Manstu?
Hefurðu lesið nýjustu tölublöð Varðturnsins vandlega? Reyndu þá að svara eftirfarandi spurningum:
Hvers vegna lofum við Jehóva?
Við gerum það vegna þess að við berum djúpa virðingu fyrir honum og við elskum hann. Við lofum líka Jehóva vegna þess að við viljum að aðrir kynnist honum. – w25.01, bls. 3.
Hvernig getum við verið fús að fyrirgefa ef einhver særir okkur?
Við hunsum ekki tilfinningar okkar en ef við sleppum tökum á reiðinni getur það hjálpað okkur að láta biturleika ekki skaða okkur. – w25.02, bls. 15–16.
Hvers vegna er lærisveinninn Markús gott fordæmi fyrir unga bræður?
Markús var fús að taka að sér verkefni í þjónustu Jehóva. Þótt hann hafi trúlega verið sár og vonsvikinn í ákveðnum aðstæðum gafst hann ekki upp. Hann ræktaði vináttuna við Pál og aðra þroskaða þjóna Guðs. – w25.04, bls. 27.
Hvað átti Jesús við þegar hann sagði í bæn: „Ég hef kunngert þeim nafn þitt“? (Jóh. 17:26)
Lærisveinar hans þekktu þegar nafn Guðs. En Jesús hjálpaði þeim að kynnast persónunni að baki nafninu betur, eins og fyrirætlun Guðs, verkum og eiginleikum. – w25.05, bls. 20–21.
Hvað viðurkennum við ef við erum auðmjúk?
Við viðurkennum að það er ýmislegt sem við vitum ekki. Við vitum til dæmis ekki hvenær þessi heimsskipan tekur enda eða hvað Jehóva gerir þegar að því kemur. Og við vitum ekki heldur hvað gerist á morgun eða hversu vel Jehóva þekkir okkur. – w25.06, bls. 15–18.
Hvað getur hjálpað okkur að nýta okkur það sem kemur fram í grein eða fyrirlestri?
Við getum spurt okkur: Hvaða rök eru notuð til að sannfæra áheyrendur? Get ég fundið áhrifaríka líkingu til að nota þegar ég kenni öðrum? Hver gæti haft áhuga á þessu viðfangsefni? – w25.07, bls. 19.
Hvað getum við lært um fyrirgefningu Guðs af því hvernig hann kom fram við Davíð?
Jehóva fyrirgaf Davíð þegar hann iðraðist einlæglega þótt hann hefði framið alvarlega synd. (1. Kon. 9:4, 5) Þegar Guð fyrirgefur heldur hann ekki syndum okkar gegn okkur síðar meir. – w25.08, bls. 17.
Hvað geturðu gert ef biblíunemandi á erfitt með að meðtaka eitthvað í námsefninu?
Ef hann á erfitt með að meðtaka eitthvað sem þú hefur reynt að kenna honum frá Biblíunni skaltu leggja það til hliðar og ákveða að taka frekar upp þráðinn síðar. – w25.09, bls. 24.
Hvað á Biblían við þegar hún talar um ‚tál syndarinnar‘? (Hebr. 3:13)
Syndugt eðli okkar tælir okkur ekki bara til að gera það sem er rangt heldur getur fengið okkur til að hafa nagandi efasemdir, eins og um það hvort Jehóva elski okkur. – w25.10, p. 16.
Nefndu þrennt sem getur gert bænir þínar innihaldsríkari.
(1) Við getum íhugað eiginleika Jehóva. (2) Áður en við biðjum getum við hugsað um það sem við erum að takast á við, eins og þörfina á að fyrirgefa einhverjum. (3) Við getum tekið okkur tíma til að biðja. Það gefur okkur betra tækifæri til að tjá innstu hugsanir okkar. – w25.10, bls. 19–20.
Hvernig getum við hjálpað öldruðum?
Við getum heimsótt eða hringt í þá sem eru aldraðir. Við gætum fylgt þeim í læknisheimsóknir. Og við getum tekið þátt í mismunandi greinum boðunarinnar með þeim. – w25.11, bls. 6–7.
Hvers þarf að gæta til að brúðkaup sé Jehóva til heiðurs?
Hlýðið kröfum yfirvalda um löggildingu hjónabandsins. Sjáið til þess að andrúmsloftið við athöfnina og í veislunni endurspegli ávöxt anda Guðs. Gætið þess að klæðast af hógværð og forðist óbiblíulega siði. Hafið samráð og góð tjáskipti í undirbúningi brúðkaupsins. – w25.12, bls. 21–24.