HVERNIG ERU FRAMLÖGIN NOTUÐ?
Hjálparstarf mitt í „stríðsátökum í grennd og í fjarska“
27. MAÍ 2022
Á þessum síðustu dögum eigum við von á að „frétta af stríðsátökum í grennd og í fjarska“. (Matteus 24:6) En þegar trúsystkini okkar standa andspænis slíkum háska fá þau nauðsynlegan stuðning. Skilaboð frá stjórnandi ráði (nr. 3, 2022) veittu uppörvandi upplýsingar um hjálparstarfið sem var komið á laggirnar í Austur-Evrópu til að hjálpa þeim sem höfðu orðið fyrir barðinu á stríðinu í Úkraínu. Hvernig er þessi hjálp veitt þrátt fyrir að stríð geisi í grenndinni? Hvaða áhrif hefur hjálparstarfið haft á trúsystkini okkar í Úkraínu?
Hverjar eru þarfirnar? Hvernig er hjálpargögnum komið til skila?
Þann 24. febrúar 2022, daginn sem stríðið braust út í Úkraínu, samþykkti ritaranefndin fjárframlög til hjálpar trúsystkina okkar í Úkraínu. Deildarskrifstofan í Úkraínu fór þegar að útvega vörur á staðnum og dreifa þeim til 27 hjálparstarfsnefnda sem hafði verið komið á laggirnar.
Til viðbótar við þessar aðgerðir hófst strax vinna á aðalstöðvum Votta Jehóva við að kynna sér hvernig hægt væri að veita hagnýta hjálp. Ritaranefnd og útgáfunefnd stjórnandi ráðs báðu alþjóðlegu innkaupanefndina að vinna með fulltrúm úkraínsku og pólsku deildarskrifstofanna til að mæta þessari þörf og koma á framkvæmdaáætlun. Bræður úr innkaupa-, flutnings- og laganefndum beggja landa ásamt bróður úr deildarnefnd Úkraínu og bræðrum úr alþjóðlegu innkaupadeildinni funduðu daglega til að skipuleggja hjálparstarfið.
Neyðarkassarnir innihalda mat, hreinlætisvörur og uppörvandi handskrifuð skilaboð.
„Fyrst þurftum við að meta þarfirnar,“ segir Jay Swinney í alþjóðlegu innkaupadeildinni. „Við vildum sjá fyrir mat og hreinlætisvörum sem trúsystkini á staðnum þekktu. En að koma auga á hvað þurfti var aðeins einn hluti af vandanum. Við þurftum líka að vita hvernig við gætum komið þessum varningi til stríðshrjáðrar Úkraínu fljótt og örugglega.“
Þann 9. mars 2022 höfðu þarfirnar verið skilgreindar. Hægt var að dreifa kössum með grunnmatvælum eins og kjöti og fiski í dósum, mjöli, hrísgrjónum og baunum ásamt nauðsynlegum hreinlætisvörum eins og sápu og salernispappír. Á þessum tímapunkti var áætlað að fjögurra vikna birgðir af þessum vörum fyrir hvern einstakling myndu kosta um það bil 65 Bandaríkjadali. Í ljósi þess að þúsundir trúsystkina myndu líklega þarfnast hjálpar samþykkti ritaranefndin umtalsverð framlög til að sjá fyrir þessari hjálp. En hvernig yrði þessum hjálpargögnum komið til skila án þess að setja trúsystkini okkar í óþarfa hættu?
Þann 13. mars fóru tveir bræður frá Póllandi í tilraunaleiðangur frá deildarskrifstofunni í Póllandi til vöruhúss í nágrenni við Lvív í Úkraínu. Dagana fyrir brottför hjálpaði starfsfólk deildarskrifstofanna í Póllandi og Úkraínu sjálfboðaliðunum tveim að undirbúa ferðina. Deildarskrifstofan undirbjó nauðsynlega pappíra til að hægt væri að fara yfir landamærin með hjálpargögn og sá til þess að bifreiðarnar væru greinilega merktar hjálparstarfi. Í samstarfi við bræður í Úkraínu voru gerðar samhæfðar aðgerðir til að finna út hver væri fljótlegasta leiðin eftir að komið væri yfir landamærin. Eftir þennan góða undirbúning og með blessun Jehóva voru hjálpargögn afhent hjálparstarfsnefndum innan sólarhrings frá því að þau komu til Lvív. Bræður okkar komust heilir á húfi til baka til Póllands.
En þó svo að þessi fyrsta tilraun hafi heppnast vel þá var magnið innan við tonn af hjálpargögnum. Áætluð þörf var hins vegar um 200 tonn! Hvernig væri hægt að flytja svona mikið af hjálpargögnum og dreifa þeim með skjótum hætti?
„Fólk þitt býður sig fúslega fram“
Trúsystkini hvaðanæva sem höfðu lesið frásagnir á jw.org af því hvernig bræðrum okkar reiddi af vegna atburðanna í Úkraínu vildu hjálpa. Margir sem búa langt í burtu gáfu fjárframlög til alþjóðastarfs Votta Jehóva, vitandi að fjármununum yrði best varið þannig. En aðrir sem búa í nærliggjandi löndum gátu gefið tíma sinn, krafta og boðið fram aðrar bjargir. Skoðum nokkur dæmi.
Í Póllandi útbjuggu sjálfboðaliðar tugi þúsunda pakka með nauðsynjum og þeim fylgdu kort sem börnin höfðu teiknað. „Ég hef oft lesið orðin í Sálmi 110:3 sem segir að fólk Jehóva ‚bjóði sig fúslega fram‘,“ segir Bartosz Kościelniak sem tilheyrir innkaupadeild pólsku deildarskrifstofunnar. „En þegar ég upplifði stuðning hundruða sjálfboðaliða sem voru mættir á staðinn og tilbúnir til starfa skildi ég sannleiksgildi þessara orða í enn fyllri mæli.“
Vottur Jehóva sem á alþjóðlegt flutningafyrirtæki lagði fram vöruflutningabíla sína og gaf eldsneytið á þá. Hann segir eftirfarandi: „Þetta gefur mér tækifæri til að sýna trúsystkinum mínum og Jehóva kærleika minn. Það gleður mig mjög að hafa boðið fram þessa hjálp.“ Áætlað er að meira en 7.700 lítrar af eldsneyti hafi verið gefnir og bræður notuðu tíma sinn og krafta og óku næstum 48.000 km til að koma þessum gögnum á leiðarenda.
Þökk sé fúsleika og kærleiksríkri vinnu trúsystkina tókst okkur að flytja 100 tonn af matvælum, hreinlætisvörum og lyfjum til Úkraínu. Þann 28. mars aðeins 15 dögum eftir fyrstu tilraunasendinguna hafði þessum áfanga verið náð. Vegna örlátra gjafa á nauðsynjum sem komu bæði frá trúsystkinum og byrgjum var hægt að draga verulega úr notkun framlaga til alþjóðastarfsins til að sjá fyrir gjafapökkum. Þegar þetta er skrifað hafa Vottar Jehóva sent yfir 190 tonn af hjálpargögnum til Úkraínu. Hvaða áhrif höfðu þessar sendingar á trúsystkini okkar?
„Þeir innihéldu líka ást ykkar“
Þegar pakkarnir komu til Lvív dreifðu hjálparstarfsnefndir víðsvegar í Úkraínu þeim til þeirra sem á þurftu að halda. Gjafapökkum hefur við úthlutað til margra borga, sumar hverjar eru í um 1.300 km fjarlægð frá Lvív. Reynt var að koma þessu í verk með skilvirkum hætti en það tók samt sinn tíma.a
Markus Reinhardt sem tilheyrir úkraínsku deildarnefndinni segir: „Á þessum erfiðu tímum hafa mörg trúsystkini upplifað kærleika Jehóva á eigin skinni og hversu skynsamlegt það er að hlýða leiðsögn safnaðarins – jafnvel áður en hörmungarnar dynja yfir. Til dæmis eru allir hvattir til að eiga matar- og vatnsbirgðir til nokkurra vikna. Anton sem er öldungur í Kíev segir varðandi þessar leiðbeiningar: ‚Söfnuður Jehóva hefur undirbúið okkur undir erfiðar aðstæður og við kunnum að meta það. Matar- og vatnsbirgðir okkar og það að eiga útvarpstæki bjargaði bókstaflega lífi okkar.‘ Við erum svo þakklát fyrir að trúsystkinin tóku þessi fyrirmæli alvarlega vegna þess að það gaf deildarskrifstofunni tíma til að skipuleggja hjálparstarfið.“
Hvernig leið trúsystkinum okkar þegar hjálpargögnin bárust? Mykola og Zinaida, sem eiga heima í Kharkiv, tjáðu sig með þessum orðum: „Umhyggja ykkar snertir okkur djúpt. Innilegar þakkir fyrir matinn og lyfin. Við höfum svo sannarlega séð hönd Jehóva að verki.“ Valentyna, sem býr á sömu slóðum, segir: „Frá því að stríðið hófst mynduðust langar biðraðir eftir matvælum. Það var ekki alltaf hægt að fá nauðsynjar. En Jehóva vissi það og sá þennan vanda fyrir. Hann skipaði bræður til að dreifa hjálpargögnum til heimilanna og pakkarnir innihéldu einmitt það sem við þurftum á að halda. Þegar kringumstæður eru svona erfiðar og ástandið virðist vonlaust finnur maður og skynjar umhyggju Jehóva og safnaðar hans á einstakan hátt … Það er svo góð tilfinning að finna hjálp hans og stuðning, sem við þörfnumst svo sárlega, berast á réttum tíma.“
Yevhen og Iryna sem flýðu frá Maríupol segja: „Við erum mjög þakklát fyrir umhyggju ykkar og stuðning við fjölskyldu okkar. Þið megið trúa því að hjálpin kom á réttum tíma. Satt að segja héldum við að það væru bara vörur í þessum kössum en þegar við opnuðum þá kom í ljós að þeir innihéldu líka ást ykkar.“
Ykkur er eflaust ljóst hvernig andi Jehóva og leiðsögn voru að verki þegar þessi kærleiksríka neyðaraðstoð var veitt mitt í „stríðsátökum í grennd og í fjarska“. Kærleiksríkar gjafir ykkar til alþjóðastarfsins, sem oftar en ekki voru gefnar á donate.jw.org, áttu stóran þátt í þessu verkefni. Við metum örlæti ykkar mikils.
Séð fyrir hjálp eins fljótt og örugglega og hægt er
24. febrúar 2022: Ritaranefndin samþykkir fjárhagsáætlun til hjálparstarfs fyrir Úkraínu sem gerir deildarskrifstofunni kleift að hefja neyðarhjálp.
24. febrúar–8. mars 2022: Úkraínska deildarskrifstofan kaupir vörur á staðnum og byrjar að dreifa þeim með aðstoð hjálparstarfsnefnda. Deildarskrifstofan býr sig líka undir að taka á móti og dreifa hjálpargögnum frá Póllandi.
9. mars 2022: Ritaranefndin samþykkir sendingu hjálpargagna til Úkraínu.
10.–12 mars 2022: Tilraunasending á matvælum og nauðsynjavörum frá Póllandi til Lvív í Úkraínu er skipulögð.
13. mars 2022: Tilraunarsending af mat og öðrum nauðsynjum send frá Póllandi til Lvív í Úkraínu.
14.–16. mars 2022: Sjálfboðaliðar hjá hönnunar- og byggingardeildinni boðaðir í mótshöll nálægt Poznan í Póllandi til að útbúa neyðarpakka sem innihéldu matvæli og hreinlætisvörur.
17. mars 2022: Fjórum dögum eftir vel heppnaða tilraunasendingu er hafist handa við að senda 13 tonn af neyðarpökkum að landamærum Úkraínu.
21.–27. mars 2022: Áfram er haldið að útbúa neyðarpakka í Póllandi og þeir sendir til Úkraínu og dreift til staða þar sem þörfin er mest á innan við sólarhring.
28. mars 2022: Á innan við 20 dögum frá því að leyfið var veitt höfðu 100 tonn af matvælum, hreinlætisvörum og lyfjum verið afhent til Úkraínu.
Þegar þetta er skrifað hafa Vottar Jehóva sent yfir 190 tonn af hjálpargögnum til Úkraínu.
a Til að fræðast meira um hvernig þessum hjálpargögnum var komið á framfæri, má lesa greinina „Brothers Courageously Deliver Aid, Rescue Others in Ukrainian War Zone.“