Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg kafli 9 bls. 48–51
  • Vegna trúar földu þau Móse

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Vegna trúar földu þau Móse
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Kafaðu dýpra
  • Hugleiddu og heimfærðu
  • Horfðu á heildarmyndina
  • Skoðaðu meira
  • „Lofsyngjum Jehóva“
    Líkjum eftir trú þeirra
  • Móse valdi að þjóna Jehóva
    Lærum af sögum Biblíunnar
  • Barninu Móse bjargað
    Biblíusögubókin mín
  • „Farðu til faraós“
    Verum hugrökk og treystum Jehóva
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg kafli 9 bls. 48–51

9 SIFRA, PÚA, AMRAM, JÓKEBED OG MIRJAM

Vegna trúar földu þau Móse

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

RÚMLEGA 60 ár eru liðin frá því að Jósef dó. Egyptar eru búnir að gleyma þessum trausta manni sem Jehóva hafði látið bjarga þjóð þeirra frá hungursneyð. Nýr faraó er kominn til valda í landinu og hann bæði hatar og óttast Ísraelsmenn sem einnig eru kallaðir Hebrear. Þeim fjölgar jafnt og þétt því að Jehóva blessar þá. Egyptar hneppa því Hebreana í þrælkun og fara illa með þá. Þrælunum heldur samt áfram að fjölga.

Faraó grípur nú til grimmilegri aðgerða. Hann lætur sækja tvær hebreskar ljósmæður sem heita Sifra og Púa. Við getum rétt ímyndað okkur hvernig þeim líður þegar þessi voldugi þjóðhöfðingi skipar þeim að drepa alla drengi sem þær aðstoða við að koma í heiminn. En þessar hugrökku konur „óttuðust hinn sanna Guð“. Þær vissu að enginn maður, hversu voldugur sem hann var, hefði vald til að skipa þeim að óhlýðnast Jehóva, drottni alheims. Djúp virðing fyrir Guði var þeim hvatning til að sýna mikið hugrekki þannig að þær „gerðu ekki eins og konungur Egyptalands sagði þeim“. Þær gerðu hið gagnstæða: Þær vernduðu og björguðu eins mörgum börnum og þær gátu. Faraó var hamstola af reiði en þær voru klárar og það komst ekki upp um þær. Jehóva sá þó hvað þær gerðu og hann ‚veitti þeim velgengni‘. Með tímanum eignuðust þær sín eigin börn.

Hvað hefði líklega orðið um Móse á barnsaldri ef ljósmæðurnar, foreldrar hans og systir hefðu ekki verið hugrökk?

Þegar faraó uppgötvaði að Ísraelsmenn höfðu gert áform hans að engu gaf hann út aðra grimmilega tilskipun: Kastið öllum nýfæddum drengjum Hebrea í Nílarfljót. Hebresku hjónin Amram og Jókebed þurftu að taka erfiða ákvörðun á þessum myrka tíma. Þau áttu tvö börn, Mirjam og Aron. En nú gekk Jókebed með þriðja barnið. Þau hjónin vissu að ef þau eignuðust son yrði hann í lífshættu. Eftir að drengurinn fæddist földu þau hann eins lengi og þau gátu. En það er ekki auðvelt að fela smábarn. Þegar drengurinn var þriggja mánaða náði Jókebed sér í körfu, þétti hana með biki og tjöru og lagði hann svo í hana. Hún faldi síðan körfuna í sefinu við bakka Nílar. Mirjam dóttir hennar faldi sig í öruggri fjarlægð til að sjá hvað yrði um litla bróður sinn.

Mirjam stendur við hliðina á Jókebed sem er að leggja Móse í papýruskörfu í sefinu við bakka Nílarfljóts.

Stuttu síðar kemur dóttir faraós niður að Níl til að baða sig. Hún kemur auga á körfuna og sendir þjónustustúlku til að sækja hana. Þegar prinsessan opnaði körfuna og sá þetta fallega litla barn grátandi bráðnaði hjarta hennar. Hún ákvað að ættleiða barnið en áttaði sig á að hana vantaði konu til að hafa það á brjósti. Mirjam var hugrökk og fljót að hugsa. Hún kom hlaupandi og bauðst til að finna brjóstmóður handa drengnum og dóttir faraós samþykkti það. Mirjam fór þá og sótti móður sína. Jókebed hlýtur að hafa verið himinlifandi að fá að hafa sitt eigið barn á brjósti og annast það – og fá þar að auki borgað fyrir það! Þau Amram hafa eflaust gert allt sem í þeirra valdi stóð til að fræða son sinn um Jehóva. En að lokum rann upp sá dagur að þau þurftu að afhenda hann dóttur faraós. Hún gaf honum nafnið Móse.

Launaði Jehóva Amram, Jókebed og Mirjam fyrir trú þeirra og hugrekki? Tvímælalaust! Amram og Jókebed kenndu Mirjam og Aroni að elska og hlýða Jehóva og þau urðu dyggir þjónar hans. Þau sáu líka að Jehóva verndaði Móse. Þess er ekki getið í Biblíunni hvort þau lifðu nógu lengi til að sjá hvers konar maður varð úr honum. (2. Mós. 6:20) En Mirjam gerði það og Aron sömuleiðis. Þau sáu hvernig Jehóva kom miklu til leiðar fyrir milligöngu Móse. Systkinin þrjú sýndu einstaka trú og hugrekki. Í næsta kafla skoðum við hvers konar uppeldi Móse fékk og hvers vegna hann ákvað að þjóna Jehóva.

Lestu frásögn Biblíunnar:

  • 2. Mósebók 1:6–2:10

  • Postulasagan 7:17–21

  • Hebreabréfið 11:23

Til umræðu:

Hvernig sýndu ljósmæðurnar og fjölskylda Móse hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Hvernig styður fornleifafræðin að þessi frásaga Biblíunnar sé sannsöguleg? (g04 8.4. 4 gr. 4–5 gr. 1 – wcgr)

  2. 2. Hvað vitnar um að það sé trúverðugt sem Biblían segir um papýruskörfu og fyrirskipun faraós um að drepa hebresku börnin? (g04 8.4. 6 gr. 1, 2 – wcgr) A

    Egypskur maður býr til bát úr papýrusreyr.

    Christine Osborne Pictures/Alamy Stock Photo

    Mynd A: Enn þann dag í dag er papýrus notaður í báta.

  3. 3. Hvað vitum við um hebresku ljósmæðurnar og hvaða blessun hlutu þær? (it „Ljósmóðir“ – wcgr; w04 1.1. 18 gr. 3, 4) B

    Tvær ljósmæður fela nýfæddan dreng. Önnur þeirra fylgist með egypskum hermönnum banka upp á hjá nágrönnum til að leita að nýfæddum drengjum.

    Mynd B

  4. 4. Hvernig sýndi Mirjam einstaka trú fram á gamals aldur? (ijwia grein 7 gr. 14–18)

Hugleiddu og heimfærðu

  • Hvað geta foreldrar lært af Amram og Jókebed?

  • Hvað geta börn sem eiga systkini lært af Mirjam þegar hún var ung? C

    Samsett mynd: Systkini að læra um Mirjam. Lýsing á myndunum kemur í framhaldinu. Unglingsstelpa situr hjá yngri bróður sínum og les úr bók. Hann teiknar myndir af biblíusögunum á meðan. Systkinin spjalla saman á leið úr ísbúðinni. Unga systirin svarar á samkomu og bróðir hennar horfir brosandi til hennar.

    Mynd C

  • Hvernig geturðu sýnt hugrekki eins og Sifra og Púa?

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Um hvað langar þig að spyrja þau sem hér koma við sögu þegar þau rísa upp?

Skoðaðu meira

Hvað getum við lært af ljósmæðrunum sem buðu faraó birginn?

„Konur sem glöddu hjarta Jehóva“ (w04 1.1. 18–19 gr. 3–5)

Hvernig vitum við að Jehóva lætur sér annt um þá sem eru hugrakkir og hlýða honum frekar en mönnum?

Við tilheyrum Jehóva (6:55)

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila