Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • mrt grein 135
  • Heimsfriður í augsýn

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Heimsfriður í augsýn
  • Fleiri viðfangsefni
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Hvað mun Jesús gera?
  • Boðskapur Jesú
  • Megi „friður Guðs“ varðveita hjarta þitt
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1991
  • Sannur friður — hvaðan?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1997
  • Friður frá Guði fyrir þá sem Jehóva kennir
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1987
  • Hvernig þú getur notið friðar Guðs í fyllri mæli
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1987
Sjá meira
Fleiri viðfangsefni
mrt grein 135
Jesús kennir blönduðum hópi karla og kvenna.

LÆRUM AF JESÚ

Heimsfriður í augsýn

Allir þrá að búa við frið. Allt frá því að sögur hófust hafa leiðtogar reynt að afstýra átökum eða binda enda á átök. Stundum hefur þeim tekist það um tíma. En því miður er algengt að átök blossi upp að nýju. Tekst nokkurn tíma að koma á varanlegum friði í heiminum? Svarið er já. Sjáum hvað við getum lært af Jesú.

Hvað mun Jesús gera?

Í Biblíunni kemur fram hvað Jesús ætlar að gera bráðlega til að koma á friði um allan heim.

  • „[Jesús] verður nefndur … Friðarhöfðingi. Vald hans mun sífellt vaxaog friðurinn tekur engan enda.“ (Jesaja 9:6, 7) Sem konungur Guðsríkis kemur Jesús á varanlegum friði um allan heim.

  • „Hann bjargar hinum fátæka sem hrópar á hjálp … þeim sem enginn hjálpar.“ (Sálmur 72:12–14) Jesús notar vald sitt til að koma á ósviknu réttlæti og binda enda á styrjaldir, ofbeldi og þjáningar.

  • „Engin þjóð mun beita sverði gegn annarri þjóð né læra hernað framar.“ (Jesaja 2:4) Undir stjórn Jesú læra allir að lifa í friði í stað þess að berjast.

Þú getur kynnt þér hvernig Jesús kemur á friði í heiminum og hvaða þýðingu það hefur fyrir þig með því að horfa á stutt myndband sem heitir Hvað er ríki Guðs?

Boðskapur Jesú

Boðskapur Jesú hefur hjálpað milljónum manna að búa við frið nú þegar. Í sinni frægu fjallræðu setti hann fram lífsreglur sem stuðla að friði í daglega lífinu. Lítum á fáein dæmi.

  • „Þeir sem stuðla að friði eru hamingjusamir.“ (Matteus 5:9) Jesús hvatti fylgjendur sína ekki aðeins til að forðast átök heldur að leggja sig beinlínis fram um að vera friðsamir.

  • „Farðu fyrst og sæstu við bróður þinn. Komdu síðan aftur og færðu fórnina.“ (Matteus 5:23, 24) Jesús hvatti áheyrendur sína til að vera fljótir til að útkljá deilur. Hann sagði að við yrðum að vera friðsöm í samskiptum við annað fólk til að geta átt gott samband við Guð.

  • „Hættið að dæma svo að þið verðið ekki dæmd.“ (Matteus 7:1) Jesús benti á að það væri hætta á árekstrum ef maður væri dómharður og gerði meiri kröfur til annarra en til sjálfs sín. Við ættum ekki að vera aðfinnslusöm, sagði hann, heldur fyrirgefa öðrum mistök þeirra og ávirðingar. – Lúkas 6:37.

Úti um allan heim er að finna fólk sem lifir eftir boðskap Jesú dagsdaglega, jafnvel á svæðum þar sem allt er logandi í sundrung og ofbeldi. Það hefur lært að forðast reiði, leysa úr ágreiningi á friðsamlegan hátt, fyrirgefa og sýna kærleika þótt aðrir séu óvinsamlegir.

Kynntu þér hvernig boðskapur Jesú hefur hjálpað fólki að lifa í friði. Lestu greinina „Að finna frið þrátt fyrir stríð og vopnuð átök.“

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila