Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • es26 bls. 67–77
  • Júlí

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Júlí
  • Rannsökum Ritningarnar daglega – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Miðvikudagur 1. júlí
  • Fimmtudagur 2. júlí
  • Föstudagur 3. júlí
  • Laugardagur 4. júlí
  • Sunnudagur 5. júlí
  • Mánudagur 6. júlí
  • Þriðjudagur 7. júlí
  • Miðvikudagur 8. júlí
  • Fimmtudagur 9. júlí
  • Föstudagur 10. júlí
  • Laugardagur 11. júlí
  • Sunnudagur 12. júlí
  • Mánudagur 13. júlí
  • Þriðjudagur 14. júlí
  • Miðvikudagur 15. júlí
  • Fimmtudagur 16. júlí
  • Föstudagur 17. júlí
  • Laugardagur 18. júlí
  • Sunnudagur 19. júlí
  • Mánudagur 20. júlí
  • Þriðjudagur 21. júlí
  • Miðvikudagur 22. júlí
  • Fimmtudagur 23. júlí
  • Föstudagur 24. júlí
  • Laugardagur 25. júlí
  • Sunnudagur 26. júlí
  • Mánudagur 27. júlí
  • Þriðjudagur 28. júlí
  • Miðvikudagur 29. júlí
  • Fimmtudagur 30. júlí
  • Föstudagur 31. júlí
Rannsökum Ritningarnar daglega – 2026
es26 bls. 67–77

Júlí

Miðvikudagur 1. júlí

„Aldrei hef ég séð réttlátan mann yfirgefinn.“ – Sálm. 37:25.

Sumir þjónar Jehóva finna fyrir áhrifum ellinnar, glíma við slæma heilsu eða búa við fötlun. Þeir gætu farið að efast um að þeir séu dýrmætir í augum Jehóva. Þeir spyrja sig ef til vill: Kem ég enn að gagni í þjónustu Jehóva? Ritari Sálms 71 hafði svipaðar áhyggjur. Hann bað til Jehóva: „Yfirgefðu mig ekki þegar þróttur minn þrýtur.“ (Sálm. 71:9, 18) Sálmaritarinn var samt viss um að Jehóva myndi leiðbeina honum og styðja ef hann héldi áfram að þjóna honum af trúfesti. Sálmaskáldið hafði séð og reynt að það gleður Jehóva þegar þjónar hans gera sitt besta þrátt fyrir takmörk sín. (Sálm. 37:23–25) Ef þú ert aldraður skaltu horfa á aðstæður þínar frá sjónarhóli Jehóva. Hann getur hjálpað þér að dafna í trúnni þótt aldur eða heilsa hamli þér. (Sálm. 92:12–15) Einbeittu þér að því sem þú getur gert í stað þess að einblína á það sem þú getur ekki. w24.10 28 gr. 14–16

Fimmtudagur 2. júlí

„Varðandi það að borða mat sem fórnað hefur verið skurðgoðum vitum við að skurðgoð er alls ekki neitt.“ – 1. Kor. 8:4.

Óþroskaðir kristnir menn eiga oft í erfiðleikum með að taka rétta ákvörðun þegar það eru ekki nein sérstök lög í Biblíunni sem segja þeim hvað þeir eigi að gera. Sumum finnst kannski að þeir geti gert það sem þeim sýnist ef það eru ekki nein ákveðin lög um tiltekið mál. Aðrir vilja ef til vill hafa reglur þar sem þess er ekki krafist. Kristnir menn í Korintu báðu Pál postula til dæmis um reglu varðandi það hvort þeir mættu borða mat sem hafði verið fórnað skurðgoðum. Páll sagði þeim ekki hvað þeir ættu að gera heldur sýndi fram á að þetta væri samviskumál og benti á að hver og einn hefði valfrelsi. Hann benti á nokkrar meginreglur Biblíunnar sem gátu hjálpað þeim að taka ákvörðun svo að þeir gætu haft góða samvisku og hneyksluðu ekki aðra. (1. Kor. 8:7–9) Páll hjálpaði Korintumönnum þannig að þroskast í trúnni svo að þeir gætu notað eigin dómgreind í stað þess að reiða sig á aðra eða setja reglu um málið. w24.04 5 gr. 14

Föstudagur 3. júlí

Ég, Jehóva, rannsaka hjartað til að launa hverjum og einum eftir breytni hans. – Jer. 17:10.

Nínívebúar fengu tækifæri til að iðrast á dögum Jónasar. Og gleymum ekki því sem Jesús sagði um upprisu „til dóms“. „Þeir sem ástunduðu hið illa“ fá slíka upprisu. (Jóh. 5:29) Það lítur því út fyrir að það sé líka von fyrir íbúa Sódómu og Gómorru. Það er mögulegt að í það minnsta sumir þeirra fái tækifæri til að læra um Jehóva og Jesú Krist. Jehóva hefur alltaf „rannsakað hjartað og kannað innstu hugsanir mannsins“. Þegar kemur að upprisunni í framtíðinni mun hann eins og alltaf „launa hverjum og einum eftir breytni hans“. Jehóva er alltaf trúr réttlátum mælikvarða sínum en sýnir miskunn hvenær sem það er mögulegt. Við ættum því ekki að draga þá ályktun að einhver fái ekki upprisu nema við vitum fyrir víst að svo sé. w24.05 5–6 gr. 15, 16

Laugardagur 4. júlí

„Vertu ekki hræddur, ég hjálpa þér.“ – Jes. 41:13.

Í gegnum aldirnar hefur Guð notað boðskapinn í orði sínu til að styrkja þjóna sína til að vinna erfið verkefni. Tökum Jeremía spámann sem dæmi. Honum féllust hendur þegar Jehóva sagði honum að flytja boðskap sinn. Jeremía sagði: „Ég kann ekki að tala því að ég er svo ungur.“ (Jer. 1:6) Hvernig tókst honum að yfirvinna öryggisleysið? Hann sótti styrk í orð Guðs og sagði: „Orð hans brann eins og eldur í hjarta mínu og læsti sig í bein mín. Ég gat ekki streist á móti.“ (Jer. 20:8, 9) Þótt starfssvæði Jeremía hafi verið erfitt gaf boðskapurinn sem hann átti að flytja honum styrk til að framkvæma verkið. Þjónar Guðs sækja styrk í boðskapinn í orði hans. Páll postuli sagði að það að afla sér nákvæmrar þekkingar myndi hvetja trúsystkinin til að lifa „eins og Jehóva er samboðið“ um leið og þau héldu áfram „að bera ávöxt með sérhverju góðu verki“. – Kól. 1:9, 10. w24.04 14–15 gr. 2–4

Sunnudagur 5. júlí

Sadók prestur smurði Salómon. – 1. Kon. 1:39.

Sadók varðveitti ráðvendni sína við Jehóva þrátt fyrir ákvörðun Abjatars æðstaprests um að styðja Adónía son Davíðs, sem ætlaði að ræna konungdæminu. Davíð efaðist aldrei um trúfesti Sadóks. Þegar ráðabrugg Adónía var afhjúpað fól Davíð Sadók, Natan og Benaja að smyrja Salómon sem konung. (1. Kon. 1:32–34) Það hlýtur að hafa styrkt og uppörvað Sadók að umgangast trúfasta tilbiðjendur Jehóva, eins og Natan og aðra sem studdu Davíð konung. Þegar Salómon varð konungur ‚lét hann Sadók prest taka við embætti Abjatars‘. (1. Kon. 2:35) Hvernig geturðu líkt eftir Sadók? Ef einhver sem er þér nákominn ákveður að yfirgefa Jehóva skaltu láta skýrt í ljós hvaða ákvörðun þú hefur tekið. (Jós. 24:15) Jehóva mun veita þér þann styrk og hugrekki sem þú þarft. Treystu á hann með því að biðja og með því að vera í nánum tengslum við trúfasta vini þína. Jehóva metur trúfesti þína mikils og umbunar þér fyrir hana. – 2. Sam. 22:26. w24.07 6–7 gr. 16, 17

Mánudagur 6. júlí

„Gefumst ekki upp á að gera það sem er gott.“ – Gal. 6:9.

Sálmur 15:2 lýsir vini Guðs. Hann er „sá sem lifir hreinu lífi [og] gerir það sem er rétt“. Orðalagið lýsir stöðugri viðleitni. En er það á færi okkar að ‚lifa hreinu lífi‘? Já. Ef við gerum okkar besta til að hlýða Jehóva lifum við hreinu lífi í augum hans þótt við séum ekki fullkomin. Þegar við vígjum líf okkar Guði og skírumst er það bara upphafið að því að ganga með honum. Á biblíutímanum varð fólk ekki sjálfkrafa vinir Jehóva þótt það tilheyrði Ísraelsþjóðinni. Sumir ákölluðu hann en ekki „í sannleika og réttlæti“. (Jes. 48:1) Einlægir Ísraelsmenn þurftu að læra um kröfur Jehóva og lifa í samræmi við þær. Á líkan hátt þurfum við að gera meira en að skírast og vera í söfnuðinum til að fá velþóknun Guðs. Við þurfum að halda áfram að ‚gera það sem er rétt‘. w24.06 9 gr. 4, 6

Þriðjudagur 7. júlí

„Líkið því eftir Guði.“ – Ef. 5:1.

Hvernig sýnir Jehóva örlæti? Skoðum fáein dæmi. Jehóva sér fyrir efnislegum þörfum okkar. Við búum kannski ekki við munað en við getum þakkað Jehóva ef við höfum það sem við þurfum. Hann sér til þess að við höfum fæði, klæði og húsaskjól. (Sálm. 4:8; Matt. 6:31–33; 1. Tím. 6:6–8) Annast Jehóva efnislegar þarfir okkar af einskærri skyldurækni? Síður en svo! Skoðum það sem Jesús segir í Matteusi 6:25, 26. Hann segir um fuglana: „Þeir sá hvorki né uppskera né safna í hlöður.“ En tökum eftir því sem hann segir næst: „Faðir ykkar á himnum fóðrar þá.“ Síðan spyr Jesús: „Eruð þið ekki meira virði en þeir?“ Hvað var hann að kenna okkur? Fyrst Jehóva sér um dýrin getum við verið viss um að hann sjái um okkur. Eins og umhyggjusamur faðir sér Jehóva fyrir þörfum fjölskyldu sinnar vegna þess að hann elskar hana. – Sálm. 145:16; Matt. 6:32. w24.09 26–27 gr. 4–6

Miðvikudagur 8. júlí

„Þeir sem inna þjónustu sína vel af hendi ávinna sér gott mannorð og geta talað óhikað um trúna.“ – 1. Tím. 3:13.

Safnaðarþjónn er skírður bróðir sem er útnefndur með hjálp heilags anda til að aðstoða öldungana við ýmis verkefni í söfnuðinum. Safnaðarþjónar eru fyrst og fremst menn sem elska Jehóva og lifa í samræmi við réttlátan mælikvarða hans. Og þeir elska bræður sína og systur innilega. (Matt. 22:37–39) Hvernig getur skírður bróðir sóst eftir því að verða safnaðarþjónn? Í Biblíunni er útlistað hvaða kröfur eru gerðar til safnaðarþjóna. (1. Tím. 3:8–10, 12) Þú getur sóst eftir þessu hlutverki með því að kynna þér kröfur Biblíunnar og leggja þig síðan fram við að uppfylla þær. En fyrst þarftu að gera þér grein fyrir því af hverju þú vilt verða safnaðarþjónn. w24.11 14–15 gr. 4, 5

Fimmtudagur 9. júlí

Þið tókuð ekki við því sem orði manna heldur sem orði Guðs, eins og það sannarlega er. – 1. Þess. 2:13.

Sumir segjast hafa lesið Biblíuna mörgum sinnum. En trúa þeir því sem hún segir? Hafa þeir reynt að lifa í samræmi við það sem hún kennir? Því miður er það sjaldnast raunin. En þjónar Jehóva líta öðrum augum á Biblíuna. Við gerum allt sem við getum til að láta hana hafa áhrif á líf okkar. En það er ekki alltaf auðvelt að lesa orð Guðs og fara eftir því. Stundum er erfitt að finna tíma til að lesa. Og við höfum kannski tilhneigingu til að lesa of hratt svo að efnið fer fyrir ofan garð og neðan. Við gætum líka misst kjarkinn af því að við þurfum að bæta okkur á svo mörgum sviðum. Hver svo sem áskorunin er þá er hún ekki óyfirstíganleg. Jehóva hjálpar þér. Verum ákveðin í að fara eftir því sem við lesum í orði Guðs. Því meir sem við gerum það því hamingjusamari verðum við. – Jak. 1:25. w24.09 7 gr. 15, 16

Föstudagur 10. júlí

„Haldið áfram að biðja og ykkur verður gefið.“ – Lúk. 11:9.

Jehóva notar heilagan anda til að hugga okkur þegar við verðum fyrir áfalli eða missi. Ef þú ert að ganga í gegnum mikla erfiðleika geturðu úthellt hjarta þínu fyrir Jehóva í bæn eins oft og lengi og þú vilt. (Sálm. 86:3; 88:1) Biddu Jehóva stöðugt að gefa þér heilagan anda. Hann er alltaf tilbúinn að styðja þig. Ertu alveg orkulaus af því að þú ert að ganga í gegnum erfiða prófraun? Heilagur andi getur gefið þér þann styrk sem þú þarft til að halda áfram að þjóna Jehóva trúfastlega. (Ef. 3:16) Hvað ættirðu að gera eftir að hafa beðið Jehóva um heilagan anda? Gerðu það sem gerir þér kleift að fá anda Guðs í enn ríkari mæli eins og að sækja samkomur og tala við aðra um trúna. Lestu Biblíuna daglega til að skilja betur hvernig hann hugsar. (Fil. 4:8, 9) Taktu eftir biblíupersónum sem urðu fyrir prófraunum og hugleiddu hvernig Jehóva hjálpaði þeim að takast á við þær. w24.10 9 gr. 12–14

Laugardagur 11. júlí

„Guð elskaði heiminn svo heitt.“ – Jóh. 3:16.

Við elskum fólk eins og Jehóva og sonur hans. (Orðskv. 8:31) Við finnum til innilegrar samúðar með þeim sem eru „án Guðs“ og hafa „enga von“. (Ef. 2:12) Fólk er að drukkna í vandamálum lífsins en við höfum björgunarhringinn sem það þarfnast – fagnaðarboðskapinn um Guðsríki. Kærleikur okkar og samkennd fær okkur til að gera allt sem við getum til að segja þessu fólki frá fagnaðarboðskapnum. Þessi dýrmæti boðskapur getur fyllt hjörtu þess von, hjálpað því að vera hamingjusamt núna og gefið því möguleika á að hljóta „hið sanna líf“ – eilíft líf í nýjum heimi Guðs. (1. Tím. 6:19) Kærleikur okkar til fólks knýr okkur til þess að vara það við komandi endi þessa illa heims. (Esek. 33:7, 8) Við viljum að fólk fái að vita hvað gerist í þrengingunni miklu. Fyrst verður fölskum trúarbrögðum eytt og síðan verður hinni illu heimsskipan eytt í Harmagedón. – Opinb. 16:14, 16; 17:16, 17; 19:11, 19, 20. w24.05 16 gr. 8, 9

Sunnudagur 12. júlí

„Hefnið ykkar ekki sjálf, þið elskuðu, heldur leyfið reiði Guðs að komast að, því að skrifað er: ‚„Mín er hefndin, ég mun endurgjalda,“ segir Jehóva.‘“ – Rómv. 12:19.

Páll postuli hvatti kristna menn til að leyfa reiði Guðs að komast að. Við gerum það með því að eftirláta honum að koma á réttlæti þegar það er tímabært. Bróðir að nafni John var beittur óréttlæti. Hann segir: „Ég þurfti að hafa stjórn á reiðinni til að taka ekki málin í mínar eigin hendur. Rómverjabréfið 12:19 hjálpaði mér að bíða eftir Jehóva.“ Það er okkur til góðs að bíða eftir að Jehóva leiðrétti málin. Þannig forðumst við streitu og vonbrigði sem fylgir því gjarnan að reyna að leysa vandamál upp á eigin spýtur. Jehóva býðst til að hjálpa okkur. Hann segir í raun: „Láttu mig um að taka á málinu og leiðrétta óréttlætið.“ Ef við trúum Jehóva þegar hann segir „ég mun endurgjalda“ getum við lagt málið til hliðar vitandi að hann leysi það á besta mögulega hátt. w24.11 6 gr. 14, 15

Mánudagur 13. júlí

„Gefðu okkur daglega það brauð sem við þurfum hvern dag.“ – Lúk. 11:3.

Við verðum að passa að efnislegir hlutir verði ekki það mikilvægasta í lífi okkar. Páll postuli lagði áherslu á það þegar hann skrifaði til kristinna manna. Hann rifjaði upp atburði í sögu Ísraelsþjóðarinnar, þar á meðal það sem gerðist skammt frá Sínaífjalli. Hann varaði kristna menn við því að „girnast það sem er illt eins og [Ísraelsmenn] gerðu“. (1. Kor. 10:6, 7, 11) Jehóva hafði séð Ísraelsmönnum fyrir mat með kraftaverki en græðgi þeirra í mat fékk þá til að líta á ráðstafanir Jehóva sem illar. (4. Mós. 11:4–6, 31–34) Þegar þeir tilbáðu gullkálfinn sýndu þeir að þeir hugsuðu meira um að borða, drekka og skemmta sér en að hlýða Jehóva. (2. Mós. 32:4–6) Páll vitnaði í þessi dæmi til viðvörunar kristnum mönnum sem lifðu við endalok heimsskipanar Gyðinga árið 70. Við lifum við endalok núverandi heimsskipanar og ættum því að taka ráð Páls alvarlega. w24.12 6 gr. 13

Þriðjudagur 14. júlí

„Gleðstu með eiginkonu æsku þinnar.“ – Orðskv. 5:18.

Jehóva er „hinn hamingjusami Guð“ og vill að við séum líka hamingjusöm. (1. Tím. 1:11) Hann hefur gefið okkur margt sem hjálpar okkur að njóta lífsins. (Jak. 1:17) Hjónabandið er ein af gjöfum hans. Þegar karl og kona ganga í hjónaband lofa þau að elska, virða og annast hvort annað. Að varðveita náið samband veitir þeim sanna gleði. Því miður gleyma mörg hjón loforðunum sem þau gáfu á brúðkaupsdeginum. Þess vegna eru þau ekki hamingjusöm. Hvernig ætlast Jehóva til að eiginmaður komi fram við eiginkonu sína? Jehóva skipar eiginmanni að virða konu sína. Maður sem virðir eiginkonu sína er góður og hlýlegur við hana. – 1. Pét. 3:7. w25.01 8 gr. 1, 2; 9 gr. 4, 5

Miðvikudagur 15. júlí

„Jehóva hjálpar mér, ég óttast ekki neitt.“ – Hebr. 13:6.

Bréf Páls postula til Hebreanna hjálpaði án efa kristnum mönnum á fyrstu öld að búa sig undir þrenginguna sem beið þeirra. Páll hvatti trúsystkini sín til að dýpka þekkingu sína og skilning á orði Guðs. Það myndi auðvelda þeim að koma auga á og hafna hugmyndum sem myndu grafa undan trú þeirra. Hann hvatti þá til að styrkja trú sína svo að þeir myndu án tafar fylgja leiðbeiningum Jesú og þeirra sem færu með forystuna í söfnuðinum. Og hann hjálpaði kristnum mönnum að vera þolgóðir með því að líta prófraunir réttum augum – sem tækifæri til að fá þjálfun hjá kærleiksríkum föður sínum. Við skulum líka taka þessar innblásnu leiðbeiningar til okkar. Þannig getum við verið trúföst allt til enda. – Hebr. 3:14. w24.09 12–13 gr. 17, 19

Fimmtudagur 16. júlí

Við vorum helguð þegar Jesús Kristur fórnaði líkama sínum í eitt skipti fyrir öll. – Hebr. 10:10.

Samkvæmt Biblíunni er lausnargjald það gjald sem þarf til að friðþægja fyrir syndir mannkynsins og koma á sáttum milli Guðs og manna. Frá sjónarhóli Jehóva er það grunnurinn að því að endurheimta það sem glataðist. Hvernig þá? Við vitum að Adam og Eva misstu fullkomleikann og möguleikann á að lifa að eilífu. Lausnargjaldið þurfti því að vera jafngildi þess sem glataðist. (1. Tím. 2:6) Til þess þurfti fullorðinn mann sem (1) var fullkominn, (2) hafði möguleika á að lifa að eilífu á jörðinni og (3) var fús til að fórna fullkomnu lífi sínu fyrir okkur. Skoðum þrjár ástæður fyrir því að Jesús gat greitt lausnargjaldið: (1) Hann var fullkominn, „hann syndgaði aldrei“. (1. Pét. 2:22) (2) Hann hafði möguleika á að lifa að eilífu á jörðinni þar sem hann var fullkominn. (3) Hann var fús til að deyja og fórna lífi sínu fyrir okkur. – Hebr. 10:9. w25.02 4–5 gr. 11, 12

Föstudagur 17. júlí

„Guð gefur óspart af andanum.“ – Jóh. 3:34.

Jehóva elskar þig. Hann vill hafa þig í fjölskyldu sinni sama hvaða hindranir þú þarft að yfirstíga til að geta látið skírast. Jesús sagði við hóp lærisveina sinna: „Ef þið hafið trú á við sinnepsfræ getið þið sagt við þetta fjall: ‚Færðu þig þangað,‘ og það færir sig. Ekkert verður ykkur um megn.“ (Matt. 17:20) Þeir sem voru viðstaddir við þetta tækifæri höfðu ekki fylgt Jesú nema fáein ár þannig að trú þeirra þurfti að styrkjast. En Jesús fullvissaði þá um að ef þeir þroskuðu með sér nægilega sterka trú myndi Jehóva hjálpa þeim að sigrast á fjallháum hindrunum. Hann gerir það sama fyrir þig! Ef þú stendur frammi fyrir hindrunum sem koma í veg fyrir að þú skírist skaltu ekki bíða boðanna heldur gera það sem þarf til að yfirstíga þær. Vígðu líf þitt Jehóva og láttu skírast. Það er besta ákvörðun sem þú getur tekið! w25.03 7 gr. 18–20

Laugardagur 18. júlí

„Jehóva er mér við hlið, ég óttast ekki neitt.“ – Sálm. 118:6.

Við getum tekist á við prófraunir með góðum árangri ef við munum að hinn lifandi Guð er tilbúinn að hjálpa okkur. Við eigum auðveldara með að treysta því ef við hugleiðum það sem hann hefur gert fyrir fólk sitt áður fyrr. (Jes. 37:17, 33–37) Kynntu þér líka frásögur á vefsíðunni jw.org sem sýna skýrt hvernig Jehóva hefur stutt bræður og systur nú á dögum. Rifjaðu upp hvernig Jehóva hefur komið þér til hjálpar í gegnum tíðina. Það þarf ekki að vera neitt stórkostlegt. Staðreyndin er sú að Jehóva hefur skipað stórt hlutverk í lífi þínu. Hann hefur dregið þig til sín og orðið vinur þinn. (Jóh. 6:44) Af hverju ekki að biðja hann að hjálpa þér að muna eftir tilfellum þegar hann svaraði bænum þínum, studdi þig á hárréttum tíma og kom þér í gegnum erfiðar aðstæður? Að rifja upp slík atvik styrkir traust þitt á að Jehóva haldi áfram að koma þér til hjálpar. w24.06 21 gr. 8

Sunnudagur 19. júlí

Dauðinn barst til allra manna því að þeir höfðu allir syndgað. – Rómv. 5:12.

Við erum kannski ákveðin í að gera ekkert sem spillir sambandinu við Jehóva. En við erum ófullkomin og viðkvæm fyrir freistingum. (Rómv. 7:21–23) Við gætum skyndilega lent í aðstæðum þar sem röng breytni virðist í góðu lagi. Til að vera Jehóva og syni hans trú þurfum við að fylgja leiðsögn Jesú um að vera á verði gegn freistingu og synd. Öll verðum við fyrir freistingum til að syndga. En við höfum öll veikleika, eitthvað sem freistar okkar sérstaklega til að gera rangt. Einn berst til dæmis við þá freistingu að taka þátt í óleyfilegu kynlífi. Annar hneigist að öðru sem er óhreint, eins og sjálfsfróun eða klámi. Og enn annar getur átt erfitt með að hafa stjórn á reiði, stolti eða óttast stöðugt hvað öðrum finnst. w24.07 14 gr. 3; 15 gr. 5

Mánudagur 20. júlí

„Nú ættuð þið að fyrirgefa honum fúslega og hughreysta hann svo að hann láti ekki bugast af hryggð.“ – 2. Kor. 2:7.

Ímyndum okkur hvað hefði getað gerst ef öldungarnir hefðu neitað að taka iðrunarfullan mann aftur inn í söfnuðinn eða ef bræður og systur hefðu neitað að sýna honum kærleika. Hann hefði getað „bugast af hryggð“. Hann hefði auðveldlega getað misst vonina og jafnvel dregið þá ályktun að hann gæti aldrei endurheimt sambandið við Guð. Bræður og systur hefðu líka stofnað sambandi sínu við Jehóva í hættu ef þau hefðu neitað að fyrirgefa manninum. Þau hefðu ekki endurspeglað viðhorf Jehóva til iðrandi syndara heldur líkt eftir Satan sem er harður og miskunnarlaus. Þau hefðu leyft Satan að nota sig sem verkfæri til að draga kjarkinn úr manninum. – 2. Kor. 2:10, 11; Ef. 4:27. w24.08 17 gr. 7, 10, 11

Þriðjudagur 21. júlí

Þegar hann steig upp til hæða gaf hann menn að gjöf. – Ef. 4:8.

Jesús Kristur útnefndi einnig aðra menn til að þjóna í söfnuðinum. Undir forystu hans sendu öldungarnir í Jerúsalem Pál, Barnabas og aðra bræður til að þjóna sem farandhirðar. (Post. 11:22) Þeir gerðu það af sömu ástæðu og safnaðarþjónar og öldungar voru skipaðir – til að byggja upp söfnuðina. (Post. 15:40, 41) Farandhirðar þurfa að ferðast mikið. Sumir ferðast hundruð kílómetra til að heimsækja söfnuði. Þeir flytja nokkrar ræður í hverri viku, fara í hirðisheimsóknir og stýra brautryðjendafundum, öldungafundum og samansöfnunum fyrir boðunina. Þeir semja ræður og skipuleggja svæðismót og umdæmismót. Þeir kenna í brautryðjendaskólum og skipuleggja sérstakan fund með brautryðjendum fyrir svæðismótin og sinna ýmsum mikilvægum verkefnum og stundum áríðandi sem deildarskrifstofan úthlutar þeim. w24.10 21 gr. 12, 13

Miðvikudagur 22. júlí

„Ég mun fyrirgefa afbrot þeirra og ekki framar minnast synda þeirra.“ – Jer. 31:34.

Jehóva sagði það sem við lesum í versi dagsins við Jeremía spámann. Páll postuli vitnaði í þessi orð þegar hann sagði: „Ég mun … ekki minnast synda þeirra framar.“ (Hebr. 8:12) Skoðum betur hvað það þýðir. Í Biblíunni á orðið að „minnast“ ekki alltaf við um það að rifja upp eða hugsa um eitthvað sem hefur gerst. Það felur oft í sér verknað. Afbrotamaðurinn sem var staurfestur við hliðina á Jesú bað hann: „Jesús, mundu eftir mér þegar þú kemur í ríki þitt.“ (Lúk. 23:42, 43) Hann var ekki bara að biðja hann um að hugsa til sín. Svar Jesú gaf til kynna að hann myndi reisa hann upp. Þegar Jehóva talar um að minnast ekki lengur synda okkar á hann við að hann ætli ekki að nota þær gegn okkur. Hann refsar okkur ekki síðar meir fyrir syndir sem hann hefur fyrirgefið. w25.02 10–11 gr. 14, 15

Fimmtudagur 23. júlí

„Að þekkja Hinn háheilaga veitir skilning.“ – Orðskv. 9:10.

Skilningurinn kemur þegar maður þekkir eiginleika Jehóva, fyrirætlun hans og veit hvað hann elskar og hatar. Spyrðu þig: Hvaða ákvörðun yrði Jehóva ánægður með miðað við það sem ég veit um hann? (Ef. 5:17) Til að gera það sem Jehóva vill að við gerum verðum við stundum að gera það sem veldur okkar nánustu vonbrigðum. Sumir foreldrar sem meina vel gætu krafist þess að fullorðin dóttir þeirra giftist efnuðum manni, þótt samband hans við Jehóva sé ekki sterkt. Skiljanlega vilja foreldrarnir tryggja fjárhagslegt öryggi dótturinnar. En stuðlar mannsefnið að því að hún taki framförum í trúnni? Hvernig lítur Jehóva á málið? Svarið er að finna í Matteusi 6:33. Þar eru þjónar Guðs hvattir til að ‚einbeita sér fyrst og fremst að ríki Guðs‘. Við heiðrum foreldra okkar og virðum fólk í samfélaginu en við viljum fyrst og fremst gleðja Jehóva. w25.01 17 gr. 9, 10

Föstudagur 24. júlí

„Drottinn stóð með mér og gaf mér kraft.“ – 2. Tím. 4:17.

Margir eru á móti boðun okkar nú á dögum og við þurfum því á hjálp Jehóva að halda til að segja fólki ótrauð frá fagnaðarboðskapnum. (Opinb. 12:17) Hvers vegna geturðu verið viss um að Jehóva styðji þig? Lítum á bæn Jesú í Jóhannesi 17. kafla. Hann bað Jehóva um að gæta postulanna og hann varð við bón hans. Í Postulasögunni kemur fram hvernig hann hjálpaði postulunum að boða trúna af brennandi áhuga þrátt fyrir ofsóknir. Jesús bað Jehóva líka að gæta þeirra sem tryðu á hann vegna orða postulanna. Þú ert þar á meðal. Jehóva er ekki hættur að svara bæn Jesú. Hann mun hjálpa þér rétt eins og hann hjálpaði postulunum. (Jóh. 17:11, 15, 20) Eftir því sem endirinn nálgast gæti orðið erfiðara að boða fagnaðarboðskapinn af kappi. En við fáum allan þann stuðning sem við þurfum. – Lúk. 21:12–15. w25.03 17–18 gr. 13, 14

Laugardagur 25. júlí

„Þjónar mínir munu hrópa af glöðu hjarta.“ – Jes. 65:14.

Þjónar Jehóva geta ‚hrópað af glöðu hjarta‘ vegna þess að þeir eru honum þakklátir. Hvetjandi sannindi og hughreystandi loforð í orði Guðs og traust von sem byggist á lausnarfórn Krists gleðja hjarta okkar. Við verðum glöð og ánægð þegar við ræðum um þetta. (Sálm. 34:8; 133:1–3) Kærleikurinn og einingin sem ríkir meðal þjóna Jehóva eru tvö af helstu einkennum andlegu paradísarinnar. (Kól. 3:14) Þetta er sýnishorn af því hvernig lífið verður í nýja heiminum þar sem kærleikur og eining þjóna Jehóva mun styrkjast enn meira. Þeir sem vilja finna ósvikna hamingju þurfa að koma í andlegu paradísina. Óháð því hvað heimurinn hugsar um þjóna Jehóva hafa þeir gott mannorð hjá honum og öllum sem tilbiðja hann. – Jes. 65:15. w24.04 21 gr. 7, 8

Sunnudagur 26. júlí

Haldið áfram að styrkja hvert annað. – 1. Þess. 5:11.

Hvernig getum við öll stutt einhleypa þjóna Guðs sem vilja gifta sig? Til dæmis með því að vanda tal okkar. (Ef. 4:29) Við gætum spurt okkur: Geri ég grín að þeim sem langar að gifta sig? Dreg ég þá ályktun að það sé eitthvað á milli einhleyps bróður og einhleyprar systur ef ég sé þau tala saman? (1. Tím. 5:13) Við ættum ekki að láta trúsystkini finnast þau vanti eitthvað ef þau eru ekki gift. Það er miklu betra að koma auga á tækifæri til að hrósa einhleypum þjónum Guðs. En hvað ef þú heldur að ákveðinn bróðir og ákveðin systir ættu vel saman sem hjón? Biblían hvetur okkur til að taka tillit til tilfinninga annarra. (Rómv. 15:2) Margir einhleypir einstaklingar vilja ekki að aðrir kynni þá fyrir hugsanlegum maka og við ættum að virða það. (2. Þess. 3:11) Aðrir þiggja kannski einhverja aðstoð en við ættum ekki að skipta okkur af nema við séum beðin um það. – Orðskv. 3:27. w24.05 24–25 gr. 14, 15

Mánudagur 27. júlí

„Klettur þeirra er ekki eins og okkar klettur.“ – 5. Mós. 32:31.

Við lifum í heimi þar sem óvæntir erfiðleikar geta truflað líf okkar eða jafnvel snúið því algerlega á hvolf. Við erum innilega þakklát að geta leitað til Jehóva Guðs um hjálp. Þegar hann styður okkur veitir það okkur fullvissu um að ‚Jehóva lifi!‘ (Sálm. 18:46) En strax í næstu setningu kallar Davíð Guð ‚klett sinn‘. Af hverju ætli hann hafi líkt Jehóva, hinum lifandi Guði, við lífvana hlut – klett? Í Biblíunni er Jehóva líkt við klett til að auðvelda okkur að skilja suma eiginleika hans. Þessi líking er gjarnan notuð þegar þjónar hans lofa hann fyrir það hversu óviðjafnanlegur Guð hann er. Jehóva er líkt við klett í fyrsta skipti í 5. Mósebók 32:4. Hanna sagði í bæn: „Enginn klettur er sem Guð okkar.“ (1. Sam. 2:2) Habakkuk kallaði Jehóva ‚klett sinn‘. (Hab. 1:12) Ritari Sálms 73 kallaði Guð ‚klett hjarta síns‘. (Sálm. 73: 26) Og jafnvel Jehóva talaði um sjálfan sig sem klett. – Jes. 44:8. w24.06 26 gr. 1, 3

Þriðjudagur 28. júlí

Jósafat leitaði Jehóva af öllu hjarta. – 2. Kron. 22:9.

Konungar Ísraels sem voru Jehóva þóknanlegir tilbáðu hann af heilu hjarta. Biblían segir um Jósía: „Enginn konungur á undan honum hafði verið eins og hann og snúið aftur til Jehóva af öllu hjarta.“ (2. Kon. 23:25) En hvað um Salómon sem gerði það sem var rangt síðar á ævinni? „Hjarta hans var ekki heilt.“ (1. Kon. 11:4) Og Biblían segir um Abíam, annan ótrúan konung: „Hjarta hans var ekki heilt gagnvart Jehóva.“ (1. Kon. 15:3) Biblían notar oft orðið „hjarta“ til að lýsa hinum innri manni sem felur í sér langanir, hugsanir, afstöðu, viðhorf, hæfni, hvatir og markmið. Hvað merkir það að þjóna Jehóva af heilu hjarta? Sá sem þjónar Jehóva af heilu hjarta gerir það ekki aðeins af því að hann veit að hann ætti að gera það. Hann þjónar Jehóva vegna þess að hann elskar hann og virðir út lífið. w24.07 21 gr. 4, 5

Miðvikudagur 29. júlí

„Afmáðu öll afbrot mín.“ – Sálm. 51:9.

Jehóva notar líkingu til að lýsa því hvernig hann afmáir syndir. Hann segir: „Ég þurrka út afbrot þín eins og þau hverfi bak við ský og syndir þínar bak við skýjaþykkni.“ (Jes. 44:22) Þegar Jehóva fyrirgefur er eins og hann noti skýjaþykkni til að fela syndir okkar svo að þær hverfi algerlega úr augsýn. Hvað lærum við af þessum líkingum? Þegar Jehóva fyrirgefur okkur ætti okkur ekki að finnast við vera flekkuð af synd það sem eftir er ævinnar. Blóð Jesú Krists hreinsar okkur af allri synd. Þegar Jehóva fyrirgefur syndir okkar eru engin ummerki um þær lengur. Þetta er það sem sönn fyrirgefning Jehóva þýðir fyrir okkur ef við iðrumst synda okkar. Vegna miskunnar Jehóva þurfum við heldur ekki að efast um að við höfum endurheimt vináttu hans. Við þurfum ekki lengur að burðast með sektarkennd. w25.02 10 gr. 11–14

Fimmtudagur 30. júlí

„Guð reynir í góðvild sinni að leiða þig til iðrunar.“ – Rómv. 2:4.

Öldungar sem sitja í nefndum bera þá ábyrgð gagnvart Jehóva að halda söfnuðinum hreinum. (1. Kor. 5:7) En þeir vilja auðvitað að þeir sem syndga iðrist ef hægt er. Þess vegna eru þeir jákvæðir þegar þeir reyna að hjálpa þeim. Þeir vilja líkja eftir Jehóva sem er „mjög umhyggjusamur og miskunnsamur“. (Jak. 5:11) Tökum eftir hvernig Jóhannes postuli sýndi þetta hugarfar. Hann skrifaði: „Börnin mín, ég skrifa ykkur þetta til að þið syndgið ekki. En ef einhver drýgir synd höfum við hjálpara hjá föðurnum, Jesú Krist sem er réttlátur.“ (1. Jóh. 2:1) Því miður gerist það stundum að einhver í söfnuðinum iðrast ekki alvarlegrar syndar. Ef svo er þarf að vísa honum úr söfnuðinum. w24.08 25 gr. 19, 20

Föstudagur 31. júlí

„Standið stöðug í trúnni.“ – 1. Kor. 16:13.

Þér hættir kannski til að bera þig saman við aðra. Forðastu það! Jehóva ber okkur ekki saman við aðra. (Gal. 6:4) Sem dæmi gaf María Jesú mjög dýra ilmolíu. (Jóh. 12:3–5) En fátæka ekkjan í musterinu gaf tvo smápeninga sem voru mjög lítils virði. (Lúk. 21:1–4) Jesús bar þessar tvær konur ekki saman. Í augum hans sýndu þær báðar trú. Jehóva faðir hans kann sannarlega að meta allt sem þú gerir vegna hollustu þinnar og kærleika til hans, hversu smátt sem það er í þínum augum. Við þurfum öll einhvern tíma að glíma við efasemdir. En orð Guðs, Biblían, getur hjálpað okkur að sigrast á þeim. Láttu fullvissu þína vinna bug á efasemdum. Jehóva þekkir þig persónulega og ber umhyggju fyrir þér. Hann kann vel að meta fórnir þínar og launar þér. Hann elskar alla trúfasta þjóna sína og veitir þeim athygli. w24.10 25 gr. 3; 29 gr. 17, 18

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila