Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 mars bls. 8–13
  • Treystum Drottni alheimsins

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Treystum Drottni alheimsins
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • SATAN KOM FRAM FYRIR JEHÓVA MEÐ ENGLUNUM
  • JEHÓVA SETUR MÖRKIN
  • JEHÓVA BINDUR ENDA Á PRÓFRAUNIR JOBS
  • JEHÓVA ELSKAR TRÚA ÞJÓNA SÍNA
  • TREYSTUM JEHÓVA ALGERLEGA
  • Jobsbók getur hjálpað okkur þegar við þjáumst
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
  • Job heiðraði nafn Jehóva
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2009
  • „Vona á Drottin“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2022
  • Þú átt hlut að mikilvægu deilumáli
    Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 mars bls. 8–13

11.–17. MAÍ 2026

SÖNGUR 7 Jehóva er styrkur okkar

Treystum Drottni alheimsins

„Jehóva, þú einn ert Hinn hæsti yfir allri jörðinni.“ – SÁLM. 83:18.

Í HNOTSKURN

Við styrkjum trú okkar á að Jehóva sé Drottinn alheimsins og að hann hjálpi okkur að takast á við erfiðleika núna og í framtíðinni.

1. Í hvaða hörmungum lenti Job?

JOB, þjónn Guðs til forna, var búinn að missa nánast allt – börnin sín, heilsuna og auðæfin. Þar að auki var búið að spilla mannorði hans. Og flest af því sem svokallaðir vinir hans sögðu dró hann niður. Jafnvel konan hans, sem hann elskaði, var svo miður sín að hún sagði við hann: „Formæltu Guði og farðu að deyja!“ (Job. 2:9; 15:4, 5; 19:1–3) Þessir hræðilegu atburðir hefðu getað grafið undan trausti Jobs á hinum sanna Guði. Hann hefði getað farið að efast um að Jehóva verndi þá sem elska hann og þjóna honum.

2, 3. Hvað gætum við farið að hugsa þegar við lendum í erfiðleikum og hvað lærum við af Jobsbók?

2 Stundum lendum við líka í erfiðleikum sem geta reynt verulega á traust okkar til Jehóva. Við lifum á ‚hættulegum og erfiðum tímum‘. (2. Tím. 3:1) Okkur gæti fundist yfirþyrmandi þegar erfiðleikar koma eins og á færibandi og hreinlega fallist hendur. Slík reynsla hefur fengið suma til að velta fyrir sér hvort Jehóva sé í raun annt um þá.

3 Misstu ekki kjarkinn þótt þér hafi einhvern tíma liðið þannig. Job komst að því að Jehóva yfirgefur aldrei þá sem eru honum trúir. Við getum líka lært að treysta algerlega á föður okkar á himnum. Til að gera það skulum við skoða hvernig Jobsbók fullvissar okkur um tvennt: Í fyrsta lagi er Jehóva einn Drottinn alheimsins. Og í öðru lagi getur almáttugur Guð okkar stýrt heimsatburðum til að tryggja að fyrirætlun hans verði að veruleika og til að vernda þjóna sína fyrir varanlegum skaða, andlegum og líkamlegum.

SATAN KOM FRAM FYRIR JEHÓVA MEÐ ENGLUNUM

4. Hvað gerðist þegar Jehóva og englarnir komu saman á himnum?

4 Dag einn komu „synir hins sanna Guðs“ fram fyrir Jehóva á himnum. Frásagan segir: „Satan var einnig á meðal þeirra.“ (Job 1:6) Þetta er í fyrsta sinn sem höfuðandstæðingur Jehóva er nefndur Satan, sem þýðir andstæðingur. Á þessum tíma var Satan ekki lengur trúfastur sonur Guðs. Hann hafði gert sig að óvini Jehóva og fjölskyldu hans bæði á himnum og á jörðinni. Í 1. Mósebók 3:15 gefur Jehóva til kynna að Satan tilheyrði ekki lengur fjölskyldu hans á himnum – ‚konunni‘ sem myndi fæða ‚afkomandann‘.

5. Hvað lærum við af samtali Satans og Jehóva?

5 Jehóva lét skrá þetta samtal á himnum í Biblíuna. Það sem Satan sagði afhjúpar hversu tilfinningalaus rógberi hann er. (Job. 1:9; samanber Opinberunarbókina 12:10.) Jehóva lét skrá þessa frásögu í Biblíuna og hún fullvissar okkur um að hann fari alltaf með vald sitt á réttan og sanngjarnan hátt. Hún sýnir okkur líka að Drottinn alheimsins setur því mörk hvað aðrir fá að gera og hvað ekki.

JEHÓVA SETUR MÖRKIN

6. Hvernig sýndi Jehóva að hann var með fulla stjórn á fundinum á himnum? (Jobsbók 1:7, 8)

6 Lestu Jobsbók 1:7, 8. Jehóva hóf samræðurnar með því að spyrja Satan: „Hefurðu tekið eftir þjóni mínum, Job?“ Með því að hefja máls á þessu sýndi Jehóva að hann var með fulla stjórn á samræðunum og vissi hvað Satan hafði í hyggju. Skoðum hvernig Jehóva notaði vald sitt í þágu Jobs.

7. Hvað gaf Satan í skyn varðandi hvatir manna til að þjóna Jehóva samkvæmt Jobsbók 1:10, 11?

7 Lestu Jobsbók 1:10, 11. Jehóva er almáttugur Drottinn alheimsins og hann notar vald sitt og mátt á þann hátt sem hann telur best. (Jer. 32:17; Dan. 4:35) En Satan hélt því fram að Jehóva færi ekki rétt með vald sitt. Í rauninni fullyrti hann að Guð múti mönnum, eins og Job, til að þjóna sér. Auk þess gaf Satan í skyn að þeir sem þjóna Jehóva geri það aðeins vegna þess að þeir fái eitthvað í staðinn. Hvernig brást Jehóva við?

8, 9. Hvaða skýru mörk setti Jehóva Satan og hvers vegna? (Jobsbók 1:12) (Sjá einnig mynd.)

8 Lestu Jobsbók 1:12. Jehóva gaf Djöflinum tækifæri til að sanna mál sitt en setti honum ákveðin mörk. Guð sagði skýrt og greinilega: „Sjálfan hann máttu ekki snerta!“ Jehóva setti því mörk í viðurvist allra englanna á fundinum hversu langt Satan mætti ganga. Satan hafði ekkert vald til að fara út fyrir þau mörk. Hann gat ekki gert Job meira en Jehóva leyfði honum. Og það sama á við nú á dögum. Jehóva beitti valdi sínu þannig að hann verndaði Job og líka eigin orðstír.

9 Satan mistókst hrapallega. Job hélt áfram að vera trúr föður sínum á himnum. (Job. 1:22) En andstæðingurinn var ekki búinn að gefast upp á að reyna Job.

Satan talar af óvirðingu við Jehóva fyrir framan englana á himnum.

Jehóva leyfði Satan að koma með ögrun sína frammi fyrir áhorfendum. (Sjá 8. og 9. grein.)


10. Hvers vegna leyfði Jehóva Satan að halda áfram að reyna Job? (Jobsbók 2:2–6)

10 Lestu Jobsbók 2:2–6. Því næst ákvað Satan að leggja enn meiri raunir á Job til að brjóta hann niður. Hann fullyrti að Job myndi formæla Guði til að bjarga eigin skinni. Jehóva leyfði Djöflinum að ráðast á þennan trúfasta mann til að útkljá málið. En Jehóva setti honum aftur mörk og sagði: „Þú mátt ekki verða honum að bana!“ Satan átti ekki um neitt annað að velja en að halda sig innan þeirra marka sem honum voru sett. Enn og aftur sjáum við að hinn hæsti var við stjórn. Satan gat ekki gengið nær Job en Jehóva leyfði honum í prófraununum.

JEHÓVA BINDUR ENDA Á PRÓFRAUNIR JOBS

11. Hvernig umbunaði Jehóva Job eftir að hann batt enda á prófraunirnar? (Jobsbók 42:10–13)

11 Lestu Jobsbók 42:10–13. Það var orðið ljóst að Job myndi ekki hvika frá trúnni og Jehóva batt enda á árásir Satans. Jehóva skarst í leikinn og stöðvaði þjáningarnar sem trúfastur þjónn hans gekk í gegnum. Enn og aftur gat andstæðingurinn ekki hindrað Jehóva. Satan fékk ekki leyfi til að halda áfram að ráðast með beinum hætti á þennan dýrmæta þjón Jehóva.

12. Nefndu dæmi um hvernig þeim hefur farnast sem treysta að Jehóva bjargi þeim.

12 Jehóva hefur notað mátt sinn til að hjálpa mörgum þjónum sínum á síðustu dögum. Til dæmis lifðu 230 vottar Jehóva af hina hræðilegu dauðagöngu úr fangabúðum nasista árið 1945. Þeir skrifuðu um lífsreynslu sína og sögðu hvernig Jehóva hefði bjargað þeim rétt eins og hann bjargaði Hebreunum þrem úr eldsofninum án þess að þeir svo mikið sem lyktuðu af reyk. Á sama hátt komu þessir vottar út úr hræðilegum prófraunum en trú þeirra var sterkari en nokkru sinni. Jehóva hafði gefið þeim kraft. Þeim fannst eins og þeim hefði verið bjargað úr ljónagryfju. Þaðan í frá voru þeir ákveðnir í að þjóna Jehóva um alla eilífð og álitu það mestu umbunina. – Samanber Daníel 3:27; 6:22.

13. Hverju geturðu treyst þegar þú glímir við vandamál? (Sjá einnig myndir.)

13 Okkur getur stundum liðið eins og okkur hafi verið kastað í ljónagryfju. (1. Pét. 5:8–10) Tilfinningin gæti verið eins og við höfum verið slegin niður. Við veltum því kannski fyrir okkur hvort prófraunirnar taki nokkurn tíma enda. Þá er gott að muna eftir Job. Við getum treyst því algerlega að Jehóva hafi mátt til að binda enda á prófraunir okkar, hvort sem hann gerir það núna eða í nýja heiminum. Hann leyfir þessum illa heimi ekki að standa stundinni lengur en hann hefur ákveðið!

Myndir: Þjónar Jehóva í mismunandi prófraunum. 1. Eldri bróðir fær huggun frá yngri bróður þar sem þeir syrgja við leiði í kirkjugarði. 2. Niðurbrotnir foreldrar sitja við sjúkrarúm ungrar dóttur sinnar. 3. Fangelsaður bróðir grefur með skóflu í steikjandi hita og vopnaður hermaður gætir hans.

Jehóva mun binda enda á prófraunir allra trúfastra þjóna sinna. (Sjá 13. grein.)


JEHÓVA ELSKAR TRÚA ÞJÓNA SÍNA

14, 15. Hvað þráir Jehóva að gera fyrir trúa þjóna sína og hvers vegna? (Jobsbók 14:15) (Sjá einnig mynd.)

14 Lestu Jobsbók 14:15. Föður okkar á himnum þykir einstaklega vænt um þá sem eru honum trúir. Þeir eru honum svo kærir að ef þeir deyja mun hann reisa þá upp til lífs aftur. Hann gerir sársaukann sem dauðinn veldur að engu. – Jes. 65:17.

15 Job hélt áfram að lifa í heimi sem Satan stjórnaði. En við sjáum í Biblíunni að Jehóva umbunaði Job með stórkostlegum hætti. Hann læknaði hann og gaf honum meira en hann hafði nokkru sinni átt. Og þetta var bara forsmekkur af því sem Jehóva mun gera fyrir hann í framtíðinni. Jehóva sýndi fram á að hann vill að trúfastir þjónar sínir séu fullkomlega hamingjusamir og njóti lífsins. Og Jehóva mun umbuna öllum sem eru honum trúfastir með eilífu lífi í paradís. (Opinb. 21:3, 4) Hann er Drottinn alheimsins og hann langar til að gera það. Þessi tilhugsun huggar okkur mjög mikið þegar við göngum í gegnum erfiðleika.

Job í fínum fötum, heilbrigður og hress með mörgum vinum sem eru í heimsókn hjá þeim hjónunum.

Job og eiginkona hans fengu ríkulega blessun frá Jehóva eftir prófraunirnar. (Sjá 14. og 15. grein.)


16. Hvaða frekari ástæðu höfum við til að treysta Jehóva, Drottni alheimsins?

16 Job dó að lokum eftir langa ævi. En Jehóva er Drottinn alheimsins. Hann er almáttugur og hefur jafnvel vald yfir dauðanum. (5. Mós. 32:39) Enginn getur komið í veg fyrir að hann reisi upp þá sem hann elskar. Og hann gerir það á þeim tíma sem hann kýs. – Rómv. 8:38, 39.

TREYSTUM JEHÓVA ALGERLEGA

17. Hvað sýnir að Satan hefur mistekist að þurrka þjóna Jehóva út?

17 Frásagan af Job gefur okkur fulla ástæðu til að treysta Jehóva algerlega. Við erum honum innilega þakklát fyrir að hafa ekki leyft Satan að þurrka þjóna Jehóva út. Við vitum að Jehóva er Drottinn alheims vegna þess að níu milljónir trúfastra þjóna hans eru lifandi vitnisburður um mátt hans. Aftur og aftur sjáum við að vopnin sem eru smíðuð gegn þjónum Jehóva reynast ekki sigursæl. (Jes. 54:17) Máttugum þjóðum og trúarstofnunum hefur ekki tekist að gera út af við þjóna Jehóva sem virðast varnarlausir. Og ekkert getur stoppað okkur í að segja fólki sannleikann um Jehóva og að afhjúpa Satan sem lygara og morðingja. Dauðinn getur ekki einu sinni stoppað okkur því að Jehóva mun reisa aftur til lífs alla þá sem deyja trúfastir. – Hós. 13:14.

18. Hvers vegna getum við horft örugg til framtíðarinnar?

18 Þegar við hugleiðum ævi Jobs styrkjum við trú okkar á að geta mætt framtíðinni örugg. Í þrengingunni miklu munu þjónar Guðs virðast varnarlausir og Satan og þeir sem styðja hann hafa yfirhöndina. En Jehóva verður með fulla stjórn og mun ekki leyfa Satan að valda neinum varanlegum skaða frekar en á dögum Jobs. Sá tími nálgast óðfluga þegar Jehóva bindur enda á þjáningarnar sem Satan hefur valdið mannkyninu. Djöfullinn og illu andarnir verða lokaðir í undirdjúpi í 1.000 ár. (Lúk. 8:31; Opinb. 20:1–3) Að lokum verða Satan og allir þeir sem fylgja honum endanlega úr sögunni. (Opinb. 20:10) Eins og Jehóva sagði fyrir verður höfuð Satans kramið. Honum verður algerlega tortímt í eitt skipti fyrir öll. – 1. Mós. 3:15; Rómv. 16:20.

19. Hvaða laun bíða þeirra sem treysta Jehóva algerlega? (Sjá einnig mynd.)

19 Innan tíðar kemur nýi heimurinn og við hlökkum innilega til þegar lífið verður fullkomið og við verðum öll hamingjusöm. Lífið verður jafnvel betra en við getum ímyndað okkur. Jehóva gefur okkur þetta loforð: „Ég geri alla hluti nýja.“ (Opinb. 21:5) Hvernig verður það? Í fyrsta sinn frá því í Edengarðinum munu Satan og illu andarnir ekki geta valdið fólki skaða eða leitt það út í illskuverk. Það verður dásamlegur léttir! Áhyggjurnar sem fylgja þessum heimi eiga þá aldrei framar eftir að halda vöku fyrir okkur. Þeir sem lifa af Harmagedón munu sjá kraftaverk þegar allir sem eru veikir fá lækningu meina sinna. Þar að auki fáum við loksins að sjá látna ástvini okkar aftur. Við getum þá lifað lífinu eins og faðir okkar á himnum ætlaði okkur upphaflega að gera.

Bræður og systur af fyrri myndunum njóta lífsins í paradís á jörð. Eldri bróðirinn er orðinn ungur og er í göngutúr með konunni sinni. Foreldrarnir eru á göngu með dóttur sinni sem er orðin heilbrigð. Bróðirinn sem var í fangelsi situr undir tré með ljónshvolp við hliðina á sér og les í Biblíunni.

Jehóva mun blessa ríkulega trúfasta einstaklinga sem þurftu að þola miklar þjáningar áður fyrr. (Sjá 19. grein.)


20. Hvað ertu ákveðinn í að gera?

20 Á þessum síðustu dögum eigum við líklega eftir að verða fyrir meiri erfiðleikum og við þurfum hugrekki til að standa trúföst. Verum því ákveðin í að halda áfram að treysta algerlega á Jehóva og styðja drottinvald hans. Sýnum að við elskum föður okkar á himnum og sönnum að Satan hafi rangt fyrir sér. Við getum horft örugg til framtíðarinnar undir stjórn Jehóva, Drottins alheimsins. Jehóva þráir að umbuna trúum þjónum sínum og hann á sannarlega eftir að gera það!

HVERNIG SANNAR FRÁSAGAN UM JOB AР…

  • Jehóva er hinn hæsti yfir alheiminum?

  • Jehóva þráir að umbuna trúföstum þjónum sínum?

  • þú getur treyst Jehóva, Drottni alheimsins, algerlega?

SÖNGUR 153 Gefðu mér kjark

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila