22.–28. JÚNÍ 2026
SÖNGUR 90 Gefum gætur hvert að öðru
Lærum af ‚Guði allrar huggunar‘
„Við getum huggað aðra … með þeirri huggun sem við fáum frá Guði.“ – 2. KOR. 1:4.
Í HNOTSKURN
Við skoðum hvernig við getum hughreyst aðra með því að fylgja fordæmi Jehóva og þeirra sem líkja eftir honum.
1. Hvers vegna eigum við að vera tilbúin að hughreysta aðra?
VIÐ þurfum öll að „þola ýmsar prófraunir“ og þurfum því stundum á huggun og hughreystingu að halda. (1. Pét. 1:6) Við kunnum að meta það þegar aðrir hughreysta okkur og ættum því að vera fljót til að hugga þá sem ganga í gegnum erfiðleika. (Matt. 7:12) Jehóva, „Guð allrar huggunar“, sýnir okkur hvernig „við getum huggað aðra í hvers kyns prófraunum“. Við getum fylgt fordæmi hans og ‚hughreyst hvert annað‘. (2. Kor. 1:3, 4; 1. Þess. 4:18) Við gerum það ekki vegna þess að við verðum að gera það heldur vegna þess að okkur þykir vænt um bræður okkar og systur. Í þessari námsgrein fjöllum við um (1) hvað er átt við með orðunum „hugga“ og „hughreysta“ í Biblíunni, (2) hvernig við getum hughreyst aðra og (3) hvað við getum gert þegar við þörfnumst hughreystingar.
HVAÐ SEGIR BIBLÍAN UM HUGGUN OG HUGHREYSTINGU?
2. Hvað er átt við í Biblíunni með orðinu sem er þýtt „hugga“ eða „hughreysta“?
2 Gríska orðið í Biblíunni sem er þýtt að hugga eða hughreysta hefur breiða merkingu og getur þýtt, eftir samhengi, að „uppörva“, „áminna“ eða „hvetja“. (Rómv. 12:8 og neðanmáls.) Orðið merkir bókstaflega „að kalla einhvern að hlið sér“. Við getum séð einhvern fyrir okkur sem er fljótur að koma vini sínum sem á erfitt til aðstoðar og veitir honum hjálp og stuðning. Sá sem fær sanna hughreystingu, í hvaða formi sem hún er, finnur að hún er uppbyggjandi og styrkjandi.
3. Hvernig setti Barnabas öðrum gott fordæmi í að hugga og hughreysta? (Sjá einnig mynd.)
3 Skoðum dæmi úr Biblíunni. Lærisveinn sem hét Jósef var mjög duglegur að hugga og hughreysta aðra. Postularnir kölluðu hann þess vegna Barnabas, en það þýðir „huggunarsonur“. (Post. 4:36) Það nafn passaði honum svo vel að hann er aldrei aftur nefndur annað í Biblíunni. Barnabas stóð undir nafni með því að aðstoða oft trúsystkini sín sem þörfnuðust hjálpar. Sem dæmi vildi Sál hitta lærisveinana þegar hann kom til Jerúsalem stuttu eftir að hann hafði tekið kristna trú. En þeir voru hræddir við hann því að hann var þekktur fyrir að hafa ofsótt kristna menn. Barnabas treysti honum hins vegar og kynnti hann fyrir postulunum. – Post. 9:26–28.
Barnabas stóð undir nafni. (Sjá 3. grein.)
HVERNIG GETUM VIÐ HUGHREYST AÐRA?
4. Hver er ein besta leiðin til að hughreysta aðra? (Rómverjabréfið 1:11, 12)
4 Heimsæktu aðra ef þú getur. Jehóva notar þjóna sína til að hugga og hughreysta aðra. Jehóva sendi til dæmis engil til að hughreysta Elía spámann þegar hann var niðurdreginn. (1. Kon. 19:4–7) Páll postuli áttaði sig líka á hversu gagnlegt er að heimsækja trúsystkini í eigin persónu til að uppörva þau. (Lestu Rómverjabréfið 1:11, 12.) Gefðu þér tíma þegar þú heimsækir einhvern til að uppörva hann. (1. Kor. 16:7) En ekki vanmeta gildi þess að hringja, senda bréf, kort eða textaskilaboð til að uppörva hann ef þú getur ekki farið í heimsókn. Ertu fús til að leyfa Jehóva að nota þig til að hughreysta aðra?
5. Hvers vegna getur stundum verið erfitt að veita hughreystingu?
5 Við getum átt von á að það verði erfiðara að hughreysta trúsystkini í eigin persónu eftir því sem ástandið versnar á síðustu dögum. Ónesífórus, sem var frá Efesus, leitaði Pál uppi þegar hann var í fangelsi í Róm þrátt fyrir að eiga á hættu að vera fangelsaður sjálfur eða jafnvel tekinn af lífi. (2. Tím. 1:16–18) Vottar í Rússlandi hafa líka uppörvað trúsystkini sín sem eru ofsótt fyrir trúna. Þeir mæta í réttarsal til að sýna trúsystkinum sínum stuðning þegar þau eru leidd fyrir rétt, jafnvel þótt það geti kostað þá frelsið. Þú getur búið þig undir að sýna hugrekki og fylgja fordæmi þeirra með því að lesa um þjóna Guðs sem hafa stutt hver annan, bæði til forna og nú á dögum, og haldið gleðinni þrátt fyrir ofsóknir.
6. Hvernig getum við líkt eftir Jehóva þegar við hughreystum aðra? (Sjá einnig mynd.)
6 Hlustaðu. Elía spámaður úthellti hjarta sínu fyrir Jehóva þegar honum fannst líf sitt vera í hættu. Jehóva vissi alveg hvað hrjáði Elía en leyfði honum samt að lýsa áhyggjum sínum. Jehóva hlustaði þolinmóður á Elía þótt hann endurtæki sig. (1. Kon. 19:9, 10, 14) Jehóva leyfði Habakkuk spámanni líka að tjá áhyggjur sínar og efasemdir á þann hátt sem gat hljómað eins og virðingarleysi. (Hab. 1:2, 3) Þó að Jehóva viti hvers við þörfnumst hlustar hann vel á bænir okkar. Við getum líkt eftir honum með því að hlusta vel og af virðingu á bræður og systur. Vertu „fljótur til að heyra“ þegar þau tjá sig við þig, án þess að grípa fram í eða móðgast ef þau segja eitthvað vanhugsað eða endurtaka sig. – Jak. 1:19; Préd. 7:9.
Líktu eftir Jehóva og hlustaðu vel þegar bróðir eða systir tjáir sig við þig. (Sjá 6. grein.)
7. Hvernig getum við fundið út hvað trúsystkini okkar þarf?
7 Áttaðu þig á hvað vinur þinn þarf. Við getum ekki séð hvað býr í hjarta annarra eins og Jehóva gerir. Þess vegna þurfum við að hlusta vel til að átta okkur á því hvers þeir þarfnast. Gerðu ekki ráð fyrir að þú vitir hvað vinur þinn þarf bara af því að þú veist hvað þú myndir vilja í hans sporum. Við erum öll ólík. Taktu þér tíma til að hlusta vel og spyrja nærgætinna spurninga sem draga fram hvað býr í hjarta hans. – Orðskv. 20:5.
8. Hvernig huggaði Jesús Mörtu og Maríu þegar Lasarus dó? (Sjá einnig myndir.)
8 Veltu fyrir þér hvernig Jesús huggaði Mörtu og Maríu þegar Lasarus bróðir þeirra dó. Þær voru báðar sorgmæddar en Jesús huggaði þær á ólíkan hátt. Þegar Jesús talaði við Mörtu minnti hann hana á upprisuvonina. En Biblían segir ekki að Jesús hafi talað við Maríu um upprisuna þegar hún kom grátandi til hans. Hann grét með Maríu og spurði síðan hvar Lasarus hefði verið lagður. (Jóh. 11:20–35) Hvað lærum við af þessari frásögu? Þegar við huggum þá sem eru daprir þurfum við að átta okkur á hvers þeir þarfnast í stað þess að reyna að hughreysta alla á sama hátt.
Reyndu að átta þig á hvað þeir sem þú hughreystir þurfa. (Sjá 8. grein.)a
9. Hvernig getum við notað Biblíuna til að hugga og hughreysta aðra? (Rómverjabréfið 15:4, 5)
9 Notaðu Biblíuna. Þegar þú notar ‚Ritningarnar til að hughreysta og hjálpa‘ einhverjum sem er niðurdreginn getur hann eignast von. (Lestu Rómverjabréfið 15:4, 5.) Og vonin hughreystir enn frekar og uppörvar. (Jes. 40:31) Hvernig geturðu fundið biblíuvers til að uppörva aðra? Sumir gera sér lista yfir vers, eins og þau sem er að finna í kaflanum „Hughreysting“ í bókinni Biblíuleiðarvísir fyrir daglegt líf. Biddu Jehóva að hjálpa þér að nota orð hans eins vel og þú getur til að uppörva. Andi hans getur hjálpað þér að muna hughreystandi vers þegar þú þarft á þeim að halda. – Jóh. 14:26.
10. Hvers vegna er mikilvægt að tala vingjarnlega þegar við reynum að uppörva aðra?
10 Talaðu vingjarnlega. Gríska orðið sem er þýtt að hugga eða hughreysta getur líka þýtt „áminna“ eða „hvetja“. Þú gætir stundum þurft að áminna eða hvetja þann sem þú ert að hughreysta til að leiðrétta hugsanagang hans. Ef þú þarft að gera það skaltu hugsa vel áður en þú talar svo að orð þín séu græðandi frekar en særandi. (Orðskv. 12:18) Jehóva setti okkur fullkomið fordæmi þegar hann talaði við Elía. Elía hélt að enginn annar þjónaði Jehóva lengur og að hann hefði ekki staðið sig sem spámaður. Jehóva leiðrétti hugsunarhátt Elía vingjarnlega án þess að segja honum beint að hann hefði rangt fyrir sér. (1. Kon. 19:15–18) Þú getur líka hjálpað bræðrum og systrum ef þú ert vingjarnlegur og velur orð þín vandlega. Þegar þú ert með verkefni á samkomu eða gefur athugasemdir skaltu alltaf vera jákvæður og vingjarnlegur í tali til að hvetja og styrkja bræður og systur.
11. Hvers þarfnast þeir oft sem eiga erfitt? (1. Jóhannesarbréf 3:18)
11 Réttu þeim hjálparhönd. Þeir sem eiga erfitt þurfa oft meira en vingjarnleg orð. (Lestu 1. Jóhannesarbréf 3:18.) Barnabas er góð fyrirmynd fyrir okkur. Hann seldi landskika og gaf andvirðið til að hjálpa nýlega skírðum bræðrum og systrum sem þurftu á því að halda. (Post. 4:36, 37) Mörg trúsystkini okkar nú á dögum gera slíkt hið sama og rétta þeim sem eiga erfitt hjálparhönd. Gabriela, sem er frá Póllandi, var niðurbrotin þegar húsnæði hennar skemmdist mikið í flóði. Hún segir: „Ég var dauðhrædd og áhyggjufull. Foreldrar mínir sem bjuggu hjá mér voru það líka. Ég sá ekki fram úr erfiðleikunum. En trúsystkini frá nálægum söfnuðum komu og lagfærðu húsnæðið heilmikið á aðeins einum degi. Þessi reynsla styrkti trú mína á að Jehóva leiðbeini þjónum sínum til að hughreysta þá sem eiga erfitt.“
12. Hvernig geturðu hjálpað bræðrum og systrum með þolgæði þínu?
12 Vertu þolgóður. Páll sagði Þessaloníkumönnum að hann hefði fengið hughreystingu og nýjan kraft þegar hann frétti af þolgæði þeirra. Þá vissi hann að það sem hann hafði lagt á sig þeirra vegna væri ekki til einskis. (1. Þess. 3:5–8) Og Páll vonaðist til að hvetja aðra bræður og systur til að vera trúföst – jafnvel þau sem hann hafði aldrei hitt – með því að vera sjálfur trúfastur í prófraunum. (Kól. 2:1, 2) Þegar trúsystkini okkar sjá að Jehóva hjálpar okkur að vera þolgóð í prófraunum er það þeim líka til mikillar hvatningar.
13. Hvað þurfum við að vera tilbúin að gera þegar við hughreystum aðra?
13 Vertu þolinmóður. Bræður og systur sem eru niðurdregin bregðast kannski ekki strax við þegar við reynum að hughreysta þau. En Biblían hvetur okkur til að ‚halda áfram að uppörva hvert annað‘. (1. Þess. 5:11) Haltu þolinmóður áfram að hughreysta og hugga þá sem þurfa á hjálp þinni að halda. (1. Þess. 5:14) Við þurfum að sjálfsögðu öll á því að halda að fá hughreystingu stundum. Hvað getum við þá gert?
ÞEGAR VIÐ ÞURFUM HUGGUN OG HUGHREYSTINGU
14, 15. Hvað ættum við að gera þegar við erum kvíðin eða eigum erfitt?
14 Biddu til Jehóva. Biddu hann um að hughreysta þig þegar þú ert kvíðinn eða átt erfitt. (Sálm. 94:19) Vertu nákvæmur í bænum þínum og úthelltu hjarta þínu fyrir honum. (Sálm. 62:8) Jehóva veit að sjálfsögðu hvernig þér líður áður en þú biður til hans en þú tjáir honum trú þína með því að segja honum frá innstu tilfinningum þínum. Og Jehóva svarar alltaf bænum sem eru bornar fram í trú á þann hátt sem hann telur rétt. (Mark. 11:24) Í Filippíbréfinu 4:6, 7 erum við hvött til að „biðja innilega til hans og þakka honum. Friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun þá vernda hjörtu [okkar] og huga.“
15 Biddu aðra um hjálp. Segðu þroskuðum vini, eða öldungi sem þú treystir vel, hvernig þér líður. Trúsystkini þín geta hughreyst þig en þau vita kannski ekki hvernig þér líður nema þú segir þeim það. (Orðskv. 14:10) Þú gætir beðið þau um að hlusta á þig eða að benda þér á biblíuvers eða grein sem hefur hughreyst þau.
16. Hvað gæti gerst þegar aðrir reyna að hughreysta þig, en hvað ættirðu að hafa í huga?
16 Vertu þolinmóður og fús til að fyrirgefa. Trúsystkini þín fara kannski ekki rétt að þegar þau reyna að uppörva þig. Þau segja kannski eitthvað sem lætur þér bara líða verr. Ef það gerist skaltu sýna þeim þolinmæði. (1. Kor. 13:4, 7) Og mundu eftir því sem segir í Jakobsbréfinu 3:2: „Ef einhver hrasar ekki í orði er hann fullkominn.“ Mundu að þau eru að gera sitt besta. Hafðu í huga að „andinn er ákafur en holdið er veikt“. – Matt. 26:41.
17. Hvað erum við staðráðin í að gera?
17 Við þurfum öll á hughreystingu og hvatningu að halda. Og þörfin eykst eftir því sem líður á síðustu daga og óvinir Guðs ráðast af meiri hörku á okkur. Gerum allt sem við getum til að hughreysta hvert annað.
SÖNGUR 130 Fyrirgefum fúslega
a MYND: Öldungur hlustar af samúð á bróður sem er nýlega búinn að missa konuna sína. Síðar heimsækir öldungurinn bróður sem missti konuna sína fyrir nokkru síðan og þeir rifja upp góðar minningar um hana.