LÆRUM AF JESÚ
Gefðu þér tíma til að kynnast Guði
Þú auðgar líf þitt ef þú gefur þér tíma til að kynnast Guði. Ef þú gerir það ertu að sinna andlegri þörf þinni. Skoðum hvað Jesús sagði um þetta mál.
Hvað sagði Jesús?
„Þeir sem skynja andlega þörf sína eru hamingjusamir.“ – Matteus 5:3.
Við þráum öll að fá svör við spurningum eins og: Hver er tilgangur lífsins? Af hverju eru svona miklar þjáningar í heiminum? Hvað gerist við dauðann? Við þurfum að fá svör við þessum spurningum til að vera hamingjusöm.
„Maðurinn lifir ekki aðeins á brauði heldur á hverju orði sem kemur af munni Jehóvaa.“ – Matteus 4:4.
Við þurfum að fá andlega fæðu ekki síður en líkamlega. Jesús benti á að við þyrftum að leita reglulega til Guðs til að fullnægja andlegri þörf okkar.
„Orð þitt er sannleikur.“ – Jóhannes 17:17.
Jesús sagði að Guð fullnægði andlegri þörf okkar fyrst og fremst með orði sínu, Biblíunni.
Ef þú vilt finna sanna hamingju, gefðu þér þá tíma til að kynnast Guði og fullnægja andlegri þörf þinni. Nýttu þér þessar tillögur:
Lestu Biblíuna þér að kostnaðarlausu.
Prófaðu ókeypis biblíunámskeið með aðstoð einkakennara.
a Guð heitir Jehóva. (Sálmur 83:18) Sjá greinina „Hver er Jehóva?“