11 MÓSE
„Farðu til faraós“
MÓSE var orðinn allt annar maður. Hann virðist fyrir löngu hafa gefið þá hugmynd upp á bátinn að hann ætti að frelsa Ísraelsmenn úr þrældóminum í Egyptalandi. Hann var orðinn áttræður og átti konu og tvö börn. Hann hafði lært auðmýkt á þeim 40 árum sem hann hafði gætt sauðahjarða tengdaföður síns í heitu og skrælnuðu landi Midíaníta.
Jehóva sá hvernig Móse hafði breyst. Dag einn þegar hann var að gæta fjár við rætur Hórebfjalls (Sínaí) sá hann allt í einu þyrnirunna sem stóð í ljósum logum án þess að brenna upp. Þetta vakti athygli Móse þannig að hann gekk nær til að skoða það betur. Jehóva lét þá engil tala til hans úr eldinum. Guð sagði Móse að fara aftur til Egyptalands og leiða fólk hans burt þaðan. Hann vildi hvetja Móse og opinberaði honum mikilvægan þátt í merkingu nafns síns, Jehóva. Hann sagði: „Ég verð það sem ég kýs að verða.“ Jehóva gat orðið hvað sem er til að frelsa kúgað fólk sitt og gera það að voldugri þjóð.
Móse var samt hikandi. Honum fannst hann ekki hæfur til verksins og taldi sig ófæran um að tala við faraó Egyptalands. Jehóva hjálpaði honum að hugsa rétt og styrkti trú hans á mjög merkilegan hátt. Hann gerði Móse kleift að vinna kraftaverk! Þetta er í fyrsta sinn sem Biblían segir frá því að Jehóva gefi manni slíkan mátt. Hann gaf Móse líka aðstoðarmann, Aron bróður hans, sem átti að vera talsmaður hans. Móse var enn hikandi en tók þó verkefnið að sér. Jehóva hafði valið hann og smurt til að bjarga Ísraelsmönnum. – Hebr. 11:26.
Móse sneri nú aftur til Egyptalands og þeir Aron gengu fyrir faraó. Faraó brást ókvæða við. Hann tók ekki í mál að sleppa Ísraelsmönnum heldur heimtaði enn meiri afköst af þeim. Jehóva sendi Móse þá aftur til faraós til að segja honum frá fyrstu plágunni sem myndi ganga yfir Egyptaland. Og plágan kom! Vatnið í Nílarfljótinu mikla breyttist í blóð. En faraó lét ekki haggast. Jehóva sendi Móse aftur og aftur til að tilkynna honum um nýjar plágur. „Farðu til faraós,“ sagði Jehóva og Móse hlýddi hugrakkur. En þessi hrokafulli valdhafi neitaði að hlusta. Frá og með fjórðu plágunni hlífði Jehóva fólki sínu og lét plágurnar aðeins ganga yfir Egypta.
Í hverri plágu kom skýrt í ljós að guðir Egypta voru einskis nýtir. Hvorki þeir, galdraprestarnir né faraó gátu stöðvað þessar plágur. Faraó lét samt ekki af þrjóskunni og neitaði að sleppa þrælum sínum. Í níundu plágunni varð niðamyrkur í Egyptalandi en þar sem Ísraelsmenn bjuggu var bjart. Í fyrstu lét faraó undan en síðan skipti hann um skoðun. Hann varaði Móse við að láta sjá sig framar. Ef hann gerði það myndi það kosta hann lífið.
Móse gekk ítrekað fyrir voldugasta þjóðhöfðingja heims sem reiddist honum í hvert sinn.
Að lokum reið síðasta plágan yfir. Allir frumgetnir synir Egypta og frumburðir búfénaðarins dóu. Einn þeirra sem dó var sonur faraós. Þetta var mikið áfall fyrir faraó og hann kallaði á Móse. Móse gekk þá fyrir hann í síðasta sinn. Faraó leyfði nú Ísraelsmönnum að fara og bað Móse um að blessa sig. Loksins voru Ísraelsmenn frjálsir, nákvæmlega 430 árum eftir að Abraham kom til fyrirheitna landsins. Þessir fyrrverandi þrælar lögðu af stað ásamt ‚fjölmennum blönduðum hópi‘, en margir í hópnum voru líklega Egyptar. En þá snerist faraó hugur á ný. Hann kallaði saman gríðarlega fjölmennt herlið sitt og elti Ísraelsmenn.
Þegar Móse og Ísraelsmenn voru komnir að Rauðahafinu virtust þeir innikróaðir. Fólkið var skelfingu lostið. Móse hrópaði til Jehóva á hjálp og Jehóva svaraði – með því að vinna eitt stórkostlegasta kraftaverk í sögu mannkyns. Hann klauf Rauðahaf þannig að Ísraelsmenn gátu gengið þurrum fótum eftir sjávarbotninum. Þegar faraó sá að Ísraelsmenn voru að komast undan elti hann þá með herliði sínu. En um leið og Ísraelsmenn voru komnir yfir á ströndina hinum megin lét Jehóva hafið steypast aftur yfir sjávarbotninn þannig að Egyptarnir drukknuðu. Öflugasti her í heimi þurrkaðist út!
Móse gleymdi aldrei þessum magnþrungnu atburðum. Trú hans var sterkari en nokkru sinni fyrr. Næstu 40 árin sýndi hann bjargfasta trú, kærleika og hugrekki þegar hann annaðist þjóð Guðs og leiddi hana. Á sinni 120 ára ævi sýndi Móse marga góða eiginleika sem við getum líkt eftir.
Lestu frásögn Biblíunnar:
Til umræðu:
Hvernig sýndi Móse hugrekki á því tímabili sem hér er til umræðu?
Kafaðu dýpra
1. Við vitum ekki hvað faraó sem ríkti á þessum tíma hét og engar egypskar heimildir eru til um brottför Ísraelsmanna. Hvers vegna er samt rökrétt að trúa þessari frásögn Biblíunnar? (g04 8.4. 7 gr. 4–9 gr. 1 – wcgr)
2. Hvers vegna óttaðist fólk faraó? (w14 15.4. 8 gr. 1) A
PRISMA ARCHIVO/Alamy Stock Photo
Mynd A: Lágmynd af einum faraóanna.
3. Hvernig niðurlægðu plágurnar tíu guði Egypta? (it „Guðir og gyðjur“ gr. 24–26 – wcgr)
4. Hvað bendir til þess að Jehóva hafi opnað breiða braut gegnum Rauðahafið og hversu margir Ísraelsmenn hafa hugsanlega farið þar um? (it „Brottförin frá Egyptalandi“ gr. 46–51 – wcgr) B
Mynd B: Horft yfir Rauðahaf frá Sínaískaga þar sem hugsanlegt er að Ísraelsmenn hafi gengið yfir.
Hugleiddu og heimfærðu
Hvernig getur Móse verið okkur til hvatningar þegar okkur finnst við ekki fær um að sinna ákveðnu verkefni sem Jehóva felur okkur? (2. Mós. 4:10; 7:6, 7)
Aron hjálpaði Móse að vera hugrakkur og takast á við verkefni sitt. Hvernig getum við hjálpað trúsystkinum okkar? (2. Mós. 4:14–16) C
Mynd C
Hvernig geturðu sýnt hugrekki eins og Móse gerði á þessum tíma?
Horfðu á heildarmyndina
Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?
Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?
Um hvað langar þig að spyrja Móse sem tengist þessum atburðum þegar hann rís upp?
Skoðaðu meira
Hvernig getur merking nafnsins Jehóva hjálpað börnum að vera hugrökk?
Hvað lærði Móse um eiginleika Jehóva af því sem hann upplifði?