Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • es26 bls. 77–87
  • Ágúst

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Ágúst
  • Rannsökum Ritningarnar daglega – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Laugardagur 1. ágúst
  • Sunnudagur 2. ágúst
  • Mánudagur 3. ágúst
  • Þriðjudagur 4. ágúst
  • Miðvikudagur 5. ágúst
  • Fimmtudagur 6. ágúst
  • Föstudagur 7. ágúst
  • Laugardagur 8. ágúst
  • Sunnudagur 9. ágúst
  • Mánudagur 10. ágúst
  • Þriðjudagur 11. ágúst
  • Miðvikudagur 12. ágúst
  • Fimmtudagur 13. ágúst
  • Föstudagur 14. ágúst
  • Laugardagur 15. ágúst
  • Sunnudagur 16. ágúst
  • Mánudagur 17. ágúst
  • Þriðjudagur 18. ágúst
  • Miðvikudagur 19. ágúst
  • Fimmtudagur 20. ágúst
  • Föstudagur 21. ágúst
  • Laugardagur 22. ágúst
  • Sunnudagur 23. ágúst
  • Mánudagur 24. ágúst
  • Þriðjudagur 25. ágúst
  • Miðvikudagur 26. ágúst
  • Fimmtudagur 27. ágúst
  • Föstudagur 28. ágúst
  • Laugardagur 29. ágúst
  • Sunnudagur 30. ágúst
  • Mánudagur 31. ágúst
Rannsökum Ritningarnar daglega – 2026
es26 bls. 77–87

Ágúst

Laugardagur 1. ágúst

„Þá verður svo mikil þrenging að annað eins hefur ekki gerst frá upphafi heims allt til þessa.“ – Matt. 24:21.

Það er bænarefni okkar að eins margir og mögulegt er bregðist við viðvöruninni og sameinist okkur núna í hreinni tilbeiðslu. En hvað um þá sem fram að þessu hafa ekki viljað hlusta á okkur? Það gæti verið að Jehóva bjargi fólki sem snýst til trúar á hann þegar það sér eyðingu Babýlonar hinnar miklu. Ef þetta reynist rétt er enn þá meira áríðandi að við höldum áfram að vara fólk við. Fólk getur munað eftir því síðar sem við höfum sagt því frá áður. (Samanber Esekíel 33:33.) Það man kannski eftir viðvörun okkar og vill þjóna Jehóva með okkur áður en það er of seint. Fangavörðurinn í Filippí snerist ekki til trúar fyrr en eftir að öflugur jarðskjálfti varð. Kannski munu sumir bregðast við á líkan hátt og snúast til trúar eftir eyðingu Babýlonar hinnar miklu. – Post. 16:25–34. w24.05 16–17 gr. 9, 10

Sunnudagur 2. ágúst

„Lögin liðu undir lok með Kristi.“ – Rómv. 10:4.

Við getum dregið dýrmætan lærdóm af því sem Páll postuli skrifaði kristnum Hebreum. Sumir höfðu hætt að þroskast í trúnni og þeim hafði ‚farið aftur svo að þeir þurftu enn á ný að fá mjólk en ekki fasta andlega fæðu‘. (Hebr. 5:12) Þeir meðtóku ekki það nýja sem Jehóva kenndi þeim fyrir milligöngu safnaðarins. (Orðskv. 4:18) Margir Gyðingar í söfnuðinum vildu til dæmis halda fast við Móselögin þótt 30 ár væru liðin síðan þau féllu úr gildi á grundvelli lausnarfórnar Jesú. (Tít. 1:10) Páll var nú að reyna að hjálpa þeim að taka við dýpri sannindum. Bréf hans leiddi þeim fyrir sjónir að hið nýja tilbeiðsluform fyrir atbeina Jesú væri miklu betra og veitti þeim líka hugrekki til að halda áfram að boða trúna. – Hebr. 10:19–23. w24.04 6 gr. 15

Mánudagur 3. ágúst

Bæði réttlátir og ranglátir munu rísa upp. – Post. 24:15.

Milljarðar manna hafa dáið síðan Adam og Eva slógust í lið með Satan og gerðu uppreisn gegn Jehóva Guði. Hvað bíður allra þessara manna? Takmarkaður fjöldi trúfastra kristinna fylgjenda Jesú, 144.000 einstaklingar, fær upprisu til himna sem ódauðlegar andaverur. (Opinb. 14:1) Og mikill fjöldi karla og kvenna sem elskaði Jehóva verður í hópi þeirra réttlátu sem rísa upp. Þetta fólk fær að lifa að eilífu á jörðinni ef það heldur áfram að iðka réttlæti í þúsundáraríki Krists og stenst lokaprófið. (Dan. 12:13; Hebr. 12:1) Í þúsundáraríkinu munu hinir ranglátu líka fá tækifæri til að breyta sér og verða trúfastir þjónar Jehóva. Þar á meðal eru þeir sem þjónuðu ekki Jehóva og jafnvel þeir sem „ástunduðu hið illa“. (Jóh. 5:29; Lúk. 23:42, 43) En sumir voru svo illir að hann hefur ákveðið að þeir fái ekki upprisu. – Lúk. 12:4, 5. w24.05 2 gr. 3; 5 gr. 15; 6 gr. 17

Þriðjudagur 4. ágúst

„Það heiðrar mig með vörunum en hjörtu þess eru fjarlæg mér.“ – Jes. 29:13.

Til að Jehóva taki á móti okkur verðum við að tala sannleika í hjörtum okkar. (Sálm. 15:2) Það felur meira í sér en að ljúga ekki. Jehóva vill að við séum heiðarleg í öllu sem við segjum og gerum. (Hebr. 13:18) Það er mikilvægt „því að Jehóva hefur andstyggð á hinum svikula en er náinn vinur hinna réttlátu“. (Orðskv. 3:32) Sá sem „talar sannleika í hjarta sínu“ hlýðir Guði, ekki aðeins þegar aðrir sjá til heldur líka þegar hann er einn. Hann forðast að breyta sviksamlega. Svikull maður gæti farið að efast um að það sé alltaf best að hlýða lögum Jehóva. (Jak. 1:5–8) Hann fer kannski að óhlýðnast Jehóva í málum sem honum finnst ekki skipta svo miklu máli. Ef óhlýðnin virðist ekki hafa neinar afleiðingar freistast hann jafnvel til að ganga enn lengra í óhlýðninni. Þó að hann haldi að hann þjóni Jehóva er slík breytni hræsnisfull. (Préd. 8:11) En við viljum vera heiðarleg í öllum hlutum. w24.06 10 gr. 7, 8

Miðvikudagur 5. ágúst

„Verið staðföst, gyrt belti sannleikans um mittið.“ – Ef. 6:14.

Þjónar Jehóva elska sannleikann í orði Guðs. Við byggjum trú okkar á honum. (Rómv. 10:17) Við erum sannfærð um að Jehóva hafi séð til þess að söfnuðurinn sé „stoð og stólpi sannleikans“. (1. Tím. 3:15) Ekkert myndi gleðja Satan meira en að við hættum að treysta Biblíunni eða leiðsögninni sem við fáum fyrir milligöngu safnaðar Guðs. (Ef. 4:14) Fljótlega mun Djöfullinn beita öflugum áróðri og afvegaleiða þjóðirnar til að taka afstöðu gegn Jehóva. (Opinb. 16:13, 14) Við getum líka búist við því að Satan reyni að villa um fyrir þjónum Jehóva af enn meiri krafti. (Opinb. 12:9) Það er því mikilvægt að við þjálfum okkur í að sjá muninn á sannleika og lygi og séum hlýðin sannleikanum. (Rómv. 6:17; 1. Pét. 1:22) Björgun okkar í þrengingunni miklu veltur á því. w24.07 8 gr. 1–3

Fimmtudagur 6. ágúst

„Þetta boðorð, sem ég gef þér í dag, er ekki of þungt fyrir þig og ekki utan seilingar.“ – 5. Mós. 30:11.

Þegar Jehóva gerði Ísraelsmenn að þjóð sinni gerði hann sáttmála við þá. Ef þeir héldu lög hans myndi hann vernda þá og blessa. En ef þeir gerðu uppreisn gegn honum, til dæmis með því að tilbiðja aðra guði, myndi hann taka blessun sína frá þeim og þeir myndu þjást. Þeir hefðu þó enn tækifæri til að endurheimta velþóknun hans. Þeir gátu ‚snúið aftur til Jehóva Guðs síns og hlustað á hann‘. (5. Mós. 30:1–3, 17–20) Þeir gátu með öðrum orðum iðrast. Ef þeir gerðu það myndi Jehóva nálgast þá og blessa þá á ný. Útvalin þjóð Jehóva gerði ítrekað uppreisn gegn honum. Fyrir vikið þurfti hún að þjást. En Jehóva gafst ekki upp á fólki sínu. Hann sendi spámenn hvað eftir annað til að hvetja það til að iðrast og snúa aftur til sín. – 2. Kon. 17:13, 14. w24.08 9 gr. 4, 5

Föstudagur 7. ágúst

Miklar ofsóknir hófust gegn söfnuðinum í Jerúsalem. – Post. 8:1.

Eftir dauða Jesú árið 33 upplifðu kristnir Hebrear í Jerúsalem og Júdeu mikla erfiðleika. Stuttu eftir að kristni söfnuðurinn var stofnaður brutust út miklar ofsóknir gegn honum. Um það bil 20 árum síðar stóðu fylgjendur Krists frammi fyrir alvarlegum fjárhagserfiðleikum, hugsanlega vegna hungursneyðar sem hafði gengið yfir landið. (Post. 11:27–30) En um árið 61 upplifðu kristnir menn tiltölulega friðsama tíma miðað við það sem átti eftir að koma. Á þeim tíma fengu þeir innblásið bréf frá Páli postula sem reyndist mjög tímabært. Bréfið til Hebreanna var tímabært vegna þess að fram undan voru miklir erfiðleikar fyrir kristna menn. Páll gaf þeim gagnlegar leiðbeiningar sem myndu gera þeim kleift að sýna úthald í þrengingunni sem var á næsta leiti. w24.09 8 gr. 1, 2

Laugardagur 8. ágúst

Þeir hafa verið mér til mikillar hughreystingar. – Kól. 4:11.

Þegar við þjáumst vitna trúsystkini okkar um kærleika Jehóva til okkar. Bræður og systur geta huggað okkur með því að hlusta á okkur af samúð eða einfaldlega með því að verja tíma með okkur. Þau lesa kannski huggandi biblíuvers eða biðja með okkur. (Rómv. 15:4) Og þau minna okkur stundum á viðhorf Jehóva til hlutanna og hjálpa okkur þannig að halda rónni. Trúsystkini rétta okkur líka oft hjálparhönd, til dæmis með því að færa okkur eitthvað að borða þegar við höfum orðið fyrir áfalli. Stundum gætum við þurft að biðja um hjálp. (Orðskv. 17:17) Þau vita kannski ekki alltaf hvernig okkur líður og hvers við þörfnumst. (Orðskv. 14:10) Vertu þess vegna fús til að tala við góðan vin. Láttu hann vita hvað hann getur gert til að hjálpa þér. Þú gætir talað við einn eða tvo öldunga sem þú átt auðvelt með að tala við. Sumum systrum hefur fundist uppörvandi að tala við þroskaða systur. w24.10 10 gr. 15, 16

Sunnudagur 9. ágúst

Allir sem viðurkenna soninn og trúa á hann hljóta eilíft líf. – Jóh. 6:40.

Margir hugsa um mataræðið og stunda líkamsrækt til að stuðla að góðri heilsu. En þeir vita samt að það kemur ekki í veg fyrir að þeir eldist og deyi að lokum. Eilíft líf er hvorki raunhæft né eftirsóknarvert í huga þeirra. En Jesús talaði um að menn gætu fengið „eilíft líf“, eins og kemur fram í Jóhannesi 3:16 og 5:24. Eitt sinn gaf Jesús þúsundum manna brauð og fisk að borða með kraftaverki. Það var mjög sérstakt. Það sem hann sagði daginn eftir við hóp fólks sem fylgdi honum til Kapernaúm, sem er við Galíleuvatn, var enn merkilegra. Hann sagði að hann myndi reisa fólk upp frá dauðum og að það gæti lifað að eilífu. (Jóh. 6:39, 40) Það sem Jesús sagði gefur til kynna að margir sem eru dánir fái upprisu og bæði þú og ástvinir þínir getið hlotið eilíft líf. w24.12 8 gr. 1, 2

Mánudagur 10. ágúst

Þið eiginmenn, virðið þær sem veikara ker, hið kvenlega. – 1. Pét. 3:7.

Nýleg skýrsla frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni gefur til kynna að margir eiginmenn beiti eiginkonu sína líkamlegu, andlegu eða tilfinningarlegu ofbeldi. Sá sem gerir það sýnir eiginkonu sinni kannski virðingu þegar aðrir sjá og heyra til en beitir hana ofbeldi heima fyrir. Hvað veldur því að sumir eiginmenn eru ofbeldisfullir? Þeir gætu hafa alist upp hjá ofbeldisfullum föður og halda því að ofbeldi sé eðlilegt. Sumir eru undir áhrifum menningarinnar í samfélaginu sem ýtir kannski undir þá ranghugmynd að „alvöru karlmaður“ þurfi að beita valdi til að sýna konunni hver sé húsbóndinn á heimilinu. Sumir karlmenn hafa ekki lært að hafa hemil á tilfinningum sínum, þar á meðal reiði. Sumir hafa tileinkað sér brenglaða mynd af konum og kynlífi af því að þeir horfa reglulega á klám. Skýrslur benda einnig til þess að þessi vandamál hafi versnað í COVID-19 faraldrinum. En ekkert af þessu réttlætir þó ofbeldisfulla hegðun eiginmannsins. w25.01 8 gr. 2, 3

Þriðjudagur 11. ágúst

„Þar sem Kristur þjáðist líkamlega skuluð þið herklæðast sama hugarfari.“ – 1. Pét. 4:1.

„Þú skalt elska Jehóva Guð þinn af öllu hjarta þínu, allri sál þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum.“ (Lúk. 10:27) Jesús leit á það að elska Jehóva sem mikilvægasta boð Móselaganna. Við tökum eftir að kærleikur til hans tengist hjarta okkar, sem hefur meðal annars að geyma langanir okkar og tilfinningar. Hann felur líka í sér heils hugar hollustu okkar og krafta. En að elska Jehóva snertir líka huga okkar, það hvernig við hugsum. Við getum að sjálfsögðu aldrei skilið til fulls hvernig Jehóva hugsar. En við eigum auðveldara með það þegar við kynnum okkur „huga Krists“ þar sem Jesús endurspeglar fullkomlega hvernig faðir hans hugsar. – 1. Kor. 2:16. w25.03 8 gr. 1

Miðvikudagur 12. ágúst

„Vegna hans erum við leyst með lausnargjaldi, það er blóði hans. Já, Guð hefur fyrirgefið afbrot okkar því að einstök góðvild hans er svo ríkuleg.“ – Ef. 1:7.

Jesús var fullkominn maður og því jafningi Adams áður en hann syndgaði. (1. Kor. 15:45) Með dauða sínum gat Jesús bætt fyrir synd Adams og endurheimt það sem hafði glatast. (Rómv. 5:19) Þannig varð Jesús „hinn síðari Adam“. Það er engin þörf fyrir annan fullkominn mann til að borga skuld Adams. Jesús dó „í eitt skipti fyrir öll“. (Hebr. 7:27; 10:12) Hver er munurinn á friðþægingu og lausnargjaldi? Friðþægingin er sú leið sem Guð fer til að koma aftur á góðu sambandi milli hans og mannkynsins. Lausnargjaldið er það gjald sem var greitt til að hægt væri að friðþægja fyrir syndugt mannkyn. Þetta gjald er dýrmætt blóð Jesú sem var úthellt í okkar þágu. – Hebr. 9:14. w25.02 5 gr. 12, 13

Fimmtudagur 13. ágúst

„Guð er trúr og lætur ekki freista ykkar umfram það sem þið ráðið við því að samfara freistingunni sér hann fyrir leið út úr henni svo að þið getið staðist hana.“ – 1. Kor. 10:13.

Að muna að Jehóva er lifandi hjálpar okkur að sjá prófraunir okkar í réttu ljósi. Þá förum við að sjá þær sem hluta af stærra máli sem snýr að Jehóva og Satan. Djöfullinn heldur því fram að við yfirgefum Jehóva þegar erfiðleika ber að garði. (Job. 1:10, 11; Orðskv. 27:11) En þegar við erum trúföst sama hvað á gengur sýnum við kærleika okkar til Jehóva og líka að Djöfullinn fer með lygi. Upplifir þú andstöðu stjórnvalda, fjárhagserfiðleika, neikvæð viðbrögð í boðuninni eða einhverja aðra erfiðleika? Ef sú er raunin skaltu muna að aðstæður þínar gefa þér tækifæri til að gleðja Jehóva. En mundu jafnframt að Jehóva mun aldrei leyfa að þú verðir reyndur umfram það sem þú þolir. Hann gefur þér styrk til að halda út. w24.06 22 gr. 9

Föstudagur 14. ágúst

„Það er girnd hvers og eins sem reynir hann með því að lokka hann og tæla.“ – Jak. 1:14.

Veist þú á hvaða sviðum þú ert veikastur fyrir? Það er hættulegt að hunsa veikleika okkar og álíta okkur svo sterk að við munum ekki syndga. (1. Jóh. 1:8) Páll benti á að jafnvel þeir ‚sem eru þroskaðir í trúnni‘ geti látið undan freistingu ef þeir eru ekki á verði. (Gal. 6:1) Við þurfum að vera heiðarleg, líta í eigin barm og viðurkenna veikleika okkar. (2. Kor. 13:5) Hvað ættum við að gera þegar við höfum komið auga á hvar við erum veikust fyrir? Við þurfum að styrkja varnir okkar. Tökum dæmi. Á biblíutímanum voru borgarhliðin veikustu hlutar borgarmúranna. Þess vegna var mesta gæslan við borgarhliðin. Við þurfum á svipaðan hátt að beina athyglinni sérstaklega að því hvar við erum veikust fyrir. – 1. Kor. 9:27. w24.07 15 gr. 5–7

Laugardagur 15. ágúst

Berið ávöxt með sérhverju góðu verki og vaxið í þekkingu á Guði. – Kól. 1:10.

Eitt af þessum góðu verkum sem nefnd eru í versi dagsins er að flytja fagnaðarboðskapinn. Þegar við lesum orð Guðs og hugleiðum það styrkist trú okkar á Jehóva og okkur verður enn ljósara hversu mikilvægt það er að segja öðrum frá Guðsríki. Til að hafa sem mest gagn af því að lesa, rannsaka og hugleiða orð Guðs ættum við að forðast að flýta okkur. Taktu þér nægan tíma. Ef þú rekst á biblíuvers sem þú skilur ekki skaltu ekki bara halda lestrinum áfram án þess að staldra við. Notaðu frekar Efnislykilinn að ritum Votta Jehóva og efnisskrána Watch Tower Publications Index til að fá útskýringar á versinu. Þú verður enn sannfærðari um sannleiksgildi Biblíunnar þegar þú tekur þér tíma í sjálfsnámi þínu. (1. Þess. 5:21) Því sannfærðari sem þú ert þeim mun ánægðari ertu að segja öðrum frá því sem þú hefur lært. w24.04 15 gr. 4, 5

Sunnudagur 16. ágúst

Ég skrifaði ykkur til að kanna hvort þið væruð hlýðin í öllu. – 2. Kor. 2:9.

Jehóva er „góður og fús til að fyrirgefa“, sagði Davíð. (Sálm. 86:5) Míka skrifaði: „Hvaða guð er eins og þú? Þú fyrirgefur syndir og horfir fram hjá misgerðum.“ (Míka 7:18) Og Jesaja sagði: „Illmennið láti af illsku sinni og hinn vondi af illum hugsunum sínum. Hann snúi aftur til Jehóva sem miskunnar honum, til Guðs okkar því að hann fyrirgefur fúslega.“ (Jes. 55:7) Til að líkja eftir Jehóva var söfnuðinum í Korintu sagt að taka vel á móti iðrandi manni og fullvissa hann um kærleika sinn. Með því að fylgja leiðbeiningunum sýndu bræður og systur í söfnuðinum að þau væru „hlýðin í öllu“. Maðurinn hafði tekið við aganum og iðrast. Það var því engin ástæða fyrir öldungana að bíða með að taka hann aftur inn í söfnuðinn þó að aðeins fáeinir mánuðir væru liðnir frá því að honum hafði verið vísað úr honum. w24.08 17–18 gr. 12, 13

Mánudagur 17. ágúst

„Annar verður tekinn og hinn skilinn eftir.“ – Matt. 24:40.

Við lifum á mjög sérstökum tímum. Bráðlega dæmir Jesús alla sem búa á jörðinni. Hann lýsti þessu tímabili með því að gefa lærisveinum sínum spádómlegt „tákn“ um ósýnilega nærveru sína og „lokaskeið þessarar heimsskipanar“. (Matt. 24:3) Þessi spádómur er skráður í Matteusi kafla 24 og 25 og í samsvarandi frásögn í Markúsi 13. kafla og Lúkasi 21. kafla. Jesús sagði þrjár dæmisögur sem hafa að geyma viðvaranir til okkar. Það eru dæmisögurnar um sauðina og geiturnar, skynsömu og óskynsömu meyjarnar og talenturnar. Hver og ein þeirra kennir okkur að Jesús dæmi fólk eftir verkunum. w24.09 20 gr. 1, 2

Þriðjudagur 18. ágúst

„Sýnið kærleika í öllu sem þið gerið.“ – 1. Kor. 16:14.

Jesús Kristur er besta fyrirmynd okkar. Hann var knúinn af kærleika til föður síns og kærleika til fólks. Vegna kærleika lagði hann hart að sér fyrir aðra og vann verk sem öðrum fannst ekki merkileg. (Matt. 20:28; Jóh. 13:5, 14, 15) Bræður, ef þið eruð knúnir af kærleika mun Jehóva blessa ykkur og hjálpa ykkur að ná andlegum markmiðum ykkar, þar á meðal að verða safnaðarþjónar. (1. Pét. 5:5) Fólk í heiminum dáist oft að þeim sem álíta sig merkilega. Þjónar Jehóva eru ekki þannig. Bróðir sem er knúinn af kærleika eins og Jesús sækist ekki eftir völdum eða stöðu. Ef metnaðargjarn bróðir væri útnefndur í söfnuðinum léti hann líklega ekki bjóða sér að vinna lítilfjörleg verkefni sem eru nauðsynleg til að hægt sé að annast dýrmæta sauði Jehóva. Honum þætti ef til vill slík verkefni fyrir neðan sína virðingu. – Jóh. 10:12. w24.11 15 gr. 6, 7

Miðvikudagur 19. ágúst

„Heilagur andi hefur falið ykkur til umsjónar.“ – Post. 20:28.

Um allan heim er mikil þörf fyrir bræður til að þjóna í söfnuðinum. (Ef. 4:8) Getur þú boðið þig fram til að leggja hönd á plóginn ef þú ert skírður bróðir? (Orðskv. 3:27) Ertu tilbúinn til að vinna að því markmiði að verða safnaðarþjónn? Ef þú ert þegar safnaðarþjónn gætirðu þá stefnt að því að verða öldungur? Geturðu gert breytingar í lífinu til að opna möguleikann á að sækja um Skólann fyrir boðbera Guðsríkis? Þessi skóli veitir þér þjálfun til að nýtast enn betur í söfnuðinum sem Jesús fer fyrir. Biddu til Jehóva ef þér finnst þú ekki hæfur. Biddu hann um hjálp heilags anda til að sjá um hvaða verkefni sem þér er falið. (Lúk. 11:13) Bræðurnir sem Jesús hefur gefið að gjöf eru merki um að hann fer fyrir söfnuðinum nú á síðustu dögum. (Matt. 28:20) Við getum verið þakklát að konungur okkar skuli vera kærleiksríkur, örlátur og umhyggjusamur og sjá okkur fyrir hæfum bræðrum sem annast þarfir okkar. w24.10 23 gr. 16, 17

Fimmtudagur 20. ágúst

„Hins fyrra verður ekki minnst framar.“ – Jes. 65:17.

Hvað um allt sem hefur valdið fólki Guðs þjáningum? Allar raunir munu um síðir „verða gleymdar, þær verða huldar augum [Guðs]“. (Jes. 65:16) Jehóva fjarlægir erfiðleika okkar og með tímanum munum við losna við allan sársauka sem þeir hafa valdið okkur. En jafnvel núna veitir það okkur hugarró að vera á samkomum þar sem við getum slakað á og fengið hvíld frá öllu sem veldur okkur erfiðleikum í illum heimi. Við stuðlum að friðinum sem ríkir í þessu andlega umhverfi þegar við sýnum eiginleika eins og kærleika, gleði, frið, góðvild og mildi, en þeir eru hluti af ávexti andans. (Gal. 5:22, 23) Það er mikil blessun að mega tilheyra söfnuði Guðs. Þeir sem halda sig í andlegu paradísinni eiga eftir að sjá Guð uppfylla loforð sitt um að skapa „nýjan himin og nýja jörð“. w24.04 22 gr. 9, 10

Föstudagur 21. ágúst

„Það er snara fyrir manninn að hrópa í fljótfærni: ‚Helgað!‘ og hugleiða fyrst eftir á hverju hann hefur heitið.“ – Orðskv. 20:25.

Þótt tilhugalíf geti verið ánægjulegt er það líka alvarlegt mál þar sem það snýst á endanum um hjónaband. Á brúðkaupsdaginn heita maður og kona frammi fyrir Jehóva að elska og virða hvort annað það sem eftir er ævinnar. Við ættum alltaf að hugleiða það vandlega áður en við vinnum heit. Það á sannarlega við um hjúskaparheitið. Tilhugalífið gefur pari tækifæri til að kynnast og taka góða ákvörðun. Stundum hefur það hjónaband í för með sér en stundum er endi bundinn á sambandið. Ef sambandið endar merkir það ekki að tilhugalífið hafi misheppnast. Það þjónaði þeim tilgangi að hjálpa einstaklingunum að taka góða ákvörðun. Hvers vegna er mikilvægt að hafa rétt viðhorf til tilhugalífs? Þegar einhleypir einstaklingar hafa rétt viðhorf fara þeir ekki út í tilhugalíf með einhverjum sem þeir ætla sér ekki að giftast. w24.05 26–27 gr. 3, 4

Laugardagur 22. ágúst

Þú skalt ekki skammast þín fyrir boðunina um Drottin okkar. – 2. Tím. 1:8.

Ungt fólk skortir stundum sjálfstraust til að verja trú sína. Það gæti orðið óöruggt þegar þróunarkenningin er til umræðu í tímum. Kennarar halda því stundum fram að þróun sé staðreynd en ekki kenning. Ef þú ert foreldri hvernig geturðu hjálpað barninu þínu að hvika ekki frá sannfæringu sinni? Fullvissaðu það um að það þurfi ekki að skammast sín fyrir að trúa á skapara. Staðreyndin er sú að margir vísindamenn álykta að lífið hafi ekki orðið til fyrir tilviljun eða af sjálfu sér. Þeir viðurkenna að einhver skynsemigæddur hönnuður hljóti að hafa skapað allt þetta fjölbreytta líf. Fyrir vikið viðurkenna þeir ekki þróunarkenninguna. Barnið getur sannfærst enn frekar með því að kynna sér hvað hefur sannfært aðra bræður og systur um að lífið hafi verið skapað. w24.12 17–18 gr. 14, 15

Sunnudagur 23. ágúst

Hann fylltist fögnuði vegna heilags anda. – Lúk. 10:21.

Jesús var viss um að sumir myndu hlusta á fagnaðarboðskapinn. Það hjálpaði honum að vera jákvæður og halda áfram að boða fólki trúna. Síðla árið 30 sá hann til dæmis að margir voru tilbúnir að hlusta á boðskapinn og hann líkti þeim við akur sem var tilbúinn til uppskeru. (Jóh. 4:35) Um ári síðar sagði hann við lærisveina sína: „Uppskeran er mikil.“ (Matt. 9:37, 38) Og síðar lagði hann aftur áherslu á það og sagði: „Uppskeran er mikil … Biðjið því herra uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar.“ (Lúk. 10:2) Jesús missti aldrei trú á að sumir myndu hlusta á fagnaðarboðskapinn og var mjög glaður þegar það gerðist. Lærisveinarnir smituðust af brennandi áhuga Jesú þegar hann sýndi þeim fram á hversu kröftugur boðskapurinn væri. w25.03 18–19 gr. 15, 16

Mánudagur 24. ágúst

„Guð minn er klettur minn og griðastaður.“ – Sálm. 94:22.

Jehóva er athvarf. Jehóva verndar okkur í aðstæðum sem ógna velferð okkar rétt eins og stór klettur getur verið skjól fyrir hættulegum stormi. Hann verndar okkur fyrir því sem getur valdið okkur varanlegu tjóni. Og ekki nóg með það. Hann lofar að hann muni að lokum fjarlægja allt sem ógnar friði okkar og öryggi. (Esek. 34:25, 26) Ein leið til að gera Jehóva að kletti sem veitir okkur athvarf er að biðja til hans. Þegar við gerum það gefur hann okkur ‚frið sinn‘ sem verndar hjörtu okkar og huga. (Fil. 4:6, 7) Jehóva er alltaf til staðar fyrir okkur. Við getum treyst honum vegna þess að hann er „hinn eilífi klettur“. (Jes. 26:3, 4) Hann verður alltaf á lífi til að standa við loforð sín, heyra bænir okkar og veita okkur þann stuðning sem við þörfnumst. Við getum líka reitt okkur á Jehóva vegna þess að hann er trúr þeim sem þjóna honum. (2. Sam. 22:26) Hann gleymir aldrei verkum okkar og mun alltaf launa okkur. – Hebr. 6:10; 11:6. w24.06 27 gr. 4–6

Þriðjudagur 25. ágúst

Verndaðu hjartað því að þar eru uppsprettur lífsins. – Orðskv. 4:23.

Óheilnæm afþreying, slæmur félagsskapur og löngun í efnislega hluti getur haft slæm áhrif á hjarta okkar. Ef við uppgötvum að kærleikur okkar til Jehóva hefur minnkað skulum við strax gera eitthvað í málinu. (Matt. 5:29, 30) Við þurfum að passa að hjarta okkar verði ekki tvískipt. Við gætum auðveldlega farið að hugsa sem svo að það að vera upptekin í þjónustu Jehóva geri okkur ónæm fyrir vondum áhrifum. Ímyndaðu þér að þú sért úti í nístingskulda og vindi. Þegar þú kemur heim hækkarðu hitann í húsinu. En hvaða gagn væri að því ef þú lokaðir ekki útidyrahurðinni? Það yrði fljótt kalt í húsinu. Það er ekki nóg að nærast andlega til að halda okkur nálægt Jehóva. Við þurfum líka að loka á óheilnæm áhrif svo að kuldi þessa heims, eða óguðleg viðhorf, spilli ekki hjarta okkar og sambandi við Jehóva. – Ef. 2:2. w24.07 21 gr. 6, 7

Miðvikudagur 26. ágúst

„Elskið óvini ykkar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja ykkur.“ – Matt. 5:44.

Við getum ekki skilið til fullnustu hversu mikinn sársauka og niðurlægingu Jesús þurfti að þola. En hann var trúfastur þrátt fyrir óréttlætið sem hann leið. Í stað þess að biðja Jehóva um að refsa hermönnunum sem negldu hann á staurinn bað hann: „Faðir, fyrirgefðu þeim því að þeir vita ekki hvað þeir eru að gera.“ (Lúk. 23:34) Þegar við biðjum fyrir þeim sem beita okkur órétti getur það dregið úr gremju og reiði og jafnvel breytt viðhorfi okkar til þeirra. Við getum þurft að þola óréttlæti á meðan þessi heimsskipan stendur. Hættum aldrei að biðja Jehóva um hjálp, hvað sem verður á vegi okkar. Líkjum eftir því hvernig Jesús brást við illri meðferð og höldum áfram að fylgja meginreglum Biblíunnar. Þá getum við verið viss um að Jehóva blessi okkur. – 1. Pét. 3:8, 9. w24.11 6 gr. 16; 7 gr. 17, 19

Fimmtudagur 27. ágúst

„Þú ert ekki Guð sem gleðst yfir illsku, vondir menn fá ekki að vera gestir þínir.“ – Sálm. 5:4.

Jehóva er ekki undanlátssamur Guð. Hann lætur syndir ekki viðgangast. (Sálm. 5:4–6) Hann ætlast til þess að við virðum réttlátar siðferðiskröfur sínar í Biblíunni. Jehóva ætlast að sjálfsögðu ekki til fullkomnunar af ófullkomnu fólki. (Sálm. 130:3, 4) En hann umber ekki ‚óguðlega menn sem misnota einstaka góðvild hans til að réttlæta blygðunarlausa hegðun‘. (Júd. 4) Biblían talar reyndar um að ‚óguðlegum verði eytt‘ í stríði Guðs við Harmagedón. (2. Pét. 3:7; Opinb. 16:16) En Jehóva vill ekki að neinn farist. Biblían segir skýrum stöfum að hann vilji að „allir fái tækifæri til að iðrast“. (2. Pét. 3:9) Öldungar safnaðarins líkja eftir Jehóva með því að reyna þolinmóðir að hjálpa þeim sem gerst hafa brotlegir að sjá að sér og endurheimta samband sitt við Jehóva. w24.08 26 gr. 1, 2

Föstudagur 28. ágúst

„Þú lýkur upp hendi þinni og uppfyllir langanir alls sem lifir.“ – Sálm. 145:16.

Eins og Jehóva getum við stutt aðra efnislega vegna þess að við elskum þá. Veistu um bróður eða systur sem vantar mat eða föt? Jehóva getur notað þig til að mæta þessari þörf. Þjónar Jehóva eru þekktir fyrir að sýna örlæti á hættutímum. Á tímum COVID-19 faraldursins gáfu bræður og systur fæði, klæði og aðrar nauðsynjar þeim sem þurftu á því að halda. Margir gáfu líka rausnarleg fjárframlög til alþjóðastarfsins og það hjálpaði til við að fjármagna neyðaraðstoð um allan heim. Þessi trúsystkini tóku til sín hvatninguna í Hebreabréfinu 13:16: „Gleymið ekki að gera gott og gefa öðrum af því sem þið eigið því að Guð er ánægður með slíkar fórnir.“ w24.09 27 gr. 6, 7

Laugardagur 29. ágúst

„Metið hvað sé mikilvægt.“ – Fil. 1:10.

Segjum að þú sért að leita þér að vinnu til að sjá fjölskyldunni farborða. Tvö störf eru í boði. Þú skoðar málin vandlega, hvernig vinna þetta er, vinnutímann, hvað það tekur langan tíma að fara til og frá vinnu og svo framvegis. Hvorug vinnan brýtur í bága við meginreglur Biblíunnar. Þér líst kannski betur á aðra þeirra af því að hún virðist ákjósanlegri eða er betur launuð. En það er annað sem þú ættir að hugleiða áður en þú tekur ákvörðun. Stangast vinnutíminn á við samkomutíma? Yrði vinnan til þess að þú hefðir ekki tíma til að sinna andlegum og tilfinningalegum þörfum fjölskyldunnar? Þegar þú spyrð slíkra spurninga áttu auðveldara með að ‚meta hvað sé mikilvægt‘ – tilbeiðslan á Jehóva og þarfir fjölskyldunnar frekar en efnislegur ávinningur. Þá ertu í stakk búinn til að taka ákvörðun sem Jehóva blessar. w25.01 17 gr. 11–13

Sunnudagur 30. ágúst

„Jehóva er nálægur hinum sorgbitnu.“ – Sálm. 34:18.

Þú mátt vera viss um að Jehóva elski og kunni að meta þig, jafnvel þótt aðrir hafi farið illa með þig. Ef þér finnst þú einskis virði mundu þá að Jehóva sá eitthvað gott í hjarta þínu og dró þig til sín. (Jóh. 6:44) Hann er alltaf reiðubúinn að hjálpa þér af því að honum þykir innilega vænt um þig. Við lærum margt um tilfinningar Jehóva þegar við skoðum fordæmi Jesú. Þegar hann var hér á jörðinni tók hann eftir þeim sem aðrir litu niður á og sýndi þeim samkennd. (Matt. 9:9–12) Kona sem vonaðist eftir lækningu af alvarlegum sjúkdómi snerti Jesú. Hann hughreysti hana og hrósaði henni fyrir að sýna trú. (Mark. 5:25–34) Jesús líkir fullkomlega eftir föður sínum. (Jóh. 14:9) Þú getur verið viss um að Jehóva meti þig að verðleikum og taki eftir góðum eiginleikum þínum, þar á meðal trú þinni og kærleika til hans. w24.10 7 gr. 4, 5

Mánudagur 31. ágúst

„Safnaðu tárum mínum í skinnbelg þinn.“ – Sálm. 56:8.

Davíð þurfti að þola ýmsa erfiðleika í lífinu sem ollu honum sársauka. Margir hötuðu hann og jafnvel sumir sem hann treysti sviku hann og reyndu að gera honum illt. (1. Sam. 19:10, 11; 2. Sam. 15:10–14, 30) Á erfiðum tíma sagði hann: „Ég er örmagna af andvörpum mínum, alla nóttina væti ég rúm mitt tárum, baða hvílu mína í táraflóði.“ (Sálm. 6:6) Davíð var ekki í vafa um að Jehóva elskaði hann þrátt fyrir erfiðleikana sem hann mátti þola. Hann sagði: „Jehóva heyrir grát minn.“ (Sálm. 6:8) Vers dagsins dregur upp einstaka mynd af ástríkri umhyggju Jehóva. Davíð leið eins og Jehóva safnaði tárum hans í skinnbelg eða skráði þau í bók. Davíð vissi að Jehóva tók eftir sársauka hans og gleymdi honum ekki. Hann vissi að kærleiksríkur faðir hans á himnum var ekki bara meðvitaður um hvað hann hafði gengið í gegnum heldur líka hvaða áhrif það hafði á hann. w24.12 22 gr. 11, 12

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila