Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 júlí bls. 14–19
  • Leggurðu þig fram um að kynnast Jehóva betur?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Leggurðu þig fram um að kynnast Jehóva betur?
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • HVAÐ MERKIR ÞAÐ AÐ KYNNAST JEHÓVA?
  • AF HVERJU ÆTTUM VIÐ AÐ KYNNAST JEHÓVA BETUR?
  • HVERNIG KYNNUMST VIÐ JEHÓVA BETUR?
  • VIÐ HÆTTUM ALDREI AÐ LÆRA
  • Viðurkennum auðmjúk að við vitum ekki allt
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
  • Ákvarðanir sem sýna að við reiðum okkur á Jehóva
    Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2023
  • Mundu að Jehóva er „lifandi Guð“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2024
  • Veljið hverjum þið viljið þjóna
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 júlí bls. 14–19

21.–27. SEPTEMBER 2026

SÖNGUR 12 Jehóva, hinn mikli Guð

Leggurðu þig fram um að kynnast Jehóva betur?

„Kynnstu Guði föður þíns og þjónaðu honum af heilu hjarta.“ – 1. KRON. 28:9.

Í HNOTSKURN

Rætt er hvað það merkir að þekkja Jehóva, hvers vegna okkur ætti að langa til að kynnast honum betur og hvernig við getum gert það.

1. Hvernig líður okkur þegar við hugleiðum þekkingu Jehóva, visku og afrek?

HEFURÐU einhvern tíma velt fyrir þér hve djúpstæðri þekkingu Jehóva býr yfir, hve víðtæk viska hans er eða hvílík afrek hann hefur unnið? Við finnum til smæðar okkar þegar við hugsum um skaparann. Kannski líður þér eins og Páli postula sem skrifaði: „Hve ríkuleg er ekki blessun Guðs og djúpstæð viska hans og þekking! Dómar hans eru ofar okkar skilningi og vegir hans órekjandi.“ – Rómv. 11:33, 34.

2. Hvernig getum við verið viss um að við getum kynnst Jehóva?

2 Við eigum aldrei eftir að þekkja Jehóva til hlítar. Hins vegar er hægt að kynnast honum að vissu marki. Davíð konungur sagði við Salómon son sinn: „Kynnstu Guði föður þíns og þjónaðu honum af heilu hjarta … Ef þú leitar hans lætur hann þig finna sig.“ (1. Kron. 28:9) Jóhannes postuli minnti á það öldum síðar að við hefðum „skilning til að við gætum kynnst hinum sanna Guði“. (1. Jóh. 5:20) Og Jesús sagði að allir sem ‚hann vildi opinbera föður sinn‘ hefðu tækifæri til að kynnast honum. – Matt. 11:27.

3. Hvað ræðum við í þessari grein?

3 Allir sem hafa vígst Jehóva hafa nú þegar kynnst honum á ýmsa vegu. En við hættum samt aldrei að kynnast Jehóva betur. (Jóh. 17:3; sjá skýringu við versið í námsbiblíunni á máli sem þú skilur.) Við getum alltaf lært meira um hvað gleður hann og hvernig við getum borið enn meira traust til hans. Við skulum líta á þrennt sem við ættum öll að hugleiða óháð því hversu lengi við höfum þjónað Jehóva: Hvað merkir það að kynnast Jehóva? Af hverju ættum við að leggja okkur fram um að kynnast honum betur? Og hvernig gerum við það?

HVAÐ MERKIR ÞAÐ AÐ KYNNAST JEHÓVA?

4. Hvað þarf til ef við viljum kynnast Jehóva?

4 Við áttum okkur á hvað það merkir að kynnast Jehóva ef við skoðum hvað hann sagði um Gyðinga sem áttu eftir að snúa heim úr útlegð. Hann gaf þetta loforð: „Ég gef þeim hjarta sem vill þekkja mig, að ég er Jehóva.“ (Jer. 24:7) Þeir sem sneru heim frá Babýlon vissu auðvitað margt um Jehóva. En til að kynnast honum þurftu þeir að virkja hjartað – tilfinningar sínar og hvatir. Í biblíuskýringarriti segir: „Það er grundvallarmunur á því að þekkja til Guðs og þekkja Guð. Það er sambærilegt við muninn á að lesa sér til um ástina og að verða ástfanginn.“ Það er ekki nóg að vita að Guð er til og að hann heitir Jehóva. Við viljum kynnast persónunni sem ber nafnið.

5. Hvað lærum við af Jósía konungi um það að kynnast Jehóva?

5 Þegar við kynnumst Jehóva uppgötvum við hvað gleður hann og hvað honum mislíkar. Við sjáum það af frásögunni af Jósía konungi. Í Biblíunni segir: „Á áttunda stjórnarári sínu, þegar hann var enn ungur, fór hann að leita Guðs Davíðs forföður síns.“ (2. Kron. 34:3) En Jósía gerði meira en það. Hann fór eftir því sem hann lærði. Jehóva sagði fyrir milligöngu Jeremía spámanns að Jósía hefði ‚staðið vörð um réttlæti og réttvísi‘ og hefði hjálpað bágstöddum og fátækum. Síðan bætti hann við: „Er það ekki að þekkja mig?“ – Jer. 22:15, 16.

6. Hvaða áhrif hefur það á okkur að kynnast Jehóva eins og sjá má af Sálmi 9:10?

6 Lestu Sálm 9:10. Því betur sem við kynnumst Jehóva því meira traust berum við til hans. Páll postuli upplifði það. Þegar hann sat í fangelsi í síðasta sinn, stuttu áður en hann var tekinn af lífi, benti hann á hvers vegna hann skammaðist sín ekki fyrir að þurfa að þjást sem kristinn maður. Hann sagði: „Ég þekki þann sem ég trúi á.“ (2. Tím. 1:12) Það sem Páll hafði lært og upplifað um ævina varð til þess að hann treysti Guði sínum fullkomlega. Í skýringu við þetta vers í námsbiblíunni segir: „Páll … var sannfærður um að Jehóva myndi eftir trúfesti hans þangað til ‚dagurinn‘ rynni upp sem hann reisti hann upp frá dauðum.“

AF HVERJU ÆTTUM VIÐ AÐ KYNNAST JEHÓVA BETUR?

7. Hvað getur gerst þegar árin líða?

7 Þegar árin líða leggjum við kannski minni áherslu á að kynnast Jehóva betur en við gerðum í byrjun. Af hverju? Þegar við lesum í Biblíunni sjálf eða með öðrum á samkomum eigum við kannski til að horfa meira á hvaða gagn við höfum af efninu eða hvernig við getum notað það til að hjálpa öðrum. Við erum hvött til þess í Biblíunni. (2. Tím. 3:16, 17) En Biblían segir líka margt um höfund sinn. (Sálm. 25:8–10) Við ættum aldrei að vera svo upptekin af því hvað boðskapur Biblíunnar þýðir fyrir okkur eða aðra að við gleymum að spyrja okkur: Hvað læri ég af þessu um Jehóva Guð?a

8. Hvaða áhrif hefur það á vináttu okkar við Jehóva að kynnast honum betur? (Sálmur 73:24–28)

8 Vináttan við Jehóva styrkist þegar við kynnumst honum nánar. Hvernig hugsarðu til Jehóva eftir að hafa lesið daglega biblíulesturinn, horft á mánaðarþátt eða sótt mót? Okkur finnst við oft vera nánari föður okkar á himnum. Af hverju? Af því að við höfum lært meira um hann. Fyrir vikið langar okkur til að lofa hann og þakka honum. Okkur líður gjarnan eins og sálmaskáldinu sem hugleiddi hvernig Jehóva annaðist hann og sagði: „Guð [er] klettur hjarta míns og hlutskipti að eilífu.“ (Lestu Sálm 73:24–28.) Allt sem við gerum til að kynnast Jehóva betur gerir okkur þakklátari fyrir dýrmæta vináttu hans.

9. Hvaða áhrif hefur það á ákvarðanir okkar að hafa Jehóva „með í ráðum“? Lýstu með dæmi.

9 Við tökum betri ákvarðanir þegar við höfum Jehóva „með í ráðum“ – þegar við rifjum upp það sem við höfum lært um hann og hvaða áhrif það sem við gerum hefur á hann. (Orðskv. 3:5, 6) Lýsum þessu með dæmi: Margir í söfnuðinum eru með mynd af maka sínum á skrifborðinu, í veskinu eða símanum. Það er þeim hvatning til að hugsa oft og með hlýju til maka síns, taka ákvarðanir sem þeir vita að gleðja hann og forðast hvaðeina sem myndi særa hann. Eins er það með Jehóva: Því oftar sem við hugsum til hans því líklegra er að við tökum ákvarðanir sem gleðja hann. – Sálm. 19:13, 14.

10. Hvað getum við gert ef við kynnumst Jehóva vel?

10 Við erum gerð eftir mynd Jehóva og það gerir okkur kleift að endurspegla eiginleika hans. (1. Mós. 1:26) Því betur sem við kynnumst eiginleikum Jehóva því betur skiljum við hvernig við getum líkt eftir honum. Jesús fordæmdi fræðimenn og farísea fyrir að gera það ekki. Þeir pössuðu upp á að fylgja ýmsum smáatriðum laganna en ‚vanræktu það sem meira máli skipti í lögunum, það er að segja réttlæti, miskunn og trúfesti‘. (Matt. 23:23) Við skulum ekki vera eins og þessir trúarleiðtogar heldur leggja okkur fram um að kynna okkur hvernig eiginleikar Jehóva endurspeglast í lögum hans og meginreglum. Þannig lærum við að sýna af okkur þessa eiginleika. – 1. Jóh. 4:8, 11.

HVERNIG KYNNUMST VIÐ JEHÓVA BETUR?

11. Hvernig kynntist þú Jehóva upphaflega?

11 Hver fræddi þig upphaflega um Jehóva? Kannski voru það foreldrar þínir. Þau sögðu þér líklega biblíusögur sem kenndu þér ýmislegt um eiginleika hans. Þau bentu þér líka á hvernig eiginleikar hans birtast í sköpunarverkinu. Einnig má vera að þú hafir þegið biblíunámskeið hjá vottum Jehóva. Biblíukennarinn þinn notaði námsbók eins og Von um bjarta framtíð til að hjálpa þér að brjóta frásögur Biblíunnar til mergjar og kynnast aðlaðandi eiginleikum Jehóva sem birtast í náttúrunni.b (Neh. 8:8; Post. 14:17) En hvernig getum við haldið áfram að fræðast um Jehóva?

12, 13. Hvað getum við lært um Jehóva með því að lesa í Biblíunni? Nefndu dæmi. (Jeremía 39:15–18) (Sjá einnig mynd.)

12 Í fyrsta lagi getum við kynnst Jehóva betur með því að lesa orð hans og grúska í því. Stundum eru eiginleikar hans nefndir beint í Biblíunni. (2. Mós. 34:6, 7) Oftar er þó sagt frá fólki og ákvörðunum sem það tók. Þegar þú lest þessar frásögur skaltu hugleiða hvað þú getur lært af þeim um Jehóva.

13 Lítum á dæmi. Í Jeremía 38:6–13 geturðu lesið um Eþíópíumanninn Ebed Melek sem bjargaði Jeremía spámanni. Þú ert eflaust fljótur að átta þig á hvernig þú getur líkt eftir Ebed Melek, fórnfýsi hans, hugrekki og kærleika til trúsystkina sinna. Kemurðu líka auga á eiginleika Jehóva sem birtast í þessari frásögu? (Lestu Jeremía 39:15–18.) Hvaða vers gefur til kynna að Jehóva sé þakklátur? Sanngjarn? Óhlutdrægur? Hvaða fleiri hliðum á persónuleika Jehóva tekurðu eftir? Þegar þú lest eitthvað í Biblíunni skaltu reyna að koma auga á þá eiginleika Jehóva sem birtast þar. Þakkaðu honum síðan og segðu honum hve heitt þú elskar hann fyrir að sýna af sér þessa eiginleika.

Ebed Melek ásamt nokkrum öðrum draga Jeremía upp úr brunni með kaðli. Aðrir menn standa vörð með vopn í hendi.

Ebed Melek sýnir það hugrekki að bjarga Jeremía eftir að honum hafði verið kastað ofan í brunn. (Sjá 12. og 13. grein.)


14. Hvernig getum við haft fullt gagn af því sem við sjáum í sköpunarverkinu?

14 Í öðru lagi getum við kynnst Jehóva betur með því að skoða sköpunarverk hans. (Sálm. 145:9, 10) Auðvitað er ekki nóg að virða fyrir sér undur náttúrunnar. Sumir eyða allri ævinni í að rannsaka náttúruna en skynja samt ekki eiginleika Guðs sem skapaði hana og trúa jafnvel ekki að hann sé til. Páll postuli skrifaði að ‚ósýnilegt eðli hans hafi verið auðséð allt frá sköpun heimsins því að það megi skynja af verkum hans‘. (Rómv. 1:20) Í annarri biblíuþýðingu er versið orðað þannig að við getum skynjað eiginleika Guðs með „augum skynseminnar“. Við þurfum því að beita skynseminni og hugleiða það sem við sjáum til að skynja eiginleika skaparans.

15. Hvað hefur Patrick gert til að kynnast Jehóva betur og hvernig geturðu líkt eftir honum? (Sjá einnig mynd.)

15 Mörg okkar búa í þéttbýlum borgum þar sem náttúran virðist víðs fjarri. Er hægt að læra af sköpunarverkinu við þannig aðstæður? Patrick býr í Brassaville sem er stórborg í Lýðveldinu Kongó. Hann segir: „Ég reyni að horfa á sköpunarverkið frá svölunum mínum. Ég kem oft auga á lítil skordýr og smáfugla í leit að æti eða afdrepi. Einu sinni horfði ég á nokkra fugla gera sér hreiður. Þeir notuðu efnivið úr nágrenninu sem hentaði fullkomlega til að taka á móti ungum.“ En Patrick lét ekki þar við sitja heldur hugsaði líka til skaparans. Hann segir: „Ég áttaði mig á að Jehóva er annt um velferð sköpunarvera sinna, jafnvel þeirra sem virðast ekki merkilegar. Það veitir mér vissu fyrir því að hann láti sér líka annt um mig og sjái mér fyrir því sem ég þarf.“

Systir sem býr í stórborg vökvar blómin á svölunum heima hjá sér og dáist að kólibrífugli sem nærir sig á blómunum.

Kynnstu Jehóva betur með því að hugleiða það sem þú sérð í sköpunarverkinu. (Sjá 15. grein.)


16. Hvað hjálpaði Maríu móður Jesú að kynnast Jehóva betur og hvernig geturðu líkt eftir henni? (Sjá einnig mynd.)

16 Í þriðja lagi getum við kynnst Jehóva betur með því að hugleiða það sem við höfum upplifað. María móðir Jesú gerði það. Hún hafði þegar kynnst Jehóva vel og ‚hann hafði velþóknun á henni‘. (Lúk. 1:30) En nú fékk hún krefjandi verkefni – að vera móðir sonar Guðs. Jehóva styrkti hana fyrir milligöngu Gabríels engils og Elísabetar frænku hennar og lofaði að hjálpa henni. Hún hugleiddi síðar hvað hún hafði lært um Jehóva af þessari upplifun – um mátt hans, miskunn, óhlutdrægni og áhuga á hinum lágt settu. (Lúk. 1:46–55) María var þakklát fyrir stuðning Jehóva og við erum sömuleiðis þakklát þegar hann liðsinnir okkur í aðstæðum þar sem „við erum hjálparþurfi“. (Hebr. 4:16) Þegar þú færð hjálp hans skaltu spyrja þig: Hvað lærði ég um Jehóva af þessu? Hvaða eiginleika hans kem ég auga á?

Samsett mynd: Bróðir hugsar um atvik þar sem Jehóva studdi hann. 1. Hann bað Jehóva ákaft um hjálp með verkefni á samkomu. 2. Hann flutti síðan ræðu og það gekk vel.

Kynnstu Jehóva betur með því að hugleiða það sem hann hefur gert fyrir þig. (Sjá 16. grein.)c


VIÐ HÆTTUM ALDREI AÐ LÆRA

17, 18. Af hverju munum við aldrei hætta að kynnast Jehóva betur?

17 Hugsaðu þér hvað við eigum eftir að læra margt um Jehóva í nýja heiminum. Þá fáum við bókrollur með nýjum leiðbeiningum. (Opinb. 20:12) Við verðum í nánari tengslum við náttúruna. (Jes. 11:6–9) Og við skiljum enn betur hvernig faðir okkar hugsar, til dæmis þegar hann reisir ástvini okkar upp frá dauðum og þegar við færumst nær fullkomleikanum dag frá degi.

18 Við munum halda endalaust áfram að kynnast Jehóva nánar. Hann hefur alltaf verið til þannig að „viska hans er takmarkalaus“. (Sálm. 90:2; 147:5) Við munum „aldrei skilja verk hins sanna Guðs frá upphafi til enda“. (Préd. 3:11) Óháð því hversu lengi við höfum verið í sannleikanum skulum við grípa hvert tækifæri til að kynnast ástríkum föður okkar enn betur.

HVERJU SVARAR ÞÚ?

  • Hvað merkir það að kynnast Jehóva?

  • Af hverju ættum við að leggja okkur fram um að kynnast Jehóva betur?

  • Hvernig getum við kynnst Jehóva betur?

SÖNGUR 28 Hver er þinn vinur, Guð?

a Sjá „Kynningu á orði Guðs“, spurningu 20, fremst í Nýheimsþýðingu Biblíunnar.

b Sjá 7. kafla bókarinnar Von um bjarta framtíð, töluliði 5–7.

c MYND: Bróðir sem glímir við kvíða hugleiðir hvernig Jehóva hjálpaði honum að skila af sér verkefni á samkomunni í miðri viku.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila