Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 apríl bls. 26–31
  • Haltu áfram að styrkja vináttuna við maka þinn

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Haltu áfram að styrkja vináttuna við maka þinn
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • AÐ VELJA SÉR VIN TIL LÍFSTÍÐAR
  • VERJIÐ TÍMA SAMAN OG STYRKIÐ VINÁTTUNA
  • STANDIÐ SAMAN Í ERFIÐLEIKUM
  • Hvernig geturðu fundið þér góðan maka?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2024
  • Hjónaband — gjöf frá Guði kærleikans
    „Látið kærleika Guðs varðveita ykkur“
  • Gerðu hjónabandið hamingjuríkt með hjálp Guðs
    Hamingjuríkt fjölskyldulíf
  • Hvernig stuðlum við að farsælu hjónabandi?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2016
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 apríl bls. 26–31

29. JÚNÍ–5. JÚLÍ 2026

SÖNGUR 131 „Það sem Guð hefur tengt saman“

Haltu áfram að styrkja vináttuna við maka þinn

„Til er vinur sem er tryggari en bróðir.“ – ORÐSKV. 18:24.

Í HNOTSKURN

Hamingjuríkt hjónaband byggist á náinni vináttu hjónanna og kærleika þeirra til Jehóva.

1. Hvers vegna eru góðir vinir gjöf frá Jehóva?

GÓÐIR vinir eru gjöf frá Jehóva. (Jak. 1:17) Þeir elska Guð og þeir elska okkur. Þeir samgleðjast okkur þegar við erum ánægð, hughreysta okkur þegar við erum niðurdregin og gefa okkur heiðarleg ráð þegar við þurfum á þeim að halda. Þeir eru tryggir og við getum treyst þeim. Slíkir vinir „gleðja hjartað“. – Orðskv. 27:9.

2. Hvers vegna er mikilvægt fyrir hjón að styrkja vináttuna? (Matteus 19:6)

2 Það er mikilvægt að hjón séu nánir vinir. En þau mega ekki líta á það sem sjálfsagðan hlut heldur þurfa þau að vinna stöðugt að því. Annars getur farið svo að þau verði einmana, vonsvikin og jafnvel reið. En ef þau rækta vináttuna mynda þau nánustu tengsl sem tvær manneskjur geta átt. (Lestu Matteus 19:6.) Í þessari námsgrein skoðum við hvernig hjón geta styrkt vináttuböndin sín á milli. En fyrst ræðum við um hvernig einhleypir þjónar Guðs geta valið sér maka sem getur orðið besti vinur þeirra alla ævi.

AÐ VELJA SÉR VIN TIL LÍFSTÍÐAR

3, 4. Hvernig er hægt að finna góðan maka? (Orðskviðirnir 18:22)

3 Áður en við tökum mikilvæga ákvörðun þurfum við að hugleiða kostina og gallana við hana. Það er mikilvægt að gera þetta vandlega því að stórar ákvarðanir geta haft langvarandi áhrif á líf okkar.

4 Þegar við veljum maka erum við að velja vin fyrir lífstíð. Það er ein mikilvægasta ákvörðun sem við tökum. Jehóva stofnaði hjónabandið og það er því skynsamlegt að leita ráða hjá honum þegar við veljum okkur maka. Hann vill að kona eignist góðan eiginmann og að karlmaður eignist góða eiginkonu. Jehóva veit alltaf hvað er best fyrir okkur. (Lestu Orðskviðina 18:22; Jes. 48:17, 18) Meginreglurnar í Biblíunni geta hjálpað þjóni Guðs að finna rétta makann fyrir sig.

5. Hvers vegna er mikilvægt að velja sér maka sem er skírður vottur Jehóva?

5 Við verðum vinir Guðs þegar við látum skírast. (Sálm. 25:14) Ef þig langar að eignast maka ættirðu að velja hann meðal vina Jehóva. (1. Kor. 7:39) Þegar þú gerir það sýnirðu að þú metir meginreglur Jehóva mikils og þú getur litið á maka þinn sem blessun frá Jehóva. (Orðskv. 19:14) Þú munt líka forðast vandamál sem fylgja því að ‚gangast undir ójafnt ok‘ með þeim sem elska ekki Jehóva. (2. Kor. 6:14) Gerðu ekki þau mistök að finna þér maka sem elskar ekki Jehóva vegna þess að þú sérð engan í söfnuðinum sem þú vilt giftast. Það er ekki heldur skynsamlegt að réttlæta það fyrir þér með því að hugsa sem svo að hann eða hún þjóni Jehóva vonandi síðar.

6, 7. Hvaða spurninga ættirðu að spyrja þig í tilhugalífinu?

6 Þetta þýðir að sjálfsögðu ekki að hver sem er skírður vottur sé heppilegur maki. Horfðu á mögulegan maka af raunsæi.a Spyrðu þig: Hvernig kemur hann fram við fjölskylduna sína? Sýnir hann öðrum tillitssemi og virðingu? Hverjir eru vinir hans? Hvernig bregst hann við þegar aðrir eru honum ósammála? Krefst hann þess að fá sitt fram eða er hann fús til að gefa eftir þegar meginreglur Biblíunnar eiga ekki í hlut? Hvaða viðhorf hefur hann til peninga?

7 Þú gætir líka spurt þig: Elskar hann Jehóva innilega? Er hann að íklæðast „hinum nýja manni“? Mun hann hjálpa mér að þjóna Jehóva enn betur? Höfum við sömu markmið í þjónustu Jehóva? Sé ég fyrir mér að við verðum ekki bara góðir vinir heldur bestu vinir? (Kól. 3:9, 10) Ef þú ert systir: Verður bróðirinn sem þú ert að kynnast góður vinur og fjölskyldufaðir? (1. Kor. 11:3) Ef þú ert bróðir: Mun systirin sem þú ert að kynnast styðja þig og virða ákvarðanir þínar sem fjölskylduföður þrátt fyrir ófullkomleika þinn? Það tekur tíma að hugleiða slíkar spurningar. Notaðu því tilhugalífið til að kynnast hugsanlegum maka vel.

8, 9. Hvað getur hjálpað þeim sem er í tilhugalífinu að taka skynsamlega ákvörðun? (Sjá einnig mynd.)

8 Þú ert líklegri til að taka skynsamlega ákvörðun í tilhugalífinu ef þú reynir að skilja hvers konar persóna tilvonandi maki þinn er. Finndu út hvaða viðhorf aðrir hafa til hans. Þú gætir spurt hvaða eiginleika hann hefur og hvað öðrum í söfnuðinum finnst um hann. Er hann til dæmis þekktur fyrir að vera auðmjúkur, vingjarnlegur og sanngjarn? Sarah, systir í Frönsku Gvæjana, giftist bróður sem heitir Daniel. Hún segir: „Ég spurði aðra hvaða álit þeir hefðu á Daniel. Til dæmis talaði ég við brautryðjandafélaga hans sem hafði búið með honum, öldung í söfnuðinum hans, sameiginlega vini og nokkrar systur í söfnuðinum hans.“ Þú gætir spurt þann sem þú ert að kynnast vingjarnlega hvort það sé eitthvað í lífi hans sem þú þarft að vita, eitthvað sem gæti valdið miklum erfiðleikum í hjónabandinu.

9 Ekki hunsa efasemdir sem sækja á þig eða hreinskilnislegar athugasemdir frá þroskuðum vinum. Þannig geturðu tekið ákvörðun um hvort það sé skynsamlegt að halda áfram að kynnast eða ekki.b En það sem eftir er af námsgreininni snúum við okkur að þeim sem eru þegar í hjónabandi.

Par í tilhugalífinu spjallar saman í samveru með vinum.

Reyndu að átta þig á því í tilhugalífinu hvers konar persóna tilvonandi maki þinn er. (Sjá 8. og 9. grein.)


VERJIÐ TÍMA SAMAN OG STYRKIÐ VINÁTTUNA

10. Hvers vegna er gott fyrir hjón að gefa hvort öðru tíma og athygli?

10 Hversu upptekin sem hjón eru geta þau ræktað vináttuna og hjónabandið með því að taka tíma fyrir hvort annað. Þá geta þau talað saman um það sem hefur gerst yfir daginn, sagt frá hugsunum sínum og tilfinningum, sýnt hvort öðru ástúð og einfaldlega notið þess að gera eitthvað saman.

11. Hvað getur ógnað vináttu hjóna?

11 Hjón sem eru nánir vinir kjósa frekar að gera hluti saman en hvort í sínu lagi. Þau geta að sjálfsögðu ekki alltaf verið saman. En það getur verið hættulegt að vera aðskilin um langan tíma. Sumir hafa til dæmis sótt vinnu í öðru landi og þurfa að dvelja lengi frá fjölskyldunni. Þótt það kunni að vera fjárhagslegur ávinningur af slíkri vinnu getur aðskilnaður hjónanna um lengri tíma haft veruleg vandamál í för með sér.

12, 13. (a) Hvað hafa sum hjón gert til að verja tíma saman? (Sjá einnig mynd.) (b) Hversu mikilvægt ætti sambandið við maka þinn að vera? (Sjá rammann „Hversu mikilvægur ætti makinn að vera mér?“)

12 Sum hjón hafa lagt sig sérstaklega fram til að verja tíma saman reglulega. Leah býr í Gvam. Hún segir: „Við hjónin gerum margt saman. Við tökum sjaldnast þátt í félagslífi hvort í sínu lagi.“ Roxanne sem býr í Bandaríkjunum segir: „Við höfum mikið að gera og höfum séð að við þurfum að ákveða að taka frá tíma til að vera saman rétt eins og við skipuleggjum aðra mikilvæga hluti.“ (Samanber Amos 3:3.) Damien í Frakklandi bætir við: „Við höfum lært að sýna áhugamálum hvort annars áhuga og að hafa gaman að þeim sjálf.“ (Matt. 7:12) Og Katie sem býr í Bandaríkjunum segir: „Við leggjum símana okkar stundum til hliðar til að láta þá ekki trufla okkur.“

13 Það sem mestu máli skiptir er að hjón þjóni Jehóva saman. Myriam í Frakklandi segir: „Við byrjum daginn á því að lesa í Biblíunni og ræðum síðan um hvað við kunnum að meta í biblíulestrinum og hvernig við getum farið eftir því. Þetta eru dýrmætar stundir.“ Hún bætir við: „Mér finnst verðmætt þegar við biðjum saman því að þá heyri ég hversu innilega maðurinn minn elskar Jehóva“. Katie, sem áður er minnst á, segir: „Uppáhaldstími okkar saman er í boðuninni. Við styrkjum samband okkar og lærum hvort af öðru þegar við tölum um trú okkar við aðra.“ – Orðskv. 27:17.

Parið úr fyrri myndinni er núna gift og nýtur þess að vera saman í útilegu.

Styrkið hjónabandið með því að verja reglulega tíma saman. (Sjá 12. og 13. grein.)


Hversu mikilvægur ætti makinn að vera mér?

Við eigum öll vini sem eru okkur mikilvægir og höfum ýmiss konar ábyrgð. Hvað ætti að vera mikilvægast í lífi okkar? – Fil. 1:10.

  1. 1. Jehóva. Vináttan við Jehóva er í fyrsta sæti í lífi okkar. (Matt. 6:33; Mark. 12:30) Við viljum aldrei gera neitt sem er á móti vilja hans til að þóknast maka okkar. – Post. 5:29; samanber 1. Mósebók 2:16, 17; 3:6.

  2. 2. Maki okkar. Hjón ‚eru eitt‘. Okkur er jafn annt um maka okkar og um okkur sjálf. – 1. Mós. 2:24; Ef. 5:28, 29, 33.

  3. 3. Annað fólk og ábyrgð. Við viljum sinna foreldrum okkar, ættingjum, trúsystkinum og verkefnum í þjónustu Jehóva. En fyrir utan Jehóva ætti ekkert að vera mikilvægara en hamingja og velferð maka okkar. – 1. Tím. 5:8.

STANDIÐ SAMAN Í ERFIÐLEIKUM

14, 15. Hvers vegna ættu hjón að gera sitt besta til að leysa vandamál sem koma upp í hjónabandinu? Lýstu með dæmi.

14 Hjón komast ekki hjá því að upplifa erfiðleika í hjónabandinu þar sem við erum öll ófullkomin. Biblían er raunsæ þegar hún segir að hjón ‚verði fyrir erfiðleikum í lífinu‘. (1. Kor. 7:28) Með þessu orðalagi er átt við vandamál sem eru algeng meðal hjóna. Hvers vegna ættu hjón að gera sitt besta til að leysa vandamálin og viðhalda sterku sambandi?

15 Tökum dæmi. Ef fræg bygging eða listaverk verður fyrir skemmdum ákveða eigendurnir mjög trúlega að lagfæra það. Þeir kosta ef til vill miklum fjármunum og tíma til þess, jafnvel þótt það taki mörg ár. Og þeir gera þetta vegna þess að byggingin eða listaverkið er mjög dýrmætt í augum þeirra. Hvert og eitt hjónaband er dýrmætt. Og það koma upp vandamál jafnvel í bestu hjónaböndum. En það er hægt að endurheimta gott samband hjóna sem glíma við vandamál, rétt eins og hægt er að lagfæra skemmda byggingu eða listaverk. Það kostar líklega mikinn tíma og erfiði en það gleður Jehóva ef hjón gera allt sem þau geta til að styrkja hjónabandið og vera áfram saman. (Mal. 2:16) Þegar þau gera það sýna þau ekki einungis hvort öðru ást og virðingu heldur líka Jehóva, höfundi hjónabandsins.

16. Hvað getur hjálpað hjónum sem glíma við alvarleg vandamál í hjónabandinu samkvæmt 1. Korintubréfi 13:4–8a? (Sjá einnig mynd og rammann „Hjálp til að styrkja vináttuböndin“.)

16 Verið ekki fljót að fara frá hvort öðru ef upp kemur vandamál í hjónabandinu. (1. Kor. 7:10, 11) Spyrðu þig: „Get ég gert meira til að styrkja vináttuna?“ Skoðaðu vandlega það sem Biblían segir um að sýna kærleika og spyrðu þig hvort þú gætir gert betur í að sýna einhverja af þeim eiginleikum sem er lýst í 1. Korintubréfi 13:4–8a. (Lestu.) Í stað þess að leita leiða til að binda enda á sambandið skaltu gera þitt besta til að finna aftur leiðina að hjarta maka þíns. Í stað þess að horfa á hvað makinn ætti að gera skaltu horfa á það sem þú þarft að gera til að eignast aftur gott samband við hann. Biddu Jehóva um leiðsögn. Finndu rit og myndbönd sem hafa að geyma góð ráð og leitaðu ráða hjá öldungum eða öðrum þroskuðum trúsystkinum. Jehóva er þriðji og sterkasti þráðurinn í hjónabandi þínu. Með því að treysta á hann verður hjónabandið sterkt því að „þrefaldan þráð er ekki auðvelt að slíta“. – Préd. 4:12.

Sömu hjón í tilfinningaríkum samræðum heima. Konan lýsir tilfinningum sínum grátandi og maðurinn snertir öxl hennar og hlustar rólegur. Á borðinu fyrir framan þau er Biblían opin og bæklingurinn „Hamingjuríkt fjölskyldulíf“.

Gerið allt sem þið getið til að passa upp á sambandið þegar vandamál koma upp. (Sjá 16. grein.)


Hjálp til að styrkja vináttuböndin

Söfnuður Jehóva gefur út efni fyrir hjón til að styrkja vináttuböndin og jafnvel leysa alvarleg vandamál og endurheimta gott samband. Hefurðu prófað einhverjar af tillögunum í eftirfarandi efni?

  • Bæklingurinn Hamingjuríkt fjölskyldulíf.

  • Þáttaröðin Leiðin að hamingjuríku hjónabandi.

  • Greinaröðin „Góð ráð handa fjölskyldunni“.

  • Flokkurinn „Hjónabandið og fjölskyldan“ á jw.org.

17. Hvernig geta bæði þeir sem íhuga að gifta sig og hjón notið hamingju?

17 Jehóva vill að allir þjónar sínir séu hamingjusamir, þar á meðal þeir sem íhuga að gifta sig eða eru þegar í hjónabandi. Ef þú ert einhleypur og langar að gifta þig skaltu vanda þig við að velja þér lífsförunaut. Og ef þú ert giftur skaltu halda áfram að styrkja vináttuna við maka þinn. Vertu ákveðinn í að leysa þau vandamál sem koma upp í hjónabandinu með því að treysta á hjálp Jehóva. Þannig muntu ‚njóta lífsins‘ með maka þínum. – Préd. 9:9.

HVERJU SVARAR ÞÚ?

  • Hvernig getur þjónn Jehóva fundið sér maka sem verður góður vinur til lífstíðar?

  • Hvernig geta hjón styrkt vináttuböndin?

  • Hvað getur hjálpað hjónum að vinna saman þegar vandamál koma upp í hjónabandinu?

SÖNGUR 132 Nú erum við eitt

a Eftirfarandi spurningar eiga jafnt við um karla og konur.

b Sjá fleiri tillögur í greininni „Hvernig getur tilhugalífið verið árangursríkt?“ í Varðturninum maí 2024, undir millifyrirsögninni „Kynnist hvort öðru vel“.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila