Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg kafli 3 bls. 24–27
  • Hún horfði ekki um öxl

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hún horfði ekki um öxl
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Kafaðu dýpra
  • Hugleiddu og heimfærðu
  • Horfðu á heildarmyndina
  • Skoðaðu meira
  • „Þú ert kona fríð sýnum“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2017
  • Guð kallaði hana „prinsessu“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2017
  • Loksins eignuðust þau son!
    Lærum af sögum Biblíunnar
  • Abraham – hugrakkur maður
    Varðturninn: Abraham – hugrakkur maður
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg kafli 3 bls. 24–27

3 SARA

Hún horfði ekki um öxl

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

SARA var gift Abraham og elskaði hann heitt. Þau bjuggu í Úr í Sínearlandi, blómlegri víggirtri borg sem stóð á bökkum stórfljótsins Efrat. Borgin var gegnsýrð af skurðgoðadýrkun en Abraham skar sig úr. Hann tilbað hinn eina sanna Guð, Jehóva, og Sara gerði það líka. En dag einn gerist eitthvað óvenjulegt sem reynir á trú hennar og hugrekki með nýjum hætti.

Abraham segir henni að Jehóva hafi talað við sig. Sara hefur eflaust verið spennt. En henni hefur líklega brugðið þegar hún heyrði hvað Guð hafði sagt við hann. Þau áttu að yfirgefa heimili sitt og ættingja í Úr og flytja til fjarlægs lands. Þetta yrði löng og lýjandi ferð. Þau myndu búa í tjöldum en ekki í stórri og vel varinni borg með múrum. Þau myndu ekki búa í húsi með traustu þaki og yrðu ekki með húsagarð, vatnsveitu eða önnur þægindi sem þau kunna að hafa búið við. Og ekkert markaðstorg yrði í grennd! Þetta yrði þrautin þyngri. En Sara féllst á að fara. Hún treysti Jehóva, pakkaði niður dótinu sínu, kvaddi fjölskyldu og vini og fór með Abraham á vit hins óþekkta.

Sara reyndi ekki að fá Abraham til að snúa aftur heim heldur studdi ákvörðun hans að fara hvert sem Jehóva vildi að þau færu.

Sara sýndi hugrekki á fleiri vegu. Páll postuli skrifaði um þau hjónin: ‚Ef þau hefðu látið hugann dvelja við staðinn sem þau fóru frá hefðu þau fundið sér tilefni til að snúa þangað aftur.‘ (Hebr. 11:15) Sara hefði getað hugsað með eftirsjá til heimilisins sem hún hafði átt í Úr og öryggisins sem hún hafði búið við þar. En hún var hugrökk og leit ekki um öxl.

Sara og Abraham yfirgefa Úr. Þau ríða úlföldum og heimilisfólk þeirra er með í för.

Þegar þau komu loks til Kanaanslands áttaði Sara sig fljótt á því að þar var ekkert stórfljót á borð við Efrat þar sem kaupmenn gátu siglt með vörur frá nálægum og fjarlægum stöðum. Þegar hungursneyð brast á í Kanaan var því um lítið annað að velja en að flytjast búferlum á ný. Sara notaði ekki tækifærið til að ýta á eiginmann sinn að flytja aftur austur til Úr. Í staðinn fór hún fúslega með honum suður til Egyptalands.

Sara var einstaklega falleg og Abraham óttaðist því að einhverjum dytti í hug að drepa hann til að geta eignast hana. Sara þurfti að láta eins og hún væri bara systir Abrahams. En það dugði ekki til þegar faraó frétti af þessari fallegu konu. Hann skipaði svo fyrir að hún yrði tekin frá Abraham og að komið yrði með hana í konungshöllina. Það virtist kannski þægilegra og öruggara að eiga heima í höll en að búa eins og hirðingi í tjöldum. Ákvað Sara þá að yfirgefa Abraham og lifa þægilegu lífi með faraó? Nei, hún var hugrökk og trú eiginmanni sínum – og Jehóva bjargaði henni. Áður en langt um leið var hún komin aftur til eiginmanns síns.a

Jehóva hafði lofað að mikil þjóð myndi koma af Abraham. Sara hafði þó ekki getað eignast börn. Það var henni þungbært. En mörgum árum eftir að þau komu til Kanaanslands launaði Jehóva henni. Þótt hún væri orðin níræð blessaði hann hana með því að uppfylla heitustu ósk hennar. Hún eignaðist son! Jehóva sagði þeim að láta strákinn heita Ísak því að það merkir ‚hlátur‘. Abraham og Sara höfðu hlegið af gleði þegar þau fréttu að þau myndu eignast son þótt Söru hafi fundist það ótrúlegt í fyrstu. Hún var líka sannfærð um að fólk myndi samgleðjast henni þegar það heyrði af kraftaverkinu sem Jehóva hafði unnið fyrir hana.

Sara lifði nógu lengi til að ala upp son sinn og sjá hann verða að þroskuðum manni sem elskaði Jehóva. Hún sýndi það hugrekki sem þurfti til að vernda hann og annast hann vel. Og allt til dauðadags forðaðist hún að líta um öxl og hugsa til þeirra þæginda sem hún hafði áður búið við. Hún hlakkaði öllu heldur til þeirrar dásamlegu framtíðar sem hún og fjölskyldan eiga í vændum – framtíðar sem verður brátt að veruleika.

Lestu frásögn Biblíunnar:

  • 1. Mósebók 12:1–20; 15:18; 16:1, 2; 17:3–8, 15–19; 18:9–15; 20:1–17; 21:1–13

  • Postulasagan 7:1–7

Til umræðu:

Hvernig sýndi Sara hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Var rangt af Söru að giftast Abraham fyrst hann var hálfbróðir hennar? (wp17.3 12 gr. 5, nm.)

  2. 2. Hvað þurfti Sara líklega að segja skilið við þegar hún yfirgaf Úr? (wp17.3 13 gr. 3–14 gr. 2) A

    Skartgripur úr dýrum málmum og litríkum gimsteinum.

    Photograph taken by courtesy of the British Museum

    Mynd A: Skartgripur sem fannst við uppgröft í rústum Úr.

  3. 3. Hvað sýnir að það var skynsamlegt af Abraham að leyna því að Sara væri eiginkona hans? (wp17.3 14 gr. 6–15 gr. 1)

  4. 4. Sagði Sara aldrei skoðun sína fyrst hún var undirgefin Abraham? Skýrðu svarið. (g 1.08 29 gr. 4, 5 – wcgr) B

    Sara talar opinskátt við Abraham en hann er óánægður á svip.

    Mynd B

Hugleiddu og heimfærðu

  • Berðu saman Söru og konu Lots.

    • Hvað var líkt með þeim? (1. Mós. 12:1; 13:5–7; 19:12, 15)

    • Hvað var ólíkt með þeim? (1. Mós. 19:17, 26; Lúk. 17:28–32)

    • Hvað getum við lært af ákvörðunum þeirra og þeim afleiðingum sem þær höfðu?

  • Sara var mjög falleg og maðurinn hennar var ríkur. Hvað lærum við af henni varðandi rétt viðhorf til útlits og efnislegra hluta? (Orðskv. 31:30; 1. Tím. 6:17–19)

  • Hvernig getur þú sýnt hugrekki eins og Sara? C

    Samsett mynd: 1. Ung hjón pakka niður ánægð á svip. Þau eru að flytja úr þægilegri blokkaríbúð í stórborg. 2. Hjónin hitta bónda á sveitasvæði og boða honum trúna.

    Mynd C

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Um hvað langar þig að spyrja Söru þegar hún rís upp?

Skoðaðu meira

Er Sara bara góð fyrirmynd fyrir eiginkonur eða geta eiginmenn líka lært af henni?

Lærum af þeim – Sara (6:27)

Hvað gerðu Sara og Abraham til að sýna hvort öðru virðingu?

„Höldum ‚loga Jah‘ lifandi“ (w23.05 24–25 gr. 15–17)

a Síðar lenti Sara í svipuðum aðstæðum þegar konungur sem hét Abímelek tók hana frá Abraham. Hún var hugrökk og gerði það sem Abraham sagði henni og Jehóva bjargaði henni einnig í þetta sinn.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila