HVERNIG ERU FRAMLÖGIN NOTUÐ?
Hjálparstarf árið 2022 – bróðurkærleikur í verki
1. JANÚAR 2023
Biblían sagði fyrir að okkar tímar myndu einkennast af styrjöldum, jarðskjálftum, drepsóttum og öðrum ‚ógnvekjandi atburðum‘. (Lúkas 21:10, 11) Þessi spádómsorð héldu áfram að uppfyllast á þjónustuárinu 2022.a Átökin í Úkraínu héldu til dæmis linnulaust áfram og höfðu áhrif á líf milljóna manna. Fólk víðast hvar á jörðinni var enn að jafna sig eftir COVID-19 faraldurinn. Náttúruhamfarir höfðu auk þess áhrif á gríðarlegan fjölda fólks, eins og jarðskjálftar á Haítí, mannskæðir stormar í Mið-Ameríku, á Filippseyjum og suðausturströnd Afríku. Hvernig hafa Vottar Jehóva hjálpað fórnarlömbunum?
Á þjónustuárinu 2022 sá söfnuðurinn fyrir aðstoð við fórnarlömb um 200 náttúruhamfara. Við vörðum næstum 12 milljónum bandaríkjadala til að veita neyðarhjálp.b Skoðum hvernig framlögin voru notuð til að hjálpa fórnarlömbum í tveim þessara hamfara.
Jarðskjálftar á Haítí
Þann 14. ágúst 2021 reið jarðskjálfti að styrkleika 7,2 yfir suðurhluta Haítí. Þrír vottar voru meðal þeirra sem misstu lífið – tvær systur og einn bróðir. Hinir eftirlifandi hafa þurft að horfast í augu við líkamlegan og tilfinningalegan sársauka sem jarðskjálftarnir ollu. Bróðir að nafni Stephane segir: „Það dóu svo margir út um allan bæ að margar jarðarfarir voru haldnar í hverri viku í meira en tvo mánuði.“ Annar bróðir að nafni Éliézer útskýrir: „Margir vottar höfðu ekki húsaskjól og hvorki föt, skó né aðrar grundvallarnauðsynjar. Mánuðum saman lifðu margir í ótta vegna stöðugra eftirskjálfta.“
Söfnuðurinn var fljótur að bregðast við. Deildarskrifstofan á Haítí sá fyrir 53 tonnum af matvælum, tjöldum, vatnsþéttum yfirbreiðslum, dýnum og sólarrafhlöðum til að hlaða síma. Auk þess voru yfir 100 heimili endurbyggð eða löguð á þjónustuárinu 2022. Meira en milljón dölum var varið í hjálparstarfið.
Matarafhending á Haítí.
Bræður okkar og systur eru ákaflega þakklát fyrir allt þetta. Lorette segir: „Jarðskjálftinn gereyðilagði húsið okkar og fyrirtæki. Við höfðum ekkert að borða. En söfnuður Jehóva stóð við bakið á okkur og sá okkur fyrir öllu sem við þurftum.“ Micheline hefur þetta að segja: „Jarðskjálftinn eyðilagði skýlið þar sem ég bjó ásamt sonum mínum tveim. Ég vissi ekki hvað til bragðs skyldi taka nema að biðja til Jehóva um hjálp. Og hann svaraði mér fyrir milligöngu safnaðar síns. Núna eigum við sterkbyggt hús sem við búum í. Ég er staðráðin í að gera allt hvað ég get til að sýna Jehóva þakklæti mitt.“
Hjálparstarf okkar fór ekki fram hjá yfirvöldunum á staðnum. Yfirmaður ráðhússins í L’Asile sagði: „Ég vil hrósa ykkur fyrir hvað þið voruð fljót að koma til hjálpar. Þið verskuldið lof fyrir virðinguna sem þið sýnið yfirvöldum. Það gleður mig að sjá að þið hafið ekki áhuga á peningum heldur viljið þið hjálpa fólki. Það er kærleikurinn sem knýr ykkur.“
Hitabeltislægðin Ana skellur á Malaví og Mósambík
Þann 24. janúar 2022 gekk hitabeltislægðin Ana yfir Mósambík og stefndi síðan vestur á bóginn til Malaví. Fellibylurinn olli gríðarlegri rigningu og hvassviðri, allt að 100 kílómetrum á klukkustund (nálægt 28 m/s). Hann felldi rafmagnslínur, skolaði burt brúm og olli umtalsverðum flóðum.
Óveðrið hafði áhrif á meira en 30.000 votta í Malaví og Mósambík. Charles er bróðir sem tók þátt í hjálparstarfinu. Hann segir: „Þegar ég sá þjáningar trúsystkina minna og hversu mikið þau höfðu misst varð ég miður mín og fann til mikils vanmáttar.“ Til að gera ill verra höfðu fátæklegar matarbirgðir þeirra og uppskera skolast burt. Margir misstu heimili sín. Sá hörmulegi atburður gerðist að einn bróðir missti konu sína og tvær ungar dætur þegar björgunarbát hvolfdi og þær drukknuðu.
Illa farið hús vottahjóna í Mósambík.
Endurbyggt heimili þeirra.
Óveðrið var skelfilegt. Klukkan eitt eftir miðnætti gerðist það í borginni Nchalo í Malaví að Sengeredo-fjölskyldan heyrði óhugnanlegt hljóð af þungum vatnsnið. Tvær ár höfðu flætt yfir bakka sína. Bróðir Sengeredo ákvað að þau skyldu yfirgefa húsið. Það var viturleg ákvörðun því að skömmu síðar gereyðilagðist það í flóðinu. Eigur þeirra ýmist skemmdust eða skoluðust burt. Fjölskyldan ákvað að fara í ríkissalinn, en þangað er undir venjulegum kringumstæðum 30 mínútna gangur frá heimili þeirra. En að þessu sinni tók það tvo klukkutíma. Þau voru holdvot og þreytt en heil á húfi þegar þau komu á áfangastað.
Deildarskrifstofurnar í Malaví og Mósambík voru fljótar að hefja hjálparstarf. Farandhirðum og öldungum var falið að meta hverjar þarfirnar væru og veita andlegan og tilfinningalegan stuðning. Nokkrar hjálparstarfsnefndir voru skipaðar til að hafa umsjón með hjálparstarfinu og þær byrjuðu strax að hjálpa bræðrunum að útvega mat og aðrar nauðsynjar. Meira en 33.000 dölum var varið í hjálpargögn og meira en 300.000 í að gera við og endurbyggja heimili.
Hjálparstarfsnefndirnar fóru skynsamlega með fjármuni en það var sérstaklega mikilvægt vegna hárrar verðbólgu á þessum slóðum. Til dæmis hækkaði verð á maísmjöli, sem er grunnvara í Malaví, um 70 prósent fyrstu sjö mánuðina sem hjálparstarfið stóð yfir. Og verð á eldsneyti hækkaði líka. Til að fara vel með framlögin keyptu bræður matvæli og byggingarvörur á staðnum og í miklu magni. Þannig fengu þeir afslátt og sluppu við háan flutningskostnað.
Hjálparstarfið snerti hjörtu þjóna Jehóva. Felisberto, sem er bróðir í Mósambík, segir: „Ég hef aldrei séð nokkur samtök leggja svona mikið af mörkum: byggingarefni, vöruflutninga, vinnuafl, matvæli og kærleiksríka leiðsögn. Þetta hjálparstarf var frábært dæmi um bróðurkærleikann sem Jesús lýsir í Jóhannesi 13:34, 35.“ Ester, ekkja í Malaví sem missti heimili sitt, segir: „Ég var örvæntingarfull þar sem ég átti allt of lítið fé til að byggja annað hús. Þegar bræðurnir komu og byggðu nýtt hús handa mér fannst mér eins og ég væri komin í paradís.“
Eftir því sem við nálgumst nýja heiminn sem við væntum getum við átt von á enn fleiri hörmungum. (Matteus 24:7, 8) Engu að síður erum við fullviss um að þjónar Jehóva fái alltaf nauðsynlega hjálp, þökk sé örlátum framlögum ykkar. Á donate.jw.org er útskýrt hvernig við getum gefið framlög. Innilegar þakkir fyrir örlæti ykkar.
a Þjónustuárið 2022 hófst 1. september 2021 og því lauk 31. ágúst 2022.
b Allar upphæðir í þessari grein eru gefnar upp í bandaríkjadölum.