Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg kafli 2 bls. 20–23
  • Hann dæmdi heiminn

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hann dæmdi heiminn
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Kafaðu dýpra
  • Hugleiddu og heimfærðu
  • Horfðu á heildarmyndina
  • Skoðaðu meira
  • „Hann gekk með Guði“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2013
  • Nói smíðar örk
    Biblíusögubókin mín
  • Allir geta lært af myndbandinu um Nóa
    Ríkisþjónusta okkar – 2002
  • Örkin hans Nóa
    Lærum af sögum Biblíunnar
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg kafli 2 bls. 20–23

2 NÓI

Hann dæmdi heiminn

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

EFTIR daga Enoks braust út uppreisn meðal andasona Guðs á himnum. Sumir þessara illu engla komu niður til jarðar af því að þeir vildu stunda kynlíf með konum. Þeir gerðu sér mannslíkama og tóku sér allar þær konur sem þeir vildu eignast. Börnin þeirra voru kynblendingar – grimmir og ofbeldisfullir risar. Þetta hafði þær afleiðingar að illska mannanna varð meiri en nokkru sinni fyrr. Í augum Guðs var mannkynið – hið fagra sköpunarverk hans á jörðinni – orðið gjörspillt. En einn maður skar sig úr fjöldanum. Það var Nói, sonarsonarsonur Enoks.

Nói var réttlátur maður eins og Enok. Í Biblíunni segir: „Nói gekk með hinum sanna Guði.“ Þegar fram liðu stundir gifti hann sig og þau hjónin kenndu sonum sínum þrem að hlýða Jehóva. Fyrir vikið var fjölskyldan ólík öllum öðrum.

Dag nokkurn sagði Jehóva Nóa að hann hefði ákveðið að eyða öllu þessu illa fólki á jörðinni í heimsflóði. En Jehóva veitti Nóa líka von – hann átti að smíða eins konar skip, gríðarstóra örk, þannig að einhverjir kæmust lífs af. Nói hafði aldrei séð neitt í líkingu við flóðið sem Jehóva sagði að myndi koma. Og hann hafði aldrei tekist á við verkefni í líkingu við það að smíða risastóra örk. En hann treysti loforðum Jehóva og bretti upp ermarnar.

Nói og fjölskylda hans áttu sér öfluga óvini sem hötuðu boðskap þeirra og starf.

Nói og fjölskylda hans þurftu að vera hugrökk til að vinna þetta verk. Þau hafa eflaust mátt þola mikla andstöðu og háðsglósur. Englarnir sem höfðu holdgast hljóta að hafa verið ógnvekjandi og afkvæmi þeirra voru verstu ribbaldar. En Nói, eiginkona hans, synirnir þrír og eiginkonur þeirra létu ekkert stöðva sig. Þessir átta einstaklingar strituðu við smíði arkarinnar árum saman, kannski í heil 50 ár. Hægt og bítandi tók hún á sig mynd.

Nói ásamt tveim sonum sínum og eiginkonum þeirra. Þau eru með kerru fulla af vistum. Fólk gerir grín að þeim þegar þau fara fram hjá. Hálfsmíðuð örkin er í baksýn.

En ættfaðirinn Nói gerði fleira meðan á þessu stóð. Hann var síðar kallaður ‚boðberi réttlætisins‘. Sem höfuð fjölskyldunnar tók hann forystuna í að vara fólk við því sem var í vændum. En enginn utan heimilisins hlustaði. Ættingjar Nóa virðast ekki einu sinni hafa tekið mark á orðum hans. Fólk vildi ekki hætta að gera það sem var illt. Þessi trúaði maður var gjörólíkur umheiminum. Það er engin furða að Biblían skuli segja um Nóa: „Með trú sinni dæmdi hann heiminn.“

Örkin var að lokum fullsmíðuð. Nú þurftu Nói og fjölskylda að safna vistum handa sjálfum sér og fóðri handa öllum dýrunum sem þau myndu taka með sér. Það sem síðan gerðist var ótrúlegt. Alls konar dýr streymdu til arkarinnar, bæði karldýr og kvendýr! Þau komu sjálfviljug „tvö og tvö saman inn í örkina til Nóa“.

Guð hafði þegar sagt Nóa að fara með fjölskyldu sína inn í örkina því að það myndi byrja að rigna eftir sjö daga. Við getum séð fjölskylduna fyrir okkur önnum kafna við að koma síðustu birgðunum um borð og koma öllu vel fyrir. Kannski hefur fólk hæðst enn meira að þeim. En þegar allt var komið um borð lokaði Jehóva sjálfur dyrunum. Það hefur ef til vill slegið á hæðnina. Síðan fór að rigna. Það hellirigndi í 40 daga þar til hæstu fjallatindar voru komnir í kaf. Þannig hreinsaði Jehóva jörðina af allri illsku.

Nói og fjölskylda voru óhult um borð í örkinni í meira en ár. Flóðið sjatnaði smám saman. Örkin staðnæmdist að lokum á fjalli og nokkru síðar sagði Jehóva Nóa að þeim væri óhætt að yfirgefa hana. Þegar þau komu út úr örkinni færðu þau Jehóva fórn, þakklát fyrir að hann hafði bjargað þeim. Jehóva lofaði að slíkt flóð skyldi aldrei aftur ganga yfir jörðina og gaf mönnunum regnbogann sem tákn eða tryggingu fyrir því.

Allir núlifandi menn eru afkomendur þessarar fjölskyldu. Við höfum fulla ástæðu til að vera þakklát fyrir að þau skyldu hafa hugrekki til að skera sig úr fjöldanum í illum heimi.

Lestu frásögn Biblíunnar:

  • 1. Mósebók 6:1–8:22; 9:8–19

  • Hebreabréfið 11:7

  • 2. Pétursbréf 2:5

Til umræðu:

Hvernig sýndi Nói hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Hvernig var heimurinn fyrir flóðið? (w02 1.3. 5 gr. 3–6 gr. 4)

  2. 2. Hvenær fékk Nói það verkefni að smíða örkina? Hvenær fékk hann að vita nákvæmlega hvenær flóðið myndi skella á? (w12 15.4. 23 gr. 5–8)

  3. 3. Hvers vegna getum við verið viss um að flóðið hafi átt sér stað? (ijwbq grein 156 gr. 2–5, rammi) A

    Átta menn sitja í báti en stór fiskur dregur bátinn á öruggan stað.

    Historic Collection/Alamy Stock Photo

    Mynd A: Hindúísk þjóðsaga segir frá manni sem smíðaði bát til að bjargast í heimsflóði. Eftir flóðið færði hann fórn og varð síðan forfaðir alls mannkyns.

  4. 4. Hvað gerðist meira en öld eftir flóðið? Hvaða áhrif kann það að hafa haft á Nóa sem þá var orðinn aldraður? (it „Nói“ nr. 1 gr. 12 – wcgr) B

    Tveir pirraðir menn reyna árangurslaust að tala saman við Babelturninn.

    Mynd B

Hugleiddu og heimfærðu

  • Hvað er líkt með okkar tímum og dögum Nóa? (Matt. 24:36–39)

  • Hvað getum við lært af Nóa um gildi þess að vera …

    • skipulagður? C

      Systir les dagstextann meðan hún borðar morgunmat. Dagbók liggur á borðinu fyrir framan hana og dagatal er uppi á vegg.

      Mynd C

    • vinnusamur? D

      Sama systir sagar með bútsög á byggingarstað.

      Mynd D

    • þolinmóður? E

      Systirin stendur ásamt annarri systur við ritatrillu og fólk gengur fram hjá.

      Mynd E

  • Hvernig getur þú verið hugrakkur eins og Nói?

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Um hvað langar þig að spyrja Nóa þegar hann rís upp?

Skoðaðu meira

Sjáðu hvernig fjölskyldufaðir leggur sig fram um að líkja eftir Nóa.

Líkjum eftir þeim sem trúa en ekki þeim sem skortir trú – Nóa en ekki fólkinu í samfélagi hans (2:57)

Hjálpaðu börnunum þínum að læra af Nóa.

„Nói trúði á Guð“ (ijwis grein 18)

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila