7 JAKOB
Hann verndaði fjölskyldu sína
Á GAMALS aldri lýsti Jakob æviárum sínum með tveim orðum. Þau voru „erfið“ og „fá“. (1. Mós. 47:9) Hann hafði fengið sinn skerf af raunum og mótlæti. Áratugum áður hafði hann þurft að flýja alla leið til Haran því að bróðir hans vildi drepa hann. Þar varð hann ástfanginn af Rakel en Laban faðir hennar plataði hann til að giftast eldri systur hennar fyrst. Jakob eignaðist því tvær konur – en þeim kom ekki vel saman. Jakob vann hjá Laban í tvo áratugi en Laban reyndi ítrekað að svindla á honum. Jakob sýndi samt einstakt hugrekki, trú og þolgæði.
Dag einn sagði Jehóva Jakobi að nú væri kominn tími til að fara frá Haran og snúa aftur heim til Kanaans. En það var ekki hættulaust því að Laban var ráðríkur og ágjarn. Jakob ráðfærði sig við fjölskyldu sína og þau ákváðu að flýja án þess að segja Laban frá. Um leið og Laban komst að því að þau voru farin kallaði hann saman menn sína og elti þau. Þegar hann náði þeim gagnrýndi hann Jakob harkalega. Laban hafði jafnvel í hótunum við hann og sagði: „Það er á mínu valdi að gera ykkur mein.“ En Jakob var hugrakkur og varði gerðir sínar. Hann benti á að Laban hefði verið ósanngjarn og komið sviksamlega fram við hann árum saman. Jakob var samt sáttfús og þeir Laban skildu á vinsamlegum nótum.
Hvernig tókst Jakobi að friðmælast við fjandsamlega ættingja og hvernig gat hann glímt við máttugan engil?
Það var þó fleira sem hvíldi á Jakobi. Mörgum árum áður hafði Rebekka móðir hans varað hann við því að Esaú tvíburabróðir hans vildi drepa hann. Esaú var sannfærður um að Jakob hefði haft af honum blessun föður þeirra. Jakob vildi nú reyna að friðmælast við Esaú. Hann frétti að Esaú væri að koma á móti honum og fjölskyldu hans með 400 manna lið. Jakob sendi þá menn á undan sér til að færa Esaú verðmætar gjafir. En yrði það nóg til að sefa reiði hans? Frásagan segir: „Jakob varð mjög hræddur og kvíðinn.“
Um nóttina verður Jakob fyrir ótrúlegri lífsreynslu. Hann kemur auga á ókunnugan mann. Þetta er engill Jehóva og hann fer að glíma við Jakob. Jakob skynjar að engillinn hefur blessun fram að færa og glímir við hann klukkustundum saman. Hann gefst ekki upp þó að hann sé orðinn 97 ára og sé engan veginn jafnoki engilsins. Hann beitir öllu afli og grætur jafnvel. (Hós. 12:4) Jakob var sannfærður um að það væri þess virði að berjast fyrir blessun Jehóva. Í dögun snerti engillinn mjöðm hans svo að hann fór úr lið. En engillinn segir Jakobi líka stórkostleg tíðindi – að héðan í frá heiti hann Ísrael. Nafnið hafði sérstaka merkingu, ‚sá sem glímir við Guð‘. Þetta var viðeigandi nafn því að Jakob hafði ekki gefist upp heldur lagt sig allan fram til að hljóta blessun Jehóva.
Jakob haltrar aftur til fjölskyldunnar. Í fjarska sér hann Esaú nálgast með mönnum sínum 400. Jakob heldur einn áfram á móti þeim. Þegar hann kemur nær Esaú hneigir hann sig sjö sinnum til jarðar. Esaú hleypur nú til hans en hann er ekki með vopn í hendi. Í staðinn mætir hann honum með opinn faðminn. Bræðurnir fallast í faðma og bresta í grát. Jakob hafði algjörlega afvopnað Esaú með rausnarlegum gjöfum sínum og auðmjúkri framkomu. Ef til vill dáðist Esaú líka af hugrekki bróður síns. Jakob hafði fundið leið til að koma á sáttum.
Jakob haltraði það sem eftir var ævinnar eftir meiðslin á mjöðminni og hann varð fyrir ýmsum öðrum erfiðleikum. En hann sá aldrei eftir því að hafa hlýtt Jehóva né að hafa glímt við engilinn. Með tímanum urðu afkomendur Jakobs að mikilli þjóð, rétt eins og Jehóva hafði lofað. (1. Mós. 28:14) Það er líka athyglisvert að Jehóva er oft kallaður „Guð Jakobs“. (2. Mós. 3:6) Jesús Kristur notaði þetta orðalag þegar hann talaði um að Jehóva væri ‚ekki Guð dauðra heldur þeirra sem lifa því að þeir væru allir lifandi í augum hans‘. (Lúk. 20:37, 38) Jakob á sér því örugga framtíð í nýja heiminum. Þá verða æviár hans óteljandi og hamingjuríkari en orð fá lýst!
Lestu frásögn Biblíunnar:
Til umræðu:
Hvernig sýndi Jakob hugrekki?
Kafaðu dýpra
1. Af hverju sá Jehóva til þess að Jakob fengi frumburðarréttinn en ekki Esaú? (w03 15.10. 29 gr. 2 – wcgr)
2. Hvaða draum lét Jehóva Jakob dreyma og hvað fullvissaði draumurinn hann um? (w03 15.10. 28 gr. 3–29 gr. 1 – wcgr) A
Mynd A
3. Af hverju treysti Jakob að hann gæti fengið blessun frá englinum? (w03 15.10. 31 gr. 1 – wcgr) B
Mynd B
4. Hvað gerði Jakob til að verja fjölskyldu sína fyrir áhrifum Kanverja? (w95 15.9. 21 gr. 4, nm. – wcgr)
Hugleiddu og heimfærðu
Jakob tók ábyrgð á hverjum einasta sauð Labans. (1. Mós. 31:38–40) Hvernig geta hirðar í söfnuðinum sýnt að þeim sé ákaflega annt um sauði Jehóva – trúsystkini sín? C
Mynd C
Jakob bað til Jehóva þegar hann var hræddur. (1. Mós. 32:6–12) Hvað geturðu lært af honum um viðeigandi bænarefni?
Hvernig geturðu sýnt hugrekki eins og Jakob?
Horfðu á heildarmyndina
Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?
Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?
Um hvað langar þig að spyrja Jakob þegar hann rís upp?
Skoðaðu meira
Hvernig getum við líkt eftir Jakobi ef við áttum okkur á að við höfum sært trúsystkini?
Notaðu þessa myndasögu til að fræða fjölskylduna um Jakob.