Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg kafli 1 bls. 16–19
  • Hann gekk með Guði

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hann gekk með Guði
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Kafaðu dýpra
  • Hugleiddu og heimfærðu
  • Horfðu á heildarmyndina
  • Skoðaðu meira
  • Hann var Guði þóknanlegur
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2017
  • Göngum með Guði á ólgutímum
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2005
  • Hugrakkur maður
    Biblíusögubókin mín
  • Trú og guðsótti veitir hugrekki
    Námsgreinar úr Varðturninum
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg kafli 1 bls. 16–19

1 ENOK

Hann gekk með Guði

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

ENOK vissi hvernig það var að vera einmana. Hann skar sig úr fjöldanum. Hann var eini maður sinnar samtíðar sem Biblían lýsir með þessum hætti: ‚Enok hélt áfram að ganga með hinum sanna Guði.‘ Hvernig gat ósköp venjulegur maður á jörðinni gengið með Guði? Og hvað getum við sem lifum nú á dögum lært af hugrekki Enoks?

Enok gekk með hinum sanna Guði í að minnsta kosti tvennum skilningi – hann forðaðist ýmislegt en gerði líka ákveðna hluti. Hann tilheyrði sjöundu kynslóð frá Adam og Evu. Adam var enn á lífi en var þó orðinn háaldraður. (Sjá tímalínuna „Frá dögum ættfeðranna til dómaratímans“.) Enok vildi ekki samlaga sig því óguðlega fólki sem hann bjó á meðal. Foreldrar mannkyns höfðu gert uppreisn gegn Guði og flestir höfðu smitast af hugarfari þeirra. Kain sonur þeirra myrti Abel bróður sinn, fyrsta manninn sem var trúfastur Jehóva. Sumir afkomenda Kains voru jafn mikil illmenni og hann, ef ekki verri. (1. Mós. 4:23, 24) Enok sýndi það hugrekki að láta ekki ofbeldishneigð annarra hafa mótandi áhrif á sig. Hann var friðsamur maður og það gladdi Guð.

Fáeinum kynslóðum áður en Enok fæddist „fór fólk að ákalla nafn Jehóva“. (1. Mós. 4:26) Svo virðist sem það hafi verið gert á virðingarlausan hátt og í tengslum við falstrú. Enok vildi ekki koma nálægt því. Hann aðgreindi sig frá samtíðarmönnum sínum því að hann elskaði Jehóva og bar lotningu fyrir heilögu nafni hans.

Jehóva verndaði Enok fyrir heift þeirra sem hötuðu boðskap hans.

Enok þurfti að sýna enn meira hugrekki til að gera það sem Jehóva bað hann um. Enok fékk sérstakt verkefni frá honum – að vera spámaður. Hann átti að flytja fólki boðskap – fólki sem var mjög ólíkt honum sjálfum. Boðskapurinn var þessi: „Jehóva kom með sínum heilögu þúsundum til að fullnægja dómi yfir öllum og dæma alla óguðlega menn seka fyrir öll þau óguðlegu verk sem þeir höfðu framið og fyrir allt það yfirgengilega sem þessir óguðlegu syndarar höfðu sagt um hann.“

Enok boðar dómsboðskap Guðs á fjölfarinni götu. Sumir þar eru reiðilegir og pirraðir og sumir eru vopnaðir.

Við tökum eftir að Enok talaði í þátíð þegar hann bar fram spádóminn, rétt eins og dómi Guðs hefði þegar verið fullnægt. Það lýsir því hversu öruggt var að orð hans myndu rætast. Og boðskapurinn var sannarlega dómsboðskapur. Orðið ‚óguðlegur‘ kemur þrisvar sinnum fyrir í spádóminum. Orð Enoks hljóta að hafa stungið þá sem heyrðu. Hann sýndi engu að síður það hugrekki að segja þeim það sem Jehóva vildi að þeir heyrðu.

Hvernig brást fólk við? Biblían lýsir því ekki beint en hún gefur sterklega til kynna að á ákveðnum tíma hafi Enok verið í mikilli hættu. Hvernig þá? Við lesum: „Síðan sást hann ekki framar því að Guð tók hann.“ Hvað gerðist? Menn hötuðu Enok og hann var sennilega ofsóttur. Jehóva leyfði ekki þessu illa fólki að misþyrma Enok eða myrða hann. Hann elskaði vin sinn, forðaði honum frá mönnunum og lét hann sofna friðsælum dauðasvefni. Nú var Enok óhultur í minni Jehóva. Enginn gat gert honum mein.

En fyrst gaf Jehóva Enok sérstaka gjöf. Við lesum: „Áður en hann var tekinn burt hafði hann fengið staðfest að hann hefði velþóknun Guðs.“ Ef til vill fékk Enok að sjá sýn um það sem hann fengi að upplifa síðar – friðsælt líf í paradís á jörð! Enok var með eitt alveg á hreinu áður en hann lokaði augunum í síðasta sinn: Jehóva elskaði hann og blessaði fyrir sterka trú hans og óbilandi hugrekki.

Lestu frásögn Biblíunnar:

  • 1. Mósebók 5:21–24

  • Hebreabréfið 11:5

  • Júdasarbréfið 14, 15

Til umræðu:

Hvernig sýndi Enok hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Á hvaða hátt getur verið að fólk hafi farið að „ákalla nafn Jehóva“? (1. Mós. 4:26; w01 15.9. 29 gr. 3 – wcgr)

  2. 2. Hvaða verkefni fékk Enok fyrstur manna? Hvernig tókst honum að gera því góð skil? (w01 15.9. 31 gr. 5 – wcgr)

  3. 3. Hvers vegna vissi Enok sennilega fyrir fram að það myndi reyna á hugrekki hans að flytja boðskap frá Guði? (brw060901 14 gr. 13, 14) A

    Samsett mynd: Enok hugleiðir atburði úr sögu forfeðra sinna. 1. Tveir kerúbar og logandi sverð gæta Edengarðsins. 2. Adam og Eva í elli sinni. 3. Kain stendur yfir líki Abels bróður síns eftir að hafa myrt hann.

    Mynd A

  4. 4. Hvernig geturðu sýnt fram á að Enok var ekki tekinn til himna eins og sumir trúa? (Jóh. 3:13; Hebr. 11:5, 13)

Hugleiddu og heimfærðu

  • Hvenær gæti reynt sérstaklega á hugrekki okkar til að boða trúna? Hvað lærum við af Enok sem getur hjálpað okkur? B

    Bróðir kemur að máli við vinnufélaga á bílaverkstæði til að stinga að honum boðsmiða á samkomu en aðrir vinnufélagar hlæja að honum. Vinnufélaginn virðist vera algjör harðjaxl.

    Mynd B

  • Hvaða áhrif hefur það á Jehóva ef við erum hugrökk og trúföst? (Orðskv. 27:11; Hebr. 11:5)

  • Hvernig getur þú verið hugrakkur eins og Enok?

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Um hvað langar þig að spyrja Enok þegar hann rís upp?

Skoðaðu meira

Hvaða lærdóm geturðu dregið af Enok ef þú býrð í ofbeldisfullu samfélagi?

Líkjum eftir þeim sem trúa en ekki þeim sem skortir trú – Enok en ekki Lamek (2:53)

Hvað hjálpaði Enok að byggja upp trú?

„Göngum með Guði á ólgutímum“ (w05 1.10. 13–17)

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila