Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 júlí bls. 8–13
  • Fáðu hughreystingu í Jesajabók

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Fáðu hughreystingu í Jesajabók
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • ÞEGAR AÐSTÆÐUR OKKAR BREYTAST ÓVÆNT
  • ÞEGAR ÓHÓFLEG SEKTARKENND PLAGAR OKKUR
  • ÞEGAR VIÐ HÖFUM MISST ÁSTVIN
  • Jehóva „læknar hina sorgmæddu“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2024
  • Við erum aldrei ein
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
  • Viðurkennum auðmjúk að við vitum ekki allt
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
  • Þiggjum fyrirgefningu Jehóva
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 júlí bls. 8–13

14.–20. SEPTEMBER 2026

SÖNGUR 41 Heyr mínar bænir

Fáðu hughreystingu í Jesajabók

‚Jehóva segir: „Eins og móðir huggar son sinn þannig hugga ég ykkur.“‘ – JES. 66:12, 13.

Í HNOTSKURN

Að lesa og hugleiða Jesajabók getur hughreyst okkur og hvatt þegar við erum niðurdregin.

1, 2. Hvað gerir Jehóva þegar við erum í aðstæðum sem gera okkur niðurdregin?

SJÁÐU fyrir þér barn sem er niðurbrotið og getur ekki hætt að gráta. Fjölskyldan er kannski að flytja á nýjan stað og barnið þarf að segja skilið við vini sína. Eða kannski er barnið miður sín út af mistökum sem því hefur orðið á. Hvað gerir umhyggjusöm móðir í slíkum aðstæðum? Hún tekur utan um barnið sitt, hlustar á það og fullvissar það um ást sína.

2 Í Biblíunni líkir Jehóva sér við ástríka móður sem huggar barnið sitt. Hann segir: „Eins og móðir huggar son sinn þannig hugga ég ykkur.“ (Jes. 66:13) Jehóva elskar okkur meira en nokkurt foreldri elskar barnið sitt. (Jes. 49:15) Í orði sínu, Biblíunni, veitir Jehóva okkur þá hughreystingu og styrk sem við þurfum þegar við erum niðurdregin eða okkur líður illa. – Rómv. 15:4.

3. Hvað skoðum við í þessari námsgrein?

3 Í Jesajabók segir Jehóva okkur margt sem getur veitt okkur hughreystingu. (Jes. 40:1) Ástríkur faðir okkar innblés Jesaja að skrifa þessa bók til að hughreysta fólk sitt í Júda á ólgutímum. Við lifum líka á ‚hættulegum og erfiðum tímum‘ og þurfum því á huggun og hughreystingu að halda. (2. Tím. 3:1) Skoðum nokkur vers í Jesajabók sem geta hughreyst okkur og styrkt þegar (1) aðstæður okkar breytast óvænt, (2) óhófleg sektarkennd plagar okkur eða (3) við höfum misst ástvin.

ÞEGAR AÐSTÆÐUR OKKAR BREYTAST ÓVÆNT

4. Hvaða áhrif getur óvænt breyting á aðstæðum haft á okkur?

4 Líf okkar getur breyst skyndilega. (Préd. 9:11; 1. Kor. 7:31) Við gætum fyrirvaralaust orðið alvarlega veik, lent í fjárhagserfiðleikum eða upplifað umrót í stjórnmálum. Eða við gætum fengið nýtt verkefni í þjónustu Jehóva. Slíkar breytingar geta valdið okkur kvíða og gert okkur ráðvillt. Þá er bara eðlilegt að hugsa: Hvað á ég nú að gera? Bróðir sem heitir Joseph fékk nýtt verkefni eftir að hafa starfað á Betel í um 17 ár. Hann segir: „Ég var alveg í lausu lofti. Það var mikið mál að hefja nýtt líf eftir að hafa verið á Betel svona lengi. Ég vissi ekki hvað ég átti til bragðs að taka.“ Hvaða fullvissu veitir Jehóva okkur í Jesajabók ef aðstæður okkar breytast óvænt?

5. Hvað fullvissar Jehóva okkur um í Jesaja 42:16? (Sjá einnig mynd.)

5 Lestu Jesaja 42:16. Jehóva lofar að leiða þá sem eru eins og blindir á ókunnum slóðum og að breyta myrkri þeirra í ljós. Orðalagið ‚blindir‘, ‚vegir sem þeir þekkja ekki‘, ‚myrkur‘ og ‚hrjóstrugt land‘ lýsir því ágætlega hvernig okkur getur liðið þegar aðstæður okkar breytast skyndilega og við erum óörugg um hvernig framtíð okkar verður. Okkur gæti liðið eins og við séum að ganga í þéttum skógi án þess að vita hvert leiðin liggur. En Jehóva fullvissar okkur um að hann muni leiðbeina okkur og aldrei yfirgefa okkur, hverjar sem aðstæður okkar eru. Hann tekur í hönd okkar og leiðir okkur í gegnum myrkrið. Hann lýsir okkur leiðina og greiðir götu okkar. Hvernig gerir hann það? Hann gefur okkur viturleg ráð í gegnum orð sitt og söfnuð sinn. (Sálm. 119:105; Jes. 30:21) Hann getur líka notað trúsystkini okkar og aðra til að hjálpa okkur. Við getum treyst því að Jehóva leiði okkur af umhyggju og skilningi, jafnvel þegar leiðin fram undan er óljós og virðist erfið. – Jes. 41:10; 1. Pét. 5:6, 7.

Samsett mynd: Hjón finna hughreystingu í loforði Guðs í Jesaja 42:16 þar sem segir: ‚Á ókunnum götum yfirgef ég þig ekki.‘ 1. Hjónin pakka dótinu sínu til að flytja. 2. Fjölskylda í nýja söfnuðinum þeirra tekur hlýlega á móti þeim.

Jehóva yfirgefur þig aldrei, jafnvel þótt aðstæður þínar breytist óvænt. (Sjá 5. grein.)b


6. Hverju megum við treysta ef aðstæður okkar breytast óvænt?

6 Joseph, sem minnst er á fyrr í greininni, lýsir því hvernig hann og konan hans fundu fyrir kærleiksríkum stuðningi Jehóva eftir að þau hættu á Betel. Hann segir: „Við sáum hönd Jehóva og kærleika hans að verki í gegnum allar breytingarnar. Hann notaði yndislega bræður og systur til að hjálpa okkur. Hann annaðist efnislegar og tilfinningalegar þarfir okkar á hárréttum tíma, og hann hefur haldið því áfram.“ Ef aðstæður þínar breytast óvænt getur þú líka treyst að Jehóva gefi þér þann styrk og leiðsögn sem þú þarft, óháð því hversu ógnvekjandi þér finnst breytingarnar vera. (Jes. 54:10; 58:11) Joseph bætir við: „Þetta er orðað fallega í einum af söngvunum okkar: ‚Hvað verður á morgun, það veit ei neinn, eitt er samt viss um, aldrei verð einn.‘a Það er öruggt að Jehóva verður með okkur alla leið þótt það fari ekki allt eins og við ætluðum okkur.“

ÞEGAR ÓHÓFLEG SEKTARKENND PLAGAR OKKUR

7. Hvað geta sumir verið að berjast við vegna fyrri mistaka?

7 Þegar við játum alvarlega synd fáum við hjálp frá umhyggjusömum öldungum og gerum síðan okkar besta til að endurtaka hana ekki. (Orðskv. 28:13; Jak. 5:14–16; 1. Jóh. 1:9) En við gætum verið að glíma við þráláta sektarkennd þótt Jehóva hafi fyrirgefið okkur. Við gætum velt fyrir okkur hvort Jehóva geti nokkurn tíma fyrirgefið okkur. (2. Kor. 2:7) Þessi tilfinning er skiljanleg vegna þess að fyrri mistök geta hvílt þungt á okkur og við átt erfitt með að gleyma þeim. „Ég finn engan frið í beinum mínum vegna syndar minnar,“ sagði Davíð konungur: „Ég er dofinn og sundurkraminn.“ (Sálm. 38:3, 8) Ef þér líður stundum þannig vegna fyrri mistaka geturðu fengið huggun í Jesajabók.

8, 9. Hversu rækilega fyrirgefur Jehóva samkvæmt Jesaja 1:18?

8 Lestu Jesaja 1:18. Jehóva notar áhrifaríkt myndmál til að lýsa því hversu rækilega hann fyrirgefur syndir okkar. Hann segir að þótt syndir okkar séu „skarlatsrauðar“ geri hann þær ‚hvítar sem snjó‘. Skarlatsrauður litur er sterkur og ekki auðvelt ná honum úr. En Jehóva fullvissar okkur um að þegar hann fyrirgefur okkur þurfum við ekki að bera blett syndarinnar það sem eftir er.

9 Tökum Davíð konung sem dæmi. Hann gerðist sekur um framhjáhald og morð. En Jehóva fyrirgaf honum og talaði seinna um að hann hefði heilt og einlægt hjarta. (2. Sam. 11:3, 4, 14, 15; 12:13; 1. Kon. 9:4, 5) Jehóva mat Davíð ekki eftir mistökum hans heldur trúfesti. Jehóva elskar okkur og fyrirgefur okkur á sama hátt þegar við iðrumst og gerir okkur kleift að halda áfram að þjóna sér með hreinni samvisku. Hvað fleira í Jesajabók getur hughreyst okkur ef óhófleg sektarkennd plagar okkur?

10. Hvaða hughreystandi fullvissu fáum við í Jesaja 38:17?

10 Lestu Jesaja 38:17 og neðanmáls. „Þú hefur kastað öllum syndum mínum aftur fyrir þig“ er orðalag sem einnig mætti þýða: „Þú hefur fjarlægt allar syndir mínar frá augliti þínu.“ Hér er sagt að Jehóva taki syndir iðrandi syndara og kasti þeim aftur fyrir sig. Hann hvorki sér þær né hugsar um þær framar. Samkvæmt uppsláttarriti mætti orða þetta svona: „Þú hefur gert það að verkum að það er eins og ég hafi ekki drýgt þessar syndir.“ Fyrir Jehóva er því eins og við höfum aldrei framið syndirnar þegar hann er búinn að fyrirgefa þær. Þegar hann hefur fyrirgefið okkur á hann aldrei eftir að láta okkur svara til saka fyrir þær aftur. Hann strikar þær algerlega út. Hann lofar: „Ég minnist ekki synda þinna.“ (Jes. 43:25) Er þetta ekki hughreystandi? Hvers vegna ættum við að nota syndir okkar gegn okkur ef Jehóva, æðsti dómari alheims, er búinn að gefa okkur upp sakir?

Leyfum aldrei fyrri mistökum að spilla hamingjunni sem við njótum núna.

11. Hverju einbeitir Jehóva sér að, óháð fyrri mistökum okkar? (Sjá einnig mynd.)

11 Hvenær sem óhófleg sektarkennd hellist yfir okkur þurfum við að minna okkur á það sem Jehóva hefur lofað. Fyrirgefning hans er ósvikin og alger. Hann skammast sín ekki fyrir okkur vegna fyrri mistaka og er ekki eins og ófullkomnir menn sem eiga erfitt með að gleyma. (Jes. 57:16) Það sem skiptir Jehóva máli er hvaða mann við höfum að geyma núna og hvert við stefnum, ekki hvernig við vorum áður. (Jes. 55:7) Við þjónum mjög kærleiksríkum og miskunnsömum Guði! Leyfum því aldrei fyrri mistökum að spilla hamingjunni sem við njótum núna eða hafa af okkur blessunina sem bíður okkar.

Samsett mynd: Jesaja 38:17 uppörvar bróður. Þar segir: „Þú hefur kastað öllum syndum mínum aftur fyrir þig.“ 1. Bróðir iðrast fyrri mistaka. 2. Síðar svarar hann glaður í bragði í brautryðjandaskóla.

Jehóva metur okkur ekki eftir fyrri mistökum okkar. (Sjá 11. grein.)c


ÞEGAR VIÐ HÖFUM MISST ÁSTVIN

12. Hvernig getur okkur liðið ef við missum ástvin?

12 Þegar ástvinur deyr getur sorgin verið yfirþyrmandi og sársaukinn varað lengi. Við gætum velt fyrir okkur hvers vegna Jehóva leyfði að hann dæi. Bróðir sem heitir Michael missti báða foreldra sína í eldsvoða. Hann segir: „Ég var algerlega niðurbrotinn og reiður út í Jehóva fyrir að leyfa að þau dæju. Ég veit að hann olli ekki dauða þeirra, en hann kom ekki heldur í veg fyrir þetta.“ Hefur þér liðið þannig? Hvaða von og hughreystingu veitir Jehóva þegar sorgin og sársaukinn er svona mikill?

13. Hverju lofar Jehóva okkur í Jesaja 25:8?

13 Lestu Jesaja 25:8. Jehóva lofar að „afmá dauðann að eilífu“. Hugsaðu þér þann tíma þegar dauðinn verður ekki lengur til. Þú þarft aldrei aftur að syrgja ástvin. (Jes. 35:10) Þú finnur aldrei aftur fyrir þeim sársauka að horfa á legstein þar sem ástvinur þinn er grafinn. Þú veist að þú munt alltaf geta haft ástvini þína hjá þér, hressa og glaða. Þetta loforð er engin óskhyggja. Sá sem gefur það er sá eini sem getur staðið við það – Guð sjálfur. – Opinb. 21:4, 5.

14. Hvernig líður þér þegar þú hugsar um upprisuna? (Jesaja 26:19) (Sjá einnig mynd.)

14 Lestu Jesaja 26:19. Jehóva ætlar ekki aðeins að afmá dauðann. Hann ætlar líka að gefa látnum ástvinum okkar lífið aftur. Hann segir um þá sem hafa dáið: „Lík fólks míns munu rísa upp.“ Þetta þýðir að Jehóva tekur sjálfur ábyrgð á þeim. Hann geymir þá í minni sínu. Og hann reisir þá upp á sínum tíma. Jehóva, uppspretta alls lífs, mun endurlífga ástvini okkar af svefni dauðans, rétt eins og vatn lífgar skrælnaða plöntu. Það verður dásamlegt að taka á móti þeim! – Samanber Markús 5:42.

Samsett mynd: Systir finnur hughreystingu í loforðum Guðs í Jesaja 26:19 þar sem segir: „Þínir dánu munu lifa.“ 1. Syrgjandi móðir situr ein með myndaramma í svefnherbergi dóttur sinnar sem er dáin. 2. Hún faðmar glöð að sér dóttur sína sem hefur fengið upprisu.

Von okkar um að sjá látna ástvini okkar aftur er örugg. (Sjá 14. grein.)


15. Hvernig hjálpar upprisuvonin okkur að takast á við sorg?

15 Loforð Guðs um upprisu tekur ekki burt sorgina. En það er hughreystandi að vita að Jehóva hefur ekki gleymt ástvinum okkar. Þessi von hughreysti Michael sem áður er minnst á. Hann segir: „Af Jesaja 26:19 skildi ég að foreldrar mínir skipta Jehóva miklu máli. Þau eru bæði örugg í minni hans og verða það alveg þangað til hann gefur þeim lífið aftur. Að vita þetta styrkir mig og hughreystir.“ Jehóva hefur lofað okkur að við fáum að hitta látna ástvini okkar aftur. Við skulum hugsa oft um þetta loforð. Þá verður auðveldara að bera sorgina.

16. Hvaða biblíuvers hefur hughreyst þig í erfiðum aðstæðum?

16 Við höfum skoðað nokkur vers úr Jesajabók sem geta hughreyst okkur þegar aðstæður okkar breytast óvænt, þegar óhófleg sektarkennd plagar okkur eða þegar við höfum misst ástvin. Við erum örugglega þakklát Jehóva fyrir að hugga okkur og hughreysta með hjálp orðs síns. (Sálm. 94:19) Hvaða vers finnst þér sérstaklega hughreystandi þegar þú gengur í gegnum raunir? Leggðu versið á minnið ef þú getur eða skrifaðu það niður og settu það þar sem það blasir við þér. Megi orð Jehóva, ástríks föður okkar á himnum, hugga þig og hughreysta.

HVAÐ HUGHREYSTIR ÞIG Í EFTIRFARANDI VERSUM?

  • Jesaja 42:16.

  • Jesaja 1:18; 38:17.

  • Jesaja 25:8; 26:19.

SÖNGUR 3 Von okkar, athvarf og öruggt traust

a Ljóðlínurnar eru teknar úr söngnum sem heitir „I Know Jehovah’s With Me“.

b MYND: Hjón sem hættu á Betel eru boðin velkomin í nýjan söfnuð.

c MYND: Bróðir er hættur að hugsa um fyrri mistök og nýtur þess að vera í brautryðjendaskólanum.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila