og hvernig við getum sýnt þolgæði. Og hún hjálpar okkur að hugga þá sem þjást. Í næstu námsgrein er fjallað um það hvernig Jobsbók kemur að góðum notum þegar við gefum öðrum ráð.

HVERJU SVARAR ÞÚ?

  • Hvers vegna er gott fyrir okkur að skilja hvers vegna Guð leyfði þjáningar Jobs?

  • Hvernig getur frásagan af Job hjálpað okkur að sýna þolgæði í prófraunum?

  • Hvernig getum við notað Jobsbók til að hjálpa öðrum?

SÖNGUR 156 Ég trúi og sé

a Það er líklegt að samtal Jehóva við Satan og prófraunir Jobs hafi átt sér stað eftir dauða hins trúfasta Jósefs (1657 f.Kr.) og áður en Móse var skipaður leiðtogi Ísraelsþjóðarinnar (um það bil 1514 f.Kr.).

b Sumum nöfnum hefur verið breytt.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila