NÁMSVERKEFNI
Styrkjum traust okkar á björgunarmátt Jehóva
Lestu 4. Mósebók 13:25–14:4 til að sjá hvernig Ísraelsmenn skorti traust á Jehóva.
Skoðaðu samhengið. Hvers vegna hefðu Ísraelsmenn átt að treysta því algerlega að Jehóva gæti bjargað þeim þegar þeir yfirgáfu Egyptaland? (Sálm. 78:12–16, 43–53) Hvað varð til þess að traust þeirra á Jehóva þvarr? (5. Mós. 1:26–28) Hvernig sýndu Jósúa og Kaleb að þeir treystu Jehóva? – 4. Mós. 14:6–9.
Kafaðu dýpra. Hvað hefðu Ísraelsmenn getað gert til að fá meira traust á Jehóva? (Sálm. 9:10; 22:4; 78:11) Hver eru tengslin milli þess að treysta Jehóva og virða hann? – 4. Mós. 14:11.
Komdu auga á lærdóminn. Spyrðu þig:
Við hvaða aðstæður gæti reynt á það hvort ég treysti Jehóva algerlega?
Hvernig get ég treyst Jehóva enn betur núna og í framtíðinni?
Um hvað get ég verið alveg viss þegar þrengingin mikla hefst? – Lúk. 21:25–28.