8 JÓSEF
Hann stóðst freistingu
JÓSEF var strax á unga aldri elskaður bæði af Jakobi föður sínum og Jehóva Guði sínum. En það þýðir ekki að ævi hans hafi verið auðveld. Sumum var meinilla við hann. Jósef var í uppáhaldi hjá föður sínum og fékk sérmeðferð hjá honum. Þegar hálfbræður hans sáu það urðu þeir öfundsjúkir og reiðir. Og þegar Jehóva lét Jósef dreyma drauma sem gáfu til kynna að fjölskylda hans myndi einn góðan veðurdag krjúpa fyrir honum magnaðist hatur bræðranna.
Dag einn þegar Jósef var 17 eða 18 ára sendi Jakob hann í nokkurra daga ferðalag til að sjá hvernig bræður hans hefðu það. En þeir réðust á hann og köstuðu honum í uppþornaðan brunn. Hann sárbændi þá um að sýna sér miskunn en þeir létu það sem vind um eyrun þjóta. Í byrjun höfðu þeir talað um að myrða hann en ákváðu í staðinn að selja hann kaupmönnum sem áttu leið hjá. Þeir töldu síðan Jakobi trú um að villidýr hefði drepið Jósef sem hann elskaði svo heitt. En sannleikurinn var sá að kaupmennirnir fóru með Jósef suður til Egyptalands og seldu hann Pótífar sem var embættismaður við hirð faraós.
Jósef hefði hæglega getað orðið örvæntingarfullur. En í staðinn tók hann í sig kjark og lagði sig allan fram við störf sín. Í Biblíunni segir: „Jehóva var með honum.“ Jehóva sá til þess að allt sem Jósef tók sér fyrir hendur gekk vel. Með tímanum treysti Pótífar honum fyrir öllu heimilishaldi sínu.
En meiri erfiðleikar voru í aðsigi. „Jósef var vel vaxinn og myndarlegur“ og það fór ekki fram hjá konu Pótífars. Hún var ekkert að fela að hún hefði áhuga á honum. Hún sagði meira að segja: „Leggstu með mér.“ Hvað átti Jósef að taka til bragðs? Hann var fjarri fjölskyldu sinni. Hann var þræll, eign húsráðenda, og þeir máttu fara með hann eins og þeim sýndist. Konan var í aðstöðu til að gera honum lífið leitt. Freistaði það Jósefs að gera eins og hún vildi? Eða var hann nógu hugrakkur til að segja nei?
Jósef vissi að kona húsbónda hans var í aðstöðu til að gera honum lífið leitt. Hvernig gat hann verið trúfastur þrátt fyrir ágengni hennar?
„Hann lét ekki undan,“ segir í Biblíunni. Jósef sagði henni að hann myndi ekki svíkja manninn hennar sem treysti honum fyrir öllu. En síðan tiltók hann enn sterkari ástæðu: „Hvernig gæti ég … brotið svo gróflega af mér og syndgað gegn Guði?“ Kærleikur Jósefs til Jehóva föður síns gaf honum kjark til að hafna boðinu samstundis. En kona Pótífars gafst ekki upp. Hún hélt áfram „dag eftir dag“. Eitt sinn þegar ekkert af þjónustufólkinu var nærstatt greip hún í föt Jósefs og heimtaði: „Leggstu með mér!“ Jósef sleit sig lausan og forðaði sér en hún sleppti ekki flíkinni. Hún sýndi síðan Pótífar flíkina og fullyrti að Jósef hefði reynt að nauðga henni. Pótífar var fokreiður og lét varpa Jósef í fangelsi.
Allt í einu var Jósef kominn í dimmt og drungalegt fangelsi, fjötraður á fótum og hálsi. (Sálm. 105:17, 18) Hann hefði hæglega getað misst alla von. Var Jehóva búinn að yfirgefa hann? Nei. Jósef hætti aldrei að treysta Guði sínum. Hann vann hörðum höndum í fangelsinu og Jehóva blessaði hann. Áður en langt um leið var hann kominn með töluverða ábyrgð. Hann hélt hugrakkur áfram ár eftir ár þrátt fyrir erfiðleikana.
Jósef reyndist vera nytsamur í þjónustu Jehóva sökum trúar sinnar og hugrekkis. Að nokkrum tíma liðnum lét Jehóva faraó dreyma tvo spádómlega drauma og gerði Jósef kleift að skýra þá. Jósef sagði honum að draumarnir væru spádómur, að sjö ára tímabil kæmi þar sem uppskeran yrði mikil og að í kjölfarið kæmi sjö ára hungursneyð. Faraó var gáttaður á hæfileikum Jósefs og fól honum það hlutverk að búa þjóðina undir það sem var í vændum. Jósef varð þar með næstæðsti valdamaðurinn í landinu. Það fór svo að Jósef gat komið bæði Egyptum og sinni eigin fjölskyldu lifandi í gegnum hungursneyðina. Þegar bræður hans komu til Egyptalands til að kaupa matvæli krupu þeir óafvitandi fyrir yngri bróður sínum. Draumurinn sem Jehóva lét Jósef dreyma í æsku hafði ræst. En það kom líka í ljós að bræður hans höfðu þroskast og voru orðnir betri menn. Bróðirinn sem þeir höfðu hatað bjargaði þeim, föður þeirra og Ísraelsþjóðinni sem átti eftir að koma af þeim. Þannig fór vegna þess að hann var hugrakkur og varðveitti trúna á Jehóva.
Lestu frásögn Biblíunnar:
Til umræðu:
Hvernig sýndi Jósef hugrekki?
Kafaðu dýpra
1. Hvað styður það að frásagan af Jósef í Egyptalandi sé sannsöguleg? (g 1.11 15 gr. 2)
2. Hvernig vissi Jósef að Jehóva leit á framhjáhald sem ‚gróft brot‘? (1. Mós. 39:9; w22.08 26 gr. 2)
3. Af hverju leyfði Jehóva að Jósef yrði forsætisráðherra Egyptalands? (w96 1.6. 10 gr. 4) A
Mynd A
4. Hvað gerði Jósef þegar hann var orðinn 110 ára sem sýnir að hann hafði enn sterka trú? (1. Mós. 50:25, 26; w07 1.7. 18 gr. 10, 11) B
Mynd B
Hugleiddu og heimfærðu
Hvað lærir þú af samskiptum Jósefs við bræður sína sem getur hjálpað þér ef bróðir eða systir kemur illa fram við þig? (1. Mós. 45:4, 5; 50:19–21)
Jósef var Jehóva trúr jafnvel þegar hann var langt að heiman. Hvernig getum við líkt eftir honum …
í skólanum? C
Mynd C
á ferðalögum? D
Mynd D
þegar við notum snjallsíma eða önnur tæki? E
Mynd E
Hvernig geturðu sýnt hugrekki eins og Jósef?
Horfðu á heildarmyndina
Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?
Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?
Um hvað langar þig að spyrja Jósef þegar hann rís upp?
Skoðaðu meira
Jehóva hlífði ekki Jósef við erfiðleikum en hann hjálpaði honum að halda út. Kannaðu hvernig Jehóva getur líka hjálpað þér.
Hvernig geta börn líkt eftir Jósef þegar aðrir eru leiðinlegir við þau?