45 PÉTUR
„Ég er syndugur maður“
PÉTUR var harðduglegur fiskimaður og stundaði útgerð með öðrum í fjölskyldunni. Hann var djarfur og hugrakkur að eðlisfari. Hann var ófeiminn að segja hug sinn og fljótur til þegar á þurfti að halda. Dag einn kom Andrés bróðir hans til hans og sagði spenntur: „Við höfum fundið Messías.“ Pétur var fljótlega farinn að fylgja Jesú.
Nokkrum mánuðum síðar kom Jesús til Kapernaúm þar sem Pétur bjó. Pétur hafði farið í róður og stritað alla nóttina en hafði ekkert veitt. Jesús sagði honum að fara út á meira dýpi og leggja netin aftur. Pétur var efins því að yfirleitt veiddist ekki vel um hábjartan daginn. „Við höfum stritað í alla nótt og ekkert fengið,“ sagði hann. En hann hlýddi samt. Fljótlega voru þeir búnir að fylla tvo báta að því marki að þeir voru nærri sokknir! Pétur varð hræddur. Hann féll á kné fyrir Jesú og sagði: „Farðu frá mér, Drottinn, því að ég er syndugur maður.“ Honum fannst hann vera of syndugur – ekki þess verðugur að vera með syni Guðs sem vann slík kraftaverk. En Jesús hughreysti hann og sagði: „Vertu ekki hræddur. Héðan í frá skaltu veiða menn.“
Jesús sá margt gott í Pétri og valdi hann síðar til að vera einn af postulunum 12. Pétur sýndi hugrekki á marga vegu. Þegar Jesús sagði eitthvað sem lærisveinarnir skildu ekki og þeir hikuðu við að spyrja hann út í það bað Pétur oft um frekari skýringar. Þegar Jesús gekk á vatninu hafði Pétur kjark til að spyrja hann hvort hann mætti taka þátt í kraftaverkinu.
Pétur átti það til að vera fljótfær. Það kostaði hann hugrekki að taka ákúrum og takast á við veikleika sína.
Pétur sýndi líka hugrekki þegar Jesús setti ofan í við hann. Ólíkt mörgum var hann ófeiminn að viðurkenna mistök sín og var fús til að gera betur. Pétur sýndi það margsinnis. Þegar Jesús sagði lærisveinunum að hann yrði tekinn af lífi átaldi Pétur hann og sagði: „Hlífðu þér, Drottinn.“ Jesús ávítaði Pétur fyrir að andmæla vilja Guðs eins og búast mætti við að Satan gerði. Pétur var auðmjúkur og tók ákúrunum.
Kvöldið áður en Jesús dó vildi hann minna postulana á að þeir þyrftu að vera auðmjúkir og hann fór að þvo fætur þeirra eins og hann væri þjónn. En þegar röðin kom að Pétri sagði hann: „Þú skalt aldrei nokkurn tíma þvo mér um fæturna.“ Jesús ávítaði hann en þá fór Pétur út í hinar öfgarnar og bað hann um að þvo sér ekki bara um fæturna heldur líka um hendurnar og höfuðið. Jesús setti aftur ofan í við hann. Síðar um kvöldið sagði Jesús fyrir að allir postularnir myndu yfirgefa hann. Pétur stóð á því fastar en fótunum að hann myndi aldrei yfirgefa Jesú þó að allir hinir gerðu það. En Jesús svaraði því til að þessa sömu nótt myndi hann afneita honum þrisvar.
Aðeins fáeinum klukkustundum síðar komu hermenn og handtóku Jesú. Pétur sýndi það hugrekki að fylgja þeim í nokkurri fjarlægð. Meðan réttað var ólöglega yfir Jesú og honum var misþyrmt í húsi æðstaprestsins beið Pétur átekta í húsagarðinum. En einhverjir sem stóðu þar hjá könnuðust við hann og vissu að hann var fylgjandi Jesú. Rétt eins og Jesús hafði sagt neitaði Pétur þrisvar að hann þekkti hann.
Rétt í þessu kom Jesús út úr húsinu og horfði beint á Pétur. Pétur var niðurbrotinn. Hann yfirgaf húsagarðinn, fór burt og „grét beisklega“. Þegar Jesús vinur hans var tekinn af lífi með grimmilegum hætti nokkrum klukkustundum síðar hlýtur honum að hafa liðið verr en nokkru sinni fyrr. En hann lét ekki bugast þótt hann hefði brugðist svona illilega. Hann var ákveðinn í að standa sig. Hann fór því til að hitta hina postulana. Nokkrum dögum síðar gat hann sagt þeim eitthvað stórmerkilegt: Jesús hafði birst honum! Biblían lætur ósagt hvað hinn upprisni Jesús sagði við Pétur en við vitum að það styrkti hann og hughreysti.
Þegar Jesús hitti postulana við Galíleuvatn nokkrum vikum síðar gaf hann Pétri gjöf sem sýndi að hann elskaði hann. Pétur hafði afneitað honum þrisvar en núna fékk hann þrjú tækifæri til að tjá honum kærleika sinn. Síðan fól Jesús Pétri mikilvægt verkefni. „Fóðraðu lömbin mín,“ sagði hann. Eins og við sjáum í 49. kafla gerði Pétur það og sýndi meira hugrekki en nokkru sinni fyrr.
Lestu frásögn Biblíunnar:
Til umræðu:
Hvernig sýndi Pétur hugrekki á þessu tímabili ævinnar?
Kafaðu dýpra
1. Hvað fólst í starfi fiskimanns á fyrstu öld? (it „Veiðar“ gr. 6, 7 – wcgr) A
Mynd A
2. Af hverju gaf Jesús Símoni nafnið Kefas (Pétur)? (w24.06 28 gr. 11)
3. Hvað gaf Jesús í skyn þegar hann bauð Pétri og Andrési að „veiða menn“? (Matt. 4:18–20; w16.05 9 gr. 3, 4) B
Mynd B
4. Skömmu áður en Jesús steig upp til himna spurði hann Pétur: „Elskarðu mig meira en þessa?“ Hvað átti hann líklega við? (w17.05 22 gr. 2)
Hugleiddu og heimfærðu
Hvað geturðu lært af Pétri um að halda áfram að þjóna Jehóva þrátt fyrir þrálátan veikleika? C
Mynd C
Af hverju er gott að hugleiða hvernig Jehóva og Jesús fyrirgáfu Pétri?
Hvernig getur þú sýnt hugrekki eins og Pétur gerði á þeim tíma sem hér er sagt frá?
Horfðu á heildarmyndina
Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?
Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?
Hvers vegna geturðu verið þakklátur fyrir að Pétur skuli hafa verið valinn til að ríkja með Kristi á himnum, miðað við þessa frásögu?
Skoðaðu meira
Hvernig geta foreldrar notað frásöguna af Pétri til að fræða börnin um miskunn Jehóva?
Hvers vegna ætli Pétur hafi verið trúfastur þegar sumir yfirgáfu Jesú?