Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg kafli 46 bls. 208–211
  • „Ég hef séð Drottin!“

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • „Ég hef séð Drottin!“
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Kafaðu dýpra
  • Hugleiddu og heimfærðu
  • Horfðu á heildarmyndina
  • Skoðaðu meira
  • Hver var María Magdalena?
    Biblíuspurningar og svör
  • „Ég hef séð Drottin!“
    Líkjum eftir trú þeirra
  • Hún þáði einstakt verkefni
    Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • „Hún gerði það sem hún gat“
    Verum hugrökk og treystum Jehóva
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg kafli 46 bls. 208–211

46 MARÍA MAGDALENA

„Ég hef séð Drottin!“

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

MARÍA MAGDALENA hafði þjáðst mjög mikið. Biblían segir að sjö illir andar hafi haft hana á valdi sínu og fyrir vikið var líf hennar hrein martröð. En svo hitti hún Jesú og lífið gjörbreyttist þegar hann rak illu andana út. Hún ákvað að nota frelsið til að fylgja Jesú og gera allt sem hún gæti til að styðja hann.

Hún kallaði Drottin sinn Rabbúní en það merkir ‚kennari‘ og lýsir djúpri virðingu. Jesús ferðaðist um landið ásamt postulunum 12 og fræddi fólk um ríki Guðs. María komst að raun um að þeir höfðu sagt skilið við veraldlega vinnu til að geta helgað krafta sína þessu mikilvæga starfi. Hvernig gat hún orðið að liði?

Hún hafði átt mjög erfiða ævi en ákvað að helga sig því að styðja Jesú og fylgjendur hans.

María var ein nokkurra kvenna sem „studdu þá með eigum sínum“. Þessar konur notuðu fjármuni sína til að sjá fyrir þörfum Jesú og postulanna. Hugsanlegt er að lærisveinarnir hafi verið um 20 talsins. Þetta voru bæði karlar og konur sem fóru „borg úr borg og þorp úr þorpi“. Það var mjög óvenjulegt á þessu menningarsvæði að konur ferðuðust með trúarkennara og þær hafa kannski verið gagnrýndar fyrir það. En María og hinar konurnar vissu að ekkert var mikilvægara en þetta. Þær voru nógu hugrakkar til að styðja Jesú hvað sem öðrum fannst.

María hlýtur að hafa verið harmi slegin þegar Jesús var handtekinn í Jerúsalem á páskanótt árið 33, ranglega sakfelldur fyrir guðlast og dæmdur til að deyja á kvalastaur. En hún missti aldrei kjarkinn. Hún fylgdi öðrum konum, þeirra á meðal móður Jesú, á aftökustaðinn. Og saman sýndu þær honum kærleika sinn og hollustu. Þótt Jesús væri sárkvalinn á aftökustaurnum tók hann eftir þessum trúföstu konum. Þær urðu vitni að því að Jesús var ráðvandur allt til enda og lauk því verki sem faðir hans hafði falið honum. María var á staðnum þegar Jesús dró andann í síðasta sinn.

María Magdalena styður móður Jesú þar sem þær horfa á hann á kvalastaurnum. Trúarleiðtogar Gyðinga horfa reiðilega á þær. Rómverskir hermenn standa þar hjá og aðrir fylgjast daprir með úr nokkurri fjarlægð.

Þessar hugrökku konur syrgðu Jesú fyrir opnum tjöldum, óháð því hvað rómversku hermönnunum og leiðtogum Gyðinga fannst. María Magdalena var ákveðin í að gera eitt enn til að sýna hve vænt henni þótti um Drottin sinn. Lík rotna mjög hratt í heitu loftslagi eins og í Júdeu. Því var venja að bera ilmolíur á lík látinna áður en þeir voru lagðir í gröf og leggja ilmjurtir með þeim til að draga úr rotnunarlyktinni. María gerði ráðstafanir til þess eftir að Jesús var lagður í gröf. Strax eftir hvíldardaginn fór hún ásamt nokkrum öðrum konum til að kaupa það sem til þurfti og snemma morguninn eftir fóru þær til grafarinnar til að huga að líkinu.

María kom ef til vill fyrst að gröfinni. Henni brá mjög þegar hún sá að gröfin var opin – og tóm! Hún hljóp af stað til að segja Pétri og Jóhannesi frá. Þegar hún kom til baka voru hinar konurnar farnar. María beygði sig til að líta inn í gröfina og sá þá „tvo hvítklædda engla sitja þar sem lík Jesú hafði legið“. Eftir að hafa skipst á nokkrum orðum við þá sneri hún sér við og sá þá mann sem hún hélt að væri garðyrkjumaður. „Kona, hvers vegna græturðu?“ spurði hann. Hún spurði hvar lík Jesú væri og bætti við: „Herra, ef þú hefur farið með hann segðu mér þá hvar þú hefur lagt hann og ég skal sækja hann.“ María hugsaði ekki út í það hvort hún gæti í rauninni lyft fullvöxnum manni og borið hann. Hún vissi bara að hún þurfti að gera það sem hún gat.

Hún sneri sér frá honum döpur í bragði en þá sagði hann við hana: „María!“ Hún þekkti röddina. „Rabbúní!“ hrópaði hún og faðmaði hann. En Jesús sagði: „Haltu ekki í mig,“ og bætti við: „Farðu til bræðra minna.“ Hann fól henni það mikilvæga verkefni að flytja postulunum merkilegustu fréttir sem hugsast gat – Drottinn þeirra var risinn upp frá dauðum! Hún fór samstundis og sagði þeim frá þessu. Mennirnir trúðu henni ekki í fyrstu. „Þeim fannst þetta fráleitt,“ lesum við. En María Magdalena lét hvorki það né nokkuð annað stoppa sig. Hún var hugrökk og hélt áfram að segja fólki gleðifréttirnar um Drottin sinn.

Lestu frásögn Biblíunnar:

  • Matteus 27:55, 56

  • Markús 16:1, 2

  • Lúkas 8:1–3; 24:1–11

  • Jóhannes 19:25; 20:1, 2, 11–18

Til umræðu:

Hvernig sýndi María Magdalena hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Á hvaða hátt ætli María Magdalena og aðrar konur hafi stutt Jesú og postulana? (ijwia grein 6 gr. 5, 6) A

    María Magdalena býður Jesú og tvo postula hans velkomna þegar þeir ganga inn á heimili hennar. Aðrar konur sauma föt og baka brauð.

    Mynd A

  2. 2. Hvers vegna þekkti María ekki Jesú fyrst eftir að hann reis upp? (ijwia grein 6 gr. 16)

  3. 3. Hvers vegna sagði Jesús við Maríu Magdalenu: „Haltu ekki í mig“? (w08 15.4. 32 gr. 5)

  4. 4. Þegar María Magdalena sagði postulunum að Jesús væri upprisinn ‚fannst þeim það fráleitt‘. Hvaða viðhorf til kvenna hefur kannski valdið því? (Lúk. 24:11; brwp120901 10 gr. 4, 5)

Hugleiddu og heimfærðu

  • María Magdalena vann hversdagsleg verk í þágu annarra. Hvernig getum við líkt eftir henni? B

    Þrjár glaðar systur skammta mat handa bræðrum sem vinna við byggingarstörf á vegum safnaðarins.

    Mynd B

  • Hvernig getum við líkt eftir Maríu Magdalenu þegar fólk vill ekki hlusta eða trúa boðskapnum sem við boðum? (Lúk. 24:10, 11)

  • Hvernig getur þú sýnt hugrekki eins og María Magdalena?

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Hvers vegna megum við vera þakklát fyrir að María Magdalena skuli líklega hafa verið valin til að ríkja með Kristi á himnum?

Skoðaðu meira

Hvaða sögur eru til um Maríu Magdalenu en hvað segir Biblían?

„Hver var María Magdalena?“ (ijwbq grein 172)

Hvernig á að koma fram við konur miðað við framkomu Jesú við Maríu Magdalenu og konur almennt?

„Kristnar konur verðskulda virðingu og heiður“ (w96 1.1. 25–28 gr. 3–8)

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila