15.–21. JÚNÍ 2026
SÖNGUR 122 Verum staðföst og óbifanleg
Rétt viðhorf til erfiðleika
„Þótt angist og erfiðleikar komi yfir mig hef ég alltaf yndi af boðorðum þínum.“ – SÁLM. 119:143.
Í HNOTSKURN
Rétt viðhorf til erfiðleika getur hjálpað okkur að vera trúföst og halda gleði okkar.
1, 2. Hvað þurfum við að gera til að geta tekist á við erfiðleika með góðum árangri? (Sjá einnig mynd.)
ERTU að berjast við óréttlæti, andstöðu frá fjölskyldunni eða ofsóknir vegna trúar þinnar? Ertu að glíma við heilsubrest eða fylgifiska ellinnar? Eða hefurðu orðið fyrir áfalli, kannski misst ástvin? Líf þitt er kannski fullt af „áhyggjum og sorgum“ eins og líf margra dýrmætra þjóna Jehóva. – Sálm. 90:10.
2 Við þurfum að sjá erfiðleika í réttu ljósi til að halda rónni og taka réttar ákvarðanir. Tökum dæmi: Erfiðleikunum sem við mætum í lífinu má líkja við hættur sem verða á vegi okkar þegar við erum að keyra. Við gætum þurft að beygja til vinstri eða hægri, hægja á ferðinni eða stöðva bílinn. En til að taka rétta ákvörðun er nauðsynlegt að sjá hættuna skýrt. Við getum það ekki ef bílrúðan er þakin snjó eða óhreinindum. Á líkan hátt þurfum við að sjá erfiðleika sem við glímum við eins og Jehóva sér þá. Í þessari námsgrein skoðum við (1) hvernig við sjáum erfiðleika í réttu ljósi, (2) hvernig það getur skaðað okkur að gera það ekki og (3) hvað við getum gert til að varðveita rétt viðhorf þegar erfiðleikar verða á vegi okkar.
Við þurfum að hafa rétt viðhorf til erfiðleika til að takast á við þá með góðum árangri. (Sjá 2. grein.)
RÉTT VIÐHORF TIL ERFIÐLEIKA
3. Hverju komumst við ekki hjá í þessum illa heimi?
3 Við komumst ekki hjá erfiðleikum í þessu vonda heimskerfi. Við komumst ekki hjá erfiðleikum eins lengi og við erum ófullkomin og Satan stjórnar heiminum. Og eftir því sem nær dregur endalokum þessa heimskerfis munum við mæta fleiri vandamálum, hvort heldur af völdum náttúrunnar eða illra manna. (Matt. 24:8; 2. Tím. 3:13) Ef Jehóva myndi leysa öll slík vandamál núna gæti virst sem hann væri að hjálpa Satan að stjórna heiminum. Í þessu heimskerfi getum við ekki búist við að sleppa við alla ógæfu. – Préd. 9:12.
4. Hvað fleira veldur þjónum Guðs erfiðleikum?
4 Þjónar Guðs verða fyrir erfiðleikum vegna þess að þeir fylgja Jesú. Jesús sagði lærisveinunum oftsinnis að þeir yrðu ofsóttir vegna trúarinnar. (Matt. 24:9; Jóh. 16:2) Þessi vitneskja hjálpar okkur að láta ofsóknir ekki koma okkur úr jafnvægi. (1. Þess. 3:3, 4) Þegar við erum trúföst í erfiðleikum getum við verið viss um að við séum að gera rétt og að Jehóva umbuni okkur. Við sýnum líka að við stöndum með Jehóva og álítum að hann sé besti stjórnandinn en að Satan sé lygari. Satan ræðst á nafn Jehóva og heldur því fram að menn þjóni honum aðeins af eigingjörnum hvötum. Til að reyna að sanna mál sitt ræðst hann grimmilega á þjóna Guðs. (Job. 1:9–11) Við gleðjum Jehóva þegar við sýnum honum að við elskum hann með því að vera trúföst. – Orðskv. 27:11.
5. Hvað lærum við af Prédikaranum 7:13, 14? (Sjá einnig myndir.)
5 Jehóva leyfir erfiðleika. Hann er aldrei grimmur og gerir okkur aldrei illt. (Jak. 1:13) En Salómon konungur sagði þó að ‚erfiður dagur‘ væri „verk hins sanna Guðs“. (Lestu Prédikarann 7:13, 14.) Eins og oft talar Biblían hér um að Jehóva geri eitthvað þegar hann leyfir það einfaldlega. Salómon gaf góð ráð sem geta hjálpað okkur að hafa rétt viðhorf til erfiðleika. Við þurfum að vera raunsæ. Við erum ófullkomin og lifum í heimi Satans og munum þar af leiðandi eiga bæði góða daga og slæma. „Á góðum degi“ getum við sýnt þakklæti okkar fyrir góðvild Guðs og litið á daginn sem gjöf frá honum. Salómon minnir okkur líka á að við ‚getum ekki vitað með vissu hvað gerist í framtíðinni‘, hvort við fáum góðan dag eða erfiðan. Bæði réttlátir og ranglátir verða fyrir erfiðleikum.
Við verðum að vera raunsæ og muna að við eigum bæði góða daga og slæma í heimi Satans. (Sjá 5. grein.)
6. Hvers vegna leyfir Jehóva stundum að við verðum fyrir erfiðleikum? (Hebreabréfið 12:7, 11)
6 Jehóva kennir okkur að treysta á sig en ekki á okkur sjálf. Við áttum okkur á því ef við höfum rétt viðhorf til erfiðleikanna. Jehóva tekur alltaf eftir erfiðleikum okkar og lætur sér annt um okkur þegar við þjáumst. Jafnvel þegar hann leyfir að við förum í gegnum „dimman skuggadal“ heldur hann áfram að leiðbeina okkur, fullvissa okkur um kærleika sinn og gefa okkur þann styrk sem við þurfum. (Sálm. 23:4) Erfiðleikar geta líka hjálpað okkur að koma auga á eigin veikleika og fínpússa persónuleika okkar með hjálp Jehóva. (Lestu Hebreabréfið 12:7, 11.) Job þurfti til dæmis að rækta með sér meiri auðmýkt. Jehóva var ekki valdur að þjáningum Jobs en hann leyfði þær og leyfði honum að draga dýrmætan lærdóm af þeim. (Job. 42:1–6) Óháð því sem hendir okkur vitum við að ekkert sem Jehóva leyfir getur skaðað okkur varanlega. Þegar við höldum trúföst út í erfiðleikunum „vinnum við fullan sigur“. – Rómv. 8:35–39.
7. Hvers vegna getum við verið glöð, jafnvel þegar við erum ofsótt fyrir trú okkar?
7 Við getum verið glöð í ofsóknum. Ekki draga þá ályktun að þú hafir misst velþóknun Jehóva þótt þú sért ofsóttur fyrir trú þína. Slík andstaða gefur þvert á móti til kynna að þú hafir velþóknun hans. (Matt. 5:10–12) Með réttu hugarfari geturðu haldið sjálfsvirðingunni og verið glaður þegar þú ert ofsóttur fyrir að þjóna Guði, rétt eins og postularnir. (Post. 5:40–42) Auk þess gætirðu hjálpað öðrum að kynnast sannleikanum og þeir farið að ‚lofa Guð‘. (1. Pét. 2:12) Eins og Jósef geturðu náð árangri á meðan þú gengur í gegnum erfiðleika en ekki bara þegar þeir eru um garð gengnir. – 1. Mós. 39:3, 23.
8. Hvað fleira getur hjálpað okkur að vera ákveðin í að halda út í erfiðleikum?
8 Prófraunir taka enda. Saga Jobs minnir okkur á að erfiðleikar okkar taka enda. „Jehóva blessaði síðari æviár Jobs meira en hin fyrri.“ (Job. 42:12) Jehóva lofar líka að blessa síðari hluta lífs þíns – sem heldur áfram að eilífu – meira en þessa stuttu byrjun sem kann að vera full af áhyggjum. Þessi vitneskja getur sannarlega hjálpað okkur að vera þolgóð allt til enda. – Matt. 24:13.
RANGT VIÐHORF GETUR SKAÐAÐ OKKUR
9. Hvernig getur rangt viðhorf til erfiðleika okkar verið skaðlegt?
9 Óháð erfiðleikum okkar þurfum við að hafa rétt viðhorf til þeirra til að gera ekki ástandið verra en það er. Okkur gæti til dæmis fundist Jehóva vera valdur að erfiðleikunum. Um tíma hugsaði Job þannig og það leiddi til þess að hann reyndi að „sýna fram á að hann væri réttlátur frekar en Guð“. (Job. 32:2) Naomí kenndi Jehóva líka í fyrstu um ógæfu sína. (Rut. 1:13, 20, 21) Ef Job og Naomí hefðu haldið áfram að hugsa þannig hefði það skaðað samband þeirra við Jehóva. (Orðskv. 19:3) En Jehóva hjálpaði þeim að leiðrétta hugsunarhátt sinn og blessaði þau fyrir að vera trúföst.
10. Hvernig gætum við farið að hugsa þegar við göngum í gegnum erfiðleika?
10 Þótt við séum viss um að Jehóva sé ekki valdur að erfiðleikum okkar gætum við farið að efast um að honum sé enn annt um okkur. Slíkt hugarfar getur dregið úr okkur kraft. (Orðskv. 24:10) Davíð konungur og Habakkuk spámaður urðu báðir fyrir mótlæti og efuðust stundum um að Jehóva hlustaði á hróp þeirra um hjálp. (Sálm. 10:1; Hab. 1:2) Þeir héldu samt áfram að biðja til hans. Jehóva fullvissaði þessa trúföstu menn um stuðning sinn og hann gerir það sama við þig. – Sálm. 10:17.
11. Hvað gæti gerst ef við höfum ekki rétt viðhorf til prófrauna?
11 Ef við höfum ekki rétt viðhorf til prófrauna gætu þær komið okkur í opna skjöldu. Við gætum hugsað að slíkt ætti ekki að henda okkur. (1. Pét. 4:12) Lærisveinar Jesú áttu erfitt með að skilja að Jesús ætti að þola harðar ofsóknir. (Lúk. 18:33, 34) Þó að Jesús væri búinn að segja skýrt hvað biði hans tók Pétur ekki mark á því. Jesús vissi að slíkur hugsunarháttur gæti hindrað hann í að gera vilja Jehóva, þannig að hann skammaði Pétur. (Mark. 8:31–33) Og jafnvel eftir að Jesús dó áttu lærisveinarnir erfitt með að skilja þetta. Jesús gafst samt ekki upp á þeim. Eftir að hann var risinn upp „skýrði [hann] Ritningarnar vandlega“ fyrir þeim til að hjálpa þeim að sjá þjáningar hans í réttu ljósi. (Lúk. 24:25–27, 32, 44–48) Að hugleiða það sem Jesús kenndi þeim hjálpaði þeim að búa sig undir andstöðu sem þeir áttu eftir að verða fyrir. Við getum líka búið okkur undir andstöðu með því að hugleiða sannindi Biblíunnar.
12. Hvernig gæti okkur liðið ef við hefðum rangt viðhorf til aðstæðna okkar?
12 Ef við höfum rangt viðhorf til aðstæðna okkar getur okkur fundist ástandið verra en það er. Jesús sýndi hvernig þetta getur gerst þegar hann sagði dæmisöguna um verkamennina í víngarðinum. Sumir verkamannanna voru í uppnámi vegna þess að þeir héldu að þeir hefðu ekki fengið sanngjörn laun. En landeigandinn sagði við einn þeirra: „Vinur, ég er ekki ósanngjarn við þig.“ (Matt. 20:10–13) Verkamennirnir héldu að landeigandinn hefði verið ósanngjarn við þá en staðreyndin var sú að þeir gerðu sér rangar væntingar. Nú á dögum hafa sumir þjónar Jehóva glímt við svipaðar tilfinningar. Sumum finnst ósanngjarnt að fá ekki að þjóna Jehóva í ákveðnum verkefnum. Hvað getum við gert til að hafa rétt viðhorf í slíkum aðstæðum?
ÞEGAR ERFIÐLEIKAR KOMA UPP
13. Hvað gæti gerst þegar erfiðleikar koma upp?
13 Þú veist eflaust hvað Biblían segir um erfiðleika. Kannski hefurðu meira að segja hjálpað öðrum að komast í gegnum erfiðleika með því að deila með þeim biblíuversum. En þér gæti reynst erfitt að hafa rétt viðhorf þegar þú verður fyrir erfiðleikum sjálfur. Þér gæti fundist Jehóva vera að refsa þér eða að hann hlusti ekki á bænir þínar. Hvað gætirðu gert til að hafa rétt hugarfar?
14. Hvað geturðu talað við Jehóva um þegar þér líður illa? (Filippíbréfið 4:13)
14 Biðjum Jehóva um hjálp. Segðu Jehóva hvað þú ert að ganga í gegnum og hvaða áhrif það hefur á þig. Þú getur verið nákvæmur í bænum þínum og sagt hvernig þig langar að hann hjálpi þér. Þú getur beðið Jehóva um að gefa þér anda sinn og þann styrk og visku sem þú þarft til að halda út. En mundu að Jehóva gæti svarað á annan hátt en þú átt von á. (Ef. 3:20) Hann gæti líka sent engla eða bræður og systur til að styðja þig. (Sálm. 34:7) Þiggðu hjálp Jehóva hvernig sem hann gefur hana. Hann er örlátur á anda sinn og getur hjálpað þér að ráða við hvaða erfiðleika sem er. – Lestu Filippíbréfið 4:13.
15. Hvað getur hjálpað okkur að halda út í erfiðleikum? (Sjá einnig mynd.)
15 Höldum andlegu dagskránni. Gerðu eins vel og þú getur til að halda þig við andlegu dagskrána. Þú þarft að fylla hugann með orði Guðs og það því meir sem „angist og erfiðleikar“ þjaka þig. (Sálm. 119:143) Haltu áfram að lesa reglulega í Biblíunni, rannsaka hana og hugeiða það sem þú lest. Taktu þátt í boðuninni að því marki sem aðstæður þínar leyfa, sæktu samkomur og taktu þátt í þeim. Haltu sambandi við bræður og systur. Stattu gegn tilhneigingunni til að einangra þig. – Orðskv. 18:1.
Gerðu það sem þú getur til að halda andlegri dagskrá þinni. (Sjá 15. grein.)
16. Hvaða efasemdir geta vaknað þegar við göngum í gegnum mikla erfiðleika og hvernig getum við sigrast á þeim? (2. Korintubréf 10:4, 5)
16 Tökumst á við efasemdirnar. Þegar við verðum fyrir raunum getum við þurft að brjóta niður „sterkbyggð vígi“ eins og efasemdir um okkur sjálf eða Jehóva. (Lestu 2. Korintubréf 10:4, 5.) Þú getur gert það með því að nota ‚þekkinguna á Guði‘ sem er að finna í Biblíunni og ritum safnaðarins. Efastu um að Jehóva sé ánægður með þig? Rannsakaðu þá sögu Páls postula. Hann þurfti að glíma við mörg vandamál en þegar upp var staðið var hann sannfærðari um að Jehóva og Jesús væru ánægðir með hann. (2. Kor. 11:23–27) Veltirðu fyrir þér hvort Jehóva hafi í raun fyrirgefið þér fyrri mistök? Þá skaltu gera lista yfir biblíuvers sem sýna að Jehóva fyrirgefur syndir. (Jes. 43:25) Lestu þau síðan og hugleiddu. (Sálm. 119:97) Hefur áfall orðið til þess að þú hefur farið að efast um loforð Guðs um að vernda trúfasta þjóna sína? Leitaðu að efni í ritum safnaðarins um hvers vegna Guð leyfir þjáningar og hvernig hann verndar samband okkar við sig, sama hvað hendir okkur. (Sálm. 91:9–12) Skoðaðu líka frásögur af bræðrum og systrum sem hafa lent í áföllum og hvað þau gerðu til að halda áfram að þjóna Jehóva með gleði.a
17. Hvað ættum við að gera þegar miklir erfiðleikar verða á vegi okkar?
17 Þú ert kannski ekki að glíma við erfið vandamál eins og er. Þá skaltu vera Jehóva þakklátur og nota tímann til að hugleiða hversu góður hann er. (Préd. 7:14) En ef þú verður fyrir miklum erfiðleikum, mundu þá hvað Jehóva segir í orði sínu og haltu áfram að treysta honum. Þegar þú gerir það sér hann fyrir leið út úr prófrauninni svo að þú getir staðist. (1. Kor. 10:13) En hvað um kæra bræður okkar og systur? Hvernig getum við hjálpað þeim þegar þau lenda í áföllum? Við skoðum það í næstu námsgrein.
SÖNGUR 150 Leitum hjálpræðis Guðs
a Sjáðu myndbandið „Bognar en brotnar ekki“ á jw.org og taktu eftir hvernig DeJanerio Brown tókst á við áfall þegar hún missti dóttur sína skyndilega við hræðilegar aðstæður.