Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg kafli 21 bls. 98–101
  • Hugrakkur drengur sem flutti boðskap Jehóva

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hugrakkur drengur sem flutti boðskap Jehóva
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Kafaðu dýpra
  • Hugleiddu og heimfærðu
  • Horfðu á heildarmyndina
  • Skoðaðu meira
  • Samúel hélt áfram að breyta rétt
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2008
  • Samúel gerði það sem var rétt
    Kenndu börnunum
  • Jehóva talar við Samúel
    Lærum af sögum Biblíunnar
  • Lítill drengur þjónar Guði
    Biblíusögubókin mín
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg kafli 21 bls. 98–101

21 SAMÚEL

Hugrakkur drengur sem flutti boðskap Jehóva

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

SAMÚEL var að vissu leyti í svipaðri aðstöðu og dóttir Jefta og Samson. Þau áttu það öll sameiginlegt að foreldrar þeirra gerðu ákveðna hluti sem höfðu djúpstæð áhrif á líf þeirra. Samúel var helgaður heilagri þjónustu við Jehóva alla ævi eins og dóttir Jefta. (1. Sam. 2:11) Hann var nasírei allt frá fæðingu líkt og Samson. (Dóm. 13:7) Og eins og þau bæði þurfti Samúel að vera hugrakkur.

Samúel var kannski þriggja ára eða aðeins eldri þegar Hanna móðir hans fór með hann til að þjóna við tjaldbúðina í Síló eins og hún hafði lofað Jehóva. Hún heimsótti þó son sinn á hverju ári og færði honum ný föt. Samúel ólst upp í tjaldbúðinni hjá Elí æðstapresti sem þá var orðinn aldraður. Vera má að sumar af konunum sem þjónuðu við tjaldbúðina hafi hjálpað til við að annast strákinn.

En ýmislegt ófagurt átti sér stað við tjaldbúðina og Elí átti nokkra sök á því. Synir hans tveir, Hofní og Pínehas, voru vondir menn. Þeir stunduðu kynferðislegt siðleysi með sumum kvennanna sem þjónuðu við heilaga tjaldbúð Jehóva. Þeir vanvirtu líka hreina tilbeiðslu á ýmsa aðra vegu. Þegar fólk kom með fórnargjafir sínar í tjaldbúðina virðast Hofní og Pínehas hafa skipað aðstoðarmönnum prestanna að ræna því besta af fórnunum í stað þess að gefa Jehóva það. Elí vissi af því sem synir hans gerðu en hann var allt of linur við þá – og þeir hunsuðu hann. Þrátt fyrir vonskuverkin sem viðgengust þarna stóð Samúel sig vel og öllum þótti sífellt vænna um hann, bæði Guði og mönnum. Þegar að því kom að Jehóva tók á málunum í Síló valdi hann hinn unga Samúel sem talsmann sinn.

Nótt eina vaknaði Samúel við það að kallað var á hann. Það var Jehóva. En Samúel hélt að það væri Elí, sem var orðinn gamall og blindur, svo að hann hljóp til hans og spurði hvað hann vildi. Elí sendi Samúel aftur í rúmið því að hann hafði ekki kallað á hann. Þetta gerðist tvisvar í viðbót. Að lokum áttaði Elí sig á hvað var á seyði og sagði Samúel að fara aftur í rúmið. Ef Jehóva kallaði einu sinni enn átti Samúel að svara: „Talaðu, Jehóva, því að þjónn þinn hlustar.“ Samúel gerði eins og honum var sagt.

Jehóva kallaði nú í fjórða sinn: „Samúel, Samúel!“ Drengurinn svaraði: „Talaðu því að þjónn þinn hlustar.“ Þá talaði Jehóva við hann. Hann sagðist ætla að taka á málunum í Síló og að Elí yrði refsað fyrir að taka ekki syni sína föstum tökum. Jehóva hafði fellt dóm yfir Elí og ætt hans, þar á meðal sonum hans. Og nú átti Samúel að segja Elí þetta!

Samúel fór aftur í rúmið og lá þar til morguns. Þá fór hann á fætur og opnaði dyrnar að forgarði tjaldbúðarinnar. Skiljanlega var hann „smeykur við að segja Elí frá sýninni“. Elí kallaði hann til sín og spurði hvað Guð hefði sagt honum. Kannski hefur hann skynjað ótta Samúels og bætti því við: „Ekki leyna því fyrir mér.“

Þótt Samúel væri ungur að árum þurfti hann að tilkynna Elí æðstapresti dóm sem Jehóva opinberaði honum.

Þetta hefur ekki verið auðvelt fyrir Samúel. Kannski virti hann Elí eins og hann væri afi hans. Elí var auk þess æðstiprestur og andlegur leiðtogi þjóðarinnar. Samúel flutti honum samt boðskap Jehóva. ‚Hann sagði honum allt,‘ segir í Biblíunni. Elí komst þannig að raun um að ógæfa kæmi bráðum yfir hann. Tók hann syni sína loksins á beinið? Það er ekkert sem bendir til þess.

Samúel, ungur að árum, stendur við dyrnar að forgarði tjaldbúðarinnar og talar við Elí æðstaprest.

Jehóva launaði Samúel ríkulega fyrir hugrekkið. „Jehóva var með honum,“ segir í Biblíunni. Auk þess var Samúel nú orðinn spámaður hans og hann „lét allt sem [Samúel] sagði ná fram að ganga“. Allt sem Samúel hafði sagt um Elí og syni hans rættist að lokum. Ísraelsmenn fóru nú að leita leiðsagnar hjá Samúel og hann þjónaði Jehóva trúfastur áratugum saman sem spámaður hans og dómari. Hann hafði lært á unga aldri að vera hugrakkur með hjálp Jehóva og hann hélt því áfram til æviloka.

Lestu frásögn Biblíunnar:

  • 1. Samúelsbók 1:9–11, 24–28; 2:12–36; 3:1–21; 25:1

  • Hebreabréfið 11:32

Til umræðu:

Hvernig sýndi Samúel hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Lýstu Síló þar sem tjaldbúð Jehóva stóð. (brw921101 8–9) A

    Todd Bolen/BiblePlaces.com

    Mynd A: Svæðið þar sem Síló stóð.

  2. 2. Hvernig var lífið hjá Samúel við tjaldbúðina? (ia bls. 60–62 gr. 9–13 – wcgr) B

    Samúel opnar dyrnar að forgarði tjaldbúðarinnar.

    Mynd B

  3. 3. Í hvaða skilningi hafði Samúel „ekki enn kynnst Jehóva“ þegar hann var ungur? (1. Sam. 3:7; w02 1.12. 19 gr. 5, 6)

  4. 4. Hvernig rættist spádómurinn um ætt Elí? (it „Elí, I“ gr. 5–7 – wcgr)

Hugleiddu og heimfærðu

  • Hvað getur ungt fólk lært af Samúel um gildi þess að vera …

    • hlýðinn? (1. Sam. 3:5)

    • kurteis og sýna virðingu? (1. Sam. 3:6–10)

    • áreiðanlegur? (1. Sam. 3:15) C

      Bróðir á unglingsaldri gerir skrá yfir ræstivörur í ríkissalnum. Í anddyrinu er bróðir að raða ritum og systir að ryksuga.

      Mynd C

  • Hvenær gætu börn og unglingar þurft að þora að tjá sig og hvernig geta þau tekið sér Samúel til fyrirmyndar?

  • Á hvaða fleiri vegu geturðu sýnt hugrekki eins og Samúel?

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Um hvað langar þig að spyrja Samúel þegar hann rís upp?

Skoðaðu meira

Við hvaða aðstæður getur bæði ungt fólk og fullorðnir þurft hugrekki til að gera það sem er rétt?

Lærum af þeim – Samúel (4:53)

Samúel gerði það sem var rétt þó að aðrir sýndu Guði virðingarleysi.

„Samúel velur að þjóna Jehóva“ (ijwis grein 15 – wcgr)

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila