Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • g86 8.1. bls. 7–9
  • Hugsjón hafnað

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hugsjón hafnað
  • Vaknið! – 1986
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Rödd sem andmælti
  • Hugsjónin bregst
    Vaknið! – 1986
  • Hugsjón friðarins
    Vaknið! – 1986
  • Hvað táknar skarlatsrauða dýrið í 17. kafla Opinberunarbókarinnar?
    Biblíuspurningar og svör
Vaknið! – 1986
g86 8.1. bls. 7–9

Hugsjón hafnað

„ÞJÓÐABANDALAGIÐ er til, en hvað mun verða úr því? Verður það ósvikið eða blekking?“ Breski lávarðurinn Robert Cecil varpaði fram þessari spurningu, en hann var formaður framkvæmdanefndar Þjóðabandalagsins. Já, þótt mörgum væri talin trú um að Þjóðabandalagið myndi tryggja friðinn létu ýmsir í ljós alvarlegar efasemdir.

Hinn kunni enski rithöfundur Jerome K. Jerome skrifaði: „Þjóðabandalagið er komið andvana í heiminn. . . . Feður þess . . . bjóða okkur til skírnarinnar. . . . Þeir vonuðust eftir nýjum Messíasi. Þeir virðast hafa talið sjálfum sér trú um að með því að hrópa og kalla nógu mikið og kasta sér í duftið geti þeir vakið það frá dauðum.“ Lundúnablaðið Standard sagði: „Þjóðabandalag, sem enginn trúir á en allir þjóna með vörunum, er hreint svikatál, meira að segja mjög hættulegt svikatál.“

Rödd sem andmælti

Við höfum hins vegar séð hvernig klerkastéttin tók Þjóðabandalaginu fagnandi. En mitt í öllum fagnaðarlátum kirkjufélaganna birti tímaritið Varðturninn (í maí 1920 á ensku) skýra fordæmingu á Þjóðabandalaginu með þessum orðum: „Því hefur verið fagnað út um allar jarðir sem hinum mikla frelsara mannkynsins . . . en það hlýtur óhjákvæmilega að bregðast.“

Hvers vegna var Þjóðabandalagið dæmt til að bregðast? Var það eingöngu af pólitískum orsökum, vegna þess að Bandaríkin gengu ekki í það? Nei, vottar Jehóva sáu Þjóðabandalagið og allt deilumálið tengt því sem aðeins minniháttar atburð í langtum stærri sjónleik — hinni miklu baráttu milli alvalds Jehóva og frumkvöðuls uppreisnarinnar, Satans. (Jobsbók 1. og 2. kafli; Jóhannes 8:44) Þjóðabandalagið, stofnað af stjórnmálamönnum og prísað af klerkunum, var því í reyndinni blekkingarlausn Satans til að beina athygli heimsins burt frá einu raunverulegu lausninni á meinum mannkynsins — Guðsríki í höndum Krists. Séð frá bæjardyrum Guðs var Þjóðabandalagið svo sannarlega „svikatál“ og „blekking.“ — Samanber Sálm 2.

Þess vegna var haldið áfram í hinu áðurnefnda tölublaði Varðturnsins: „Jafnvel þótt Bandaríkin hefðu viðurkennt Þjóðabandalagið og gerst aðilar að því með öðrum þjóðum heims, hefði það ekki getað náð yfirlýstum tilgangi sínum, af þeirri ástæðu að það er gert af mönnum, upphugsað af eigingjörnum mönnum; og enn fremur vegna þess að það er andstætt vegi Guðs.“

Enn fastar var að orði kveðið á móti votta Jehóva í Cedar Point í Ohio þann 10. september 1922. Þar sögðu þeir í opinberri yfirlýsingu:

„Að allar alþjóðaráðstefnur og allir samningar og sáttmálar, þar á meðal sáttmáli Þjóðabandalagsins og allir áþekkir sáttmálar, hljóti að bregðast því að Guð hefur kveðið svo á.“

Þeir fordæmdu einnig stuðning klerkastéttarinnar við Þjóðabandalagið og sögðu „að þeir [klerkarnir] afneituðu Drottni og ríki hans enn fremur og sýndu sviksemi sína með því að sameinast skipulagi Satans og tilkynna heiminum djarflega að Þjóðabandalagið sé pólitísk ímynd Guðsríkis á jörð, en sú yfirlýsing þeirra lýsir megnri lítilsvirðingu á orðum Jesú og postulanna.“

Hvers vegna tóku vottarnir svona harða afstöðu gegn Þjóðabandalaginu svona snemma? Vegna þess að þeir höfðu skilið af námi sínu í Biblíunni „að árið 1914 markaði lögfestan endi hins gamla heims og að Kristur, hinn lögmæti konungur, tók sér þá völd sem konungur.

Að Drottin Jesús Kristur er nú nærverandi, ósýnilegur manninnum, og vinnur að því verki að setja ríki sitt á stofn, ríki sem hann kenndi fylgjendum sínum að biðja um.“ — Matteus 6:9, 10.

Vottarnir sáu því Þjóðabandalagið sem það er menn höfðu valið sér í stað ríkis Guðs. Sem slíkt hlaut það að bregðast. (Jeremía 10:23; Daníel 2:44) Hvernig farnaðist Þjóðabandalagi Woodrows Wilsons? Til svars við því skulum við rifja upp atburði sem áttu sér stað frá 1920 til 1946.

[Myndir á blaðsíðu 8]

Allur heimurinn batt vonir sínar við Þjóðabandalagið í Genf í Sviss.

[Rétthafar]

Þjóðskjalasafn Bandaríkjanna

Sameinuðu þjóðirnar

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila