5 ABRAHAM
Erfiðasta prófraun ævinnar
ABRAHAM gengur þungum og hægum skrefum í átt að áfangastað. Ferðin tekur ekki nema fáeina daga en þetta er tvímælalaust erfiðasta ferð sem hann hefur farið á sinni löngu ævi.
Orð Jehóva bergmála í huga hans: „Taktu son þinn, einkason þinn sem þú elskar svo heitt, hann Ísak, og farðu til Móríalands og fórnaðu honum þar sem brennifórn á fjalli sem ég vísa þér á.“ Jehóva vissi hve vænt Abraham þótti um Ísak. Hvernig gat hann farið fram á annað eins? Og hafði Abraham þá trú og það hugrekki sem þurfti til að hlýða?
Biblían kallar Abraham ‚föður allra sem trúa‘. (Rómv. 4:11) Hann hafði sýnt einstaka trú löngu áður en þetta gerðist og Jehóva hafði hjálpað honum að styrkja hana. Dag einn, áratugum áður, hafði Guð sagt Abraham að hann ætlaði að eyða hinum illu borgum Sódómu og Gómorru. Abraham varð áhyggjufullur og spurði Jehóva hvort hann ætlaði að eyða góðu fólki með hinum vondu. Jehóva var þolinmóður og sagði Abraham að hann myndi þyrma borgunum þó að hann fyndi aðeins tíu réttláta þar. (1. Mós. 18:16–33) Abraham gleymdi aldrei því sem hann lærði þarna: Jehóva er réttlátur og miskunnsamur.
Hvað veitti Abraham kjark til að hlýða þegar Jehóva bað hann um að gera það sem virtist óhugsandi?
Ekki löngu síðar vann Jehóva kraftaverk fyrir Abraham og Söru. Hann endurvakti getu þeirra til að eignast barn þannig að þau gátu eignast soninn Ísak þótt Sara væri næstum níræð og Abraham að verða 100 ára. Abraham komst að raun um að ekkert er ómögulegt fyrir Jehóva. Hann getur jafnvel gefið því lífskraft sem virðist vera dáið. (Rómv. 4:18, 19) Abraham geymdi líka þennan lærdóm í huga sér og hjarta það sem eftir var ævinnar.
Núna, um 25 árum síðar, velti Abraham þessu eflaust fyrir sér fram og til baka á leiðinni til Móría. Hann komst að þessari niðurstöðu: Jafnvel þótt Ísak dæi gæti Jehóva reist hann upp frá dauðum og hann myndi gera það. (Hebr. 11:19) Abraham hélt því áfram sem leið lá og þessi von veitti honum það hugrekki sem hann þurfti.
Þegar Abraham sá staðinn í fjarska sem Jehóva hafði valið sagði hann þjónum sínum að bíða meðan þeir Ísak gengju upp á fjallið til að færa fórn. Orð hans bera með sér að hann var viss um að þeir Ísak myndu báðir snúa aftur. Þegar þeir voru einir uppi á fjallinu batt Abraham Ísak og lagði hann á altarið og Ísak streittist ekki á móti. Nú var stundin runnin upp. Abraham hóf hnífinn á loft og var tilbúinn að gera það sem virtist óhugsandi. En á síðustu stundu kallaði engill nafn hans og sagði: „Gerðu drengnum ekki mein.“
Guð hrósaði Abraham fyrir trú hans og hlýðni. Hann endurtók loforð sitt um að blessa hann og fjölga afkomendum hans. Hann staðfesti líka að hann myndi gera ‚öllum þjóðum jarðar‘ kleift að hljóta mikla blessun vegna þess sem Abraham var fús til að gera.
Loforðið sem Jehóva gaf Abraham er enn að rætast. Það hefur eilífa blessun í för með sér. En við lærum líka eitthvað um Jehóva af þessari frásögn. Hún veitir okkur innsýn í hvað Jehóva þurfti sjálfur að þola til að bjarga öllum trúföstum mönnum. Abraham var fús til að fórna elskuðum syni sínum og eins yrði Jehóva fús til að fórna einkasyni sínum, Jesú, í þágu alls mannkyns. (Jóh. 3:16) Þegar við sjáum að Abraham var fús til að fórna því sem var honum allra dýrmætast skiljum við betur hversu heitt Jehóva elskar okkur.
Við styrkjum trúna, rétt eins og Abraham, með því að hugleiða það sem Jehóva hefur sagt og gert áður fyrr. Og þegar trúin vex verðum við líka hugrakkari. Við þurfum ekki að óttast að Guð biðji okkur um að gera það sama og hann bað Abraham um. Hann hefur aldrei beðið nokkurn annan um að gera það. En eitt getum við verið viss um: Trúin á Guð gefur okkur hugrekki til að hlýða, hvað sem hann kann að biðja okkur um. Og þegar við hlýðum hljótum við meiri blessun en við getum nokkurn tíma ímyndað okkur!
Lestu frásögn Biblíunnar:
Til umræðu:
Hvernig sýndi Abraham hugrekki í þessari prófraun?
Kafaðu dýpra
1. Hvað sýnir að Abraham var sannsöguleg persóna? (g 5.12 18, rammi – wcgr; it „Abraham“ gr. 22, 23 – wcgr) A
Mynd A: Lágmynd á vegg í Karnak í Egyptalandi sem nefnir „akur Abrams“.
2. Hvernig er hugsanlegt að Abraham hafi kynnst Jehóva? (ia bls. 26 gr. 4, 5 – wcgr)
3. Hvers vegna hafði Jehóva velþóknun á tilbeiðslu Abrahams? (rr bls. 20 gr. 18 – wcgr)
4. Hvernig vitnar loforðið sem Jehóva gaf Abraham í 1. Mósebók 22:17 um vísindalega nákvæmni Biblíunnar? (brg880408 25) B
Mynd B
Mynd B
Hugleiddu og heimfærðu
Hvernig hjálpaði von Abrahams honum að vera hugrakkur? Hvernig veitir það okkur hugrekki að hugsa um vonina? C
Mynd C
Hvernig getum við líkt eftir Abraham og fært fórnir þegar við …
fáum tækifæri til að boða trúna? (Hebr. 13:15)
ákveðum hvernig við notum eigur okkar og fjármuni? (Orðskv. 3:9)
uppgötvum að trúsystkini eru hjálparþurfi? (Fil. 4:18)
Á hvaða fleiri vegu geturðu sýnt hugrekki eins og Abraham?
Horfðu á heildarmyndina
Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?
Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?
Um hvað langar þig að spyrja Abraham eða Ísak þegar þeir rísa upp?
Skoðaðu meira
Horfðu á myndband sem fjallar um þennan atburð.
Hvernig varð Abraham náinn vinur Jehóva og hvernig getur þú styrkt vináttu þína við hann?