Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg kafli 13 bls. 66–69
  • Hann fylgdi óvenjulegum fyrirmælum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hann fylgdi óvenjulegum fyrirmælum
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Kafaðu dýpra
  • Hugleiddu og heimfærðu
  • Horfðu á heildarmyndina
  • Skoðaðu meira
  • Láttu Jósúabók hjálpa þér — þjónaðu Jehóva af hugrekki
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1985
  • Það sem Jósúa gleymdi ekki
    Varðturninn: Það sem Jósúa gleymdi ekki
  • Höfuðþættir Jósúabókar
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2004
  • ‚Jehóva Guði vorum viljum vér þjóna‘
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1987
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg kafli 13 bls. 66–69

13 JÓSÚA

Hann fylgdi óvenjulegum fyrirmælum

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

JÓSÚA horfði á múra Jeríkó, borgarinnar sem Guð hafði sagt honum að ráðast á og leggja í rúst. Hann mundi vel hvað Jehóva hafði sagt við hann stuttu áður en Móse dó: „Vertu hugrakkur og sterkur.“ (5. Mós. 31:23) Jehóva hafði nýlega endurtekið þessa hvatningu. (Jós. 1:7) Nú þurfti Jósúa að vera hugrakkari en nokkru sinni fyrr. Af hverju?

Jeríkóborg var ekki sérstaklega stór en hún var vel varin og hernaðarlega mikilvæg. Þetta var fyrsta borgin í fyrirheitna landinu, Kanaan, sem Ísraelsmenn áttu að leggja undir sig, en hún var víggirt, umkringd háum og miklum múrum. Innan múranna stunduðu menn alls konar vonskuverk. Öldum áður hafði Jehóva sagt Abraham frá ‚sekt Amoríta‘ og átti þá við alla sem bjuggu í Kanaanslandi. Hann sagði að dag einn myndu þeir ‚fylla mæli sektar sinnar‘ og þá myndi hann fullnægja dómi sínum yfir þeim. (1. Mós. 15:16) Nú var stundin runnin upp. Fólk stundaði skurðgoðadýrkun, musterisvændi, sifjaspell, kynmök við fólk af sama kyni og kynmök við dýr og það færði jafnvel hræðilegum guðum börn sín að fórn. Illska Kanverja var orðin svo mikil að það var eins og að landið sjálft þyrfti að „spúa þeim“! (3. Mós. 18:3, 6, 21–27) Hvernig átti það að gerast?

Jehóva sagði Jósúa að ráðast á víggirta borg en aðferðin virtist fullkomlega órökrétt.

Jehóva hafði ákveðið að íbúar Jeríkó yrðu þeir fyrstu sem myndu hverfa úr landinu vegna illsku sinnar. Hann hafði falið Jósúa og mönnum hans að ráðast á borgina. Þessir hermenn voru tilbúnir til að fylgja leiðbeiningum Jehóva. En fyrirmælin sem Jósúa fékk voru afar óvenjuleg. Jehóva sagði honum að gera ekki áhlaup á borgina strax né búa sig undir langt umsátur heldur einfaldlega að ganga með herinn kringum hana. Þeir áttu að gera það einu sinni á dag í sex daga. Prestarnir áttu að vera með í för. Þeir áttu að bera sáttmálsörkina og blása í horn. Á sjöunda degi átti allt liðið að ganga sjö sinnum í kringum borgina – og síðan reka upp heróp.

Kanverjar sem eru búnir til bardaga standa á múrum Jeríkó og fylgjast áhyggjufullir með Ísraelsmönnum ganga í kringum borgina.

Frá mannlegum sjónarhóli virtist þetta fráleit hernaðaráætlun. Og hvað ef Ísraelsmenn myndu tapa þessari orrustu? Yrðu þá ekki íbúar annarra kanverskra borga öruggari með sig og jafnvel líklegri til að ráðast á Ísraelsmenn? Jósúa velti þessu kannski fyrir sér enda hafði hann nokkra reynslu af hernaði.

Jósúa hafði þó ærna ástæðu til að treysta Jehóva. Þegar hann sendi tvo njósnara til Jeríkó uppgötvuðu þeir að Jeríkóbúar voru dauðhræddir við Ísraelsmenn. Þar að auki hafði Jehóva unnið það kraftaverk að stöðva rennsli Jórdanár til að Ísraelsmenn gætu komist yfir hana.

Jósúa hugleiddi eflaust þessa atburði og það styrkti trú hans og veitti honum hugrekki til að hlýða Jehóva. Hann gekk því ásamt hernum í kringum Jeríkó. Prestarnir blésu í hornin. En borgarbúar létu ekki á sér kræla og hliðin voru harðlokuð. Daginn eftir fór Jósúa annan hring með herinn og fór nákvæmlega eftir fyrirmælum Jehóva eins og síðast. Þannig héldu þeir áfram í sex daga. Síðan rann sjöundi dagurinn upp.

Þann dag gekk herlið Jósúa sjö sinnum kringum Jeríkó. En í lok sjöunda hringsins kallaði Jósúa til mannanna: „Rekið upp heróp, því að Jehóva hefur gefið ykkur borgina!“ Þeir þurftu ekki að bíða lengi því að síðan segir: „Um leið og þeir … ráku upp heróp hrundi múrinn til grunna.“

Jósúa og menn hans fóru rakleiðis inn í borgina og drápu allt sem var á lífi, rétt eins og Jehóva hafði fyrirskipað. Með hjálp Jehóva hélt Jósúa og her hans áfram að vinna borg eftir borg og sigra þjóð eftir þjóð. Að lokum hafði Jehóva hreinsað landið af viðbjóðslegri ‚sekt Amoríta‘.

Örlítill hluti af múrum Jeríkó stóð þó eftir. Af hverju hrundi hann ekki? Af því að í borginni bjó kona sem var mjög hugrökk og treysti algjörlega á Jehóva. Við ræðum um hana í næsta kafla.

Lestu frásögn Biblíunnar:

  • 5. Mósebók 20:16–18

  • Jósúabók 2:1, 9–11, 24; 3:14–17; 5:1; 6:1–21, 24

Til umræðu:

Hvernig sýndi Jósúa hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Hvaða innblásnu ritum hafði Jósúa líklega aðgang að? (w09 1.12. 17 gr. 4, nm. – wcgr) A

    Jósúa situr fyrir utan tjald að kvöldlagi og les bókrollu.

    Mynd A

  2. 2. Hvað sagði Jehóva Jósúa að gera áður en Ísraelsmenn gengu kringum Jeríkó? Af hverju getur það hafa virst vera slæm hugmynd? (Jós. 5:2–8; w18.10 23 gr. 5–7)

  3. 3. Hvað staðfestir að Jeríkó hafi verið unnin eftir stutt umsátur? (w15 15.11. 13) B

    Kennedy, Titus (2023). The Bronze Age Destruction of Jericho, Archaeology, and the Book of Joshua. Accessed via researchgate.net. Licensed under CC BY 4.0

    Mynd B: Krukkur með brenndu korni sem fundust í rústum Jeríkó.

  4. 4. Hvernig rættist spádómurinn um Jeríkó sem er að finna í Jósúabók 6:26? (w98 15.9. 21 gr. 8 – wcgr)

Hugleiddu og heimfærðu

  • Hvað hjálpaði Jósúa að treysta loforðum Jehóva? (Jós. 23:14) Hvernig getum við treyst að Jehóva standi við loforð sín?

  • Hvað getum við lært af Jósúa um að fylgja leiðbeiningum frá söfnuði Guðs? C

    Faðir notar tilbeiðslustund fjölskyldunnar til að hjálpa konu sinni og tveim börnum að búa sig undir hugsanlegt neyðarástand. Þau horfa á myndbandið „Ertu viðbúinn neyðartímum?“ Þau eru með vatnsflöskur, peninga, Biblíuna, niðursuðudósir, strigalímband, neyðarpoka og fleira.

    Mynd C

  • Hvernig geturðu sýnt hugrekki eins og Jósúa?

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Um hvað langar þig að spyrja Jósúa þegar hann rís upp?

Skoðaðu meira

Hvernig getum við líkt eftir Jósúa með því að læra af eldra fólki, treysta loforðum Jehóva og vera trúföst jafnvel þótt einhver í söfnuðinum særi okkur?

„Það sem Jósúa gleymdi ekki“ (brw021201 9–12)

Fræddu börnin um mikilvæga atburði í lífi Jósúa.

„Jósúa“ (Biblíuspil á jw.org)

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila