Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • mrt grein 134
  • Ofbeldi er ekki lausnin

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Ofbeldi er ekki lausnin
  • Fleiri viðfangsefni
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Hvað kenndi Jesús?
  • Hvað gerði Jesús og hvað á hann eftir að gera?
  • Hvað merkir það að ‚elska óvini sína‘?
    Biblíuspurningar og svör
  • Heimsfriður í augsýn
    Fleiri viðfangsefni
  • Hver er gullna reglan?
    Biblíuspurningar og svör
  • Höldum áfram að gera gott
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2008
Sjá meira
Fleiri viðfangsefni
mrt grein 134
Jesús kennir fjölbreyttum hópi karla, kvenna og barna.

LÆRUM AF JESÚ

Ofbeldi er ekki lausnin

Sífellt fleiri trúa því að besta leiðin til að útkljá deilur eða leysa vandamál sé sú að grípa til ofbeldis. En þessi afstaða gengur í berhögg við boðskap Jesú Krists og fordæmi hans. Lítum á sumt af því sem hann sagði og gerði.

Hvað kenndi Jesús?

Jesús kenndi í sinni frægu fjallræðu að reiði, yfirgangur og ofbeldi væri ekki rétta leiðin til að setja niður ágreining. Skoðum fáein dæmi.

  • „Allt sem þið viljið að aðrir geri fyrir ykkur skuluð þið gera fyrir þá.“ (Matteus 7:12; Lúkas 6:31) Þessi lífsregla, oft kölluð gullna reglan,a hvetur okkur til að koma fram við aðra eins og við viljum að komið sé fram við okkur. Enginn vill verða fyrir ofbeldi. Ættum við þá ekki að sýna öllum virðingu og góðvild, jafnvel þó að við séum þeim ósammála?

  • „Ef einhver slær þig á hægri kinnina skaltu líka snúa hinni kinninni að honum.“ (Matteus 5:38, 39; Lúkas 6:29) Jesús var ekki að segja að við ættum að láta fara illa með okkur. Hann var öllu heldur að hrekja þá ranghugmynd að það sé í lagi að hefna sín eins og sumir trúarleiðtogar virðast hafa haldið fram. Hann var að segja fylgjendum sínum að þeir ættu ekki að gjalda í sömu mynt heldur bregðast mildilega við þegar þeim væri ögrað.b

  • „Elskið óvini ykkar.“ (Matteus 5:43, 44; Lúkas 6:27) Jesús sagði að við ættum að vera vingjarnleg við þá sem hata okkur eða eru ósanngjarnir við okkur. Hann átti ekki við að framkoma þeirra væri í lagi.c Með því að vera vingjarnleg við þá sem hata okkur gætum við hins vegar sefað reiði þeirra og jafnvel mildað þá gagnvart okkur.

Hvað gerði Jesús og hvað á hann eftir að gera?

Jesús kenndi að ofbeldi væri ekki lausnin – og hann lifði samkvæmt því. Kvöldið sem hann var handtekinn greip einn fylgjenda hans til vopna og reyndi að verja hann. Jesús sagði þá: „Stingdu sverðinu aftur í slíðrin því að allir sem bregða sverði munu falla fyrir sverði.“ (Matteus 26:52) Jesús sýndi að hann elskaði óvini sína. Hann fyrirgaf þeim sem misþyrmdu honum og bað jafnvel fyrir þeim. – Lúkas 23:33, 34; 1. Pétursbréf 2:23.

Biblían lofar að Jesús, sem einnig er kallaður Friðarhöfðingi, bindi bráðlega enda á allt ofbeldi. (Jesaja 9:6, 7) Hægt er að lesa meira um þessa fögru framtíðarvon í greininni „Hvernig munu stríð og átök taka enda?“

a Ítarlegri umfjöllun er að finna í greininni „Hver er gullna reglan?“

b Ítarlegri umfjöllun er að finna í greininni „Hvað merkir ‚auga fyrir auga‘?“

c Ítarlegri umfjöllun er að finna í greininni „Hvað merkir það að ‚elska óvini sína‘?“

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila