Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 júlí bls. 20–25
  • Hjálpaðu öðrum að kynnast Jehóva

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hjálpaðu öðrum að kynnast Jehóva
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • HJÁLPUM BIBLÍUNEMANDANUM AÐ KYNNAST JEHÓVA VEL
  • SÝNUM HONUM HVERS KONAR PERSÓNA JEHÓVA ER
  • HJÁLPUM HONUM AÐ LÁTA ÞEKKINGUNA HAFA ÁHRIF Á LÍF SITT
  • BLESSUNIN SEM FYLGIR ÞVÍ AÐ KYNNAST JEHÓVA VEL
  • Hjálpum biblíunemendum að taka afstöðu með sannleikanum
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
  • Hjálpum biblíunemendum okkar að verða hæfir til skírnar
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2021
  • Hvernig getum við hjálpað biblíunemendum til skírnar? – síðari hluti
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2020
  • Hvernig getum við hjálpað biblíunemendum til skírnar? – fyrri hluti
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2020
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 júlí bls. 20–25

28. SEPTEMBER–4. OKTÓBER 2026

SÖNGUR 79 Kennum þeim að vera staðfastir

Hjálpaðu öðrum að kynnast Jehóva

„Til að hljóta eilíft líf þurfa þeir að kynnast þér, hinum eina sanna Guði.“ – JÓH. 17:3.

Í HNOTSKURN

Hjálpaðu biblíunemendum þínum að kynnast Jehóva, eiginleikum hans og hvað honum líkar og mislíkar.

1. Hvernig líður þér þegar þú sérð biblíunemanda byrja að þjóna Jehóva?

HVERNIG er þér innanbrjósts þegar biblíunemandi mætir á samkomu í fyrsta sinn, byrjar að svara, segir öðrum frá trú sinni og ákveður að lokum að vígja líf sitt Jehóva? Þú ert eflaust himinlifandi. Jehóva á auðvitað heiðurinn af því að biblíunemendur okkar taka framförum og við lofum hann fyrir það. – 1. Kor. 3:5–9; 3. Jóh. 3, 4.

2. Hvað vill Jehóva að biblíunemendur fái? (1. Tímóteusarbréf 2:3, 4)

2 Jehóva vill að „alls konar fólk bjargist og fái nákvæma þekkingu á sannleikanum“. (Lestu 1. Tímóteusarbréf 2:3, 4.) Hann vill að fólk kynnist sér og fyrirætlun sinni eins vel og hægt er. (Jer. 9:24) Til þess þarf það að fá nákvæma þekkingu. Frummálsorðið sem þýtt er ‚nákvæm þekking‘ lýsir ekki bara því að sanka að sér upplýsingum heldur þarf maður að afla sér þekkingar sem „hefur sterk áhrif á mann“, eins og biblíufræðingur orðar það. (R. C. H. Lenski: The Interpretation of St. Paul’s Epistles to the Colossians, to the Thessalonians, to Timothy, to Titus, and to Philemon.) Þegar biblíunemandi kynnist Jehóva hefur þekkingin áhrif á líf hans. Og hún veitir honum jafnframt von um eilíft líf. – Jóh. 17:3.

3. Um hvað er rætt í þessari grein?

3 Jehóva hefur falið okkur það verkefni að hjálpa fólki að kynnast sér. Í þessari grein verða eftirfarandi spurningar teknar fyrir: Af hverju þurfa biblíunemendur að kynnast Jehóva vel? Hvernig getum við sýnt þeim hvers konar persóna Jehóva er? Og hvernig getum við hjálpað þeim að láta þekkinguna á Jehóva hafa áhrif á líf sitt?

HJÁLPUM BIBLÍUNEMANDANUM AÐ KYNNAST JEHÓVA VEL

4. Hvert er aðalmarkmið okkar þegar við erum með biblíunemanda samkvæmt Markúsi 12:30?

4 Jesús sagði að æðsta boðorðið væri að elska Jehóva af öllu hjarta, sál, huga og mætti. (Lestu Markús 12:30.) Biblíunemandi þarf að kynnast Jehóva til að geta elskað hann. Við viljum ekki að hann vígi sig okkur, ákveðnum kenningum eða söfnuði heldur Jehóva. Þess vegna er aðalmarkmið okkar að hjálpa nemandanum að kynnast Jehóva og læra að elska hann.

5. Hvað langar biblíunemanda til að gera ef hann elskar Jehóva?

5 Það eru sterk tengsl milli kærleika og hlýðni. Þegar biblíunemandi kynnist Jehóva og fer að elska hann langar hann til að hlýða honum. Jesús sagði: „Til að heimurinn viti að ég elska föðurinn geri ég eins og faðirinn hefur gefið mér fyrirmæli um.“ (Jóh. 14:31) Eins er það með biblíunemanda. Kærleikur til Jehóva hvetur hann meira en nokkuð annað til að hlýða honum og vera honum trúr. – 1. Jóh. 5:3.

6. Hvernig hjálpar það biblíunemandanum að taka ákvarðanir að þekkja Jehóva vel? Lýstu með dæmi.

6 Ef biblíunemandi kynnist Jehóva vel er líklegra að hann taki skynsamlegar ákvarðanir. Lýsum því með dæmi: Atvinnuflugmaður lærir ekki að fljúga bara með því að læra reglur og taka próf. Hann þarf líka að eyða mörgum klukkustundum í flugstjórnarklefanum. Með tímanum lærir hann hvernig flugvélin lætur að stjórn við mismunandi aðstæður og hvaða áhrif ákvarðanir hans hafa á flugið. Biblíunemandi kynnist ekki Jehóva aðeins af bóklegu námi heldur líka af því hvernig honum gengur þegar hann tekur ákvarðanir í samræmi við meginreglur Biblíunnar. Þegar hann kynnist Jehóva betur og áttar sig á hvernig hann hjálpar honum lærir hann að taka góðar ákvarðanir við alls konar aðstæður.

7. Hvað hjálpaði Jósef að taka rétta ákvörðun?

7 Jósef þekkti Jehóva og það hjálpaði honum þegar kona Pótífars reyndi að draga hann á tálar. Hann hafði eflaust heyrt sagt frá Adam og Evu og frá Abraham og Söru allt frá barnæsku. (1. Mós. 2:24; 20:3, 6) Af þessum frásögum gat Jósef áttað sig á hvernig Jehóva leit á hjónaband og kynlíf. Hann þekkti Jehóva svo vel að hann stóðst áleitni konu Pótífars og sagði við hana: „Hvernig gæti ég … brotið svo gróflega af mér og syndgað gegn Guði?“ (1. Mós. 39:7–9) Jósef vissi hvað var rétt og rangt í augum Jehóva og skildi hvað myndi hryggja hann. Þess vegna tók hann rétta ákvörðun. Ef við hjálpum biblíunemendum okkar að kynnast Jehóva og skilja hvers konar persóna hann er taka þeir líka ákvarðanir sem gleðja hann.

SÝNUM HONUM HVERS KONAR PERSÓNA JEHÓVA ER

8. Hvernig geturðu notað bókina Von um bjarta framtíð til að hjálpa nemanda að kynnast Jehóva?

8 Hvernig getum við frætt biblíunemandann um hvers konar persóna Jehóva er? Jehóva hjálpaði Job að kynnast sér betur með því að spyrja spurninga – rúmlega 50 spurninga! (Job. 38:1–41:34) Við getum líka notað spurningar. Spurningar í bókinni Von um bjarta framtíð eru til þess gerðar að nemandinn kynnist jafnt og þétt hvers konar persóna Jehóva er. (Sjá rammann „Spurningar sem hjálpa okkur að kenna“.) Notaðu þær til að hjálpa honum að kynnast Jehóva.

Systir hlustar á nemanda sinn svara spurningu í 17. kafla bókarinnar „Von um bjarta framtíð“.

Spurningar sem hjálpa okkur að kenna

Í bókinni Von um bjarta framtíð eru margar spurningar bornar fram sem hjálpa nemendum jafnt og þétt að kynnast Jehóva. Lítum á nokkur dæmi:

  • „Hvað finnst Jehóva um þá sem boða fagnaðarboðskapinn?“ (kafli 21)

  • „Hvað fullvissar þig um að það sem Jehóva og Jesús eiga eftir að gera [í Harmagedón] verði réttlátt og sanngjarnt?“ (kafli 33)

  • „Hvernig líður Jehóva þegar þú ert vitur og hlýðir honum? Hvers vegna?“ (kafli 34)

  • „Hvað heldurðu að Jehóva myndi finnast ef við giftumst einhverjum sem elskar hann ekki?“ (kafli 42)

  • „Hversu fús er Jehóva til að fyrirgefa?“ (kafli 56)

  • „Hvernig sést að Jehóva er sanngjarn, miskunnsamur og kærleiksríkur á því hvernig hann kemur fram við syndara?“ (kafli 57)

9, 10. (a) Hvernig geta biblíunemendur haft sem mest gagn af biblíulestri sínum? (Jakobsbréfið 5:11) (b) Hvernig má sjá af frásögu í Biblíunni hvað Jehóva líkar eða mislíkar? Lýstu með dæmi.

9 Snemma á biblíunámskeiðinu eru nemendur hvattir til að byrja að lesa reglulega í Biblíunni.a Hvernig getum við hjálpað þeim að hafa sem mest gagn af lestrinum? Við gætum stungið upp á að í hvert sinn sem þeir lesa velti þeir fyrir sér hvers vegna Jehóva lét skrá þetta í orð sitt og hvaða eiginleikar hans birtast í lesefninu. Lærisveinninn Jakob gerði það þegar hann minntist á frásöguna af Job. Jakob nefndi ekki bara þolgæði Jobs heldur beindi líka athyglinni að eiginleikum Jehóva – umhyggjusemi hans og miskunn. – Lestu Jakobsbréfið 5:11.

10 Við viljum að nemendur okkar átti sig á hvað Jehóva líkar eða mislíkar miðað við það sem þeir eru að lesa. Segjum að nemandinn skoði tillögurnar í rammanum „Byrjaðu að lesa Biblíuna“ í bókinni Von um bjarta framtíð og segist hafa ákveðið að lesa söguna um Daníel í ljónagryfjunni. Þá gætum við hvatt hann til að hugleiða spurningar eins og: Hvers vegna bjargaði Jehóva Daníel? Hvað gleður Jehóva miðað við þessa frásögu? (Dan. 6:10, 22) Hann gæti líka spurt: Hvað varð um mennina sem ákærðu Daníel? Hvað er Jehóva ósáttur við miðað við það? (Dan. 6:4, 5, 24) Að lokum gæti hann velt fyrir sér hvað fleira þessi frásaga segir honum um Jehóva. – Dan. 6:26, 27.

11. Hvernig getum við hjálpað nemandanum að líta á biblíunámið sem gjöf frá Jehóva?

11 Við erum ánægð þegar nemandi okkar áttar sig á gagninu sem hann hefur af biblíunáminu. Við ættum samt að benda honum á að það er Jehóva, kennaranum mikla, að þakka. (Jes. 30:20, 21) Nemandinn þakkar okkur kannski fyrir það sem hann er að læra og hrósar okkur jafnvel fyrir að vera góðir kennarar. Það er svo sem ekkert rangt við það en við ættum samt að benda honum á að það sé fyrst og fremst Jehóva sem á þakkir skildar.

HJÁLPUM HONUM AÐ LÁTA ÞEKKINGUNA HAFA ÁHRIF Á LÍF SITT

12, 13. Hvernig getur það að þekkja Jehóva hjálpað nemanda sem á erfitt með að skilja frásögu í Biblíunni? (Sjá einnig mynd.)

12 Við þurfum að nota það sem við vitum um Jehóva til að hafa fullt gagn af því. Hvernig getum við hjálpað nemandanum að gera það? Kenndu honum að rifja upp það sem hann veit um Jehóva þegar hann les eitthvað í Biblíunni sem hann á erfitt með að skilja. Þegar hann les um dóma Jehóva er honum kannski spurn hvers vegna hann eyddi sumum en þyrmdi öðrum. Hvernig geturðu hjálpað nemandanum að sjá það í réttu ljósi?

13 Þú getur hvatt hann til að hugleiða það sem hann hefur lært um Jehóva. Hversu verðmætt er lífið í augum hans? (2. Pét. 3:9) Hvað hefur hann lagt í sölurnar til að bjarga okkur – jafnvel þótt við séum syndug? (Ef. 2:4, 5) Refsar Jehóva fólki sem á það ekki skilið? Eða hlífir hann þeim við refsingu sem eiga hana skilið? (2. Mós. 34:6, 7) Stundum er eitt og annað látið ósagt í frásögum Biblíunnar sem gæti auðveldað okkur að skilja ákvarðanir Jehóva. En við þurfum ekki að vita allt í smáatriðum. Við þekkjum Guð okkar og erum sannfærð um að hann geri alltaf það sem er rétt.

Samsett mynd: Sama systir rifjar upp með konunni það sem hún hefur lært. 1. Jehóva situr í hásæti á himnum. 2. Adam og Eva hugsa um að borða ávöxt sem þau máttu ekki snerta. 3. Höfuð höggorms kramið undir hæl. 4. Örkin hans Nóa flýtur í flóðinu. 5. Móse klýfur Rauðahafið. 6. Hús Rahab stendur þegar múrar Jeríkó hrynja. 7. Ebed Mekek dregur Jeremía upp úr brunni. 8. Jesús hangir á kvalastaur.

Kenndu nemandanum að rifja upp það sem hann veit um Jehóva þegar hann les eitthvað í Biblíunni sem hann á erfitt með að skilja. (Sjá 12. og 13. grein.)


14. Hvernig geturðu hjálpað nemanda ef hann á erfitt með samskipti við einhvern í söfnuðinum?

14 Lítum á annað dæmi um hvernig biblíunemandi getur notað það sem hann hefur lært um Jehóva. Segjum að hann sé farinn að sækja samkomur en einhver í söfnuðinum fari í taugarnar á honum. Kannski hefur bróðirinn eða systirin móðgað hann eða sært. Hvettu þá nemandann til að hugsa um hvernig Jehóva lítur á bræður okkar og systur. Hverju hefur hann fórnað til að sýna að hann elskar þau? (Jóh. 3:16) Hversu mikilvægt er það í augum hans að eining ríki í söfnuðinum? (Sálm. 133:1) Hvernig líður honum þegar við gerum okkar besta til að viðhalda einingunni? (2. Kor. 13:11) Leiddu nemandanum fyrir sjónir hvað það gleður Jehóva mikið þegar við horfum á góða eiginleika annarra frekar en mistök þeirra.

15, 16. (a) Hvernig getur nemandi líkt eftir Jesú þegar hann tekur mikilvæga ákvörðun? (Jóhannes 8:29) (b) Hvernig hjálpaði Marianne nemanda sínum að taka góða ákvörðun? (Sjá einnig mynd.)

15 Þú getur líka hjálpað nemandanum að nota það sem hann veit um Jehóva til að taka góðar ákvarðanir. Bentu honum á 35. kafla bókarinnar Von um bjarta framtíð sem heitir „Hvernig getum við tekið góðar ákvarðanir?“ En hvað er til ráða ef nemandinn hefur beðið Jehóva um hjálp og skoðað efni um málið en á samt erfitt með að taka ákvörðun? Kannski finnst honum flókið að átta sig á hvaða meginreglur eiga við aðstæður hans. Þú getur hvatt hann til að hugleiða fordæmi Jesú. Hvernig tók hann ákvarðanir? Hann sagði: „Ég geri alltaf það sem [faðir minn] hefur velþóknun á.“ (Lestu Jóhannes 8:29.) Hvettu nemandann til að velta fyrir sér hvaða ákvörðun myndi gleðja Jehóva miðað við það sem hann hefur kynnt sér og hefur lært um Jehóva. Allar ákvarðanir sem gleðja Jehóva eru góðar ákvarðanir.

16 Kona í Síle sem var í biblíunámi stóð frammi fyrir mikilvægri ákvörðun. Fjölskyldan þrýsti á hana að þiggja vel launað starf sem hefði gert henni erfitt fyrir að sækja allar samkomur. Marianne, biblíukennarinn hennar, segir: „Ég hvatti hana til að velta fyrir sér hvað Jehóva myndi finnast um ákvörðun hennar. Myndi hún gleðja hann eða hryggja? Ég ráðlagði henni líka að leggja málið fyrir Jehóva í bæn og taka svo eftir hvernig hann svaraði henni. Hún hafnaði atvinnutilboðinu og fljótlega fann hún aðra vinnu sem gerði henni kleift að sækja samkomur.“ Tökum eftir að Marianne sagði henni ekki hvað hún ætti að gera heldur hjálpaði henni að hugleiða það sem hún þegar vissi um Jehóva. Fyrir vikið urðu þær nánari vinkonur en konan eignaðist líka nánara samband við Jehóva. Marianne segir um nemanda sinn: „Hún komst að raun um að Jehóva hugsar um okkur ef við setjum tilbeiðsluna í fyrsta sæti.“

Vinnuveitandi réttir biblíunemanda ráðningarsamning og penna en nemandinn hafnar atvinnutilboðinu.

Kenndu nemandanum að taka ákvarðanir sem gleðja Jehóva. (Sjá 15. og 16. grein.)b


BLESSUNIN SEM FYLGIR ÞVÍ AÐ KYNNAST JEHÓVA VEL

17. Hvað viljum við að biblíunemendur geri auk þess að læra ýmsar staðreyndir?

17 Á biblíunámskeiðinu sem við bjóðum upp á er farið yfir margar mikilvægar kenningar. Nemendur læra undirstöðuatriði eins og um eðli dauðans, lausnarfórnina og ríki Guðs. Þeir fræðast líka um söfnuðinn, til dæmis um samkomur, öldungafyrirkomulagið og hlutverk hins stjórnandi ráðs. En við viljum ekki bara að nemendur okkar læri ákveðnar staðreyndir. Við viljum líka að þeir kynnist Jehóva vel.

18. Hvaða blessun bíður þeirra sem kynnast Jehóva?

18 Það er okkur mikill heiður að fá að hjálpa öðrum að kynnast Jehóva. Þeir sem kynnast honum og tilbiðja hann njóta jafnvel núna mestu lífsgæða sem völ er á. (Sálm. 25:12–15) Í framtíðinni munu allir sem ‚kynnast hinum sanna Guði‘, Jehóva, hljóta eilíft líf. (1. Jóh. 5:20) En það er ekki allt og sumt. Í Biblíunni segir líka að Jehóva þekki þá sem leggja sig fram um að kynnast honum og læra að elska hann. (1. Kor. 8:3) Já, almáttugur Guð tekur eftir okkur og lítur á okkur sem vini sína. Það er ekki lítil umbun fyrir að kynnast hinum eina sanna Guði.

HVERJU SVARAR ÞÚ?

  • Hvers vegna þarf biblíunemandi að kynnast Jehóva vel?

  • Hvernig getum við sýnt biblíunemanda hvers konar persóna Jehóva er?

  • Hvernig hjálpum við biblíunemanda að láta þekkinguna á Jehóva hafa áhrif á líf sitt?

SÖNGUR 84 Verum framsækin

a Eftirfarandi markmið er nefnt í 5. kafla bókarinnar Von um bjarta framtíð: „Byrja að lesa reglulega í Biblíunni með hjálp listans ‚Byrjaðu að lesa Biblíuna‘.“

b MYND: Sviðsett mynd af biblíunemanda Marianne þegar hún hafnar atvinnutilboði.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila