Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 mars bls. 20–25
  • Sýndu dómgreind og þér farnast vel

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Sýndu dómgreind og þér farnast vel
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • VERTU AUÐMJÚKUR EN EKKI STOLTUR
  • FORÐASTU REIÐI OG HALTU RÓNNI
  • TREYSTU Á JEHÓVA ÞEGAR ÞÚ VERÐUR HRÆDDUR
  • HALTU ÁFRAM AÐ TILEINKA ÞÉR SJÓNARMIÐ JEHÓVA
  • Hernumið barn segir frá Guði sínum
    Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Stríðskappinn og litla stelpan
    Lærum af sögum Biblíunnar
  • Leitaðu innsæis hjá Jehóva
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1989
  • Stúlka hjálpar hershöfðingja
    Biblíusögubókin mín
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 mars bls. 20–25

25.–31. MAÍ 2026

SÖNGUR 135 Jehóva hvetur: „Vertu vitur sonur minn“

Sýndu dómgreind og þér farnast vel

„Þeim farnast vel sem hefur mætur á dómgreind.“ – ORÐSKV. 19:8.

Í HNOTSKURN

Í þessari námsgrein skoðum við hvernig góð dómgreind hjálpar okkur að takast á við flóknar aðstæður.

1, 2. Hvaða gagn höfum við af því að hugsa áður en við bregðumst við?

FINNST þér stundum fólk ekki sýna þér næga virðingu? Hefur einhver dæmt þig ranglega eða verið ósanngjarn við þig? Eða hefurðu einhvern tíma verið hræddur við eitthvað? Þú veist þá líklega að það getur verið mjög erfitt að bregðast rétt við. Hvað getur hjálpað okkur í slíkum aðstæðum? Biblían gefur okkur góð ráð.

2 Biblían hvetur okkur til að sýna dómgreind og hugsa áður en við bregðumst við. Það þýðir að við reynum fyrst að skilja af hverju eitthvað gerðist eða af hverju einhver brást við á ákveðinn hátt. Þannig getum við brugðist við á skynsaman hátt, eins og til dæmis haft ‚taumhald á tungu okkar‘ og vitað hvenær við eigum að ‚vera hljóð‘. (Orðskv. 10:19; Sálm. 4:4) Þá getum við líka haldið ró okkar og litið fram hjá mistökum annarra. Við eigum líka auðveldara með að hlusta þegar einhver gefur okkur ráð eða leiðréttir okkur. (Orðskv. 19:20) Ef við gerum þetta geta orð okkar og verk bæði glatt Jehóva og bætt líf okkar og annarra í kringum okkur. Þetta á sérstaklega við í aðstæðum þar sem okkur hættir kannski til að bregðast við í fljótfærni eða gefa tilfinningunum lausan tauminn. Að sýna góða dómgreind getur hjálpað okkur að vera auðmjúk, halda rónni og reiða okkur algerlega á Jehóva. Lítum á þrjár frásögur í Biblíunni sem sýna það.

VERTU AUÐMJÚKUR EN EKKI STOLTUR

3. Hver var Naaman?

3 Við þurfum að forðast hroka ef okkur á að farnast vel. (1. Pét. 5:5) Hvernig gerum við það? Með því að hugsa okkur vel um áður en við bregðumst við. Tökum Naaman sem dæmi. Hann bjó í Sýrlandi sem er nálægt Ísrael. Hann var herforingi sýrlenska hersins og því mikilsmetinn maður. En Naaman barðist við hræðilegan húðsjúkdóm sem nefnist holdsveiki. – 2. Kon. 5:1.

4. Hvernig sýndi Naaman vissa dómgreind?

4 Eiginkona Naamans átti þjónustustúlku frá Ísrael. Þessi litla stelpa sagði húsmóður sinni að það væri spámaður í Ísrael sem gæti læknað manninn hennar af holdsveikinni. (2. Kon. 5:2, 3) Naaman hefði getað hugsað: „Varla getur lítil þjónustustúlka frá óvinaþjóð hjálpað mér!“ En Naaman hrokaðist ekki upp með því að láta sem hann heyrði ekki það sem stelpan sagði. Hann var auðmjúkur og tók mark á henni. Síðan fékk hann leyfi frá Sýrlandskonungi til að fara til Ísrael og fá lækningu. – 2. Kon. 5:4, 5.

5. Hvað gerðist þegar Naaman kom til Ísrael?

5 Þegar Naaman kom til Jórams Ísraelskonungs vonaðist hann til að fá lækningu. En Jóram hélt að Sýrlandskonungur hefði sent Naaman til að byrja einhver leiðindi. Elísa spámaður frétti af þessu og bað Jóram að senda Naaman til sín. (2. Kon. 5:6–9) En Naaman varð fyrir vonbrigðum því að Elísa kom ekki einu sinni út úr húsi til að taka á móti honum og tala við hann. Elísa sendi mann til að segja Naaman hvað hann ætti að gera til að læknast. – 2. Kon. 5:10.

6. (a) Af hverju ætli Naaman hafi ekki viljað hlusta á það sem sendiboðinn sagði honum að gera? (b) Hvernig sýndu þjónar Naamans dómgreind og hvernig brást Naaman við? (2. Konungabók 5:13, 14)

6 Í fyrstu brást Naaman ekki vel við leiðbeiningum sendiboðans. Hann „fór burt ævareiður“. (2. Kon. 5:11, 12) Af hverju gerði hann það? Honum fannst sér kannski ekki vera sýnd sú virðing sem hann átti skilið sem háttsettur herforingi. Og honum fannst kannski að leiðbeiningar Elísa bæru vott um virðingarleysi gagnvart Sýrlandi. Hver svo sem ástæðan var ætlaði Naaman að hætta við og fara heim án þess að fá lækningu. En þjónar Naamans gerðu sér grein fyrir að Elísa vildi hjálpa honum og báðu hann að hugsa málið betur. Naaman kyngdi stoltinu og fylgdi leiðbeiningum Elísa auðmjúkur. Og hann læknaðist! – Lestu 2. Konungabók 5:13, 14.

7. Hvað getum við lært af reynslu Naamans? (Orðskviðirnir 22:4) (Sjá einnig myndir.)

7 Hvað lærum við af þessari frásögu? Við sýnum dómgreind þegar við reynum að skyggnast undir yfirborðið og leyfum ekki tilfinningunum að stjórna okkur. Dómgreind hjálpar okkur líka að vera auðmjúk. Sá sem er auðmjúkur gerir sér grein fyrir að hann veit ekki allt. Við þurfum öll á hjálp að halda af og til, sérstaklega frá Jehóva. Þótt Naaman hafi ekki þekkt Jehóva vel var hann nógu auðmjúkur til að hlusta á aðra. Hann hlustaði á ísraelsku þjónustustúlkuna, þjóna sína og það sem mikilvægast er, Elísa fulltrúa Jehóva. Hann lét ekki sært stolt ná tökum á sér. Naaman tók á endanum viturlega ákvörðun og fékk lækningu. Áður en við segjum eða gerum eitthvað ættum við að staldra við og hugsa málið. Einhver gæti til dæmis gefið okkur ráð úr Biblíunni sem við erum ekki sammála eða við fáum leiðbeiningar frá söfnuðinum sem við skiljum ekki. Þá ættum við að íhuga hvort viðbrögð okkar beri vott um auðmýkt eða hroka. – Lestu Orðskviðina 22:4.

Myndir: Bróðir sýnir innsæi meðan hann hlustar auðmjúkur á aðra. 1. Hann hlustar á ungan bróður gefa honum leiðbeiningar úr bæklingnum „Leggðu þig fram við að lesa og kenna“. 2. Hann hlustar á eldri systur sem kemur með ábendingu varðandi trillustarfið. 3. Hann fylgist með sjónvarpsþætti Votta Jehóva á spjaldtölvunni sinni.

Naaman var auðmjúkur og hlustaði á aðra. Við ættum líka að hlusta þegar við fáum ráð, ábendingu eða þegar leiðbeiningar koma frá söfnuðinum. (Sjá 7. grein.)


FORÐASTU REIÐI OG HALTU RÓNNI

8. Í hvaða aðstæðum gæti okkur fundist erfitt að halda ró okkar?

8 Stundum gerist eitthvað sem kemur okkur í uppnám. En ef við stöldrum við og hugsum áður en við segjum eða gerum eitthvað hjálpar það okkur að halda rónni. Það er auðvitað ekki alltaf auðvelt því að stundum getur fólk verið ósanngjarnt við okkur eða óvingjarnlegt. (Ef. 4:26 og skýring við „reiðist“ í námsbiblíunni á tungumáli sem þú skilur.) Sjáðu hvernig Davíð og Abígail sýndu góða dómgreind við spennuþrungnar aðstæður.

9. Hvernig kom Nabal fram við Davíð?

9 Manstu hvað gerðist þegar Davíð og menn hans flúðu undan Sál og bjuggu í óbyggðum Paran? (1. Sam. 25:1) Þeir vernduðu fjárhirða og hjarðir auðugs manns að nafni Nabal. (1. Sam. 25:15, 16) Þegar kom að því að rýja sauðféð sendi Davíð menn til Nabals til að óska honum alls hins besta og biðja um vistir sem hann mætti sjá af. (1. Sam. 25:6–8) En Nabal sýndi ekki minnsta þakklæti fyrir allt sem Davíð og menn hans höfðu gert fyrir hann. Hann brást mjög hranalega við bón Davíðs og móðgaði jafnvel Davíð og menn hans. – 1. Sam. 25:10, 11.

10. Hvernig sýndu bæði Davíð og Abígail dómgreind? (1. Samúelsbók 25:32, 33) (Sjá einnig mynd.)

10 Hvernig hefði þér liðið í sporum Davíðs? Það er ekki erfitt að ímynda sér af hverju Davíð reiddist heiftarlega. Hann var tilfinningaríkur maður og þarna varð hann svo reiður að hann vildi drepa Nabal. (1. Sam. 25:13, 21, 22) Davíð var á leiðinni til að gera það þegar Abígail eiginkona Nabals stoppaði hann. Af hverju gerði hún það? Hún var skynsöm og gerði sér grein fyrir að Davíð var góður maður þótt hann hefði brugðist svona harkalega við. Hún gaf honum veglega gjöf og skynsamleg ráð og gerði þannig það sem hún gat til að hjálpa honum að ná stjórn á reiðinni. (1. Sam. 25:18, 23–31) Davíð sýndi góða dómgreind þegar hann hlustaði á Abígail. Hann skildi að það sem hún sagði endurspeglaði sjónarmið Jehóva. Davíð forðaðist þannig alvarleg mistök. – Lestu 1. Samúelsbók 25:32, 33.

Davíð hlustar af athygli á Abígail sem krýpur á jörðinni og sárbænir hann. Menn Davíðs fylgjast með. Þjónar Abígail bíða fyrir aftan hana með margar gjafir.

Davíð og Abígail sýndu góða dómgreind við spennuþrungnar aðstæður og afstýrðu þannig miklum harmleik. (Sjá 10. grein.)


11. Af hverju er gott að staldra við og hugsa ef einhver reitir okkur til reiði? (Orðskviðirnir 19:11)

11 Hvað lærum við af þessari frásögu? Jafnvel þegar við höfum réttmæta ástæðu til að vera reið þurfum við að staldra við og hugsa hvað við ætlum að gera. Það hjálpar okkur að halda rónni og hugleiða hvaða afleiðingar orð okkar og verk geta haft. (Lestu Orðskviðina 19:11.) Þegar Davíð var minntur á sjónarmið Jehóva náði hann tökum á reiðinni. Ef eitthvað reitir þig til reiði skaltu ekki leyfa þér að bregðast við í hugsunarleysi. (Jak. 1:19) Leitaðu til Jehóva í bæn og reyndu að skilja hvernig hann hugsar um málið. Það hjálpar þér líklega að ná þér niður.

12. Hvernig geta aðrir hjálpað okkur að sýna innsæi og halda rónni?

12 Jehóva notaði Abígail til að hjálpa Davíð að sjá heildarmyndina. Jehóva getur líka notað aðra til að hjálpa okkur að sjá aðstæður sömu augum og hann. Ef einhver reitir þig til reiði getur verið gott að tala við þroskað trúsystkini sem getur hjálpað þér að sjá málið frá sjónarhóli Jehóva. (Orðskv. 12:15; 20:18) Og getur þú líkt eftir Abígail ef vinur sem er í uppnámi leitar til þín? Geturðu hjálpað honum að sjá hvað Jehóva vill að hann geri? Jehóva blessar viðleitni þína til að hjálpa öðrum að sýna góða dómgreind og halda rónni.

TREYSTU Á JEHÓVA ÞEGAR ÞÚ VERÐUR HRÆDDUR

13. Hvað getur hjálpað okkur þegar við erum hrædd?

13 Stundum lendum við í erfiðum aðstæðum og verðum hrædd. En það getur hjálpað okkur að sigrast á óttanum að hugsa um hversu smávægilegar allar ógnir heimsins eru í samanburði við gríðarlegan mátt Jehóva. (Sálm. 27:1) Jehóva getur hjálpað okkur í hvaða aðstæðum sem geta komið upp, jafnvel þegar þær virðast vonlausar. Þetta kemur skýrt í ljós þegar við skoðum reynslu Jónasar spámanns. Hann elskaði Jehóva en varð samt hræddur þegar hann fékk erfitt verkefni frá honum.

14. Af hverju ætli Jónas hafi reynt að komast undan verkefninu sem Jehóva gaf honum?

14 Jehóva gaf Jónasi ógnvekjandi verkefni. Hann átti að fara til Níníve og boða íbúum hennar dómsboðskap. (Jónas 1:1, 2) Hvernig hefði þér liðið í hans sporum? Leiðin frá Ísrael til assýrísku borgarinnar, Níníve, var erfið og það hefði tekið Jónas um mánuð að ganga hana. Assýringar voru þekktir fyrir að vera grimmir og ofbeldisfullir. Níníve var jafnvel kölluð „borg blóðsúthellinganna“. (Nah. 3:1, 7) Jónas tók ekki við verkefninu heldur ákvað að flýja. – Jónas 1:3.

15. Hvernig fékk Jónas aukið traust á Jehóva? (Jónas 2:6–9)

15 Jónas var á flótta þegar Jehóva bjargaði lífi hans með stórkostlegum hætti. Það minnti hann á hversu máttugur Jehóva er. (Jónas 1:15, 17) Þetta kenndi honum lexíu. Hann hætti að óttast verkefnið í Níníve og fór að einbeita sér að því að Jehóva gæti frelsað hann úr hvaða hættu sem var. (Lestu Jónas 2:6–9.) Þegar Jehóva gaf Jónasi annað tækifæri færðist hann ekki undan. Hann fór til Níníve og fólkið hlustaði á boðskap hans og bjargaðist. – Jónas 3:5.

16. Hvað getur hjálpað okkur þegar við erum hrædd? (Orðskviðirnir 29:25) (Sjá einnig myndir.)

16 Hvað lærum við af þessari frásögu? Við viljum aldrei vera svo hrædd við það sem fólk getur gert okkur að við óhlýðnumst Jehóva. (Lestu Orðskviðina 29:25.) Jónas hugleiddi allt sem hafði gerst og gat því lagt óttann til hliðar og haft hugann við það að Jehóva myndi hjálpa honum. Við getum líka sigrast á óttanum með því að hugleiða hvernig Jehóva hefur alltaf hjálpað okkur og stutt fram að þessu. Við getum líka hugsað um hvernig Jehóva hefur hjálpað bræðrum okkar og systrum sem reiða sig algerlega á hann í mjög erfiðum aðstæðum.a (Hebr. 13:6) Við skulum sýna góða dómgreind með því að treysta algerlega á Jehóva og hjálpa öðrum að gera það líka.

Samsett mynd: 1. Spámaðurinn Jónas gengur að borgarhliði Níníve. 2. Ungur bróðir gengur eftir gangi í skóla umkringdur hlutum sem Jehóva samþykkir ekki. Regnbogafánar eru hangandi í ganginum. Einn strákur áreitir annan strák.

Jónas lærði að treysta á Jehóva og gat þess vegna gert verkefni sínu góð skil. (Sjá 16. grein.)


HALTU ÁFRAM AÐ TILEINKA ÞÉR SJÓNARMIÐ JEHÓVA

17. Hvernig getum við þroskað með okkur dómgreind?

17 Eins og við höfum rætt hjálpar dómgreind okkur að takast á við flóknar aðstæður. Hvernig getum við þroskað með okkur dómgreind? Enginn getur hjálpað okkur betur en Jehóva. Þess vegna hefur hann gefið okkur orð sitt, Biblíuna, og heilagan anda. (Neh. 9:20; Sálm. 32:8) Hann gefur okkur ráð sem hjálpa okkur að taka skynsamlegar ákvarðanir og hafa stjórn á tilfinningum okkar. (Sálm. 119:97–101) Við þroskum með okkur dómgreind þegar við rannsökum Biblíuna vandlega og biðjum Jehóva um heilagan anda. Það hjálpar okkur að sjá hvernig Jehóva lítur á málin og bregðast við á þann hátt sem endurspeglar sjónarmið hans. – Orðskv. 21:11, neðanmáls.

18. Hvað ætlar þú að gera?

18 Höldum áfram að leita til Jehóva eftir dómgreind og meta hana að verðleikum. (Sálm. 14:2) Þá munum við aldrei yfirgefa „veg viskunnar“. (Orðskv. 21:16) Og ef við erum ákveðin í að beita dómgreind okkar öllum stundum og í öllum aðstæðum mun okkur „farnast vel“.

HVERNIG GETUM VIÐ SÝNT GÓÐA DÓMGREIND EINS OG …

  • Naaman?

  • Davíð og Abígail?

  • Jónas?

SÖNGUR 42 Bæn þjóns Guðs

a Hægt er að lesa ævisögu Georgiy Porchulyan á ensku í greinaröðinni „Ævisögur votta Jehóva“ á JW Library® eða jw.org.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila