42 MARÍA
Hún þáði einstakt verkefni
DAG einn kom gestur í heimsókn til ungrar konu af gyðingaættum sem hét María og bjó í Nasaret í Galíleu. En þetta var enginn venjulegur gestur heldur engillinn Gabríel! Hann var með skilaboð til hennar. Hún átti að fá mikilvægasta verkefni sem Jehóva hefur nokkurn tíma falið ófullkominni manneskju.
„Sæl, þú sem nýtur velþóknunar Guðs. Jehóva er með þér,“ sagði engillinn. Maríu „brá mjög“. Henni fannst hún ekki verðskulda slíka kveðju. Gabríel róaði hana og endurtók að Guð hefði velþóknun á henni. Síðan sagði hann henni að hún hefði fengið óvænt verkefni frá Jehóva. „Þú verður barnshafandi og fæðir son,“ sagði hann en bætti við: „Hann verður mikill og verður kallaður sonur Hins hæsta.“ Sonur hennar yrði konungur og myndi erfa hásæti Davíðs forföður síns.
María tók í sig kjark til að spyrja einfaldrar spurningar. Hún var trúlofuð en var ekki gift enn þá og hafði aldrei sofið hjá karlmanni. Hún spurði því: „Hvernig getur þetta gerst?“ Gabríel útskýrði að kraftur Jehóva, heilagur andi hans, myndi „umlykja“ hana þannig að hún yrði barnshafandi og myndi eignast fullkomið barn sem yrði kallað „heilagt, sonur Guðs“. Hann sagði henni líka hvað Jehóva hefði gert fyrir Elísabetu frænku hennar. Það nægði til að sannfæra Maríu. Hún sagði einfaldlega: „Ég er ambátt Jehóva. Megi það gerast sem þú hefur sagt um mig.“ Hún leit á Jehóva sem kærleiksríkan Drottin sinn og sjálfa sig sem hlýðna ambátt hans. Hún treysti að hún yrði alltaf óhult undir verndarhendi hans ef hún gerði vilja hans. Viðhorf hennar gaf henni hugrekki til að þiggja þetta ótrúlega verkefni.
Eftir að engillinn hafði birst Maríu lagði hún upp í ferðalag og heimsótti Elísabetu. Þær hvöttu hvor aðra til að takast á við það sem var fram undan. María tjáði trú sína og orð hennar segja okkur margt um það á hverju hugrekki hennar byggðist. Í einu samtali vitnar hún eða vísar óbeint yfir 20 sinnum í Hebresku ritningarnar. María hafði sterka trú og hafði hugleitt orð Guðs vandlega. Hún þekkti Jehóva vel og hafði góðan grunn til að treysta loforðum hans. Hún var hjá Elísabetu í um það bil þrjá mánuði og sneri svo aftur heim. Hún þurfti á öllu sínu hugrekki að halda til að segja Jósef að hún væri barnshafandi og hvernig það bar til. Jósef var vantrúaður í fyrstu en engill Jehóva kom honum í skilning um að María væri að segja satt.
María og Jósef giftust og bjuggu sig undir að barnið fæddist. Stuttu áður en María átti von á sér þurftu þau Jósef að leggja upp í ferðalag til Betlehem því að keisarinn hafði gefið út tilskipun um að allir skyldu láta skrásetja sig í fæðingarbæ sínum. Það hefur ekki verið neitt spaug fyrir Maríu að ferðast um 150 kílómetra leið á asna eins og hún var á sig komin. En hún gerði það. Svo fór að hún þurfti að ala barnið í gripahúsi og leggja það í jötu. Hún missti þó ekki kjarkinn. Hún var ákveðin í að leggja sig alla fram og annast þetta dýrmæta barn eins vel og hún gæti.
Engill fól Maríu verkefni ólíkt öllu öðru sem Guð hafði falið mönnum fram að því.
María þurfti að sýna hugrekki á komandi dögum og árum. Hún þurfti að gera það þegar þau Jósef flúðu til Egyptalands með Jesú ungan vegna þess að Heródes konungur vildi drepa hann. Hún þurfti að gera það þegar þau Jósef ólu upp að minnsta kosti sex börn í viðbót þótt þau væru fátæk. Hún þurfti að vera hugrökk þegar hún missti Jósef eiginmann sinn, líklega áður en Jesús varð Messías. Hún þurfti að vera það þegar Jesús flutti að heiman til að sinna hlutverki sínu. Síðast en ekki síst þurfti hún að sýna hugrekki þegar Jesús var ákærður fyrir upplognar sakir, dæmdur og tekinn af lífi. Að lokum þurfti hún að vera hugrökk til að halda áfram að þjóna Jehóva með fylgjendum sonar síns og takast á við fyrirlitningu Gyðingasamfélagsins.
Það var aldeilis verkefni sem María fékk! Hvað veitti henni hugrekki til að takast á við það? Í Biblíunni kemur fram að þegar María lærði eitthvað nýtt sem styrkti trú hennar geymdi hún það í hjarta sér. Fyrir vikið átti hún sér mikinn andlegan sjóð. Sumt kom frá orði Guðs, sumt kom frá englum og mönnum sem þjónuðu Jehóva og sumt kom frá syni hennar. Með því að hugleiða andleg sannindi var María fær um að takast á við alla erfiðleika sem urðu á vegi hennar, allt til enda.
Lestu frásögn Biblíunnar:
Til umræðu:
Hvernig sýndi María hugrekki?
Kafaðu dýpra
1. Hvaða sögulegu heimildir styðja það sem segir í Lúkasi 2:1–3? (g 4.12 11 gr. 4, 5) A
British Library, London, UK, from the British Library archive/Bridgeman Images
Mynd A: Tilskipun um manntal gefin út af rómverska landstjóranum í Egyptalandi árið 104 e.Kr.
2. Hvers vegna hefur ferðin til Betlehem reynt á Maríu? (ia bls. 153–155 gr. 4–7 – wcgr)
3. Þegar Jesús var enn ungbarn var sagt við Maríu: „Sverð mun nísta sál þína.“ Hvernig rættist þetta? (Lúk. 2:35; w08 15.3. 31 gr. 1)
4. Hvað bendir til þess að María hafi fengið líf á himnum? (w18.07 10 gr. 14) B
Mynd B: María og synir hennar voru í Jerúsalem dagana fyrir hvítasunnu árið 33.
Hugleiddu og heimfærðu
Þegar María þurfti á uppörvun að halda heimsótti hún Elísabetu. (Lúk. 1:39, 40) Af hverju ættum við að leita aðstoðar þegar við verðum fyrir prófraunum eða glímum við verkefni sem okkur finnst erfitt? C
Mynd C
Þó að María væri trúlofuð Jósef sendi Jehóva engil fyrst til hennar. Hvernig lítur Jehóva á trúfastar konur miðað við það?
Hvernig getur þú sýnt hugrekki eins og María?
Horfðu á heildarmyndina
Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?
Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?
Hvers vegna megum við vera þakklát fyrir að María skuli líklega hafa verið valin til að ríkja með Kristi á himnum?
Skoðaðu meira
Hvernig sjáum við að María var ötul og óeigingjörn þegar hún ól börnin upp?
„Hvað getum við lært af Maríu?“ (w09 1.1. 5 gr. 5–6 gr. 2 – wcgr)
Hvernig ætli Maríu hafi liðið þegar Gabríel fól henni þetta einstaka og mikilvæga verkefni?