Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg kafli 19 bls. 90–93
  • Þau efndu heit þótt það væri erfitt

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þau efndu heit þótt það væri erfitt
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Kafaðu dýpra
  • Hugleiddu og heimfærðu
  • Horfðu á heildarmyndina
  • Skoðaðu meira
  • Hún gladdi bæði föður sinn og Jehóva
    Kenndu börnunum
  • Guð hefur velþóknun á þeim sem eru trúfastir
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2016
  • Loforð Jefta
    Biblíusögubókin mín
  • Loforð Jefta
    Lærum af sögum Biblíunnar
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg kafli 19 bls. 90–93

19 JEFTA OG DÓTTIR HANS

Þau efndu heit þótt það væri erfitt

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

ÁSTANDIÐ var orðið slæmt í Ísrael á ný því að þjóðin hafði enn og aftur yfirgefið Jehóva. Þar af leiðandi leyfði Jehóva Ammónítum að kúga þá um 18 ára skeið. (Dóm. 10:8) Að lokum játaði fólkið synd sína, losaði sig við falsguðina og sneri aftur til Jehóva. En stuttu síðar söfnuðust Ammónítar saman í Gíleað og bjuggu sig undir að gera árás.

Öldungarnir í Gíleað báðu mann sem hét Jefta að fara fyrir þeim í stríði. Hálfbræður hans, sem voru í hópi þessara öldunga, höfðu farið mjög illa með hann og þess vegna hafði hann flúið af svæðinu. Var hann bitur út í þá? Nei, Jefta féllst á að snúa aftur og berjast. Hann byrjaði samt á því að reyna að semja frið. Hann sendi menn til að útskýra vel og vandlega fyrir konungi Ammóníta hvers vegna hann ætti ekki tilkall til landsins sem hann vildi ná af Ísraelsmönnum. Það er greinilegt að Jefta gjörþekkti sögu Ísraelsmanna, hvernig Jehóva hafði gefið þeim landið og hjálpað þeim að sigra þjóðirnar í kring. En konungur Ammóníta hlustaði ekki. Hann var ákveðinn í að fara í stríð!

Andi Jehóva kom yfir Jefta þegar hann bjó sig undir að fara í stríðið. Hann var því hvorki fljótfær né óskynsamur þegar hann vann Jehóva þetta heit: „Ef þú gefur Ammóníta mér á vald skal sá sem gengur út um dyr húss míns á móti mér þegar ég sný aftur heilu og höldnu frá Ammónítum tilheyra Jehóva og ég mun fórna honum sem brennifórn.“

Var Jefta að tala um að hann ætlaði bókstaflega að brenna manneskju í eldi? Auðvitað ekki. Jehóva hafði viðbjóð á mannafórnum og bannaði þær. (5. Mós. 18:10, 12) Jefta átti við að sú manneskja sem kæmi fyrst út úr húsi hans myndi „tilheyra Jehóva“ í þeim skilningi að hún yrði fullkomlega helguð því að þjóna honum, líklega við tjaldbúðina í Síló. Jefta gerði sér grein fyrir að heit hans gæti orðið honum dýrkeypt. Hann átti bara eitt barn, dóttur sem var honum mjög kær. Það var ekki ólíklegt að hún yrði sú fyrsta sem kæmi á móti honum þegar hann sneri aftur.

En áður en það gerðist þurfti Jefta að fara í stríð. Hann fór hugrakkur fyrir mönnum sínum og Jehóva blessaði þá ríkulega. Þeir ‚gersigruðu Ammóníta‘ og lögðu undir sig 20 borgir á svæðinu.

Jefta sneri sigurglaður heim. Kannski vonaðist hann til að einhver þjóna hans kæmi fyrstur út úr húsinu. En sú var ekki raunin. Fyrsta manneskjan sem kom á móti honum var dóttir hans, dansandi með tambúrínu í hendi. Jefta var harmi sleginn. Hann reif föt sín og hrópaði: „Æ, dóttir mín! Þú veldur mér mikilli sorg því að nú þarf ég að senda þig frá mér. Ég hef gefið Jehóva loforð og get ekki dregið það til baka.“

Jefta og dóttir hans þurftu að efna heit – en þau þurftu að fórna miklu til þess.

Dóttir Jefta áttaði sig á hvað heit föður hennar hafði í för með sér. Hún myndi helga líf sitt þjónustunni við Jehóva að öllu leyti. Hún fengi aldrei að giftast né eignast börn en það var eitt versta hlutskipti sem ísraelsk kona gat hugsað sér. Þessi hugrakka stúlka sagði samt við föður sinn: „Ef þú hefur gefið Jehóva loforð gerðu þá við mig eins og þú hefur lofað.“ Það eina sem hún fór fram á var að fá smá tíma til að syrgja með vinkonum sínum yfir því að fá aldrei að giftast né verða móðir.

Jefta rífur föt sín og fellur á kné. Dóttir hans kemur til hans og leggur höndina á öxl hans.

Dóttir Jefta var bæði fórnfús og hugrökk. Vinkonur hennar heimsóttu hana fjóra daga á hverju ári til að hrósa henni og hughreysta. Og það hefur eflaust veitt henni mikla ánægju að þjóna við tjaldbúðina. Það var líklega um svipað leyti sem lítill drengur að nafni Samúel bjó þar. Hjálpaði dóttir Jefta til við að ala hann upp og hvetja hann í þjónustunni við Jehóva? Við vitum það ekki en ef svo var hefur það eflaust veitt henni mikla gleði fyrst hún átti ekki barn sjálf. Við vitum hins vegar að siðleysi viðgekkst á þessum tíma við tjaldbúðina. (1. Sam. 2:22) Lét dóttir Jefta tæla sig út í kynferðislegt siðleysi? Nei, því að í frásögunni segir: „Hún hafði aldrei kynmök við mann.“

Jefta er í hópi þeirra karla og kvenna sem Páll postuli segir að hafi sýnt einstaka trú. (Hebr. 11:32) Þau feðginin eru bæði skínandi dæmi um hugrekki. Hann barðist fyrir þjóð Guðs og dóttir hans studdi hann af heilum hug. Þau efndu bæði heit við Jehóva þótt það reyndi verulega á.

Lestu frásögn Biblíunnar:

  • Dómarabókin 10:15, 16; 11:1–40

Til umræðu:

Hvernig sýndu Jefta og dóttir hans hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Hvað gefur til kynna að Ammónítar hafi ekki aðeins verið að berjast við Ísraelsmenn heldur einnig gegn sannri tilbeiðslu? (it „Jefta“ gr. 6 – wcgr) A

    Ísraelskir menn fella helgistólpa að öðrum ásjáandi. Innfelld mynd: Kona mölvar lítið skurðgoð.

    Mynd A: „Þeir losuðu sig við útlendu guðina og þjónuðu Jehóva.“ – Dóm. 10:16.

  2. 2. Hvernig minnir hugarfar Jefta á hugarfar Jakobs þegar hann vann Jehóva heit? (it „Jefta“ gr. 11 – wcgr)

  3. 3. Hvers vegna var það mikil fórn fyrir Jefta að efna heit sitt? (w17.04 4 gr. 6)

  4. 4. Samúel spámaður fæddist um árið 1180 f.Kr. Hvað bendir til þess að hann og dóttir Jefta gætu hafa þjónað við tjaldbúðina á sama tíma? (it „Jefta“ gr. 2 – wcgr; sjá tímalínuna „Frá dögum ættfeðranna til dómaratímans“.)

Hugleiddu og heimfærðu

  • Hvaða áhrif hefur það á börn ef foreldrar þeirra sýna hugrekki eins og Jefta?

  • Hvernig getum við líkt eftir ungu konunum sem hrósuðu dóttur Jefta og stöppuðu í hana stálinu? B

    Systir búsett erlendis opnar pakka meðan hún er á fjarfundi með vinum. Í pakkanum eru matvæli, vítamín og aðrar gjafir ásamt korti.

    Mynd B

  • Hvernig getur þú sýnt hugrekki eins og Jefta og dóttir hans?

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Um hvað langar þig að spyrja Jefta og dóttur hans þegar þau rísa upp?

Skoðaðu meira

Hvað geta einhleypir þjónar Guðs lært af dóttur Jefta?

Nýttu þér kosti einhleypis (5:15)

Hvernig getur frásagan af Jefta og dóttur hans hjálpað okkur að vera Jehóva trúföst?

„Guð hefur velþóknun á þeim sem eru trúfastir“ (w16.04 5–9)

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila