Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg kafli 12 bls. 62–65
  • Hann barðist trúfastur fyrir Guð sinn

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hann barðist trúfastur fyrir Guð sinn
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Kafaðu dýpra
  • Hugleiddu og heimfærðu
  • Horfðu á heildarmyndina
  • Skoðaðu meira
  • Fylgir þú Jehóva af heilum hug?
    Varðturninn: Fylgir þú Jehóva af heilum hug?
  • Njósnararnir tólf
    Lærum af sögum Biblíunnar
  • Fylgdu Jehóva heils hugar
    Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2021
  • Treystu Jehóva af öllu hjarta
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2003
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg kafli 12 bls. 62–65

12 KALEB

Hann barðist trúfastur fyrir Guð sinn

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

UM SVIPAÐ leyti og Móse flúði frá Egyptalandi fæddist drengur meðal ísraelsku þrælanna þar. Foreldrarnir nefndu hann Kaleb. Hann ólst upp sem þræll en lifði það að sjá Ísraelsmenn hljóta frelsi. Kaleb var um fertugt þegar Móse sneri aftur til Egyptalands – og nú hafði Jehóva falið honum að frelsa Ísraelsmenn. Það hefur eflaust verið stórkostlegt fyrir Kaleb að sjá Jehóva sýna mátt sinn með plágunum tíu og með því að kljúfa Rauðahafið og frelsa fólk sitt.

Þessir trústyrkjandi atburðir voru enn ljóslifandi í huga Kalebs þegar margir Ísraelsmenn gerðu uppreisn við rætur Sínaífjalls aðeins fáeinum mánuðum síðar. Hann hlýtur að hafa verið trúfastur því að stuttu eftir þetta var honum falið sérstakt verkefni: að fara í njósnaferð til fyrirheitna landsins ásamt Jósúa og tíu öðrum ísraelskum höfðingjum.

Mennirnir 12 héldu hugrakkir inn í Kanaansland og í 40 daga njósnuðu þeir um borgirnar og íbúana og skoðuðu afurðir landsins. Þeir sneru aftur með sýnishorn af ávöxtunum, þar á meðal vínberjaklasa sem var svo þungur að það þurfti tvo menn til að bera hann. En þegar að því kom að gera grein fyrir leiðangrinum hlýtur Kaleb að hafa orðið fyrir vonbrigðum því að tíu af njósnurunum „gáfu Ísraelsmönnum slæma mynd af landinu“. Þeir sögðu að það væri engin leið að sigra Kanverjana og að þeir væru mjög stórvaxnir. Svo fáránlegt sem það var fullyrtu þeir jafnvel að sumir þeirra væru afkomendur risanna sem höfðu farist í flóðinu. Fólkið missti kjarkinn og sumir töluðu jafnvel um að velja sér nýjan leiðtoga og snúa aftur til Egyptalands.

Kaleb ávarpar Ísraelsmenn og sýnir þeim ávexti frá fyrirheitna landinu. Jósúa, Móse og Aron standa hjá honum. Sumir meðal fólksins eru farnir að reiðast.

Kaleb og Jósúa hvikuðu ekki frá afstöðu sinni. Þeir reyndu að hvetja þjóðina til að hafa sterka trú og sögðu: „Þið megið ekki óttast fólkið í landinu … Jehóva er með okkur.“ En þessir trúlausu Ísraelsmenn urðu bara enn æstari. Þeir hótuðu jafnvel að grýta Kaleb og Jósúa til bana!

Þrátt fyrir allt sem Jehóva hafði gert til að frelsa Ísraelsmenn undan oki Egypta voru þeir fljótir að missa trúna. Honum sárnaði það mjög. En hugrekki og trú Kalebs og Jósúa fór ekki fram hjá honum. Jehóva sagði jafnvel: „Kaleb þjónn minn hafði annað hugarfar og fylgdi mér heils hugar.“ Jehóva ákvað að öll þessi trúlausa kynslóð Ísraelsmanna skyldi deyja í óbyggðunum.a Kaleb og Jósúa yrðu hins vegar meðal þeirra fáu sem myndu ná háum aldri og fá að ganga inn í fyrirheitna landið.

Kaleb stóð með Jehóva þótt fjöldi Ísraelsmanna væri trúlaus og hótaði honum öllu illu.

Kaleb sýndi trú og hugrekki öll þau 40 ár sem Ísraelsmenn reikuðu um óbyggðirnar. Hann studdi Móse dyggilega. Hann studdi sömuleiðis Jósúa eftir að Móse var dáinn þegar Jósúa fékk það verkefni frá Jehóva að leiða þjóð hans yfir Jórdan og inn í fyrirheitna landið. Þótt Kaleb væri orðinn gamall barðist hann hugrakkur gegn óvinum Guðs í Kanaan.

Sex árum eftir að þjóð Guðs fór yfir Jórdan var hún búin að leggja undir sig stóran hluta fyrirheitna landsins. Nú var að lokum tímabært fyrir Kaleb að ákveða hvar hann vildi setjast að. Hann valdi Hebron, en það var borg sem trúlausu njósnararnir höfðu sagt að væri óvinnandi vegna þess að risavaxnir hermenn gættu hennar. Þótt Kaleb væri orðinn 85 ára bar hann fullt traust til Jehóva og sagði: „Jehóva verður með mér og ég mun hrekja þá burt eins og Jehóva lofaði.“ Og þannig fór. Kaleb vann borgina og settist þar að. Síðan lesum við: „Þar með var ekki lengur stríð í landinu.“

Áratugum áður hafði Móse sagt við Kaleb: „Þú hefur fylgt Jehóva Guði mínum af heilum hug.“ Við getum verið viss um að Kaleb hélt því áfram til æviloka. Og hann á eflaust eftir að gera það líka þegar hann rís upp í nýjum heimi.

Lestu frásögn Biblíunnar:

  • 4. Mósebók 13:1–14:12, 20–38

  • Jósúabók 14:6–15

Til umræðu:

Hvernig sýndi Kaleb hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Hvernig vitum við að lýsing 4. Mósebókar 13:23 á ávöxtum landsins er engar ýkjur? (w06 15.6. 16 gr. 1, 2 – wcgr)

  2. 2. Flaut fyrirheitna landið virkilega í „mjólk og hunangi“ eins og Kaleb og Jósúa lýstu því? (4. Mós. 14:8; brwp110301 15) A

    Fornleifafræðingur rannsakar býflugnabú úr leir sem fundust í Ísrael.

    Institute of Archaeology/Hebrew University © Tel Rehov Excavations

    Mynd A: Býflugnabú úr leir sem fundust í Ísrael. Þau eru frá tíundu eða níundu öld f.Kr.

  3. 3. Voru Ísraelsmenn langt frá fyrirheitna landinu þegar Móse sendi njósnarana 12 frá Kades? (w05 1.1. 15 gr. 11, 12) B

    Kort sem sýnir þá löngu leið sem Ísraelsmenn fóru frá Egyptalandi til Kades með viðkomu hjá Sínaífjalli, og hve stutt er frá Kades til Beerseba og Hebron í fyrirheitna landinu.

    Mynd B

  4. 4. Hvernig launaði Jehóva Kaleb fyrir trú hans og hugrekki? (brw060901 14 gr. 11)

Hugleiddu og heimfærðu

  • Þótt Kaleb hafi verið trúfastur þurfti hann að reika um óbyggðirnar eins og aðrir Ísraelsmenn. Hann var samt auðmjúkur og treysti Jehóva. Við hvaða aðstæður gætum við líkt eftir Kaleb?

  • Hvernig getum við tekið Kaleb til fyrirmyndar ef við verðum fyrir þrýstingi til að „fylgja fjöldanum“? (2. Mós. 23:2) C

    Samsett mynd: 1. Systir heldur á snjallsíma með auglýsingu um nýja kvikmynd sem heitir „Death Destiny“. Á borðinu fyrir framan hana liggur opin Biblía. 2. Á skjánum eru eftirfarandi textaskilaboð: „Þetta er örugglega geggjuð mynd! Eigum við að sjá hana á föstudaginn?“ „Endilega! Spennandi!“ og „Við mætum.“ Systirin svarar: „Veit ekki. Getum við aðeins pælt í því?“ 3. Ungur bróðir, hjón og ung systir eru spennt þegar þau lesa skilaboðin í símanum. Systirin með Biblíuna er áhyggjufull þegar hún les skilaboðin.

    Mynd C

  • Á hvaða fleiri vegu geturðu sýnt hugrekki eins og Kaleb?

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Um hvað langar þig að spyrja Kaleb þegar hann rís upp?

Skoðaðu meira

Kannaðu hvernig trú Kalebs tengdist hugrekki hans.

„Trú og guðsótti veitir hugrekki“ (brw060901 12–14 gr. 1–12)

Hvers vegna gat Kaleb sagt þegar hann var orðinn 85 ára: „Ég fylgdi Jehóva Guði mínum af heilum hug“? (Jós. 14:8)

„Fylgir þú Jehóva af heilum hug?“ (brw930515 26–29)

a Ákvörðun Jehóva náði ekki til Levítanna né Ísraelsmanna sem höfðu ekki náð 20 ára aldri á þeim tíma. – 4. Mós. 14:29.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila