Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg kafli 20 bls. 94–97
  • Hann bað Guð um styrk þegar hann var veikburða

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hann bað Guð um styrk þegar hann var veikburða
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Kafaðu dýpra
  • Hugleiddu og heimfærðu
  • Horfðu á heildarmyndina
  • Skoðaðu meira
  • Treystum á Jehóva eins og Samson gerði
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2023
  • Jehóva gerði Samson sterkan
    Lærum af sögum Biblíunnar
  • Sterkasti maðurinn
    Biblíusögubókin mín
  • Heilagur andi veitir Samson kraft
    Biblíusögur í myndum
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg kafli 20 bls. 94–97

20 SAMSON

Hann bað Guð um styrk þegar hann var veikburða

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

SAMSON sá ekki neitt en hann heyrði vel hlátur og háðsglósur Filisteanna. Hvernig lenti hann í þessari aðstöðu? Hann hafði gert þau heimskulegu mistök að ljóstra upp leyndarmálinu að baki þeim styrk sem Guð hafði gefið honum. Hann var síðan handtekinn, blindaður, bundinn, fangelsaður og neyddur í þrælkunarvinnu. Núna gerðu Filistear grín að honum og eflaust líka að Jehóva Guði hans. Samson vissi að þetta var að mestu leyti sjálfum honum að kenna. Hann hafði alltaf verið hugrakkur maður en nú reyndi meira á það en nokkru sinni fyrr.

Samson hafði verið dómari í Ísrael í 20 ár. En hann var mjög ólíkur öðrum dómurum eins og Barak, Gídeon og Jefta. Þeir höfðu farið fyrir her í stríði gegn óvinum Guðs. En það gerði Samson ekki. Hann barðist aleinn! Jehóva hafði æ ofan í æ látið hann berjast við Filistea og hann hafði fellt marga einn síns liðs. Hvernig þá?

Þegar engill sagði foreldrum Samsonar að þau myndu eignast son lét hann fylgja að Jehóva vildi að hann yrði nasírei alla ævi. Nasírear áttu að láta hárið vaxa þannig að Samson lét aldrei klippa sig. Eins lengi og hann héldi þetta ákvæði myndi Jehóva veita honum óvenjulegt afl. Einu sinni sleit hann meira að segja í sundur ljón með berum höndum. Samson notaði kraftana sem Guð gaf honum til að berjast á móti Filisteum en þeir drottnuðu yfir Ísraelsmönnum sem höfðu snúið baki við Guði eina ferðina enn.

Einu sinni hafði Samson drepið marga Filistea. Ísraelsmenn urðu svo hræddir um að þeir myndu hefna sín að þeir bundu Samson og afhentu hann Filisteum. En Samson sleit af sér fjötrana eins og þeir væru línþræðir og drap síðan 1.000 Filistea með asnakjálka einan að vopni. Öðru sinni var Samson staddur í borginni Gasa. Óvinir hans lágu í launsátri og ætluðu að drepa hann þegar birti af degi. Hann fór hins vegar á fætur um miðnætti, greip um þungar hurðirnar á borgarhliðinu og báða dyrastafina og kippti þeim upp ásamt slagbrandinum. Hann lagði síðan allt saman á herðarnar og bar það um 60 kílómetra leið upp á fjallstind nálægt Hebron.

Aftur og aftur reyndist Samson ósigrandi. Það blasti við Filisteum að guðir þeirra, svo sem Dagón, voru máttlausir gagnvart trúum þjóni Jehóva. En að lokum tókst Filisteum að finna vopn sem beit. Vopnið hét Dalíla.

Samson varð ástfanginn af henni en hún var undirförul og sveik hann. Filistear mútuðu henni til að komast að því af hverju Samson væri svona gríðarlega sterkur. Hún nauðaði endalaust í honum þangað til hann þoldi ekki lengur við og sagði henni leyndarmálið. Hann sagði henni að ef hárið yrði rakað af honum yrði hann ekkert sterkari en venjulegur maður. Dalíla beið þangað til hann var sofnaður og lét þá skera af honum flétturnar. Þá missti Samson styrkinn því að „Jehóva hafði yfirgefið hann“. Filistear komu æðandi inn, gripu hann og blinduðu.

Samson var látinn púla við að snúa þungum kvarnarsteini til að mala korn fyrir óvini sína. Filistear voru himinlifandi. Óvinurinn mikli var nú bara aumur þræll í koparfjötrum. Þeir undirbjuggu mikla hátíð til að heiðra Dagón guð sinn. Þegar dagurinn rann upp flykktust þúsundir manna inn í stórt musteri. Auk þeirra sem voru inni í sjálfu musterinu voru um 3.000 manns uppi á þakinu. Filistearnir ákváðu að láta sækja Samson sér til skemmtunar og hann var látinn standa á milli tveggja súlna. Þegar hér var komið sögu var hann aftur kominn með mikið hár.

Mistök Samsonar kostuðu hann frelsið en hann gerði það sem hann gat til að bæta fyrir það.

Samson iðraðist innilega fyrri mistaka. Hann lagði hendurnar á súlurnar og bað Jehóva að gefa sér aftur þann styrk sem hann hafði haft: „Jehóva, mundu eftir mér og veittu mér styrk í þetta eina sinn.“ Síðan hrópaði hann: „Láttu mig deyja með Filisteum!“ Hann spennir hvern einasta vöðva og þrýstir á súlurnar. Áður en Filistear ná að stöðva hann velta þær um koll og musterið hrynur til gunna. Þetta var síðasta verk Samsonar. Í einni svipan varð hann fleiri óvinum Guðs að bana en hann hafði drepið alla ævi.

Samson stendur milli tveggja súlna og fer með bæn meðan fjöldinn skemmtir sér og gerir grín að honum.

Páll postuli talar öldum síðar um trúarhetjur fortíðar og minnist þá meðal annars á Samson. Þegar hann nefnir þá sem „voru veikburða en urðu sterkir“ var þessi hugrakki dómari eflaust einn þeirra sem hann hafði í huga. – Hebr. 11:32–34.

Lestu frásögn Biblíunnar:

  • Dómarabókin 13:1–16:31

Til umræðu:

Hvernig sýndi Samson hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Hvers vegna gat Samson verið nasírei áfram þótt hann snerti lík? (w05 15.1. 30 gr. 1–31 gr. 1 – wcgr)

  2. 2. Hvað sýnir að Samson þurfti heilagan anda Guðs til að bera hurðir og dyrastafi borgarhliðsins frá Gasa til Hebron? (w05 1.1. 13 gr. 7, 8) A

    Samson gengur upp grýtta fjallshlíð með dyr og dyrastafi borgarhliðs á herðunum. Kort í bakgrunni sýnir vegalengd og hækkun frá Gasa til Hebron.

    Mynd A

  3. 3. Hvað bendir til þess að Dalíla gæti hafa verið ísraelsk? (w05 15.3. 28 gr. 3 – wcgr)

  4. 4. Af hverju bað Samson Jehóva aðeins um að fá að hefna sín fyrir ‚annað auga sitt‘? (Dóm. 16:28; it „Samson“ gr. 10 – wcgr)

Hugleiddu og heimfærðu

  • Samson gaf Dalílu trúnaðarupplýsingar þegar hún þrýsti á hann. Hvað geta öldungar og eiginkonur þeirra lært af því? B

    Samsett mynd: 1. Þrír öldungar ræða við systur. 2. Einn af öldungunum spjallar síðan við konuna sína heima yfir tebolla.

    Mynd B

  • Samson urðu á alvarleg mistök en Jehóva lét hann samt vinna mikið afrek síðar meir. Hvernig getur hann verið okkur hvatning til að gefast ekki upp þótt við gerum alvarleg mistök?

  • Hvernig getur þú sýnt hugrekki eins og Samson?

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Um hvað langar þig að spyrja Samson þegar hann rís upp?

Skoðaðu meira

Sýndu börnunum fram á hvað gerði Samson einn af sterkustu mönnum sögunnar.

„Heilagur andi veitir Samson kraft“ (ijwis grein 14)

Hvað annað getum við lært af frásögunni af Samson?

„Treystum á Jehóva eins og Samson gerði“ (w23.09 2–7)

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila