Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg kafli 14 bls. 70–73
  • Hún kaus að standa Jehóva megin

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hún kaus að standa Jehóva megin
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Kafaðu dýpra
  • Hugleiddu og heimfærðu
  • Horfðu á heildarmyndina
  • Skoðaðu meira
  • Rahab trúði á Jehóva
    Kenndu börnunum
  • Rahab var vakandi fyrir fréttum
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2009
  • Rahab faldi njósnarana
    Lærum af sögum Biblíunnar
  • Rahab felur njósnarana
    Biblíusögubókin mín
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg kafli 14 bls. 70–73

14 RAHAB

Hún kaus að standa Jehóva megin

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

Í HÚSI sem var áfast borgarmúrum Jeríkó bjó vændiskona sem hét Rahab. Út um gluggann gat hún horft á fallegt landslagið umhverfis þessa borg sem einnig var kölluð ‚pálmaborgin‘. (5. Mós. 34:3) En þegar hún gekk um göturnar í borginni sá hún ótta og vonleysi speglast í augum allra sem hún mætti. Borgarbúar vissu að Jehóva var með þjóð sinni, Ísrael, en að það átti að útrýma þeim sjálfum. Og þeir áttu það skilið.

Ísraelsmenn höfðu sett upp búðir sínar í grennd við borgina. Fjörutíu árum áður hafði Jehóva bjargað fólki sínu þegar hann útrýmdi her faraós með því að drekkja honum öllum í Rauðahafinu. Ísraelsmenn höfðu reikað um eyðimörkina síðan það gerðist. Og þótt þeir væru ekki þjálfaðir hermenn var stutt síðan þeir höfðu með hjálp Jehóva sigrað tvo volduga konunga Amoríta, þá Síhon og Óg. Nú voru þeir á leiðinni til Jeríkó því að Jehóva ætlaði að refsa íbúunum fyrir öll illskuverk þeirra.

Rahab vissi að líferni samlanda hennar var ófagurt. Sjálf var hún vændiskona og þráði kannski betra líf en niðurlæginguna sem fylgdi því. Það sem hún hafði heyrt um Jehóva fyllti hana von en ekki ótta. Hann var Guð sem verndaði þjóna sína og sýndi þeim virðingu, ólíkt heiðnum guðum Kanverja. Hún laðaðist að þessum Guði, Jehóva, sem var heilagur, réttlátur og umhyggjusamur.

Kvöld nokkurt bönkuðu tveir ókunnugir menn upp á hjá henni og óskuðu eftir gistingu. Rahab var fljót að átta sig á hverjir þeir voru – ísraelskir njósnarar! En hún var ekki eina manneskjan sem áttaði sig á því. Konungurinn í Jeríkó sendi menn til hennar sem kröfðust þess að hún afhenti þeim njósnarana. Rahab þurfti nú að taka ákvörðun sem myndi ráða öllu um framtíð hennar. Ætlaði hún að verja illa samlanda sína eða taka afstöðu með Jehóva?

Rahab sýndi það hugrekki að standa Jehóva megin. Hún faldi njósnarana uppi á þaki og villti síðan um fyrir mönnum konungs. Eftir að þeir voru farnir fór hún upp á þakið og sagði ísraelsku mönnunum hvers vegna hún hefði bjargað þeim. „Ég veit að Jehóva mun gefa ykkur landið,“ sagði hún. Hún var farin að trúa á Guð þeirra. Og það sem hún nefndi í framhaldinu hlýtur að hafa verið hvetjandi fyrir þá: Jeríkómenn voru máttlausir af ótta við Ísraelsmenn. Síðan sárbændi hún njósnarana um vernd þegar Jehóva léti Ísraelsmenn eyða borginni.

Hvað veitti vændiskonu styrk til að snúa baki við þjóð sinni og siðlausu líferni?

Rahab hafði bjargað lífi njósnaranna og þeir sáu að hún hafði tekið afstöðu með Jehóva. Þeir samþykktu því að verða við bón hennar. Rahab og fjölskyldu hennar yrði hlíft. En njósnararnir settu þau skilyrði að hún ljóstraði ekki upp um þá, léti skarlatsrauða snúru hanga út um gluggann á borgarmúrnum og héldi sig heima meðan orrustan stæði yfir. Þannig myndu hún og allir sem væru á heimili hennar halda lífi.

Rahab bindur skarlatsrauða snúru í gluggann hjá sér.

Rahab hjálpaði njósnurunum að flýja með því að láta þá síga í reipi út um gluggann. Hún fór síðan í einu og öllu eftir fyrirmælum þeirra. Hún batt skarlatsrauða snúru í gluggann og þagði yfir erindi njósnaranna. Þetta kostaði mikið hugrekki því að hún hefði örugglega verið drepin ef það hefði komist upp um hana. Hún hélt sig inni í húsinu ásamt fjölskyldunni eins og henni hafði verið sagt. Þegar Jehóva stöðvaði rennsli Jórdanar svo að Ísraelsmenn kæmust yfir hefur Rahab eflaust verið enn sannfærðari um að hún hefði tekið rétta ákvörðun. Spennan innan borgarmúranna hlýtur að hafa magnast þá sjö daga sem ísraelski herinn gekk í kringum borgina. Að lokum, á sjöunda deginum, var blásið í hornin og Ísraelsmenn ráku upp heróp. Rahab og fjölskylda hennar voru óhult inni í húsinu þegar borgarmúrarnir hrundu til grunna.

Þegar bardaginn var afstaðinn fóru njósnararnir og sóttu Rahab og fjölskyldu hennar. Húsið hennar var áfast þeim litla hluta af borgarmúrnum sem stóð enn. Rahab og fjölskyldu hennar var þyrmt eins og Jósúa hafði gefið fyrirmæli um. Þegar fram liðu stundir fékk hún að tilheyra Ísraelsþjóðinni. Hún giftist ísraelskum manni og eignaðist börn. Mörgum öldum síðar fæddist í ættlegg hennar hugrakkasti maður sem lifað hefur – Jesús Kristur. (Matt. 1:5, 16) Jehóva blessaði Rahab ríkulega fyrir trú hennar og hugrekki.

Lestu frásögn Biblíunnar:

  • Jósúabók 2:1–24; 5:1; 6:14–25

  • Hebreabréfið 11:30, 31

  • Jakobsbréfið 2:24, 25

Til umræðu:

Hvernig sýndi Rahab hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Lýstu lífi Rahab í Jeríkó. (w13 1.11. 12 gr. 4–13 gr. 1 – wcgr)

  2. 2. Hvernig vitum við að það var ekki í siðlausum tilgangi sem njósnararnir báðu um gistingu hjá Rahab? (it „Vændi“ gr. 16 – wcgr)

  3. 3. Af hverju voru hörstönglar breiddir á þakið hjá Rahab og til hvers var hör notaður? (it „Hör“ gr. 2–4 – wcgr) A

    Thanks for your interest in my photos/Moment Open via Getty Images

    Mynd A: Hörakur

  4. 4. Hvers vegna var ekki rangt af Rahab að villa um fyrir mönnum konungs? (w04 1.12. 18 gr. 6) B

    Rahab leiðbeinir tveim mönnum konungs.

    Mynd B

Hugleiddu og heimfærðu

  • Hvers vegna þurfti Rahab að vera hugrökk til að hætta siðlausu líferni sínu og fara að tilbiðja Jehóva með Ísraelsmönnum? Hvað geta biblíunemendur lært af henni?

  • Biblían fordæmir lygar en stundum gætu óvinir okkar reynt að fá okkur til að gefa þeim upplýsingar um bræður og systur sem þeir eiga ekki rétt á. Hvernig getum við líkt eftir Rahab við slíkar aðstæður? (Orðskv. 11:13; Préd. 3:7; Ef. 4:25) C

Fangavörður stendur yfir handjárnaðri systur og yfirheyrir hana en hún er þögul. Hann bendir á skjöl á borðinu en vopnaður hermaður stendur vörð.

Mynd C

Mynd C

  • Á hvaða fleiri vegu geturðu sýnt hugrekki eins og Rahab?

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Um hvað langar þig að spyrja Rahab þegar hún rís upp?

Skoðaðu meira

Hvað lærum við af frásögunni af Rahab sem við þurfum að vita til að lifa af þegar dagur Jehóva rennur upp?

„Hvar ættir þú að vera þegar endirinn kemur?“ (w09 15.5. 6–8)

Notaðu þessa myndasögu til að hjálpa börnunum að sjá atburðarásina fyrir sér.

„Rahab hlýðir fyrirmælum“ (ijwis grein 11)

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila