HVERNIG ERU FRAMLÖGIN NOTUÐ?
Ritatrillur bera út boðskapinn um allan heim
1. APRÍL 2023
Það eru komin tíu ár síðan ritatrillur urðu áberandi þáttur í boðun okkar. Þær eru auðþekktar hvar sem er í heiminum. Þær líta vel út og eru þægilegar í notkun. Þú getur ábyggilega tekið undir með Asenötu, trúsystur okkar í Póllandi: „Þær eru einfaldar í hönnun og smekklegar. Það er auðvelt að setja þær upp og flytja milli staða.“
Hefurðu einhvern tíma velt fyrir þér hvernig þær voru hannaðar og framleiddar?
Hentug hönnun
Árið 2001 gaf stjórnandi ráð trúsystkinum okkar í Frakklandi leyfi til að prófa mismunandi aðferðir við boðun trúarinnar meðal almennings, þar með talið notkun trilla. Þeir gerðu tilraunir með mismunandi hönnun. Þeir breyttu til dæmis ferðatöskum og innkaupakerrum til að auglýsa ritin og geyma þau. Að lokum valdi franska deildarskrifstofan staðlað útlit sem var notað í mörg ár.
Gamalt módel af ritatrillu í Frakklandi árið 2005.
Trúsystkini okkar í Frakklandi fögnuðu því hvað þetta frumkvæði skilaði góðum árangri. Árið 2011 samþykkti því stjórnandi ráð tilraunaverkefni í New York-borg í Bandaríkjunum þar sem notaðar voru trillur og borð. Brautryðjendurnir sem tóku þátt í verkefninu áttuðu sig fljótt á að trillurnar höfðu margt til síns ágætis, þar á meðal hve auðvelt var að flytja þær milli staða. Þeir komu líka með góðar tillögur um það hvernig bæta mætti hönnun trillanna. Fyrstu handsmíðuðu trillurnar sem voru úr timbri voru býsna þungar og þess vegna var erfitt að fara með þær upp og niður stiga. Trillurnar voru því endurhannaðar svo að þær yrðu léttari en myndu samt ekki velta um koll í vindi. Í nýju hönnuninni var líka gert ráð fyrir stærri dekkjum sem dempuðu betur högg og auðvelduðu flutning á hrjúfu yfirborði. Auk þess var bætt við litlum kassa til að geyma aukabirgðir af ritum.
Tilraunaverkefnið skilaði góðum árangri. Árið 2012 samþykkti stjórnandi ráð því að ritatrillur yrðu notaðar um allan heim. Samningur var gerður við framleiðanda um fjöldaframleiðslu á trillum sem væru úr léttum og endingargóðum efnum.
Í gegnum árin voru gerðar minni háttar lagfæringar á trillunum. Árið 2015 var til dæmis bætt við regnheldri hlíf sem var gagnsæ að framan. Dína, sem býr í Georgíu, kann að meta þessa breytingu og segir: „Trillan á sína eigin regnkápu til að hlífa ritunum.“ Árið 2017 var farið að búa til auglýsingaspjöld á sumum tungumálum með segul á bakhliðinni. Tomasz, sem er bróðir í Póllandi, hefur þetta að segja: „Það var seinlegt verk að skipta út gömlu plakötunum sem voru með lími á bakhliðinni. Segulfilman er frábær lausn.“ Árið 2019 voru gerðar enn frekari breytingar bæði í efnisvali og framleiðslu trillanna til að gera þær enn endingarbetri.
Framleiðsla trillanna
Ritatrillurnar eru gerðar af einum framleiðanda og þær síðan sendar til safnaða um allan heim. Um þessar mundir kostar hver trilla 43 bandaríkjadali, að ótöldum flutningskostnaði og öðrum útgjöldum. Hingað til hefur 16 milljónum dala verið varið í trillukaup og 420.000 trillur hafa verið sendar til safnaða um víða veröld.
Til að frjálsu framlögin nýtist sem best eru trillur pantaðar í miklu magni. Auk þess geta söfnuðirnir núna pantað varahluti og gert við þær í stað þess að skipta þeim út.
Berum vitni með hjálp trilla
Boðberar um allan heim njóta þess að nota ritatrillur. Martina, sem býr í Gana, segir: „Í flestum greinum þjónustunnar erum það við sem eigum frumkvæðið að samtali. Það sem ég kann að meta í trillustarfinu er að fólkið kemur að máli við okkur. Meira að segja þeir sem ganga fram hjá geta fengið eitthvað til að hugsa um.“
Í öðru Afríkuríki kom maður nokkur að trillunni og fékk rit á sínu tungumáli. Viku seinna kom hann aftur og sagði: „Ég las öll ritin. Upplýsingarnar eru mjög mikilvægar. Ég ætla að tala um þetta við fjölskylduna mína í þorpinu þar sem ég bý,“ en það er í 500 kílómetra fjarlægð. Tveim mánuðum síðar kom hann til baka og sagði: „Þorpsbúar lásu öll ritin og glöddust mikið yfir því sem þeir lærðu. Þeir vilja verða vottar Jehóva. En þeir eru með spurningar. Þeim er til dæmis ljóst að til að skírast þarf að dýfa þeim í vatn. En það er engin á nálægt þorpinu okkar. Þurfum við að koma hingað til að láta skírast?“ Boðberarnir settu þennan mann í samband við brautryðjanda sem talar hans tungumál. Upp frá því hafa þeir átt ánægjulegar samræður á reglulegum grundvelli.
Það er spennandi að sjá hvernig ritatrillur eru notaðar „um alla jörðina til að allar þjóðir fái að heyra“ fagnaðarboðskapinn. (Matteus 24:14) Hvernig er staðinn straumur af kostnaðinum við framleiðslu þeirra? Með framlögum til alþjóðastarfsins sem oftar en ekki eru gefin á donate.jw.org. Kærar þakkir fyrir örlæti ykkar.